Morgunblaðið - 04.02.1975, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.02.1975, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1975 RUGLVSmCRR ^-«22480 JBcrgunX'loöil* nuGLVsmcnR íg, ^22480 Formaður L.Í.Ú.: Rekstrarhalli báta og togara áætlaður 3,3 milljarðar króna Þessi mynd var tekin á Arnarhóli { gær þegar nemendur Tækniskóla Islands heimsóttu Vilhjálm Hjálm- arsson menntamálaráðherra til þess að ræða við hann um úrbætur í ýmsum málum Tækniskólans. Á myndinni er Vilhjálmur að ræða við Tækniskólamenn, en við segjum nánar frá þessu á bls. 2 i dag. Ljósmynd Mbi. Sv. Þorm. — Gengisbreyting kemur ekki aö notum, segir Kristján Ragnarsson A AUKAFUNDI Landssambands íslenzkra útvegsmanna, sem hald- inn var í Reykjavfk f gær, kom fram, að halli á bátaflota Iands- manna, miðað við núverandi að- stæður, er áætlaður um 2,1 milij- arður króna á árinu, halli á stærri togurunum er áætiaður 622 miilj. kr. og halli minni skuttogara er áætlaður 567 millj. kr. verði ekkert að gert. Á þessu er þvf ljóst, að útgerðin á við gífurlega rekstrarörðugleika að etja og þar við bætist, að fiskvinnsla stendur ákaflega illa að vígi. I lok fund- arins var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Aukafundur L.I.U., haldinn f Reykjavík 3. febrúar 1975, vekur athygli á því, að úttekt Þjóðhags- stofnunarinnar á hag útgerðar- innar staðfestir, að hún er komin f þrot. Þessi staða hefir leitt til þess, að fiskverð hefir enn ekki Blaðamanna- fundur forsætis- ráðherra í dag GEIR Hallgrfmsson, forsæt- isráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar síðdegis f dag að þvf er segir f fréttatilkynningu frá forsætis ráðuneytinu. Forsætisráðherra kom heim um helgina eftir ferð til Kanada og Noregs en f þeirri ferð heimsótti hann Vesturlslendinga í tilefni 100 ára landnáms þeirra f Vesturheimi og ræddi við kanadíska, bandaríska og norræna stjórnmálamenn um útfærslu fiskveiðilögsögunnar á þessu ári. verið ákveðið, þótt það hafi átt að liggja fyrir um áramót. Fundinum er ljóst, að hinn mikli rekstrarvandi verður ekki leystur með fiskverðshækkun einni saman. Auk hennar eru aðr- ar efnahagsaðgerðir af hendi rfkisvaldsins óhjákvæmilegar. Fundurinn vekur athygli á, að hluti af bátaflotanum hefir enn ekki hafið veiðar vegna rekstrar- erfiðleika, en þeir útgerðarmenn sem höfðu bolmagn til að láta skip sín hefja veiðar, gerðu það í trausti þess, að slíkar óhjákvæmi- legar ráðstafanir yrðu gerðar, fyrir allnokkru, og telur fundur- inn því, að á þessu megi ekki verða frekari dráttur. I trausti þess, að ríkisstjórnin dragi ekki fram yfir lok þessarar viku að gera nauðsynlegar ráð- stafanir, samþykkir fundurinn að honum skuli ekki ljúka að svo stöddu, en komi saman aftur mánudaginn 10. febrúar n.k.“ Eftir fundinn í gær náði Morgunblaðið sambandi við Krist- ján Ragnarsson, formann Lands- sambands ísl. útvegsmanna, og bað hann að gera nánari grein fyrir rekstrarerfiðleikum fiski- skipaflotans. „í fyrsta lagi,“ sagði Kristján, „er staða útgerðarinnar með þeim hætti, samkvæmt skýrslu Þjóð- hagsstofnunarinnar, að gert er ráð fyrir 1715 millj. kr. halla báta- flotans á árinu. Þá er ekki talin með oliuhækkunin, sem varð eftir áramót, hækkun á vátryggingu vegna áhafna, sem varð eftir ára- mót, og hækkun á afskriftum, sem varð vegna hækkunar á vá- tryggingum. Þegar tekið hefur verið tillit til þessara talna til viðbótar við þá fyrri, þá er hallinn Framhald á bls. 34 ínn fauk Jepp yfir bílstjórann Siglufirði 3 feb. FEIKN mikið stormveður brast á f Fljótunum f morgun og slasað- ist maður þegar bíll hans fauk yf- ir hann. Maðurinn, sem heitir Stefán Þorláksson frá Gautlönd- um og er umsjónarmaður með snjómokstri á þessu svæði, var f jeppabfl sfnum af Willysgerð er stormhviða feykti bflnum á loft og fór hann eina veltu. Stefán komst þá út úr bflnum, en þá skipti engum togum að bfllinn tókst aftur á loft og fauk yfir Stefán, sem slasaðist nokkuð og átti að flytja hann hingað f dag með sjúkrabfl þegar lægði. Ekki var vitað hvort hann var beinbrot- inn, en talið að um einhver inn- vortis meiðsl væri að ræða. Annar bíll, fólksbíll Guðmund- ar á Reykjarhóli, fauk einnig í þessum stormi. Guðmundur hafði keyrt bílinn út í skafl við veginn og yfirgeí'ð hann, en skömmu síð- ar tókst I Uinn á loft og fauk nokkra metra. A sömu slóðum fauk jeppi í fyrra með skólabörn- um og urðu þá einnig slys á mönn- um. I þessu stormviðri hefur tekið upp óhemju mikið af snjó, en Framhaid á bls. 34 Frystihús á Suðurnesjum: Starfsfólki sagt upp með fyrirvara NOKKUR frystihús á Suðurnesjum hafa sagt upp starfsfólki sínu með þeim fyrirvara, að uppsögnin falli úr gildi ef ekki kemur til verkfalls sjómanna. Þá kom það einnig fram f viðtali f gær við Harald Sturlaugsson hjá Haraldi Böðvarssyni og Co á Akranesi að ef til stöðvunar togaraflotans kæmi yrði óhjákvæmilega að segja upp starfsfólki f stórum stíl. „Ef ekkert verður að gert nú þegar í þessum rnálurn," sagði Haraldur, „kemur til algjörra vandræða, því kauptryggingin er svo bundin hráefninu að ef ekkert hráefni berst verður að segja upp starfsfólki. Engum hefur hins vegar verið sagt upp og vonandi kemur ekki til þess. S.l. ár vorum við með um 700 manns á launaskrá hjá okkur og greiddum liðlega 200 milljónir í laun, en yfir vertiðina erum við með um 300 manns í vinnu. Hráefni okkar er meira og minna bundið togurunum og við fáum 33% af afla togaranna tveggja, en alls fer afli þeirra til fjögurra frystihúsa hér. Frá maí s.l., er við tókum upp þessa skiptingu, og til áramóta, hafa aðeins fallið 4 dagar úr hjá okkar fyrirtæki í vinnslu, en þá var skortur á hráefni. Það liggur þvi ljóst fyrir að togararnir halda jafnvæginu i þessum málum fyrir frystihúsin á mörgum stöðum og um leið stöðugleikanum i vinnu fólks.“ Einar Kristinsson hjá Sjöstjörnunni i Keflavík sagði að búið væri að segja lausum samningum við 45 manns hjá þeim, eða öllum sem voru með fasta samninga. Hins vegar vinna alls um 70 manns hjá Sjöstjörnunni. „Astæðuna fyrir uppsögnunum kvað Einar einfaldlega vera hræðslu við sjómannaverkfallið, en samningunum væri sagt upp miðað við að verkfall skylli á, en samþykkt um þetta var gerð hjá eigendum fiskvinnsluhúsanna á Suðurnesjum eða í Keflavik, Sandgerði, Vogum og Garði. Staðan er geysilega erfið hjá okkur núna og það er orðið hastarlegt að maður skuli verða Framhald á bls. 34 F áskrúðsfjörður: Milljónatjón vegna snjóa Fáskrúðsfirði 3. feb. UMTALSVERÐAR skemmdii hafa orðið hér vegna snjóa og er um milljónatjón að ræða, aðaí- lega hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfirð- inga en um helgina fél! saman stór skemma inni í fjarðarbotni og er hún talin gjörónýt. 1 þessari skemmu var geymdur ýmis varn- ingur, fóðurbætir og annað, og hefur verið unnið að björgun hans úr rústunum, en hann mun vera óskemmdur. Inni f þessum skála voru m.a. geymdir kapp- róðrarbátar sjómannadagsráðs og ér annar þeirra gjörónýtur og hinn mikið skemmdur. Einnig féll niður að hálfu leyti sfldar- söltunarhús Pólarsfldar h.f. og er þar um mikið tjón að ræða. Einn- ig hafa orðið umtalsverðar skemmdir á nýbyggingu frysti- hússins. Þrír bátar lönduðu hér 500 lest- um af loðnu í dag og er nú heildarlöndun hér orðin 3700 lest- Framhald á bls. 34 Varðskipsmenn komust í hann krappan SEX skipverjar af varðskipinu Óðni komust f hann krappan við Galtarvita sl. laugardag. Voru varðskipsmenn að koma frá þvf að flytja starfsmenn vitamálastofnunar f vitann, þegar gúmbátur þeirra valt. „Við vorum komnir rétt út úr briminum, þegar svo illa vildi til að vél bátsins bilaði," sagði Indriði Kristinsson, þriðji stýrimaður, sem var á bátnum er þetta gerðist. „Okkur rak þess vegna aftur inn í brimgarðinn, þar sem við fórum allir í sjóinn og vorum við að velkjast þar góða stund áður en okkur tókst að skríða i land. Okkur varð auðvitað ofsalega kalt, enda vorum við illa búnir en þegar i vitann kom vorum við strax drifnir úr fötunum og hellt í okkur heitu kaffi, svo að engum varð meint af þessu volki.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.