Morgunblaðið - 04.02.1975, Síða 4

Morgunblaðið - 04.02.1975, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975 LOFTLEIÐIR BÍLAUEIGA CAR RENTAL TT 21190 21188 LOFTLEIÐIR 22-0-22* [raudarárstíg 31 Q BILALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL 24460 28810 PIONŒER Útvarp og stereo. kasettutæki FERÐABÍLAR h.f. Bilaleiga, simi 81260. Fólksbílar — stationbilar — sendibílar — hópferðabílar. , tel. 14444*25555 BÍLALEIGA car rental Hópferðabílar Til leigu í lengri og skemmri ferðir 8 — 50 farþega bílar. KJARTAN INGIMARSSON Sími 86155 og 32716. Knútur Bruun hdl. Lögmannsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h Sími24940 VÉLA-TENGI É2-W©ll©rikuþ 'lun^ Conax Planox Vulkan Doppelflex Hadeflex. STURLAUGUR JÓNSSON & CO. Vesturgötu 16, Sími 13280. JUetgunliIaíijl* nucivsmcPR ^-»22480 Þingmennska og atvinnulíf Tíminn birtir sl. sunnudag samtal við Ólaf Jóhannesson, formann Framsóknarflokksins. Hér verða teknar upp tvær fyr- irspurnir og svör flokksfor- mannsins: „— Er ekki þingmennska svo krefjandi starf, að erfitt sé að gegna öðru við hlið þess — hvort sem hugtakið tómstunda- gaman er viðurkennt eða ekki? — Jú þvf er ekki að neita. Þetta hefur alltaf verið erfitt, og það verður erfiðara næstum með hverju ári sem ifður. Hins vegar er það mfn persónulega skoðun, að eftirsjá sé að því, að stjórnmálamenn hverfi úr at- vinnulffi og almennum störf- um f þjóðfélaginu. Eg held, að það sé að mörgu leyti æskilegt, að þingmenn geti verið og séu þátttakendur í hinum ýmsu at- vinnugreinum þjóðfélagsins, jafnframt þingmennskunni. — En þú býst ekki við, að sú verði raunin? — Nei. Ég tel Ifklegt, að þró- unin verði hin sama hér og annars staðar. Það er alls staðar að færast í það horf, að þing- mennska verði aðalstarf rnanna. Ut af fyrir sig er það rétt, að þingstörf geta verið alveg nægilegt verk hverjum meðalmanni, en hinu neita ég ekki, að ég er dálftið hræddur við það, að allir þingmenn verði eins konar atvinnustjórn- málamenn. Þeir verða þá háóari þingmennskunni og eiga meira undir því að sitja áfram e.t.v. lengur en heppilegt er — komast að f hvert skipti sem kosið er. En það er hverjum manni styrkur, að minni hyggju, að vera ekki háður þvf atvinnulega séð, hvort hann situr á þingi eða ekki.“ Tengsl við þjóðlífið og atvinnuvegina Hér er drepið á mjög athyglisvert umræðuefni. Til skamms tfma völdust þing- menn úr hópi hinna einstöku starfsstétta þjóðfélagsins; menn, sem höfðu tengsl við og þekktu hinar ýmsu atvinnu- greinar, sem þjóðarbúið saman- stendur af; menn, er lifðu og hrærðust f daglegri önn og um- hverfi umbjððenda sinna. Þetta hafði ótvfræða kosti og lýð- ræðislegt gildi. Þróunin hefur, þvf miður, stefnt f þá átt, að þing- mennskan yrði afmörkuð at- vinnugrein, þingmenn sérstök atvinnustétt (atvinnustjðrn- málamenn), með dvínandi sam- bönd eða tengsl við daglega önn þjððlffsins og umbjóðenda sinna, en vaxandi stéttarsam- kennd, hagsmunalega sam- stöðu og þar af leiðandi á stundum staðlaða afstöðu, hvað sem liði ólfkum þjððmálastefn- um. I þessu efni er fólgin viss hætta, sem er fjær skilningi hins almenna borgara á lýðræði og þegnréttindum en sá háttur, sem áður rfkti. Inn f þessa mynd kemur sjálf kjördæmaskipunin, sá háttur, sem er á vaii frambjóðenda og sfðan þingmannakjöri. Núver- andi kjördæmaskipan hefur sfna kosti og sfna galla. Höfuð- gallinn er e.t.v. sá, að vissir þingmenn verða allt að þvf sjálfkjörnir, við núverandi aðstæður. Öðru máli gegndi í þvf efni meðan einmennings- kjördæmi voru við lýði, þó hér verði enginn dðmur lagður á kjördæmaskipunina sem slíka. Þegar sú skipan verður tekin til endurskoðunar, m.a. til að tryggja jafnari rétt kjósend- anna, sem hlýtur að verða fyrr eða síðar, þarf með einum eða öðrum hætti að tryggja rétt kjðsandans til persðnulegra vals en nú er. Hvað sem þeim málum liður skal hér tekið undir þau sjónar- mið Ólafs Jðhannessonar, að æskilegt sé, „að þingmenn geti verið og séu þátttakendur í hin- um ýmsu atvinnugreinum þjóð- félagsins, jafnframt þing- mennskunni." Með þeim hætti eru bezt tryggð þau tengsl, þingmanna og hins almenna borgara, sem hljðta að teljast nauðsynleg. Einangrun þing- manna f sérstakri atvinnustétt býður hins vegar upp á hættur, sem síður en svo styrkja stoðir lýðræðisins f þjððfélagi okkar. tak sé eldra en atómbomban og vigbúnaðarkapphlaupið, sem Heinesen hefur fordæmt i ljóð- um... Ef Heinesen væri að byrja rithöfundarferil sinn nú, gæti hann þá skrifað með jafn mikla von og einkennt hefur verk hans? Þessu svarar Heinesen meðal annars á þessa leið: — Þetta er eitt hryllilegasta vandamálið nú. Fyrrum gátu allir gert sér í hugarlund að framtíð væri jörðinni til handa og þar með manneskjunni. En staðreyndin er sú, að þetta er ógerningur nú... Ég var að al- ast upp áður en fyrri heims- styrjöldin skall á. Við trúðum á framtiðina og það góða sem Framhald á bls. 35 bnidge Nú er farið að siga á seinni hlutann f úrtökumðti BSl og er aðeins þremur umferðum ðlokið. Verða þær spilaðar f kvöld og hefst spiiamennskan kl. 19.30. Spilað er I Hreyfils- húsinu við Grensásveg. Staðan fyrir sfðasta kvöldið er þessi: KARLAFLOKKUR: Hjalti —Asmundur 166 Hörður — Þórarinn 154 Jakob —Jón 148 Hallur — Þórir 143 Karl — Guðmundur 131 Stef án — Sfmon 126 Arni — Sævar 125 Hörður — Páll 121 UNGLINGAFLOKKUR: Þórir — Guðmundur 163 Helgi _ Logi 160 Jón — Valur 146 Sigurður — Guðjón 136 Helgi — Helgi 134 Einar—Guðmundur 133 Jón — Snjólfur 128 Eirikur — Þórður 120 Hermann — Ólafur 120 A.G.R. -STGtfúND GrUÐ MVA£> EG ÖFUNDA pÆR KONUR 5EM PURFA EKK'l AD BÚA VÍD NE.MA E'lNN MANUDAö 'I VÍKU STAKSTEINAR „Ég skil svo fjaska vel ör- væntinguna í nútímalist ” Ur samtali dansks blaðamanns við William Heinesen, 75 ára FÆREYSKI rithöfundurinn William Heinesen varð sjötfu og fimm ára fyrir skömmu. Af þvi tilefni átti danskur blaða- maður Christian Kronmann, samtal við hann á heimili hans f Þórshöfn, þar sem Heinesen talar um skáldskap sinn, til- gang eða tilgangsleysi tilver- unnar og skilning sinn á sam- tiðinní. Samtalið fer hér á eftir í endursögn og nokkuð stytt. I upphafi segir Kronmann: „Þeir sem hafa öólast þekk- ingu sína á Færeyjum úr bók- um Williams Heinesens, hijóta að hafa myndaó sér þá skoðun, aó þessi grænklædda klettaeyja sé dálítið nær stjörnunum en annaó land. Og sem þangað er komið gerum við þá sérkenni- legu uppgötvun, að þetta er öldungis rétt. Birtan leikur um þehnan heim á nýjan og framandlegan hátt og ljósbrot- in leika sér á milli litlu, marg- litu húsanna. Og rétt eins og i bókum Heinesens „fara nú merkilegir hlutir að gerast". Uppi í hæðinni, fyrir ofan þessa minnstu höfuðborg heims, býr Heinesen i húsi sinu. Afmælisbarnið hefur látið sér vaxa alskegg og hlær í það glaðlega. Kannski verður þetta góður dagur. Hann veit það ekki fyrr en á morgun. Það ræðst ekki af afmæliskveðjum og heillaósk- um. Ekki heldur af veðrinu. „Ég á það til að sitja heilan dag og skrifa þrjár fjórar línur og svo kasta ég því daginn eftir. Þetta geri ég iðulega. Ég skrifaði fjórar línur í dag og nú er ég mjög forvitinn að vita, hvort þær standast gagnrýni mína á morgun. Ég var að i þrjár klukkustundir. Stundum gengur mér betpr. En ég er lengi að skrifa og það er mér átak.“ Heinesen segir síðan að gagn- rýni hans á verk sín hafi vaxió með árunum. „En hún hefur alltaf verið tii staðar. Þegar ég var að yrkja í mína fyrstu bók var ég á þrítugsaldri. Þá var ég þrjú ár að safna í þetta kver. Og gerði ekki margt annað. William Heinesen er fæddur í Þórshöfn og hann hefur alla tíð verið „vitlaus í aó búa í Færeyjum". Hann segist ekki geta skrifað staf nema þar. Blaðamaðurinn rifjar upp orðtak fornt þar sem segir: „Hver og einn á hlut að því að forma eilífð okkar.“ Þetta orð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.