Morgunblaðið - 24.11.1974, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÖVEMBER 1974
® 22*0*22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
V______________/
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
Ð 21190 21188
LOFTLEIÐIR
/^BÍLALEIGAN felEYSIR CAR RENTAL «24460 Æ 28810 piorvjeiEn Útvarp og stereo kasettutækí
BÍLALEIGA
Car Rental
SEIMDUM
41660-42902
Fiskiskip
Skipasalan
og skipaleigan
Vesturgötu 3,
sími 13339.
Talið við okkur um kaup
og sölu fiskiskipa.
Multiminor
Amper tangir
Mælitæki í miklu úrvali
Þykktarmál
Startkaplar
Loftclælur
Krosslyklar
Fæðudælur og vatns-
dælur fyrir Austin Gipsy
Verkstæðis tékkar
MV búðin
Suðurlandsbraut 12,
sími 85052.
ll é 'é 'H éí* fMt % M MU* *.« m-m*
Sr. BOLLI
GÚSTAFSS0N
í Laufási:
Trúum við því tilfinninga-
hjali, að öll séum við börn
Guðs? Á það heiti við um
grannana, sem rifust af heift í
gær og láta róginn ganga f dag,
eða um þá, sem afskræma jörð-
ina með helsprengjum? Eru
þeir guðsbörn? Hvað um þá,
sem ekki þola svört systkin f
návist sinni og skipa þeim að
halda sig f skugganum, ætla
þeim að lifa f öðrum heimi eins
og huldufólki þjóðsögunnar?
Er þetta ekki einmitt stækkuð
og alvarlegri mynd af þvf, sem
getur gerst í barnaherberginu?
Þar er stundum barist af heift,
brúðurnar tættar sundur, hjól-
in rifin undan bílunum, klipið,
barið, rifið f hárið og hrópuð
særandi orð. Sá sterki útskúfar
þeim veika úr samfélaginu, ef
sá síðarnefndi beygir sig ekki
undir vilja hans. Minnumst við
þess ekki öll að hafa verið
órétti beitt einhvern tfma?
Adolf Hitler sagði eitt sinn:
„Stríð hefur verið gert að
dularfullum vfsindum og um-
hjúpað einhverjum þungbún-
um hátíðleik. En strfð er hið
eðlilegasta og hversdagslegasta
undir sólinni. Strfð er eilfft,
strfð er alls staðar. Það á ekkert
upphaf, og þvf lýkur aldrei með
friði. Strfð er líf. Sérhver bar-
átta er strfð.“ En Hitler var
vitfirrtur, segjum við. Er samt
ekki eitthvað f þessum
óhugnanlegu orðum hans, sem
kemur óþægilega við okkur og
við eigum óhægt með að virða
að vettugi? Hitler fann ekki
upp strfð, og Hvorki Alexander
mikli né Napóleon keisari. Það
bendir flest til þess að menn-
irnir hafi gjört strfðið eilíft hér
á jörðinni, að eldur ófriðarins
muni aldrei slökkna þar, ef
jörðin fær að standa að eilífu.
Kristur sagði, að svo myndi
ekki verða og hernaðarvísindin
hafa sannað, að þau orð hans
geta ræst hvenær sem er.
Ófriðurinn blasir hvarvetna við
okkur. Strfð er jafnvel háð
innan trúfélaga, sem boða
bróðurkærleika. Togstreita um
embætti, óeining um búnað
helgidómanna ýfingar út af hé-
góma. Svo spretta alvarlegar
deilur út af ágreiningi um guð-
fræði, sem geta leitt til heiftúð-
ugs haturs. Eru það börn
almáttugs Guðs, sem þannig
haga sér. Já, það eru guðsbörn.
Það vonda, sem þau ekki vilja,
það gjöra þau, vegna þess að
það leika myrk öfl lausum hala
hér f heimi þeirra og vegna
þess að syndin lifir þar góðu
lífi. „Undirrót allra synda er
eigingirni mannsins, þegar
hann elskar sjálfan sig meira
en Guð og náungann". Þessar
setningar eru teknar úr náms-
Börn
Guðs
kveri í kristnum fræðum. III-
deilur og strfð standa f órofa
tengslum við erfðasyndina og
eina réttláta strfðið, sem við
heyjum, er gegn henni, gegn
eigingirni okkar. Það stríð
getum við ekki leitt til lykta af
sjálfsdáðum, þrátt fyrir sterka
trú á vaxtarmegn mannlegs
þroska. Því aðeins getum við
sigrað í þeirri viðureign, að við
köllum Krist okkur til hjálpar,
að við beygjum kné okkar f
auðmýkt og segjum: Guð vertu
oss syndugum lfknsamur. —
Hvf nú að vera að fitja upp á
þessum óþægindum við frið-
sama borgara í sunnudagsblaði.
Eigum við ekki að láta þá um
að strfða þar suðrf Miðjarðar-
hafsbotnum eins og kunnasta
ófriðarsvæði jarðarinnar er
kallað um þessar mundir. Hér
er allt svo friðsælt og fast í
sömu gömlu og góðu skorðun-
um. Ef menn fremja ofbeldis-
verk á Islandi, þá er það ekki
þeim að kenna, heldur brenni-
víninu, sem þeim varð á að
setja ofan f sig. Þessi er hin
voveiflegasta þjóðarblekking,
sem ógnar sjálfstæði og heill
þjóðarinnar fremur en allt
annað. Kristið siðgæði er á
góðri leið með að drukkna f
áfengismóðu og kristin trú f
afslætti fjálglegrar frjáls-
lyndisþoku, sem á ekkert skylt
við frelsi. Menn leggja sig fram
um að framreiða kenningar
kristindómsins á þann hátt, að
sem best láti f eyrum, svo hugð-
næmur helgiblær fjúki nú ekki
út f veður og vind. Sú ræða
verður að vera firrt alvarlegum
kröfum eða öðrum óþægindum,
sem kynnu að leíða til þess að
kirkjurnar tæmdust með öllu.
Þótt gengisfellingum sé beitt
til þess að koma efnahagslifi á
réttan kjöl, þá er fráleitt að
fella gengi kristinnar siðgæðis-
kröfu, gengi þeirrar lifandi
trúar, er getur af sér ábyrga
breytni og helgun. Það er sú
trú, sem hefur kærleikann og
eilífðina að markmiði; eilíft lff
í samfélagi Jesú Krists. Ekkert
skortir heiminn jafn tilfinnan-
lega og það fórnfúsa kærleiks-
afl, sem Jesús Kristur hefur
einn opinberað mönnunum í
fullkominni mynd. Við fjar-
lægjumst ekki syndina með þvf
að halda að okkur höndum,
með því að forðast allar hættur,
eða með því að gleyma okkur f
tilgangslausum boltaleik við
dauða-beyginn. Eina vonin til
þess að sigra f baráttunni við
syndina er sú að gróðursetja
kærleika Krists f hjartað, fórn-
andi kærleika til allrar sköp-
unar Guðs. Til þess að svo verði
þurfum við að kynnast Kristi
og það getum við ekki án
heilagrar ritningar og helgra
sakramenta. Biðjum Krist að
gefa okkur helgan anda sinn til
trúar og lífs.
Frá Bridgefélagi Akureyrar.
Nú er lokið tveimur umferð-
um af níu í hinu svokallaða
Akureyrarmóti, sem er sveita-
keppni. Alls 10 sveitir taka þátt
í keppninni að þessu sinni en
það er nokkru færra en síðasta
ár en þá var metþátttaka, 14
sveitir.
Staðan eftir tvær umferðir er
þessi:
Sveit Sveinbjörns Sigurðs-
sonar 40 — Alfreðs Pálssonar
40 — Páls Pálssonar 29 —
Grettis Frímannssonar 27 —
Gunnars Berg 27 — Sigur-
björns Bjarnasonar 17.
A þriðjudaginn kemur spila
efstu sveitirnar saman og sveit-
irnar, sem eru í þriðja og fjórða
sæti.
XXX
Að fjórum umferðum loknum
i Aðalsveitakeppni Bridge-
félags Reykjavíkur hefur sveit
Þóris Sigurðssonar tekið foryst-
una, en hún fékk öll stigin á
móti sveit Gylfa í síðustu um-
ferð. Staða efstu sveitanna er
nú þannig:
Sveit stig.
1. Þóris Sigurðssonar 69
2. Þórarins Sigþórssonar 60
3. JónsP. Sigurjónssonar 57
4. Helga Sigurðssonar 55
5. Hermanns Lárussonar 50
6. GylfaBaldurssonar 47
7. Jóns Hjaltasonar 45
8. Esterar Jakobsdóttur 37
Sveit Jóns P. á ólokið leik við
sveit Hjalta Elíassonar, en
næsta umferð verður spiluð i
Domus Medica n.k. miðviku-
dagskvöld kl. 20.
XXX
Frá bridgefélagi Selfoss.
Vetrarstarf félagsins hófst
með aðalfundi 26. september sl.
Stjórn félagsins skipa: Formað-
ur Símon Ingi Gunnarsson,
meðstjórnendur Þórður
Sigurðsson og Már Ingólfsson.
Varamenn Sigurður Sighvats-
son og Páll Árnason.
Nú stendur yfir haustmót
með þátttöku 8 sveita og er
staðan eftir fjórar umferðir
þannig
Sveit stig.
KristmannsGuðmundssonar 70
Sigfúsar Þórðarsonar 61
Höskuldar Siggeirssonar 55
Þórðar Guðmundssonar 48
Símonar Inga Gunnarssonar 35
Arnar Vigfússonar 29
FriðriksLarsen 13
Sæmundur Friðrikssonar 9
XXX
Bridgefélag kvenna:
Eftir 6 umferðir í „baromet-
er“ tvímenningskeppni félags-
ins eru eftirtaldar konur efst-
ar:
A-riðill: stig
Halla Bergþórsdóttir —
Kristjana
Steingrímsdóttir 445
Guðrún Bergsdóttir —
Sigriður Pálsdóttir 428
GuðríðurGuðmundsdóttir —
Kristín Þórðardóttir 423
Sigríður Bjarnadóttir —
Petrina Færseth 420
Guðmundía Pálsdóttir —
Sigríður Ingibergsd. 419
B-riðill: stig
Anna Guðnadóttir —
Þuriður Möller 448
Margrét Ásgeirsdóttir —
Kristín Kristjánsdóttir 444
Guðrún Einarsdóttir —
Guðrún Halldórsson 441
Sigríður Jónsdóttir —
Ingibjörg Þorsteinsd. 437
Guðrún Bjartmarz —
Sólveig Bjartmarz 423
Meðalskor: 384 stig.
A.G. R.
Brezki vinsældalistinn
Þetta er brezki vinsældarlistinn í dag:
1(1) Kitler queen: Queen
2 ( 2) Gonna make you a star: David Essex
3 ( 4) (hey, there) Lonely girl: Eddiel Holman
4 (12) You're the first, the last, my everything: Barry White
5 ( 6) Pepper ox: Peppers
6 ( 3) Everything I own: Ken Boothe
7 ( 5) Down on the beach tonight: Drifters
8 (21) Magic: Pilot
9 ( 7) Let's get together again: Glitter and
10 (10) All of me loves all of you: Bay city rollers.
Bandaríski vinsældalistinn
Bsndarlski vinsældalistinn er á þessa leið þessa vikuna:
1 ( 2) You ain't seen nothing yet: Bacman-turner overdrive
2 ( 4) My melody of Love: Bobby Vinton
3 ( 8) I can help: Billy Swan
4 ( 9) Longfellow serenade: Neil Diamond
5 ( 5) Back home again: John Denver
6 (11) When will I see you again: Three Degrees
7 ( 1) Whatever gets you through: John Lennon
the night
8 (11) Kung fu fighting: Carl Douglas
9 (10) Everlasting love: Carl Carlton
10(7) Life is a roc:
(but the radio rolled me) Reunion