Morgunblaðið - 26.02.1975, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1975
16___________________
Bændur og
húsfreyjur
leika Þorlák
þreytta
AÐ undanförnu hefur Leikflokk-
urinn sunnan Skarðsheiðar æft
gamanleikinn Þorlák þreytta.
Leikstjóri er Brynja Kjerúlf,
Leirárskóla. Alls eru hlutverkin
13 og eru það húsfreyjur og
bændur, sem fara með hlutverk-
in. Ætlunin er að frumsýna í lok
febrúar.
Þetta er annað leikár leik-
flokksins, en að honum standa
ungmenna- og kvenfélögin á
svæðinu, alls 6 félög. Leikflokkur-
inn varð fyrir miklu tjóni á
síðasta ári, þegar félagsheimiiið
að Hlöðum, Hvalfjarðarströnd,
brann. Brann þar allur útbúnaður
leikflokksins. Er því mjög mikil
vinna og kostnaður við endurnýj-
un leikmuna.
Sýningar verða í Fannahlíð í
Skilmannahrepp og er unnið að
lagfæringum á húsinu.
— Fjár aflað
Framhald af bls. 12
inn sagði síðan, að rétt væri að
verja öllum tekjum af þessu eiha
prósentustigi, sem hann gerði ráð
fyrir að myndu nema a.m.k. 1100
millj. kr., til að minnka vanda
þeirra, sem verst væru staddir i
húshitunarmálunum.
Helgi Seljan sagði, að menn
hefðu spurt á Austurlandi, eftir
síðustu olíuverðshækkun, hvort
olfustyrkurinn myndi ekki hækka
að sama skapi. Fólk hefði reiknað
með því. Þingmaðurinn sagðist
síðan vilja lýsa yfir algerri and-
stöðu við það ákvæði frumvarps-
ins, sem gerði ráð fyrir óbreyttum
styrk að krónutölu.
Steingrfmur Hermannsson
sagði, að þetta frumvarp væri frá-
hvarf frá gildandi lögum, þar sem
ekki ætti að verja öllu því fé, sem
aflaðist með þessu móti til að
greiða niður olíuna. Ljóst væri að
mismunurinn milli hitaveitu og
olíukyndingar hefði aukist enn.
Þingmaðurinn sagðist ekki geta
tekið afstöðu með þessu frum-
varpi, nema hann hefði áður
fengið skýrslu um þennan mis-
mun.
Olafur Jóhannesson viðskipta-
ráðherra sagði, að engum hefði
dottið í hug, að unnt væri að jafna
allan mismun út, sem væri á milli
húshitunar með hitaveitu og olíu.
Hér væri aðeins um styrk að ræða
og hann myndi aðeins hækka ör-
lítið, þó að allt söluskattsstigið
yrði notað. Með þessu frumvarpi
væri alls ekki stefnt að því að
jafna með öllu þennan mismun,
heldur aðeins að draga nokkuð úr
honum.
Jón Arnason sagði, að þetta
frumvarp væri efnislega sam-
hljóðá gildandi lögum um þetta
efni. Menn væru á eitt sáttir um
að framlengja gildistíma þessa
söluskattsstigs, en skiptar skoðan-
ir væru um það, hvort auka ætti
niðurgreiðslurnar eða verja aukn-
um fjármunum til orkusjóðs. Að
sinni hyggju ætti það fullan rétt á
sér að verja nú hluta af þessu
fjármagni til jarðhitarannsókna
og hitaveituframkvæmda, fátt
kæmi betur að gagni þeim, sem
kyntu með olíu en það að flýta
orkuframkvæmdum sem mest.
Þetta væri eitt af því, sem leggja
bæri megináherslu á.
Þá vék þingmaðurinn að því, að
deilt hefði verið á framkvæmd
þessarar niðurgreiðslu. Því hefði
verið haldið fram, að hún væri
bæði of dýr og óréttlát. Hann
vildi því beina því til þeirrar
þingnefndar, sem fengi málið til
athugunar, að hún kannaði, hvort
ekki mætti koma annarri skipan á
greiðslu styrksins.
Rauðsokkar mót-
mæla endurskoð-
uðu fóstureyð-
ingarfrumvarpi
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
bréf sem Rauðsokkahreyfingin
hefur ritað alþingismönnum
vegna þeirrar endurskoðunar sem
fram hefur farið á frumvarpi til
laga um ráðgjöf og fræðslu varð-
andi barneignir og kynlff og um
fóstureyðingar og ófrjósemisað-
gerðir, sem upphaflega var lagt
fram á Alþingi 1973.
Rauðsokkar hafa sitthvað við
þessa endurskoðun að athuga og
gera í fyrsta lagi að umtalsefni að
eingöngu karlar skuli hafa setið í
nefndinni er frumvarp þetta
endurskoðaði, þeir hafi ekki þær
líkamlegu forsendur sem séu
nauðsynlegar til að geta fjallað
um ofangreind mál af fullum
skilningi og fráleitt sé að ætla
körlum einum að leggja drög að
lögum, sem konur einar verða að
hlíta.
Einnig þykir rauðsokkum aftur-
för í hinu endurskoðaða frum-
varpi að skólayfirlækni skuli ætl-
að að annast framkvæmd og upp-
byggingu fræðslustarfs um kyn-
ferðismál á skyldunámsstigi og
einn þáttur fræðslumála þar með
tekinn undan stjórn skólayfir-
valda. Alvarlegasta misbrestinn í
frumvarpinu telja þó rauðsokkar
að í því sé sjálfákvörðunarréttu
kvenna um fóstureyðingar tekinn
af þeim og færður undir óviðkom-
andi aðila. „Sá hroki, sem fram
kemur í þessari valdbeitingu, sýn-
ir að enn er í fullu gildi hið alda-
gamla vanmat á siðferðisvitund
og ábyrgðartilfinningu kvenna",
segir í bréfi rauðsokkahreyfingar-
innar.
Myndhöggvarar
með FÍM
A FUNDI Myndhöggvarafélags-
ins I Reykjavík 22. febrúar 1975
var eftirfarandi tillaga samþykkt:
Myndhöggvarafélagið í Reykja-
vík lýsir fyllsta stuðningi við
Félag íslenzkra myndlistarmanna
í baráttu þess við borgaryfirvöld
Reykjavíkur út af Kjarvalsstöð-
um og mun hafa algjöra samstöðu
með F.Í.M. i þessu máli.
Stjórn Myndhöggvarafélagsins.
Háseta
vantar
á 250 tonna loðnubát, sem síðar fer á
net, frá Grindavík. Uppl. í síma 92-7149
og 7120.
Stúlka óskast
Stúlka óskast til starfa hjá aðalumboði
happdrættis.
Vélritunarkunnátta áskilin. Umsóknir
sendist blaðinu fyrir 28. feb. merktar,
Umboð — 6613"
Skrifstofustarf
— Samvizkusemi
Óskum að ráða kvenmann til að annast
gjaldkerastörf og viðskiptamannabók-
hald. Hér er um að ræða fjölbreytt starf
fyrir röskan og samvizkusaman kven-
mann. Tilboð merkt „rösk — 6635"
sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
n.k. föstudagskvöld.
Óskum eftir að ráða
Rennismiði,
vélvirkja
og aðstoðarmenn.
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar h. f.,
Arnarvogi, Garðahreppi, sími 52850.
Ráðunautur
Búnaðarsamband Vestur-Húnavatnssýslu
óskar að ráða héraðsráðunaut frá 1. júní
n.k Áskilið er, að auk venjulegra ráðu-
nautsstarfa hafi hann á hendi eftirlit með
mjaltavélum.
Nánari uppl. gefur formaður Búnaðar-
sambandsins, Sigurður Líndal, Lækjamóti
og Aðalbjörn Benediktsson, ráðunautur,
Grundarási.
Umsóknir sendist formanni Búnaðarsam-
bandsins fyrir 1 0. marz n.k. Stjórnin.
Matsvein og háseta
vanan netaveiðum vantar strax á v/b
Gullborgu VE. 38. Uppl. í síma 98-1597
og 98-1823, Vestmannaeyjum.
Skrifstofustúlka
Stórt innflutningsfyrirtæki í miðbænum
óskar að ráða stúlku til símavörzlu og
vélritunarstarfa. Starfið krefst stundvísi,
nokkurar tungumálakunnáttu (enska,
danska) og góðrar framkomu. Umsóknir
um starfið sendist í pósthólf 529 Reykja-
vík.
Aðalumboðsmaður
öskast
Fyrir velþekkt sænskt fyrirtæki sem framleiðir aðallega hús-
plötueiningar af ólikum gerðum og stærðum tilbúnum til
samsetningar.
Húsin eru frábærlega vel hönnuð, auðveld í samsetningu og
ódýr
Einnig fyrir dótturfyrirtæki okkar, sem framleiðir vinddrifná
rafmótora og vatnsdælur af ýmsum stærðum.
Svar með nákvæmurh upplýsingum um sölumöguleika send-
ist.
BARA HUS AB., 230 40 Bara, Sweden.
Oskum að ráða
mann til almennra skrifstofustarfa á skrif-
stofu vorri nú þegar eða sem fyrst.
Eiginhandarumsóknir leggist inn á skrif-
stofu vora.
Síld og fiskur,
Bergstaðastræti 3 7.
Kerfisfræðingur
— Programmer
Óskum að ráða kerfisfræðing og / eða
programmer, er hafi reynslu í einhverju
eða öllum eftirfarandi forritunarmálum:
Basic, — Fortran, — Assenbler, — P1 1
— Cobol.
Til greina kemur að ráða tækni- eða
verkfræðing er hafi reynslu í kerfissetn-
ingu.
Starfið hefzt á námskeiði og kynningu
erlendis.
Umsókir sendist Morgunblaðinu fyrir 3.
marz 1975 merkt: K-8824.
Húsvarðastaða
óskast
Helst að húsnæði fylgi.
Sími 1 8259 kl. 6—8 á kvöldin.
Sölumaður
Heildverzlun í Reykjavík óskar að ráða
sölumann eða konu strax til sölu á fatnaði
og fleiru. Mjög góðir frarntíðarmöguleik-
ar. Tilboð sendist Mbl. fyrir mánudaginn
3. marz merkt. „starf — 6611."
Véltæknifræðingur
Véltæknifræðingur óskast til starfa við
tilraunaframleiðslu og framleiðsluprófan-
ir.
Þeir sem áhuga hafa á slíku starfi vinsam-
legast sendi upplýsingar um fyrri störf og
launakröfur merktar „Véltæknifræðingur
8968".
Húsnæði —
hjúkrun
Róleg eldri kona óskast til að annast
sjúkling (konu) sem hefur fótavist. Við-
komandi gæti unnið úti eftir hádegi. Frítt
húsnæði.
Tilboð merkt „róleg — 6615 " óskast
send afgreiðslu blaðsins fyrir 4. mars n.k.
Fóstrustörf
Eftirtalin störf við leikskólann að Álfa-
skeiði 16, Hafnarfirði eru laus til umsókn-
ar.
Starf forstöðukonu. Starfið verður veitt
frá 20. apríl n.k.
Starf fóstru. Hálfs dags starf veitt frá 1.
apríl n.k.
Umsóknum skal skila á Bæjarskrifstofurn-
ar eigi síðar en 1 0. marz n.k.
Bæjarstjórinn íHafnarfirði.