Morgunblaðið - 02.03.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.03.1975, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2: MARZ 1975 Félagslíf 1.0.0.F. 3 = 1 56338 = I.O.O.F. 10 =1 56338'/! = □ Mimir 5974337 — 2ATKV ’ Kristniboðsfélag karla Fundur verður í kristniboðshúsinu Betanía, Laufásvegi 13, mánu- dagskvöldið 3. marz kl. 8:30. Reidar G. Albertsson flytur hug- leiðingu eftir Dr. 0. Hallespy, sem heitir: Andlegt heilsuhæli. Allir karlmenn velkomnir. Stjórnin. Hörgshlíð Almenn samkoma — boðun fagn- aðarerindrsins í kvöld sunnudag kl. 8. Filadelfia Almennguðsþjónustakl. 20 ræðu- menn Georg Viðar og Einar Gisla- son. Kærleiksfórn tekin fyrir sam- hjálp. Kvenfélag Garðahrepps Fundur að Garðaholti þriðjudaginn 4. marz kl. 8.30. Rauðsokkur hafa framsögu og svara fyrirspurnum. Stjórnin. Kvenfélag Háteigssóknar heldur skemmtifund í Sjómanna- skólanum, þriðjudaginn 4. marz n.k. kl. 8.30 siðdegis. Spiluð félagsvist. Gestir — karlar og konur — vel- komin. Stjórnin. Kvenfélag Lágafellssókn- ar Fundur verður haldinn mánu- i daginn 3. marz kl. 8.30 að Brúarlandi. Rauðsokka verður gestur fundarins. Stjórnin. ; I.O.G.T. Stúkan Framtíðin. Góufagnaður (systrakvöld) á morg- un mánudag 3. marz kl. 8.30 í Templarahöllinni. Opinn fundur. 5 alþingismenn gestir fundarins. Viðtalstími í Templarahöllinni kl. 5—6. Æðstitemplar. Kvenfélag Laugarnesskóknar Fundur verður haldinn mánudag- inn 3. marz kf. 8.30 í fundarsal kirkjunnar. Erindi með skugga- myndum frá Niger. Stjórnin. Hjálpræðisherinn sunnudag kl. 1 1 helgunarsam- koma. Kl. 14. sunnudagaskóli. Kl. 20.30 hjálpræðissamkoma séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir talar. Komið og hlustið á söng, vitnis- burði og ræðu. Sunnudagaskóli Fellaskóla kl. 10.30. Séra Lárus Halldórsson. Starfshópur S.U.S. Hugmyndafræði Sjálfstæðisstefnunnar Stjórn SUS hefur ákveðið að gangast fyrir starfshóp um Hugmynda- fræði Sjálfstæðisstefnunnar. Fríðrik Sophusson, formaður SUS mun hafa umsjón með hópnum. Hópnum er ætlað að ræða grundvallaratriði Sjálfstæðisstefnunnar. Álit hópsins gæti orðið sá hugmyndafræðilegi grunnur sem ungir Sjálfstæðismenn reistu stefnu sína á Landsfundi, Sjálfstæðisflokksins i maíbyrjun. Fyrsti fundur hópsins verður fimmtudaginn 6. marz n.k. kl. 5.30. Reiknað er með að starfshóp- urinn haldi fáa fundi en skipti með sér verkefn- um. Þátttakendur er vinsamlegast beðnir að láta skrá síg í síma 1 7100. Stýrimannafélag r Islands heldur félagsfund á Bárugötu 1 1, mánudaginn 3. marz n.k. kl. 20.30. Fundarefni: Ýmis félagsmál. Stjórnin. Loðnunót til sölu Til sölu lítið notuð loðnunót. Stærð 160 faðma lengd, dýpt 44 faðma. Uppl. í síma 92-8040 Grindavík. Svavar Árnason. Sinfóníutónleikar Stjórnandi: Karsten And- ersen Q] Einleikari: Itzhak Perlman Q Efnisskrá: Jón Nordal Langnætti [ Jean Sibelius Fiðlukonsert op. 47 []] Franz Schubert Sinfónía nr. 9 i C-dúr. Itzhak Perlman er snill- ingur og það er fráleitt að ræða á einn eða annan hátt um flutning hans og túlkun á fiðlukonsert Síbelíusar. Það má vera að eitt og annað sé með öðrum blæ en áður hef- ur heyrzt, en það sem skiptir máli, er að glæsilegt tónmál Síbelíusar er flutt af snilld og innlifun. Það sem á vissan hátt truflaði flutning verks- ins, var munurinn á tóntaki Perlmans og hljómsveitar- leikaranna. Tóntak Perlmans er ekki aðeins stundvíst, heldur þrungið ástríðufullum töfrum og þó hljómsveitin fylgdi takti vantaði allt „att- acca'' í tóntak hljómsveitar- leikaranna, og rúði verkið allri skerpu. Vera má að stjórnandinn, Karsten Ander- sen, vilji leggja áherzlu á mýkt í tóntaki, eins og í sinfóníu Schuberts, sem var Jón Nordal. Tðnllst eftirJÓN ÁSGEIRSSON mjúklega og á stöku stað fallega flutt. Það má líkja sögu Sin- fóníuhljómsveitar íslands við sögu kotbóndans, sem ! tuttugu og fimm ár hefur baslað á rýru koti, í óþökk sveitunga sinna, trúandi á hlutverk sitt, mátt sinn og megin, gefið lítinn gaum að öfund, hrakspám og háði, en haldið ótrauður og sigurviss upp þrítugan hamarinn. Sá sem sér sýnir, hlýðir kalli álfkonunnar, klífur þrítugan hamarinn og berst við flögð og forynjur, mun finna ger- semar þær sem seinna verða skart þeirra er ekki þorðu að leggja líf sitt að veði. í dag erum við stoltir, því Sinfóníu- hljómsveit íslands er 25 ára. Er ekki kominn tími til að rifja upp sögu hennar, gefa út vandaða bók og hljómplötur, svo nútíð og framtíð fái skilið þetta undarlega búhokur. í skammdeginu kváðu menn áður fyrr rímur ög sögðu sögur. Grunntónn þessara sagna og söngva var óttinn við kvikt og dularfullt myrkr- ið. Upphafstónar Langnættis eftir Jón Nordal minntu á þennan ótta. Geigurinn í upphafi og söngur óbósins i niðurlagi verksins, sem er sefandi eins og vögguvísa mynduðu þjóðlegan ramma verksins þ.e. óttann við myrkrið og friðsæld vöggu- vísunnar. Það er mikil stemn- ing í þessu verki og það er falleg afmælisgjöf. Sýning á listaverkum eftir konur opnuð í Norræna húsinu í dag 1 TILEFNI kvennaársins verður „Listsýning íslenzkra kvenna 1975“ opnuð í kjallara Norræna hússins í dag. A sýningunni eru verk 44 listakvenna, sem lang- flestar eru starfandi, en einnig eru þar myndir tveggja látinna brautryðjenda, Kristfnar Jóns- dóttur og Júlíönu Sveinsdóttur. A sýningunni eru málverk, höggmyndir, leirmunir, ofnar myndir, silfurmunir, graffk- myndir og sýnishorn af bygging- arlist. Félag íslenzkra myndlistar- manna, Menningar- og friðarsam- tök íslenzkra kenna og Norræna húsið standa að sýningunni. Þátt- í trilluna Mjög hentugur I trilluna, vatns- þéttur, 8 skalar niður ð 360 m dýpi, botnlina, til að greina fisk frá botni, kasetta fyrir 6” þurr- pappír, sem má tvínota. SIMRAD Bræðraborgarstíg 1. S. 14135 — 14340. Tyrolia ör.bind. Verð frá kr. 4.056,- LAUGAVEG 13 sími 1 3508. Ný sending Sumarkjó/ar Síð og Stutt pils, Blússur, Sundbohr, Bikini, Frotteinniskór, Buxnasett, Skartgripir og Skartgripakassar. Eitt verkanna á kvennasýning- unni, — „Lffsmunstur konunnar" eftir Þorbjörgu Þórðardóttur. Hún er nýkomin heim frá námi i listvefnaði við Konstfack-skólann f Stokkhólmi. taka var boðin félagskonum í Fé- lagi íslenzkra myndlistarmanna og konum, sem vinna að listiðn- aði, og sáu 42 sér fært að þiggja boðið. A sýningunni eru mörg verk listakvenna, sem hafa ekki sýnt verk sín áður. 1 fréttatilkynningu, sem Menn- ingar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna hafa sent vegna sýningar- innar, segir m.a. aó tilgangurinn með sýningunni sé „að vera lista- konunum hvatning, bæði þeim, sem þegar eru ágætar af verkum sínum, og hinum, sem eru að hefja listferil sinn.“ 8. marz verður flutt dagskrá í fundarsal Norræna hússins. Dag- skráin er í tengslum við sýning- una og verða þar flutt ljóð, tónlsit o.fl. Bríet Héðinsdóttir leikkona hefur tekið dagskrána saman og undirbúið flutninginn. Sýningin er opin kl. 2—10 dag- lega til 11. marz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.