Morgunblaðið - 26.02.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1975
13
„Kom eins og
reiðarslag...”
Andenæs minnzt í
norska Stórþinginu
Ösló, 25. febr. NTB.
FORSETI Stórþingsins, Guttorm
Hansen, minntist Tönnes Ande-
næs þingmanns sem fórst í járn-
brautarslysinu á laugardaginn í
minningarræðu í Stórþinginu I
dag.
„Fréttin kom eins og reiðarslag
og hefur vekið djúpa sorg allra
sem þekktu hann,“ sagði Guttorm
Hansen.
Hann minntist starfa Andenæs
í stríðinu og margháttaðra starfa
hans eftir stríð heima og erlendis.
Afskipti hans af stjórnmálum
hans hefóu hafizt 1963 í Bærum
þar sem hann átti sæti í bæjar-
stjórn og skólaráði. Um árabil
37 ákærðir
í Grikklandi
Aþenu, 25. febrúar.
Reuter.
37 FORINGJAR úr gríska hern-
um, þar á meðal sex hershöfðingj-
ar, voru í dag ákærðir fyrir að
hafa gert uppreisn með þvf að
taka þátt f byltingartilraun í gær.
Alls voru 100 handteknir, en
flestir látnir lausir.
Konstantin Karamanlis for-
sætisráóherra hét því í dag að
birta allar upplýsingar sem kæmu
fram í rannsókn málsins. Hann
kallaði byltingarmennina
„krabbamein í heraflanum" sem
yrði að útrýma.
Hann kallaði byltingarmennina
„heimska og skammsýna menn“
og úr hópi fárra manna sem
„væru enn aðdáendur einræðis-
stjórnar". Hann sagði að það
sýndi að góður andi væri i hern-
um að þeir hefðu fengið lítinn
stuðning.
hefði hann verið formaóur norsk-
færeyska og norsk-íslenzka
félagsins. Hann hefði verið
skipaður ráðuneytisstjóri i
kirkju- og menntamálaráðuneyt-
inu 1965 og verið fulltrúi i
Norðurlandaráði frá 1971.
Guttorm Hansen gat þess síðan
að Tönnes Andenæs hefði verið
kjörinn þingmaður Akerhus-
fylkis fyrir Verkamannaflokkinn
1971 og endurkjörinn 1973.1 Stór-
þinginu hefði hann fyrst átt sæti í
samgöngunefnd og i stjórnsýslu-
nefnd frá 1973. Hann sagði síðan:
— Tönnes Andenæs var sér-
stæður persónuleiki sem tók föst-
um og alvarlegum tökum þau mál
sem hann vann að. Hann lét
menningarmál einkum tii sín taka
auk norrænnar samvinnu sem
áttu sér góðan málsvara á Stór-
þinginu þar sem hann var. Þátt-
taka Andenæs í störfum Noróur-
landaráðs gerði honum kleift að
vinna ötullega að þessum málum
og hann lagði sig i líma við að
hrinda þeim i framkvæmd. i
síðustu viku sat hann fund
Norðurlandaráðs i Reykjavík. Það
var hinzta þingmannsstarf hans.
Andenæs lét sig innra lif Stór-
þingsins miklu varða og beitti sér
fyrir því að vinnuskilyrði þar
yrðu bætt.
— Tönnes Andenæs átti aðeins
vini í Stórþinginu. Hann lét ekki
ágreiningsmál standa í vegi fyrir
vináttu og þótt hann tæki málin
föstum og alvarlegum tökum
gerði skopskyn hans hann að kær-
um vini okkar allra. Hann féll
fyrir aldur fram og lát hans er
mikill missir, sagði Stórþingsfor-
seti.
Þinghúsið var næstum því full-
setið þegar minningarræðan var
flutt. Bratteli forsætisráðherra,
Frydelund utanríkisráðherra og
Bjartmar Gjerde kirkju- og
menntamálaráðherra mættu fyrir
hönd stjórnarinnar.
Samúðarkveðjur vegna járn-
Símamynd AP.
MINNINGARRÆÐA: — Forseti
norska Stórþingsins, Guttorm
Hansen flytur minningarræðu
sína um Tönnes Andenæs sem
fórst í járnbrautarslysinu á laug-
ardaginn.
brautarslyssins hafa meðal
annars borizt frá samgöngumála-
ráðherrum Belgíu, Hollands,
Bretlands og Austur-Þýzkalands.
Óbreytt
olíuverð
Vín, 25. febrúar.
Reuter.
IRANSKI innanrikisráðherrann,
Jamshid Amouzegar, sagði í dag
að engin breyting yrði samþykkt
á olíuverði á fundi OPEC-
landanna f Algeirsborg í næstu
viku.
Hann tók þó fram að rætt yrði
hvað gera skyldi til að koma i veg
fyrir tekjumissi vegna lækkandi
gengis dollarans. Kannað yrði
hvort hætt skyldi að verðleggja
oliu i dollurum.
Nikolai Bulganin
marskálkur tátinn
Moskvu, 25. febrúar.
NTB. Reuter
NIKOLAI Alexandrovich Bufg-
anin marskálkur, fyrrverandi
forsætisráðherra Sovétrfkj-
anna, fézt f gær eftir langvar-
andi veikindi, 79 ára að aldri,
að þvf er fréttastofan Tass til-
kynnti i dag.
Bulganin varð forsætisráð-
herra í stað Georgi Malenkovs í
febrúar 1955 og hafði áður ver-
ið landvarnaráðherra og
bankastjóri landsbankans. Nik-
ita Krúsjeff tók við embætti
hans aðeins þremur árum sfðar
og Bulganin varð aftur banka-
stjóri.
Hann ferðaðist til fjölda
landa ásamt Krúsjeff á mektar-
árum sínum og sat meðal ann-
ars fyrsta fund æðstu manna
austurs og vesturs eftir Pots-
dam-ráðstefnuna í Genf 1955.
Þeir fóru meðal annars til Júgó-
slavíu, Sviss, Indlands, Burma,
Afghanistan, Bretlands, Finn-
lands og Tékkóslóvakíu.
Þeir virtust óaðskiljanlegir
og blöðin kölluðu þá tvístirnið
eða „Krússa og Búlla“. En
Krúsjeff fór um hann háðuleg-
um orðum þegar hann kom til
Noregs 1964, aðeins fjórum
mánuðum áður en honum var
sjálfum steypt af stóli: „Hann
var bókhaldari. Hann hefur
aldrei verið annað en bókhald-
ari og varð aldrei stjórnmála-
maður.“
Bulganin komst áfram með
Bulganin marskálkur.
skrifstofuvinnu. Faðir hans var
bókhaldari í verksmiðju og
sjálfur var Bulganin upphaf-
lega starfsmaður i verksmióju.
Hann gekk í flokk bolsévíka
1917 og hóf feril sinn i leynilög-
reglunni Cheka. Hann var
starfsmaður ríkisfyrirtækja
1922—31 og síðar yfirborgar-
stjóri Moskvu.
I heimsstyrjöldinni gegndi
Bulganin pólitískum störfum í
hernum og 1947 var hann skip-
aður landvarnaráðherra og
varaforsætisráðherra. Hann
var gerður að marskálki þótt
hann hefði aldrei verið hermað-
ur og aldrei stjórnað her. Hann
var leystur frá störfum land-
varnaráðherra 1949 en var falið
að samræma vígbúnað og hafði
titilinn varaforsætisráðherra.
Eftir dauða Stalíns 1953 varð
Búlganin landvarnaráðherra á
ný og samstarfsmaður Malen-
kovs, Beria, Molotovs og Kagan-
ovichs en siðan náinn sam-
starfsmaður Krúsjeffs þegar
hann sigraði í valdabaráttunni
og forsætisráðherra hans og
ferðafélagi. Aldrei fór á milli
mála hvor þeirra réð ferðinni.
Hann féll i ónáð 1957 þegar
hann tók afstöðu með Malen-
kov, Molotov og meirihluta
stjórnmálaráðsins er gerðu
uppreisn gegn Krúsjeff en töp-
uðu. Hann fékk að halda for-
sætisráðherraembættinu í eitt
ár þar til Krúsjeff tók sjálfur
við þvi.
Buiganin varð að gagnrýna
sjálfan sig fyrir að hafa
stjórnað „flokksfjandsamlegri
klíku". Hann sætti nýjum árás-
um 1959 og var skipaður í stöðu
úti á landsbyggðinni en var sið-
an skipaður bankastjóri lands-
bankans.
Sennilega tók hann aldrei við
því starfi en hann fékk eftir-
laun og bjó í Moskvu til dauða-
dags. Arið 1971 fréttist á Vest-
urlöndum að hann hefói verió
sviptur öllurn flokksstörfum og
marskálksnafnbótinni, lækkað-
ur i tign og geróur að hers-
höfðingja. Hann sást oft á göt-
um Moskvu á síðustu æviárum
sínum, en þegar hann lézt hafði
almenningur í Sovétríkjunum
gleymt honum.
Stöðvast allt
í Danmörku?
Frá Gunnari Rytgaard
Kaupmannahöfn, 25. marz
VERKFÖLL og verkbönn munu
ná til 250.000 til 300.000 verka-
manna upp úr mánaðamótunum
ef sáttasemjara rfkisins tekst
ekki að finna samkomulags-
grundvöfl f vinnudeilunni I Dan-
mörku á síðustu stundu.
Verkalýðsfélög hafa boðað
verkföll sem munu ná til fyrir-
tækja með um 200.000 starfs-
mönnum og vinnuveitendur hafa
svarað með því að boða verkbann
á fyrirtæki sem hafa verið undan-
skilin.
Þar er aðallega um að ræða
tæknistarfsmenn litilla dagblaða
þar sem ekki hefur komið til
verkfalla og verkföll hafa ekki
verið boðuð. Þetta eru dagblöð
sem hafa minna upplag en 50.000.
Verkföll hafa verið boðuö hjá
14 stærstu dagblöðum landsins.
Með verkbanni sínu vilja vinnu-
veitendur koma í veg fyrir að
prentarar hjá dagblöðum sem
koma út geti hjálpað verkfalls-
mönnum hjá öðrum blöðum.
Sáttasemjari getur krafizt þess
að vinnustöðvun verði frestað í
tvær vikur og hann getur enn
beóið um tveggja vikna frest ef
vinnustöðvun kemur niður á
starfsemi sem er þjóðfélagslega
nauðsynleg.
Fulltrúar verkalýðssambands-
ins og vinnuveitenda voru enn á
fundum hjá sáttasemjara í dag en
óvfst er hvort sáttasemjara tekst
að koma málum það mikið áleiðis
fyrir 3. marz, þegar verkföllin
eiga að hefjast, að grundvöllur
verði fyrir samkomulagi.
Hins vegar bendir flest til þess
að deilan á vinnumarkaðnum
verði skammvinnþóttmörg verk
föll hafi verið boðuð. Þau tvö
verkalýðsfélög sem flutninga-
starfsmenn eru i hafa boðað verk-
föll sem meðal annars beinast
gegn bensínstöðvum, rafmagns-
stöðvum og orkuverum.
Formaður sambands vinnuveit-
enda, Leif Hartwell, segir að það
sem vaki fyrir verkalýóssamband-
inu með verkfallsboðununum sé
að lama þjóðfélagið og neyða
stjórnmálamenn til að skerast í
leikinn. „Ef tekið verður fyrir
oliu, bensín og rafmagn verður
stjórnin að gripa inn í, annars
stöðvast allt þjóðfélagið," sagði
hann.
Thomas Nielsen hefur verið að
þvi spurður hvort stjórnin eigi að
skerast í leikinn gagnvart mál-
gagni verkalýðssambandsins,
Aktuelt, og hann sagði „Það hlýt-
ur að fara eftir þvi hvers eðlis slik
ihlutun væri. Erfitt er að hugsa
sér lausn sem felur ekki i sér
láglaunabætur og dýrtiðarupp-
bót.“
Vinnuveitendur vilja afnema
uppbótina en verkalýðssambandið
leggst eindregið gegn þeirri
kröfu.
Verkalýðssambandið vill
forðast langt verkfall þar sem það
á lítið fé i verkfallssjóði. Aðeins
eru tvö ár liðin síðan síðast kom
Framhald á bls. 27
Concorde-
ferðir að
hefjast?
FYRSTU áætlunarflugferðir
hljóðfrárra þotna hefjast f haust
á vegum franska flugfélagsins
Air France og verða milli Parfsar
og Rio De Janeiro með viðkomu f
Dakar að sögn The Times.
Bretar hafa ráðgert slfkar ferð-
ir til New York en þeim áformum
mun seinka vegna ágreinings um
lendingarréttindi og þau komast
ekki til framkvæmda fyrr en f
fyrsta lagi í aprfl á næsta ári að
sögn blaðsins.
Bretar kanna hins vegar aðra
ákvörðunarstaði fyrir Concorde
og Air France vonast til að geta
tekið upp ferðir milli Parisar og
Tokyo um Síberiu en vandkvæði
eru á þvi segir Times'
Fargjöld i Concorde-ferðum Air
France verða 10—20% hærri en í
venjulegum flugvélum. Ef banda-
risk flugfélög i IATA, Alþjóða-
sambandi flugfélaga, neita að
samþykkja þau fargjöld ætlar Air
France að knýja þau i gegn með
stuðningi frönsku stjórnarinnar
að þvi er Times segir.
ceRamix - kranínn sem
aldreí lekur @STANDARD
Og þarað
Nú eru pakkningar og þéttihringir úr sögunni.
IDEAL STANDARD hefur fundlð upp krana sem
aldrei lekur.
Tvær plötur úr "keramik” koma Í staö kerfis
hins venjulega krana.
Mun léttari gangur - alger vatnsheldni:
Piöturnar eru slípoöar með "micro” ná-
kvæmni og haldast þar af leiöandi mjög
þétt saman - engir aóskota hlutir
komast a milli, hversu
litlir sem þeir eru.
Já-þessar
plötur,
sem
ekki
eyöast,
tryugja
fullkomna
endingu og
öryggi.
auki er kraninn frá IDEAL STANDARD mjög fallegur-kraninn sem ekki eldist.