Morgunblaðið - 29.11.1974, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. NÖVEMBER 1974
43
IÞROITAFRITTIR MORGIIIVRLAOSIIIIS
Aftur eíns marks sigur hjá Hollandi
AFTUR sigruðu hollenzku stúlkurnar þær ís-
lenzku með eins marks mun í landsleik í hand-
knattleik sem fram fór í íþróttahúsi Hafnar-
fjarðar í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu
9—8 fyrir Holland, eftir að ísland hafði haft
eitt mark yfir í hálfleik: 4—3. Raunar mætti
næstum kalla leik þennan vítakastakeppni, þar
sem hvorki fleiri né færri en 9 mörk af 17 voru
skoruð úr vítaköstum og 6 af 7 mörkum í
fyrri hálfleik komu þannig tií.
Leikurinn f Hafnarfirði í gær-
kvöldi var töluvert frábrugðinn
leiknum í Laugardalshöllinni í
fyrrakvöld. Bæði liðin höfðu sýni-
lega notað gærdaginn til þess að
finna svör við helztu sóknarað-
gerðum mótherjans og íslenzku
stúlkunum tókst nú algjörlega að
hefta leikkerfi hollenzku stúlkn-
anna og léku þær yfirleitt ágæta
vörn i leiknum. Gegnumbrotin
voru stöðvuð í tíma, oftast
nær, en i hollenzka liðinu
virtist ekki vera ein einasta
stúlka sem gat skotið að utan. í
íslenzka liðinu var ein slik í
þessum leik, Sigrún Guðmunds-
dóttir, en hollenzku stúlkurnar
gættu hennar mjög vel, og tæki-
færin sem Sigrún fékk til að at-
hafna sig voru teljandi.
Þegar á heildina er litið var
þetta ekki eins skemmtilegur
leikur og í fyrrakvöld. Sannkall-
aður gönguhandknattleikur frá
upphafi til enda, og allar sóknar-
aðgerðir beggja liðanna mjög
fálmkenndar og tilviljunum háð-
ar. Varnirnar voru hins vegar
betri, sem fyrr segir, og mark-
varzlan hjá Hollendingunum
ágæt. Þannig varði t.d. hollenzki
markvörðurinn vítakast frá Sig-
rúnu. Gyða Úlfarsdóttir í marki
Islendinganna varði raunar
einnig vítakast, en yfirleitt voru
íslenzku stúlkurnar ekki eins
góðar í markinu, og sum mörkin
sem þær fengu á sig voru af ódýr-
ustu gerð.
Taka ber það með í reikninginn
að það er raunar nýtt að íslenzka
kvennalandsliðið fái verkefni,
sem bezt sést af því að það hefur
ekki leikið leik á heimavelli i tíu
ár. Með tilliti til þess verður unað
við árangur stúlknanna. Þetta er
fyrsta skrefið á langri leið, og
vonandi eiga þessar stúlkur eftir
að æfa vel saman og keppa saman,
og víst er að þá er árangurs að
vænta. A.m.k. virtust íslenzku
stúlkurnar sem einstaklingar
vera jafnvel betri en þær hol-
lenzku.
* *
Mörk tslands: Sigrún Guð-
mundsdóttir 4 (3 úr viti), Erla
Sverrisdóttir 2 (bæði úr vítaköst-
um), Arnþrúður Karlsdóttir 1 og
Hansina Melsteð 1.
Mörk Hollands: Pottujt 3 (öll
úr vitaköstum), Nel Martens 3 (2
úr vítaköstum), Els Boesten 1,
Annie Slangen 1 og Toos Als-
emgeest 1.
Dómarar voru þeir Magnús
Pétursson og Valur Benediktsson.
Þeir duttu í þá gryfju sem dóm-
urum hættir við að lenda i er þeir
dæma leiki eigin lands og annars,
— þá að einbeita sér svo mikið að
því að þeir verði ekki sakaðir um
hlutdrægni að þeir dæma um of á
heimáliðið. Var það t.d. ákaflega
hæpinn dómur hjá þeim félögum
er þeir dæmdu knöttinn af ís-
lenzku stúlkunum fyrir ruðning
er skammt var til leiksloka og
staðan var 7—7.
-stjl.
Arnþrúður Karlsdóttir skoraði lagleg mörk f landsleikjunum með þvf
að stökkva inn úr horninu.
Júgóslavía vann
„ World Cup”
Það er sannarlega ekkert eftir gefið f kvennahandknattleiknum frekar
en karla. Þarna fær Erla Sverrisdóttir harla ómjúkar viðtökur hjá
þeim hollenzku.
JÚGÓSLAVlA bar sigur
úr býtum í „World Cup“
handknattleikskeppninni í
Svíþjóð, en henni lauk í
fyrrakvöld. Lék Júgóslavía
til úrslita við Pólland og
sigraði 17—16, eftir að
jafnt hafði verið i hálfleik
7—7. Leikur þessi þótti
mjög vel leikinn, einkum
af hálfu Júgóslavana, sem
unnið hefðu stærri sigur,
ef ekki hefði til komið frá-
bær markvarzla pólska
markvarðarins, sem hvað
eftir annað varði „óverj-
andi“ skot. Leikurinn var
mjög jafnalltfrá fyrstu
mínútu til hinnar síðustu,
en sigurmark sitt skoruðu
Júgóslavarnir ekki fyrr en
132
SENNILEGA hefur fslenzkt
fþróttalið aldrei fengið aðra eins
útreið og körfuknattleiksmenn úr
KR fengu i gærkvöldi, er þeir
léku fyrri leik sinn f Evrópu-
bikarkeppninni í körfuknattleik
við austurríska liðið UBSC Vfn.
(Jrslit leiksins urðu 132:34 fyrir
Austurrfkismennina, eftir að
staðan hafði verið 68:11 f hálf-
leik. „Þessi 98 stiga munur er met
f Evrópubikarkeppninni,“ sagði
fréttastofa Reuters í gærkvöldi.
Stigin fyrir Austurríkismenn-
ina skoruðu: Marioneaux 19,
Taylor 9, Tecka 17, Huetthaler 10,
Bilik 19, Pawelka 10, Miklas 4,
Leskova 7, Wolf 11, Haselbacher
26.
nokkrar sekúndur voru til
leiksloka.
A-Þýzkaland hreppti
þriðja sætið í keppninni
með því að sigra Sovétrikin
með 23 mörkum gegn 19.
Staðan í hálfleik var 10—9.
Sigra því Þjóðverjarnir
Sovétmenn með sama
markamun og þeir sij
Islendinga í lands
unum ádögunum.
I keppni um fii
sætið sigraði Rúi
Tékkóslóvakíu með
mörkum gegn 18. StE
hálfleik i þeim leil
12—8.
Fyrir KR: Kristinn Stefánsson
2, Kolbeinn Pálsson 1, Bjarni
Jóhannesson 13, Birgir Guð-
björnsson 2, Þröstur Guðmunds-
son 2, Bragi Jónsson 6, Birgir
Guðjónsson 4, Guðmundur
Pétursson 4, Gunnar Gunnarsson
2, Hilmar Viktorson 4.
HLAUPIÐI
GARÐAHREPPI
UMGMENNAFÉLAGIÐ
Stjarnan I Garðatireppi mun
gangast fyrir vfðavangshlaup-
um fyrir börn og unglinga i
vetur. Er ætlunin að slfk hiaup
fari fram S—6 sinnum, og verð-
ur fyrsta hlaupið n.k. sunnudag
og hefst kl. 14.00 við Gagn-
fræðaskóla Garðahrepps. Munu
þrfr fyrstu f hverjum aldurs-
flokki hljóta verðlaun, eftir
keppnina.
margir af beztu lyftingamönn-
um landsins, þannig að búast
má við mörgum lslandsmetum
á mótinu. Verða t.d. þeir Óskar
Sigurpálsson, A, Friðrik Jósefs-
son, ÍBV, og Skúli Óskarsson,
UlA, meðal keppenda.
Lyftingar
KRAFTLYFTINGAMÓT KR,
sem búið var að auglýsa, að
fram færi í Sænska frystihús-
inu n.k. laugardag, verður hald-
ið í Laugardalshöllinni á föstu-
dag kl. 20.00. Tfu keppendur
hafa skráð sig til þátttöku í
mótinu, og meðal þeirra eru
Paraguay vill
halda HM 2002
PARAGUAY hefur áhuga á að
halda lokakeppni Heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu 2002. Þetta kom fram í
tilkynningu, sem knattspyrnu-
samband landsins gaf út i gær.
Þar sagði, að mál þetta yrði
rætt á fundi Knattspyrnusam-
bands Suður-Ameriku i Rio de
Janeiro i desember n.k. og síð-
an yrði send formleg beiðni til
alþjóðasambandsins, FIFA.
Ennfremur sagði í tilkynning-
unni, að Paraguay væri tilbúið
að halda þessa íþróttahátíð með
glæsibrag eftir 28 ár, fyrstu
lokakeppni HM á 21. öldinni.