Morgunblaðið - 26.02.1975, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1975
5
Varnarliðið gaf tvo
slökkviliðsbíla til Eyja
ÞEGAR náttúruhamfarirnar
stóðu sem hæst I Vestmanna-
eyjum lánaði Varnarliðið á Kefla-
vfkurflugvelli m.a. tvo öfluga
Rannsóknir á næringargildi
íslenzkra beitarplantna
í RITI Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins, íslenzkar land-
búnaðarrannsóknir, gerir Gunnar
Ólafsson grein fyrir tilraunum
með næringargildi íslenzkra
beitarplantna, sem eru liður f
rannsóknum vegna hins mikla
beitarvandamáls, og tilraunum til
að bæta beitarlandið. Árið 1955
hóf Búnaðardeild Atvinnudeildar
Háskólans (nú Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins) rannsóknir á
íslénzkum beitarlöndum og
megintilgángurinn að ákvarða
beitarþol landsins eins nákvæm-
lega og unnt væri.
Á árunum milli 1950 og 1960
jókst fjárfjöldi mjög í landinu og
samtímis lækkaði maðalfallþungi
verulega og töldu sumir að
beitarþoli landsins væri ofboðið
en aðrir töldu að beitariöndin
gætu borið fleiri skepnur.
Rannsóknunum má skipta I
þessa meginþætti: 1) flokkun og
kortlagningu gróðurlenda 2)
mælingar á gróðurfari og upp-
skerumagni gróðurlenda 3) rann-
sóknir á plöntuvali sauðfjár 4)
ákvörðun á meltanleika og efna-
innihaldi beitargróðurs 5) til-
raunir með að bæta beitarlandið.
Gerir Gunnar grein fyrir að-
ferðum til að ákvarða fóðurgildi
bitins gróðurs, plöntuval sauðfjár
á íslandi og efnasamsetningu og
meltanleika bitins gróðurs.
Sauðfé á beit er vandlátt segir f
úrdrætti á íslenzku aftast í ritinu,
og velur sér ákveðnar plöntur eða
plöntuhluta, ef það hefur tæki-
færi til þess. Margir þættir hafa
áhrif á plöntuvalið: 1) magn þess
fóðurs, sem er til ráðstöfunar, 2)
þroskastig plantna 3) lfkamsbygg-
ing plantna (hár, þyrnar) 4)
sauðfé velur blöð fram yfir
stöngla 5) sauðfé velur fremur
uppréttar en skriðular plöntur 6)
efnasamsetning (sölt, sykur) 7)
eðliseiginleikar dýranna.
I lokin segir: Á grundvelli
þessara og annarra rannsókna er
lagt til að beitilendi verði skipt í
flokka eftir hlutdeild grasa og
jurta í gróðurlendum. Þau
gróðurlendi, sem hafa mest af
grasi og jurtum, gefa af sér fóður
með hæst næringargildi.
Bókaútsala
Seljum í dag og næsta mánuð flestar útgáfu-
bækur Bókaútgáfunnar Skuggsjár Hafnarfirði.
Fjöldi ágætra bóka á góðu verði, vel innbundn-
ar. Þar að auki fjölda eldri bóka, pésa og
bæklinga.
Danskar bækur — enskar bækur.
Aðeins nokkur eintök af Manntalinu 1816
I—VI. (complett). eru enn fánaleg.
Bókaverzlun Stefáns Stefánssonar,
Laugavegi 8. Sími 19850.
Húsbyggjendur
EINANGRUNAR
PLAST
Getum afgreitt einangrunarplast
á Stór-Reykjavíkursvæðið með
stuttum fyrirvara.
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆM VERÐ.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi sími: 93-7370
Kvöldsími 93-7355.
slökkviliðsbfla til Vestmanna-
eyja, almennan slökkviliðsbfl og
16 tonna tankbfl. Að goslokum sá
slökkviliðið f Eyjum um að yfir-
fara bflana og mála þá eftir
hnjaskið, sem þeir höfðu orðið
fyrir og sfðan átti að skila þeim.
En fyrir skömmu afhenti Varnar-
liðið bflana að gjöf til Slökkviliðs-
ins f Vestmannaeyjum og voru
þeir afhentir af varnarliðs-
mönnum og Irving sendiherra
Bandarfkjanna á lslandi, sem
jafnframt afhenti Bókasafni
Vestmannaeyja veglega bókagjöf.
Verðmæti þessara tveggja bíla er
tæplega 20 millj. kr.
„Strákar” fá
góðar gjafir
SIGLÚFIRÐI 24. FEB. —
Kvennadeildin Vörn afhenti fyrir
helgina Björgunarsveitinni
Strákum að gjöf utanborðsmótor
fyrir gúmíbát sem þeir eiga. Þá
gaf Kiwanisklúbburinn Skjöldur
björgunarsveitinni vélsleða.
Nýkominn er 11 tonna bátur
hingað í bæinn, sem Sverrir
Ólafsson og Ölafur Bjarnason
keyptu. Þessir menn hafa verið á
rauðmagaveiðum að undanförnu
og eru búnir að fá um 4000 stykki.
Það er því nóg af rauðmaganum
hér á Siglufirði. Dagný kemur inn
í dag eftir stuttan tíma með mjög
góðan afla, um 100 tonn af þvi
talið er. m.j.
ÞU
Glæsilegt skip
til Akraness
Akranesi, 24. feb.
V/S Árni Sigurður — Ak-370
kom til hafnar hingað i gær frá
Noregi, en þar var skipið byggt.
Það er 347 lestir að stærð, búið
til hringnótar-, tog- og línuveiða.
Aðalvél þess er af Wichmann-
gerð, 1250 hö. Rafvélar eru tvær
af Skania gerð, og auk þeirra er
ljósavél, sem aðeins er notuð þeg-
ar skipið liggur í höfn. Isfram-
leiósluvél er framleiðir 6 lestir á
sólarhring, olíudrifnar hliðar-
skrúfur, sjóeymingarvél og velti-
tankar eru einnig í skipinu. Gang-
hraði er 12 mílur á klukkustund.
Veltitankarnir reyndust mjög vel
á heimsiglingunni, en skipið
hreppti þá storm og stórsjó.
Annars er það búið öllum nýjustu
fisksjár-, öryggis- og siglingar-
tækjum. Verð skipsins er 9,2
milljónir n. kr.
Eigandi Árna Sigurðar er hluta-
félagið Sigurður, — en hluthafar
eru m.a. Þórður Sigurðsson, son-
ur Sigurðar heit. Hallbjarnarson-
ar frá Tungu, og Einar Árnason
sonur Árna Sigurðssonar frá Sól-
eyjartungu, en Einar var skip-
stjóri á heimsiglingunni. — Þeir
Árni og Sigurður voru vel þekktir
skipstjórar og útvegsmenn hér á
þeim tímum, þegar þorskurinn
var aðallega veiddur á línu og
„náði máli“ (málfiskur var 22
tommur), og þegar varaseiðin
dormuðu í stórum torfum við
kletta og bátabryggjur.
Haraldur Ágústsson skipstjóri
mun stjórna Árna Sigurði á
loðnuveiðum, og heldur hið nýja
glæsilega skip á þær veiðar næstu
daga.
Július.
JtT GETUR EKKI
GERT BETRI FATAKAUP
Enn er úrval af jakkafötum, stökum jökkum,
leðurjökkum, kuldaflíkum
dömu og herra, Ðf ^
blússum, pilsum, skyrtum, NV S ^
bolum o.m.fl.
50—70% afsláttur. . » 'B
KARNÁBÆR
^ Utsölumarkaður Laugaveg 66
MALL0RKA
C0STA DEL S0L
AUSTURRIKI
— Nyjung —
Páskaferð Sunnu til Austurrlkis. Njótið lifsins með
glaðværum íbúum Zell am See. Fagurt útsýni, snjór i
fjöllum, að ógleymdum hlýlegum bjórkjöllurum, sem
öllum standa opnir eftir að skyggja tekur.
íslenzkur fararstjóri tryggir góða þjónustu.
Verð frá kr. 46.700.-
Hvers vegna með Sunnu til Mallorka?
Vegna þess að Sunna hefur 16 ára reynslu i Mallorka-
ferðum. Frábærar baðstrendur. Fyrsta flokks hótel og
íbúðir.
Eigin skrifstofa Sunnu með íslenzku starfsfólki.
Verðfrá kr. 33 800.
Veljið páskaferð Sunnu til Costa del Sol. og fjölbreytt
skemmtun i hálfan mánuð er tryggð. Allir gististaðir
Sunnu eru i hinni glaðværu Torremolinos.
Eigin skrifstofa Sunnu með islenzku starfsfólki.
Verð frá kr. 33.800.
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA
Lækiargötu 2 súnar 16400 12070