Morgunblaðið - 26.02.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1975
eftir INGVA HRAFN JÓNSSON
Mikilvægt að hraða
stofnun veiðifélaga
VEIÐIMÁLASTOFNUN hefur gert
áætlun um stofnun veiðifélaga í
næstu árum og þarf skv. áætl-
uninni að stofna um 80 félög
á landinu til viðbótar þeim
122, sem nú starfa, til að
uppfylla sómasamlega fyrirmæli
! laxveiðilögunum um stofn-
unin veitir leiðbeiningar og aðra
aðstoð ! sambandi við undirbúning
og stofnun veiðifélags og hefur
þátturinn fengið Einar Hannesson
hjá Veiðimálastofnun til að skýra
frá helztu atriðum í sambandi við
þessi mál.
— Hvernig er skipting veiði-
félaga um landið og hvernig starfa
þau?
Hér á landi eru 122 veiðifélög,
sem taka til vatnasvæða um allt
land. Skipting félaga á kjördæmin
er sem hér segir: I Reykjaneskjör-
dæmi eru 5 félög, Vesturlandi 29,
Vestfjörðum 22, Norðurlandi
vestra 23, Norðurlandi eystra 15,
Austurlandi 8 og á Suðurlandi 22
veiðifélög. Langflest þessara
félaga eru við árnar, en sum þeirra
ná einnig til stöðuvatna. Tólf
þeirra eru eingöngu við stöðu-
vötn, einstök vötn eða stöðu-
vatnaklasa á afréttum.
Veiðifélag er ábyrgur aðili veiði-
eigenda á ákveðnu svæði, eins-
konar heimastjórn þessara mála.
Veiðimál eru oft tilfinningamál og
viðkvæm og togstreita stundum á
ferðinni. Með tilkomu félags-
skapar eru málin rædd sameigin-
lega og þótt ýmsir byrjunarörðug-
leikar segi til sín, leysast mál yfir-
leitt farsællega, þegar veiðifélagið
hefur starfað um hríð.
Ákvæði um veiðifélög komu
fyrst inn ! laxveiðilög árið 1934.
Félögin fengu rétt til að ráðstafa
veiði á félagssvæðum sinum. Til
þess að stofna veiðifélag þurftu %
ábúenda jarða á svæðinu að sam-
þykkja félagsstofnunina. Árið
1970 ákvað löggjafinn að lög-
binda stofnun veiðifélaga, og er
nú skylda að koma á fót veiði-
félagi um allar ár og vötn !
landinu. Við gildistöku laganna
vorið 1970 voru veiðifélögin 70
talsins og hafa þvi verið stofnuð
rúmlega 50 félög frá þeim tíma til
þessa, er hlotið hafa staðfestingu.
En auk þess hefur Veiðimála-
stjórnin gefið út leyfi til stofnunar
um 20 nýrra félaga, sem væntan-
lega munu verða stofnuð á næst-
unni.
— Hverjir eiga aðild að veiði-
félagi og hvernig er félagssvæði
ákveðið?
Að veiðifélagi eiga aðild allar
jarðir, jarðarhlutar eða landareign-
ir (lóðir), sem liggja að félags-
svæðinu, þv! að höfuðreglan er sú,
að veiðiréttur fylgir landi. — Ár
og vötn mynda eina líffræðilega
heild og sá fiskur, sem lifir á
svæðinu eða gengur um það, fram
og tilbaka, er þv! sameign allra,
sem land eiga að þv! svæði. Ljóst
er þvi að til þess að koma ! veg
fyrir að ofnýting eigi sér stað, og
ekki slður til að opna möguleika á
að tryggja eðlilegt viðhald og
aukningu fiskstofnsins, þarf að
vera fyrir hendi samstaða allra
hlutaðeigenda. Þar koma veiði-
félögin einmitt til sögunnar; þau
eiga að tryggja þetta. Þá er einnig
nauðsynlegt að veiðihlut eða arði
Einar Hannesson
af veiði sé réttlátlega skipt milli
aðila, en nánar er vikið að þessu
atriði siðar í grein þessari.
Félagssvæði.
Félagssvæði veiðifélags tekur
yfir heilt fiskihverfi nema sérstak-
lega standi á. Þá er unnt að stofna
félag um veiðivötn á afrétti, sem
eru hluti af einu eða fleiði fiski-
hverfum og eru á sama lands-
svæði. — Félag skal ætíð taka til
allrar veiði á félagssvæði sinu.
Venja er að félag nái alltaf svo
langt upp með vatni, sem fiskur
Rætt við
Einar
Hannesson
hjá Veiði-
málastofnun
gengur, en i sumum tilvikum
tekur félag yfir stærra svæði, enda
sé ætlunin að gera fiskgengt.
og/eða nýta uppeldissvæði ofan
ófiskgengra fossa.
Atkvæðisréttur ! veiðifélagi er
bundinn við ábúendur lögbýla og
eigendur eyðijarða. Þó eru tak-
markanir á þessu. Ef maður býr á
fleiri en einni jörð, ber honum
aðeins eitt atkvæði. Hið sama
gildir, ef maður á fleiri en eina
jörð, þá ber honum aðeins eitt
atkvæði.
— Hvaða reglur gilda um
arðskrá?
Sé vikið frá atkvæðisréttinum,
sem er jafn hjá öllum, er hafa
hann ! félagi, að hlutdeild jarða !
veiði, verður annað upp á teningn-
um. Aðstaða jarða gagnvart veiði
er misjöfn, eins og Ijóst er. Er
hlutdeild einstakra jarða i veiðinni
ákveðin ! arðskrá félags, en við
gerð hennar skal taka tillit til land-
lengdar jarðar að veiðivatni, upp-
eldisskilyrða og hrygningarskil-
yrða fisks og veiðiaðstöðu jarðar,
bæði með tilliti til netjaveiði og
stangarveiði, en öll eru þessi atriði
breytileg um einstaka hluti og í
heild. í lögunum er ekki fyrirmæli
um það, hve háa hundraðstölu
hvert nefndra atriða skuli fá í arð-
skrá. Er ákvörðun þessi þv! lögð !
hendur þeirra, sem um arðskrá
fjalla.
Gert er ráð fyrir að arðskrárgerð
fari fram innan félags. Ef ekki
tekst að leysa það mál þar, er
hægt að óska mats, sem getur náð
til siðara stigs þess. ef undirmat er
kært, þ.e. til yfirmats. Félags-
maður hefur rétt til að krefjast
endurskoðunar á arðskrá að fimm
árum liðnum eftir setningu hennar
! fyrsta skipti, en siðan á átta ára
fresti. — Arðskrá I félagi gildir
sem gjaldskrá, þ.e. kostnað af
starfsemi veiðifélags skulu félags-
menn greiða ! sama hlutfalli sem
þeir taka arð.
— Er ekki rétt að veiðifélagi er
skylt að stunda fiskrækt?
Hlutverk veiðifélags er, eins og
áður segir, að annast stjóm veiði-
mála á félagssvæði sinu; ráðstafa
veiði og stunda fiskrækt, en félagi
er skylt að stunda fiskrækt. Al-
gengast er, að félögin ráðstafi
veiði til stangaveiði og leigi
svæðið út i einu lagi. Á sumum
svæðum stunda veiðieigendur
stangaveiði eða netjaveiði, hver
fyrir sinu landi, og þess eru dæmi
að aðilar skipti með sér stanga-
veiðidögum.
Við fiskrækt hafa verið hag-
nýttar allar þekktar aðferðir, svo
sem slepping seiða af ýmsum
stærðum, fiskvegagerð, lagfæring
árfarvega, vatnsmiðlun og veiði-
eftirlit. Að sjálfsögðu hafa seiða
sleppingar verið algengasta ráðið,
eins og víðast hvar annars staðar.
— Þá hafa verið reist veiðihús og
vegir ruddir til að auðvelda veiði-
mönnum leið að veiðistöðum ! án-
um og við stöðuvötnin.
— Að lokum Einar, er ekki
nauðsynlegt að hraða stofnun
veiðifélaga á svæðum, sem ekki
hafa slik félög enn?
Jú, eins og kunnugt er, hefur
þróun í veiðimálum orðið mjög
hagstæð hér á landi siðustu ára-
tugi og víst er, að möguleikar
okkar til að gera góða hluti !
framtiðinni eru miklir, varðandi
ræktun, viðhald og aukningu á
veiði. Reynslan sýnir að gott
skipulag er nauðsynlegt og félags-
leg starfsemi veigamikill þáttur í
framkvæmdinni, enda ákvað Al-
þingi eins og fyrr segir árið 1970
að lögbinda veiðifélög og koma á
þeirri skyldu að stofna veiðifélag
um allar ár og vötn ! landinu. Að
þessu verki hefur verið unnið og
lögð verður áhersla á að hraða þvi,
að stofnuð verði ný félög.
122 starfa, 80 að auki þarf
til að lagafyrirmœlum
verði fullnœgt
Sófasett Vel með farið sófasett til sölu. Uppl. i síma 32072. Til sölu Farmalcub dráttarvél með vökva- lyftu. Sláttuvél og plógur fylgir. Upplýsingar i sima 99-321 9.
Ung hjón meö tvö börn óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð til leigu, helzt í Vestur- bænum. Tilboð merkt: „Maí — 6612” leggist inn á afgr. Mbl. fyrir þriðju- dagskvöld 4.3. Einbýlishús við Þverbrekku, Kópavogi, til sölu. Gunnlaugur Þórðarson hrl„ Bergstaðarstræti 74 A, Simi 16410.
íbúð til leigu 4ra herb. ibúð i Heimunum til leigu. Laus fljótlega. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: ..Leiga — 661 4". Sumarhús Til sölu i einingum. Uppl. i sima 92-1233 milli kl. 9 — 10 næstu kvöld.
Keflavik Til sölu vel með farið einbýlishús, 6 herb. og eldhús, stór og ræktuð lóð. Fasteignasalan. Hafnargötu 27, sími 1 420. Bændur. Ung og áhugasöm hjón óska eftir jörð, sem yrði laus til ábúðar í vor. Æskilegt að jörðin sé i fullum rekstri. Uppl. í sima: 85735 i Reykjavik eða tilboð merkt: 7644.
Keflavík Til sölu nýleg 4ra herb. ibúð við Mávabraut. Laus Ijótlega. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1 263 og 2890. Til sölu Opel Station '65 til niðurrifs eða viðgerðar. Góð vél. Verð kr. 35.000.—. Uppl. að Melabraut 42 eftir kl. 6. Simi 2041 2.
Til sölu Benz 280 SE 3,5 árg. '71. Glæsi- legur bill. Skipti á nýlegum minni bil koma til greina. Upplýsingar i síma 40885 eftir kl. 1 7. Til sölu VW. passat T.S árg. '74 sem nýr. Útvarps (stereo) og 4 sumardekk fylgja. Staðgreiðsla. Upp. i sima 27028 eftir kl. 7 í kvöld og annað kvöld.
Óska eftir að kaupa litla trésmíðavél, helzt sambyggða. Vinsamlega hringið i sima 99- 5873. MAN vörubifreið til sölu, árg. '68. Bifreiðin er með framdrifi, palli og sturtum. Uppl. i sima 33551 kl. 12 —13 og eftir kl. 20 á kvöldin.
Til leigu 3ja herbergja ibúð i Hraunbæ frá 1. marz. Upplýsingar i sima 1 3576. Ameriskur Mercury til sölu sem nýr, mjög glæsilegur bill. Uppl. i sima 32507 eftir kl. 18.00.
NÝ GLERAUGNAVERZLUN
LÆKJARGÖTU 2
GLÆSILEGT ÚRVAL AF
TÍSKUGLERAUGUM FRÁ
OOBRA
OG
CK
ristian Dior
OOBRA
TÍSKUGLERAUGU
LÆKJARGÖTU 2
V ^