Morgunblaðið - 26.02.1975, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1975
Enn skorti herzlumuninn
Júgóslavar báru sigur-
orð af íslendingum f hand-
knattleikslandsleiknum
sem fram fór í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi.
19—17 urðu úrslit leiksins,
eftir að Júgóslavarnir
höfðu haft yfir í hálfleik
10—8.
Leikurinn varð mjög
spennandi undir lokin, er
íslendingum tókst smátt
og smátt að vinna upp
fimm marka mun sem
Júgóslavarnir höfðu náð
um tíma, og minnka hann
niður í eitt mark, er um
tvær mínútur voru til
leiksloka. Á þessum loka-
mínútum sýndu Júgóslav-
arnir hversu leikreynslan
hefur mikið að segja. Þeir
héldu knettinum og fóru
sér að engu óðslega. Is-
lendingarnir reyndu hins
vegar ákaft að ná knettin-
um, og það varð til þess að
Birgir Björnsson þjálfari:
Þetta er enn ein sönnun þess að
það vantar aðeins herzlumuninn
til að við blöndum okkur í hóp
beztu liða í heimi. Við verðum
bara að vona að við getum haldið í
þessa stráka, skapað þeim aðstöðu
og útvegað þeim góðan þjálfara.
Ég tel það t.d. algera nauðsyn að
geta sent liðið í æfingabúðir
nokkrum sinnum á ári. Varðandi
Axel víl ég taka fram, að ég von-
aði í.lengstu lög að þetta kæmi hjá
honum, en hann fann sig bara
ekki.
Josib, landsliðsþjálfari Júgó-
slava: Ég er nokkuð ánægður með
leik minna manna og við áttum að
vinna stærra. Þessi ferð hingað er
undirbúningur fyrir OL og ég er
að þreifa mig áfram. Liðið er ekki
í sem beztu formi, en ég hef trú á
smuga opnaðist í vörninni
og Serdarusic gat smeygt
sér inn og innsiglað þar
með sigur Olympíumeist-
aranna.
Leikur þessi var töluvert ólíkur
hinum fyrri, og þá sérstaklega að
því leyti að Júgóslavarnir léku nú
miklu harðari og grófari leik en
þá. Gengu eins langt og dómar-
arnir framast leyfðu, og verður að
segjast eins og er að þeir voru
hreint ekki smámunasamír þegar
um brot var að ræða. Urðu oft
allhörð átök í leiknum og full
ástæða hefði verið að kæla fleiri
en þá tvo Júgóslava sem vísað var
útaf. Þannig gerðist t.d. leikmað-
urinn Krivokapic hvað eftir ann-
að gróflega brotlegur, en slapp
með aðeins eina áminningu.
Það munaði heldur ekki litlu
fyrir Júgóslavana í þessum leik
að aðalmarkvörður þeirra, Zorko,
sem var ekki með í fyrri leiknum,
var i ham og varði oft stórkostlega
vel, m.a. tvö vítaköst.
Greinilegt var að Júgóslavarnir
höfðu búið sig undir að ís-
lendingar myndu haga vörn sinni
á sama hátt og í fyrri leiknum.
að þetta fari að koma. Það stend-
ur allt fullkomlega sem ég sagði
um islenzka liðið eftir fyrri leik-
inn. I þessum leik fundust mér
markverðirnir bezlir.
Knut Nilsson, norskur dómari:
íslenzka liðiðhefurkomiðmjögá
óvart í þessum leikjum og mér
fánnst það leika betri handknatt-
leik i þeim báðum, þótt það ynni
ekki. Þið eruð að ná upp mjög
góðu liði og ég vona bara að Norð-
menn lendi ekki með vkkur í riðli
í undankeppni OL. Báðir leik-
irnir voru jafnir og nokkuð harðir
en ekki mjög erfiðir að dæma.
Ölafur Jónsson: Júgóslavarnir
voru nú mun harðari og grófari í
vörninni en í fyrri leiknum, og
beir léku öðruvísi. Það sem skipti
sköpum í þessum leik var hvað
við misnotuðum mörg dauðafæri.
Þeir fóru meira fram á völlinn og
freistuðu þess að draga Islending-
ana þangáð með sér, og stækka
eyðuna að baki þeirra.
Heppnaðist þetta allvel hjá þeim í
byrjun. I vörninni breyttu
Júgóslavarnir einnig til, og léku
4—2 vörn til að byrja með. Hún
gafst þeim hins vegar afleitlega,
þar sem Islendingarnir skoruðu
úr öllum upphlaupum sínum til
að byrja með og breyttu þeir þá
aftur til, jafnframt því sem þeir
hertu mjög tökin.
Eins og í fyrri leiknum var
hraóinn aðalvopn júgóslavneska
liðsins og að þessu sinni nýttist
hann miklu betur en í fyrri leikn-
um. Aðalástæðan fyrir þvi voru
innáskiptingarnar hjá íslenzka
landsliðsþjálfaranum, Birgi
Björnssyni, sem tók þann kostinn
að skipta lengi vel tveimur sókn-
arleikmönnum út'af eftir hverja
sókn. Voru íslendingarnir stund-
um tveimur færri á vellinum með-
an Júgóslavarnir brunuðu upp og
skoruðu. Þessi ráðstöfun Birgis
var í meira lagi hæpin, og í heild
má segja að stjórn hans á liðinu í
leiknum hafi ekki verið til þess
hrópa húrra fyrir. Þannig var það
Markvörður þeirra var góður, en
hann var lika heppinn. Annars
erum við bara ekki undir það
búnir að leika 2—3 leiki í röð, það
hefur sýnt sig í leikjunum aó und-
anförnu.
Axel Axelsson: Ég er nú heldur
óhress yfir minni frammistöðu, ég
fann mig bara ekki. Ég fór alveg í
óstuó strax þegar við lékum 4—2
með þá Öla og Björgvin á línunni
og Júgóslavarnir hirtu alla blot-
1 KVÖLD fara fram tveir leikir f
1. deildar keppni fslandsmótsins
í handknattleik. Leikið verður í
Laugardalshöllinni. 1 fyrri leikn-
um mætast Vfkingur og Grótta og
hefst sá leikur kl. 20.15, en sfðan
leika Fram og FH og hefst sá
ekki fyrr en komið var fram í
seinni hálfleik sem hann sá
ástæðu til þess að kippa Axel Ax-
elssyni útaf, en Axel átti þarna
einn sinn slakasta leik í mjög
langan tíma, svo sem ef til vill má
bezt sjá af því að hann átti sex
skot á mark Júgóslavanna og
skoraði aðeins eitt mark, og eigi
sjaldnar en sex sinnum tapaði Ax-
el knettinum fyrir klaufaskap eða
fljótfærni. í jafn erfiðum leik
sem þessum geta slík mistök sem
þessi haft úrslitaáhrif, og senni-
lega hafa allir nema landsliðs-
þjálfarinn séð fljótlega að þetta
myndi ekki vera dagurinn hans
Axels.
Og það var raunar ekki fyrr en
Axel hafði verið tekinn útaf og
látið af því að skipta mönnum til
og frá í sókn og vörn að íslenzka
landsliðið fór að ná sér bærilega á
strik. En það var þá i síðasta lagi,
þar sem seinni hálfleikurinn var
hálfnaður og munurinn orðinn 5
mörk. Síðasta stundarfjórðunginn
lék íslenzka landsliðið hins vegar
með afbrigðum vel og tókst að
saxa á forskot Júgóslavanna, eins
og áður segir.
Eins og í fyrri leiknum varð það
Bjarni Jónsson sem kom einna
ana sem þeim voru ætlaðir. Þeir
voru greinilega viðbúnir þessu.
Ég veit ekki hver er orsökin,
kannski eru það of margir leikir á
stuttum tíma og þessi þeytingur á
milli landa hjá mér? Það eru baeði
gleði og sorg í íþróttinni og það
þýðir ekkert að gefast upp þó
móti blási. Því miður get ég lík-
lega ekki verið með á móti Tékk-
um, við eigum að leika í þýzku
deildinni þá helgi.
leikur kl. 21.30.
í Garðahreppi fer fram einn
leikur í 1. deild kvenna og eigast
þar við UBK og Fram. Leikurinn
hefst kl. 21.00 og að honum lokn-
um kl. 22.00 leika Stjarnan og
UBK f 2. deild karla.
bezt frá leiknum. Kraftur hans og
dugnaður voru með eindæmum
bæði í sókn og vörn. Ólafur Jóns-
son stóð sig einnig frábærlega vel,
og var auðséð að Júgóslavarnir
höfðu ákveðið fyrir leikinn að
taka hann föstum tökum. Var oft
óþyrmileg meðferðin sem Ölafur
fékk, þegar hann lék inni á lín-
unni. Einar Magnússon átti þarna
góðan leik, svo og Hörður Sig-
marsson, sem var þó alltof ragur
við að reyna að skjóta sjálfur. Það
var líka næsta furðulegt hversu
dómararnir voru mildir við
Júgóslavana sem brutu mjög
harkalega á Herði í þau skipti
sem hann reyndi að fara inn úr
hægra horninu.
En þótt manni hafi ef til vill
fundizt, að íslenzka liðið hefði
haft burði til þess að vinna
júgóslavnesku Olympíumeistar-
ana í þessum leik, ekki síður en í
hinum fyrri, er rétt að benda á og
undirstrika, að auðvitað er þessi
árangur islenzka landsliðsins í
leikjunum tveimur stórglæsileg-
ur. Hversu margar þjóðir geta
státað af svo góðum árangri gegn
Júgóslövunum, jafnvel á heima-
velli. Þær eru mjög fáar. Okkur
er óhætt að slá því föstu aó við
eigum nú betra landslið en oftast
áóur og fái það tækifæri til þess
að æfa vel og búa sig undir þau
stórátök sem fram undan eru,
þarf enginn að kviða.
1 stuttu máli:
Landsleikur í Laugardalshöll
25/2
Island — Júgóslavía 17—19
(8-10)
Gangur leiksins:
Mín. Isiand Júgóslavía
1. Bjarni 1:0
3. 1:1 Pokrajac
4. ÓlafurE. 2:1
5. 2:2 Serdarusic
6. Einar 3:2
7. 3:3 Pavicevic
7. 3:4 Serdarusic
8. ÓlafurJ. 4:4
9. 4:5 Milak
13. 4:6 Krivokapic (v)
15. Viðar 5:6
17. 5:7 Pokrajac
20. 5:8 Krivokapic (v)
21. 5:9 Pokrajac
24. ÓlafurE. (v) 6:9
25. Axel 7:9
26. 7:10 Fejzula
28. ÓlafurE. 8:10
Hálfleikur
32. 8:11 Pavicevic
33. 8:12 Pribanic
34. ÓlafurJ. 9:12
36. 9:13 Prodanic
36. ÓlafurJ. 10:13
37. 10:14 Krivokapic (v)
39. 10:15 Pribanic
41. Einar 11:15
42. 11:16 Milak
42. Bjarni 12:16
46. 12:17 Krivokapic (V)
48. Hörður 13:17
52. Hörður 14:17
55. Bjarni 15:17
56. 15:18 Pakrajac
57. ÓlafurJ. 16:18
58. Bjarni 17:18
59. 17:19 Serdarusic
Mörk Islands: Bjarni Jónsson 4,
Ólafur H. Jónsson 4, Ölafur Ein-
arsson 3, Hörður Sigmarsson 2,
Einar Magnússon 2, Viðar Simon-
arson 1, Axel Axelsson 1.
Mörk Júgóslavíu: Krivokapic 4,
Pokrajac4, Serdarusic3, Pribanic
2, Pavicevic 2, Milak 2, Fejzula 1,
Prodanic 1.
Brottvisanir af velli: Serdarus-
ic og Pribanic i 2 mín.
Misheppnuð vitaköst: Zorko
varði vítakast frá Einari Magnús-
syni á 12. mín. og frá Axel Axels-
syni á 23. mín. Óiafur Benedikts-
son varði vitakast frá Milak á 50.
min.
Dómarar: Huseby og Nielsen
frá Noregi, og dæmdu þeir þenn-
an leik hvergi nærri því eins vel
og hinn fyrri. Virtust ekki hafa
nógu góða stjórn og ákveðni, þeg-
ar harka tók aó færast í leikinn.
— stjl.
Ólafur Jónsson — fyrirliði íslenzka landsliðsins átti stórleik í gærkvöldi, og skoraði falleg mörk.
Sagt eftir leikinn
Stórleikir í kvöld