Morgunblaðið - 02.03.1975, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 02.03.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1975 7 STRAUKAR w I anda Shakespeares eftir BJÖRN VIGNI SIGURPÁLSSON Á feröalögum um England hafa margir Islendingar lagt leið sína til Stratford- on-Avon, fæðingarstaöar Williams Shakespeare, og hafa a.m.k. litið augum leik- húsið, sem ber nafn þessa frægasta leikskálds Bret- lands, ef þeir hafa þá ekki séð sýningu Konunglega Shakespeare-félagsins á ein- hverju þekktu verki meist- arans. Á þssu ári er liðin ein öld frá þvl að íbúar Strat- ford-on-Avon reistu fyrsta leikhusið i minningu Shake- speares og 50 ár frá því að Georg 5. veitti þeim góðfús- lega heimild sína til að skeyta heiðurstitlinum „konunglega“ framan við nafn leikhússins. Þetta leikhús varð eldi að bráð ári s.íðar eða 1926 og liðu síðan sex ár áður en hafizt var handa um endurbygg- ingu þess í þeirri mynd, sem ferðamenn og leikhúsunn- endur þekkja það nú. Inn- viðirnir, sjáift leiklistar- starfið, voru þó ekki traustir og það var ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, er Peter Brooks og fleiri ungir og upprennandi leikhús- Atriði úr „Summerfolk“ eftir Gorky sem RSC sýndi í vetur við góðar undirtektir. menn héldu til Stratford, að gamla viðkvæóið um að Stratford væri staður þar sem leikarar féllu í gleymsku féll um sjálft sig. Annar Pétur — Peter Hall — hóf hins vegar merki Royal Shakespeare Company í þær hæðir sem það nú er i hugum leikhús- unnenda og hann tryggði félaginu yfirráð yfir Aldwych-leikhúsinu í Lundúnum til að koma sýn- ingum RSC á framfæri í stórborginni. Fastráðnir leik arar hjá félaginu mega nú eiga von á því að þurfa að dveljast helming leiktima- bilsins í Stratford-on-Avon og þjálfa þar tækni sína í margslungnum verkum Shakespeares en hinn hlut- ann eru þeir í Lundúnum og miðla af þekkingu sinni í leikritum nútímaleikskálda, eins og Pinters, O’Casey eða Albee. Sá sem væri gestkomandi í leikhúsinu i Stratford og kæmi þar að tjaldbaki, myndi sennilega hitta þar fyrir einhvern af leikstjór- um RSC haldandi fyrirlestur yfir leikurunum um þjóð- félagslegan bakgrunn ein- hvers verka Shakespeares ellegar leikarahóp að spreyta sig á sonnettum meistarans. Það var þannig ekki einungis leikfélag sem Peter Hall kom þarna á lagg- irnar á öndverðum sjöunda áratugnum heldur einnig visir að háskóla i fræðum Shakespeare, og ef eitthvað er hefur sá þáttur í starfi félagsins heldur aukizt í tíð eftirmanns Hall — Howard Nunn. Hann og helztu leik- stjórar RSC, þeir Terry Hands, John Barton og David Jones, hafa reynt eft- ir megni að nálgast leikritin með hugarfari vísinda- mannsins — eftir gaumgæfi- lega athugun og rannsókn á öilu þvi sem að leikritunum snýr. Æfingarnar hefjast raunar ekki með eiginlegum sam- lestri heldur umræðum þeirra sem að sýningunni vinna þar sem skoðanafrelsi er i hávegum haft eftir því sem sagt er. Leikarar geta hafnað búningum, leik- myndum og jafnvel allri heildarsýn leikstjórans á verkinu, ef þeim sýnist svo. Yfirleitt er sú ekki raunin en engu að siður eru æfing- arnar i byrjun heldur óform- legar. Leikararnir setja sig sjálfa í stöður, hreyfa sig um sviðið eins og þeim þykir eðlilegast og áhrifaríkast. Tíðum eru löng hlé meðan heitar umræður eiga sér stað. Reyndar er hvatt til slíkra umræðna, þar sem all- ir hafa málfrelsi svo að ekk- ert er því til fyrirstöðu að hvíslarinn gefi aðalleikaran- um holl ráð. Hlutverk ieik- stjórans er þannig fyrst og fremst að örva samverka- mennina, svara spurningum sem kunna að rísa og slipa af agnúana sem í ljós kunna að koma. Árangurinn af þessum vinnu- brögðum félagsins hefur ekki látið á sér standa. Und anfarin ár hefur RSC haft betur í keppninni við brezka þjóðleikhúsið um hylli áhorfenda og þó öllu heldur um hylli gagnrýnenda. Old Vic, eins og þjóðleikhúsið er oft kallað, er einatt vett- vangur mikilfenglegra skrautsýninga á verkum Shakespeares og stórleikara. Ýmsir vilja þó meina að betri heildarsýn megi fá í sýningum RSC á t.d. Oþelló og Kaupmanninum í Feneyj- um en hjá Sir Laurence Oli- vier sem Oþelló eða Shylock. Margir hafa annars reynt að skilgreina frekar hvar skilur með brezka þjóðleik- húsinu og konunglega Shakespeare leikfélaginu i túlkun á verkum meistar- ans. Niðurstaðan verður þá oftast sú, að RSC hafi á sér róttækara svipmót, sýningar þess vafningalausari, skarp- ari og án tilgerðar. Sagt er að RSC leggi meiri áherzlu á boðskapinn en tilfinningarn- ar, og það búi yfir hæfileika til að grafa upp fimmtán mismunandi meiningar úr fimm línum Shakespeares. The Royal Shakespeare Company hefur haft mikil áhrif í Englandi. Það hefur átt sinn mikla þátt í að eyða þeim staðhæfingum að leik- rit Shakespeares séu ekkert annað en óperur án tónlistar og sýnt fram á aó enn sé sama bit í flestum þessara verka og þegar þau voru skrifuð. RSC hefur lagt lífið upp úr íburðarmikilli sviðs- umgjörð, þar eð forráða- menn félagsins telja slíkt að- eins til þess fallið að draga athygli áhorfenda frá inn- takinu í verkum Shakespeares. I mörgum sýningum RSC hefur sviðið verið nánast autt og leik- munir í lágmarki, þó að bún- ingarnir fái að halda sér, og að mati leikstjóra RSC eru einkum tvær ástæður sem réttlæta þessa aðferð — ann- ars vegar sýni leikararnir áhugaverðari leik, ef þeir þurfi að miklu leyti að treysta á eigin líkamsþrótt og hins veg^ar komist boð- skapur leikritanna betur til skila, séu áhorfendur stöð- ugt minntir á að sviðið er sviðið en ekki Feneyjar eða Veróna. Nú eru ýmsar blikur á lofti í rekstri þessa fræga leik- félags. Stóraukinn tilkostn- aður hefur valdið félaginu miklum rekstrarerfiðleik- um, og hefur það sótt til ríkisins um stóraukinn styrk á sama tima og það leitar á náðir almennings um fram- lög til viðgerða og endur- bygginga á Stratford- leikhúsinu. Leikhússtjórinn, Howard Nunn, segir þó að þrátt fyrir þetta muni leik- flokkurinn halda áfram að taka áhættu í verkefnavali og uppfærslum — „vegna þess að við verðskuldum ekki ríkisstyrk, ef við fá- umst einungis við leikrit sem einkareknu leikhúsin geta leyst sómasamlega af hendi". Keflavik — Suðurnes Útsala hefst mánudaginn 3. marz. Skóbúðin Keflavík. Til sölu sem ný brettasamstæða á Mercedes Benz 1 1 13 1972. Upplýsingar gefur Jónas Kjerúlf, Leirárskóla, simi 93-2111. Milliveggjaplötur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni í stærð og þykkt sparar pússningu. Steypistöðin hf., sími 33603. Matsveinn óskast á netabát. Uppl. í sima 86198, Rvk. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27. Sími 25891. Reglusöm stúlka óskar eftir litilli ibúð með baði og sérinngangi. Góð umgengni og árs fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 43946. Útgerðarmenn Getum bætt við okkur einum til tveimur færabátum í viðskipti. Fiskverkun Baldurs og Júlíusar, Sandgerði, símar 92-7607 og 92-7529. Ytri IMjarðvik Til sölu mjög góð neðri hæð í tvibýlishúsi. Allt sér. Eigna og verðbréfasalan, Hring- braut 90, Keflavik, simi 92- 3222. Múrarameistari getur bætt við sig -verkefnum. Uppl. í síma 20390. Til sölu Einbýlishús við Selbrekku i Kópavogi. Stærð um 160 fm. Hitaveita. Innbyggður bilskúr. Dr. Gunnlaugur Þórðarson hrl., Bergstaðastræti 74, simi 16410. Húsdýraáburður Ökum húsdýraáburði á lóðir. Dreif- um úr ef óskað er. Ódýr og góð þjónusta. Uppl. í sima 1 7472. Togarasjómaður óskar eftir að fá leigða trillu 3ja—5 tonna. Þeir, sem vildu . sinna þessu sendi tilboð til blaðsins merkt: „trilla — 6641'. Önnumst ýmiss konar við- gerðir. Tek að mér að skipta um gler. Set i tvöfalt, kitta upp, málning og fl. Uppl. i sima 84388. Geymið aug- lýsinguna. Óska að kynnast góðum reglusömum manni á aldrinum 30—40 ára. Tilboð merkt: „vinátta 9682 ", sendist afgr. Mbl. fyrir 1 5. þ.m. Fiskeldismann vantar í klak- og eldisstöð i grennd við Reykjavík. Listhafendur leggi inn nafn í bréfi merkt „Fiskeldi — 661 8” á afgr. Mbl. fyrir 1 5. mars. íbúð óskast Kona með tvær stálpaðar telpur óskar að taka á leigu, þægilega 3ja herb. íbúð í Reykjavík. Góðri umgengni heitið. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 1. apríl merkt: ..Reglusöm — 9681". Til sölu 280 hestafla MVIVI bátavél, ásamt gir, skrúfu og miklu af fylgihlut- um. Upplýsingar i sima 99-1426. Heyblásari til sölu Til sölu er rafdrifinn heyblásari, sem bæði má nota til þurrkunnar og blásturs á heyi i heygeymslur. Upplýsingar i sima 91-50569. Trésmíðavél Vil kaupa sambyggða trésmíða- vél. Upplýsingar í síma 82436 (á kvöldin). Húsasmiðir Óska eftir húsasmið til að taka að sér mótauppslátt á einbýlishúsa- grunni, í Norðurbæ i Hafnarfirði. Upplýsingar i síma 34848 og 52754. Hestar Þrir hestar til sölu, 7 vetra hryssa leirljós, 7 vetra hestur jarpur, 3ja vetra hryssa rauð. Uppl. i sima 42071 og 41878. „3—4 herbergja íbúð óskast sem fyrst, fyrirfram- greiðsla. Upplýsingar i sima 17862". Hillmann Hunter '70 sjálfskiptur fallegur bill, til sölu. Má borgast með 1 —2 ára skuldabréfi, eða eftir samkomu- lagi. Simi 16289. Fermingarkjólar o.fl. Fermingarkjólar verð frá kr. 2.500. Síðir kjólar verð frá kr. 3.500. Dagkjólar allar st. verð frá kr. 3.600. Fatamarkaðurinn Laugaveg 33. Hestamannafélagið Fákur FRÆÐSLU- OG MYNDAKVÖLD verður halaiu I félagsheimili Fáks fyrir unglinga mánudaginn 3. marz kl. 8.30. Sýnd verður kvikmynd af hestum. Rætt um meðferð hesta. Þeim, sem ætla að vera í reiðskóla Fáks, er sérstaklega boðið ókeypis aðgangur. Allir velkomnir. Skemmtinefnd Fáks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.