Morgunblaðið - 26.02.1975, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRUAR 1975
Söluskattur hœkkar í 20%:
500 millj. vegna Norðfjarðar
— 1100 milljónir vegna eldgossins í Eyjum
RÍKISSTJÓRNIN lagði fram á Alþingi í gær frumvarp
um ráðstafanir vegna snjóflóða í Norðfirði og fjáröflun
til Viðlagasjóðs. Ennfremur lagði rfkisstjórnin fram
frumvarp um ráðstafanir til að draga úr áhrifum olíu-
verðshækkunar á hitunarkostnað íbúða. Efni frumvarp-
anna er f meginatriðum þetta:
Loðna er nú tekin að
berast til Reykjavík-
ur og var mikil
loðnulöndun þar í
gær. Myndin er af
Berki NK, er landað
var úr honum í gær.
Ljósm. Sv. Þorm.
□
□
Sjá frásögn af umræðum
á Alþingi á bls. 12
□
□
) Söluskattur er hækkaður um
1% f 20% til þess að standa
undir kostnaði vegna snjóflóð-
anna á Norðfirði.
I Áætlað er, að útgjöld Viðlaga-
sjóðs vegna hamfaranna á Nes-
kaupsstað muni verða um 500
milljónir króna en að auki
skortir 1100 miiljónir til þess
að Viðlagasjóður geti staðið
við skuldbindingar sfnar
vegna eldgossins í Eyjum.
Framlenging söluskattsstigs
frá fyrri árum vegna Vest-
mannaeyja og nýtt söluskatt-
stig vegna Norðfjarðar tryggir
Viðlagasjóði þær 1600 milljón-
ir króna, sem sjóðinn vantar á
þessu ári vegna náttúruham-
faranna á þessum tveimur
stöðum.
i Gert er ráð fyrir, að 32% af
auknum tekjum Viðlagasjóðs
renni f Norðfjarðardeild en
68% til Vestmannaeyja.
Rfkisstjórninni er heimilt f
samráði við Sfldarverksmiðjur
rfkisins að selja Sfldarvinnsl-
unni á Neskaupstað vélar og
tæki úr þeim verksmiðjum
Sfldarverksmiðjanna, sem
ekki er fyrirsjáanleg þörf fyr-
ir á næstunni, með mjög hag-
stæðum greiðsluskilmálum.
Gert er ráð fyrir, að áfram
renni eitt söluskattsstig til að
greiða niður olfukostnað
vegna húsahitunar. Þó er sú
breyting gerð, að þeir sem fá
hitaveitu fyrir 29. febrúar
1976 fá ekki greiddan olfu-
styrk og hluta þessa f jármagns
verður varið f orkusjóð til
jarðhita- og hitaveitufram-
kvæmda.
Frumvarpið um niðurgreiðslu
olíuverðs gerir ráð fyrir, að styrk-
ur vegna olíukyndingar verði
áfram kr. 7.200 fyrir hvern íbúa.
Lífeyrisþegar fá þó l'A styrk ein-
staklings, eða 10.800 krónur. Jafn-
framt er gert ráð fyrir, að nokkr-
um hluta þess fjármagns, sem
þannig verður aflað, verði varið
til orkusjóðs til jarðhita- og hita-
veituframkvæmda. Þá á að
styrkja rafveitur að því marki,
Framhald á bls. 27
Kjaradeilan til sáttasemjara:
Samráð við Mltrúa laun
þega um skattalækkanír
— segir forsætisráðherra
UPP ÚR samningaviðræðum
slitnaði á fundi aðila vinnu-
markaðarins í gærmorgun og
hafa deiluaðilar ákveðið að senda
málið til sáttasemjara rfkisins.
„Það var fyrst og fremst ríkis-
stjórnin, sem sleit þessum við-
Utanríkisráðuneytið:
Hlustunarduflin af
sovézkum uppruna
1 FRÉTTATILKYNNINGU frá
utanríkisráðuneytinu, sem Mbl.
barst í gær, segir að erfitt sé að
segja til um hvar duflin, sem rek-
ið hafa við suðurströnd landsins,
séu framleidd. Hins vegar segir í
tilkynningunni, að hlutar þeirra
virðist vera framleiddir í Sovét-
ríkjunum. Líkur benda til að um
djúpsjávardufl sé að ræða.
Fréttatilkynning utanríkis-
ráðuneytisins er svohljóðandi:
„Eins og fram hefir komið í
fjölmiðlum hafa nýlega fundizt
tvö sérkennileg dufl við suður-
strönd Islands. Árið 1972 fannst
samskonar dufl við Vestmanna-
eyjar.
Dufl þessi virðast vera hlust-
unartæki til að fylgjast með ferð-
um skipa og kafbáta og eru hönn-
uð til að liggja á mjög miklu dýpi.
Þau virðast vera hluti af hlust-
unarkerfum sem tengd eru með
rafstreng við landstöðvar eða
skip.
Ekki er unnt að sjá hvar nefnd
dufl eru framleidd en ýmsir hlut-
ar þeirra virðast vera af sovézk-
um uppruna. Ekki er vi'tað hvað-
an dufl þessi hefir rekið til ís-
lands, en samskonar dufl hafa
fundizt sjórekin í nágrannalönd-
um.“
Framhald á bls. 27
ræðum,“ sagði Björn Jónsson, for-
seti Alþýðusambands Islands i
viðtali við Mbl. í gær, en hann
kvað verkalýðsforystuna hafa
vonazt eftir því að ríkisstjórnin
legði inn í samningaviðræðurnar
niðurskurð á fjárlögum, sem var-
ið væri til skattalækkunar, en
undirtektir hefðu verið þannig,
að þær hefðu ekki vegið neitt að
ráði.
I tilefni af þessum ummælum
forseta ASl sneri Morgunblaðið
sér í gærkvöldi til Geirs
Hallgrímssonar, forsætisráð-
herra, og innti hann eftir afstöðu
ríkisstjórnarinnar til skatta-
lækkana. Forsætisráðherra sagði:
„£g geri mér vonir um, að við
getum haft samráð við fulltrúa
launþegasamtakanna um tillögur
til lækkunar beinna skatta er
leiði til þess að nálægt því marki
verði komizt, að venjulegar
launatekjur verði nær tekju-
skattsfrjálsar. Ríkisstjórnin telur
það meira máli skipta að stað-
reyna í samráði við fulltrúa laun-
þega, hvort tilteknar breytingar á
skattalögum nái þeim tilgangi
sínum að koma meðlimum fjöl-
mennustu iaunþegafélaganna til
góða heldur en að slá föstu ein-
hverri ákveðinni upphæð, sem í
heild verði varið til lækkunar
beinna skatta. Ríkisstjórnin og
fuiitrúar hennar munu vinna
áfram að gerð slfkra tillagna og
væntir áframhaldandi samvinnu
við aðila vinnumarkaðarins um
það efni, sem og aðra þá þætti,
sem tryggt geta fulla atvinnu og
vinnufrið í landinu."
Björn Jónsson, forseti ASl,
sagöi, að þau atriói, sem ríkis-
stjórnin hefði tekið jákvætt
undir, hefðu verió smávægileg að
mati ASl-forystunnar á sama tíma
sem fram kæmi á Alþingi frum-
varp til hækkunar söluskatts auk
þess sem áður hefði verið búið að
hækka nokkra sérskatta. Út-
koman úr dæminu hefði því ekki
verið þannig að bilið milli aðila
vinnumarkaðarins hefði minnkað
og nefndi hann sem dæmi að
vinnuveitendur hefðu verið til-
Loðnuskip lagðist á hliðina
GLÖFAXI VE 300 frá Vest-
mannaeyjum lagðist á hliðina í
fyrradag, er skipið var statt á
loðnumiðunum 8 sjómíium vest-
ur af Ingólfshöfða. 7 af áhöfninni
fóru í gúmbáta og voru teknir um
borð í Hafrúnu ÍS 400, en 4 urðu
eftir í Glófaxa. Tókst þeim eftir
nokkurn tfma að rétta skipið við,
en það er 105 rúmlestir að stærð.
Að sögn skipstjórans á Glófaxa,
Bergsvins Oddssonar, var gott
veður á þessum slóðum og hafði
skipshöfnin rétt nýlega kastað og
fengið feikna mikið kast. Gerðist
það þá i einni svipan að skipið
lagðist á stjórnborða og fór lunn-
ingin í sjó. Varð skipshöfnin að
skera nótina frá skipinu og tókst
síðan að loka öllum dyrum á
stjórnborðshlið. Tók skipið síðan
að rétta sig smátt og smátt og
þegar skipverjum tókst að hleypa
afla í stíur á bakborða rétti skipið
sig algjörlega af. Er lagt var af
stað til Eyja var slagsíðan svo til
farin af skipinu, en þá var komin
bræla með 6 til 7 vindstigum af
suðsuðaustan.
Fjórir loðnuveiðibátar voru hjá
Glófaxa, er þetta kom fyrir. Berg-
vin Oddsson sagði í gærkveldi, að
þá hefði enn ekki verið búið að
landa úr Glófaxa og því hefði
orsök þessa enn ekki komið í ljós.
Hann sagðist búast við því að skil-
rúm í lest hefði brostið og afli
kastazt til í skipinu. Einnig kvað
hann hið mikla kast hafa getað átt
þátt í þessu óhappi, en nánari
fréttir fást um orsökina, er landað
hefur verið úr skipinu.
Glófaxi hét áður Gullberg og
var gerður út frá Seyðisfirði.
búnir með ákveðið tilboð, sem
þeir hefðu hætt við að leggja
fram, er ljóst hefði verið að ríkis-
stjórnin hjálpaði ekkert til.
„Þannig sáum við engan tilgang í
að halda þessu áfram,“ sagði
Björn Jónsson. Kjaramálaráð-
stefna ASl er boðuð á mánudag,
þar sem málin verða rædd og
sagði Björn að heldur horfði nú
þunglega og líkurnar á friðsam-
legum gangi samningamálanna
hefðu stórminnkað í gær og fyrra-
dag. Sagðist Björn því miður ekki
geta séð fyrir neitt sem breytt
gæti þessari stöðu, sem upp væri
komin.
A miðstjórnarfundi ASI voru
Framhald á bls. 27
Banaslys
á Flateyri
BANASLYS varó á Flateyri við
Önundarfjöró sfðastliðinn sunnu-
dag, er 78 ára gamall maður féll í
stiga á heimili sfnu og höfuð-
kúpubrotnaði. Var maðurinn
samstundis fluttur til Reykjavfk-
ur og þar lézt hann á mánudag.
Maðurinn hét Guðmundur Jóns-
son frá Veðraá, en hann var bók-
ari Kaupfélags Önfirðinga.
Tildrög slyssins munu vera þau,
að Guðmundur heitinn var að
fara upp á háaloft f húsi sínu og
mun stiginn, sem hann notaði,
hafa brotnað undir honum. Lækn-
irinn á Þingeyri, Jens Guðmunds-
son, brást þegar við og lét hann
flytja Guðmund til Reykjavíkur,
en þar lézt hann f sjúkrahúsi á
mánudag eins og fyrr er getið.