Morgunblaðið - 02.03.1975, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1975
Olfuhreinsun f Rúmeníu. Skipasmfði f Póllandi.
Rússar í hlut-
verki olíufursta
Rússar hafa nýlega hækk-
að verð á þeirri olíu sem þeir
selja löndum Austur-Evrópu
og afleiðingin getur orðið sú
að þeir gegni sams konar
hlutverki gagnvart þessum
löndum og oliufurstar Araba-
ríkjanna gagnvart Vestur-
löndum.
Sérfræðingar spá því að
alvarlegir erfiðleikar geri vart
við sig í Austur-Evrópu vegna
olíuhækkunar Rússa og hún
leiði einnig til þess að fjár-
magn streymi þaðan i vax-
andi mæli til Sovétrikjanna.
Hingað til hafa lífskjörin
veríð betri i Austur-Evrópu en
í Sovétrikjunum en nú er
búizt við því að lífskjörin í
Sovétríkjunum batni á kostn-
að Austur-Evrópuríkjanna.
Jafnframt er gert ráð fyrir
því að Austur-Evrópurikin
muni reyna að beina við-
skiptum sínum í vaxandi
mæli til landa utan
kommúnistablakkarinnar og
það geti valdið spennu í sam-
búð þeirra og Sovétríkjanna.
Verð á hverri innfluttri
tunnu af oliu frá Sovétríkjun-
um hækkar úr þremur dollur-
um tunnan í sjö og hálfan
dollara og hækkunin gildir
frá siðustu áramótum. Alls
munu Austur-Evrópuríkin að
Rúmeníu undanskilinni
greiða Rússum þrjá og hálfan
milljarð dollara á þessu ári
fyrir um 60.8 milljón lestir af
hráoliu og olíuafurðum. Þar
með greiða þau næstum því
þrisvar sinnum meira verð en
fyrir aðeins minna olíumagn
sem þau fluttu inn frá Sovét-
ríkjunum fyrir þremur árum.
Verð á hráefnum og land-
búnaðarafurðum hefur næst-
um því tvöfaldazt á einu ári.
Rússar hafa haldið því
fram að þeir hafi tapað á
oliusölu sinni til Austur-
Evrópu og sýnt bandalags-
þjóðunum svo mikið veg-
lyndi á þessu sviði að þeir
hafi sjálfir orðið að leggja á
sig fórnir. Þeir ákváðu verð-
hækkunina einu ári áður en
austur-evrópska efnahags-
bandalagið Comencon átti að
samþykkja verðið samkvæmt
næstu fimm ára áætlun.
Samkvæmt nýju kerfi skal
jafnframt endurskoða verðið
á hverju ári með hliðsjón af
meðal heimsmarkaðsverði
næstu fimm ára á undan.
Áður hafði verðið verið all
rrgbundið.
Hljótt hefur verið um þessa
verðhækkun Rússa og lítið
heyrzt um viðbrögð við henni
í Austur-Evrópu. Pólski for-
sætisráðherrann, Piotr
Jaroszewicz, skýrði frá henni
og hefur sagt að verð á öllum
hráefnum og iðnaðarvörum
verði að vera tengt verði á
heimsmarkaði.
Þó er mikið rætt um
hugsanlegar afleiðingar
hækkunarinnar í höfuðborg-
um Austur-Evrópu og í hópi
sérfræðinga. Talið er að þær
helztu verði þessar.
Q Verðbólga muni aukast
í Austur-Evrópu og lífskjör
versna. Ríkisstjórnir land-
anna kunna að grípa til þess
ráðs að greiða niður inn-
flutning til þess að halda
niðri veröi á neyzluvörum.
Talið er að það hrökkvi
skammt.
0 Vegna aukins greiðslu-
halla verði löndin að auka
útflutning sinn til Sovétrlkj-
anna og hækka verð á hon-
um. Ef til vill bjóða Rússar
hagstæð lánakjör. Þar með
mundu tengslin í efnahags-
málum eflast, en þar með er
ekki sagt að sambúðin verði
vinsamlegri. Andúð í garð
Rússa getur þvert á móti
aukizt þar sem Austur-
Evrópumenn hafa vanizt
stöðugt batnandi lifskjörum
sem nú geta versnað.
0 Auknar tilraunir verði
gerðar til að afla olíu annars
staðar frá, einkum frá Araba-
löndum. Þetta hefur þegar
verið reynt í vaxandi mæli.
Unnið er að lagningu olíu-
leiðslu frá Adríahafi og árið
1977 munu berast um hana
36 milljónir lesta af olíu á ári
til Austur-Evrópu frá Norður-
Afríku og Miðausturlöndum.
Eftir nokkur ár er óvíst hvort
Rússar geta eða vilja mæta
sívaxandi eftirspurn eftir oliu
í Austur-Evrópu og löndin
þar munu komast í aukna
snertingu við heimsmarkað-
inn.
Q Þrýstingur í efnahags-
málum getur ýtt undir um-
bætur í efnahagsmálum
þannig að áhrif milliliða auk-
ist og smásöluverð verði í
auknu samræmi við raun-
verulegan kostnað eins og á
Vesturlöndum.
Austur-Þýzkaland, Ung-
verjaland, Tékkóslóvakia
flytja inn 90% oliu sinnarfrá
Sovétríkjunum að meðaltali
og verðhækkunin kemur
harðast niður á þeim.
Rúmenar og Pólverjar eru
betur settir — Rúmenar
vegna þess að þeir framleiða
verulega mikið af olíu sjálfir
og Pólverjar vegna þess að
þeir ráða yfir miklu magni
hráefna sem Rússar þarfnast
þótt þeir flyttu inn 97% olíu
sinnar frá Sovétríkjunum í
fyrra.
Llfskjör hafa batnað mikið I Rúmenfu. A þessum myndum sést fólk I kjörbúð og kona skoða innflutt
föt.
Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra:
Eítir fund með
AA-fólki
Mannleg vandamál eru marg-
slungin og verkefnin, sem við er
að fást, utan enda. Sum eru al-
menns eðlis, önnur einstaklings-
bundin. Oft varða þau einkum
fjármál og athafnir og svo eru
hin, sem vita inn á við, eru hug-
læg, sálræn eða hvað menn vilja
nú nefna það.
AA-samtökin færast mikið í
fang. Vettvangur þeirra spannar
yfir öll þessi svið. Og starfsemin
beinist að þvi að efla viðnám og
byggja upp sóknarmátt hjá ein-
staklingum, sem eiga örðugt upp-
dráttar.
Nýlega átti ég þess kost öðru
Vilhjálmur Hjálmarsson.
sinni, að sitja „opinn fund“ hjá
þessum samtökum. Þótti mér það
sem áður næsta lærdómsrikt og
ærið umhugsunarefni það sem
fram kom í máli manna.
Áfengisbölið er ekkert orðatil-
tæki eða óljóst hugtak heldur ógn-
vekjandi veruleiki. Þrátt fyrir
víndýrkun ótrúlega mikils fjöida
manna, þá starfa nú samt í land-
inu allmörg félög og félagasam-
tök, sem hafa á stefnuskrá sinni
baráttu gegn Bakkusi. Þau eru
byggð upp á ýmsa vegu. Sum eru
bindindisfélög, félagarnir skulu
allir vera bindindismenn og leit-
ast við með fordæmi sinu, hvatn-
ingum og ýmiss konar félagsstarfi
að glæða áhuga fyrir bindindi
gagnvart áfengum drykkjum.
Önnur vinna einkum að björg-
unarstörfum á þeim eyðisöndum
mannlegrar tilveru, þar sem skip-
brotsmönnum Bakkusar skolar
löngum að landi. — Enginn vafi
er á því, að þessi starfsemi marg-
vísleg gerir stórmikið gagn.
AA-samtökin eru byggð upp af
fólki, sem sjálft hefir kynnst
Bakkusi meira en góðu hófi gegn-
ir — að eigin mati. Þetta er fólk,
sem viðurkennir, að það sé
„alkóhólistar" og hefir bundist
samtökum um að styðja hvert
annað í baráttu fyrir breyttum og
betri háttum. Samtökin eru opin
öllum þeim, sem eiga i sams
konar erfiðleikum og sjálfir vilja
reyna að spyrna við fótum.
Allt það, sem fram kom á þess-
um fundi, kom heim og saman við
þá vitneskju, er ég áður hafði
fengið um starfsemina í heild og
um viðhorf einstaklinganna. Allir
höfðu átt i erfiðleikum, jafnvel
ratað í miklar raunir. Löngunin
að breyta til vakti undir niðri og
þar kom, einatt eftir margar mis-
heppnaðar tilraunir til úrbóta, að
leitað var skjóls og stuðnings hjá
AA-samtökunum. Þar gafst tæki-
færi að ræða vandamálin, jafnvel
daglega, við annað fólk, sem
skildi stöðuna og vissi nákvæm-
lega hvar skórinn kreppti. Og
enda þótt takmarkið sé oft í
fyrstu aðeins að „vera ódrukkinn
einn dag“ þá hafa margir náð
undraverðum árangri.
AA-samtökin eru ekki bundin
neinum trúfélögum. En margir
þeir, sem þar starfa, telja að trú
og bæn hafi veitt þeim ótvíræðan
styrk I stríði. Þegar ég hlýddi á
mál manna á þessum fundi duttu
mér í hug hin gamalkunnu orð: I
sveita þíns andlitis skalt þú
brauðs þíns neyta. Ég held, að
þau megi vel heimfæra upp á
viðleitni þess fólks, sem berst
hinni góðu baráttu i AA, því þar
er við harðan að deila. Og augljóst
virtist af ummælum þeirra, að
hver og einn gengur að viðreisn-
arstarfinu með einlægum ásetn-
ingi en þó með fullri vitneskju
um það, að „veikur er viljinn".
AA-samtökin gera lítið af því að
auglýsa starfsemi sína. Með þessu
greinarkorni leyfi ég mér nú samt
að vekja athygli á tilvist þeirra.
Jafnframt þakka ég ánægjulega
samverustund á dögunum. En
fyrst og fremst þakka ég AA-
fólkinu fyrir þau ræktunarstörf,
sem það vinnur á þeirri akurrein
þjóðlífsins sem hvað vandasamast
er að erja.
RAGNAR I KONSERT
FERD TIL NOREGS
RAGNARI Björnssyni dómorgan-
ista hefur verið boðið til Noregs
nú í marzmánuði i þriggja vikna
ferðalag til orgeltónleikahalds í
ýmsum norskum borgum og bæj-
um. Hefst hljómleikaförin þar 9.
marz er Ragnar leikur á orgel
dómkirkjunnar í Stafangi. Hann
mun einnig halda kirkjutónieika
í kirkjum í bæjunum Þrándheimi,
í Bodö og Friðriksstad. A þessum
tónleikum mun Ragnar flytja
blandaða efnisskrá, eldri orgel-
verk svo og verk nútíma kompón-
ista — og eru verkin eftir erlenda
og einnig íslenzka höfunda. I
þessari hljómleikaför hefur Ragn-
ari verið boðið sérstaklega norður
í Tromsö. Þar verður mikil tón-
listarhátíð tileinkuð J.S. Bach og
mun Ragnar leika þar eingöngu
Bach-orgelverk. Þessi hátið stend-
ur yfir í vikutíma. Hljómleikaför-
inni lýkur með orgeltónleikum i
Ösló.
1 tilefni af þessu glæsilega boði
til Noregs hefur Ragnar ákveðið
að hafa „Opið hús“ í Dómkirkj-
unni mánudagskvöld og þrióju-
dagskvöld og leika á orgel Dóm-
kirkjunnar ýmis þau verk sem
hann ætlar að leika í Noregsferð-
inni. A mánudagskvöldið leikur
hann eingöngu verk eftir Bach og
leikur þá Koncert í a-moll, Trio
sonana i Es-dúr, Konsert í a-moll
og Toccata og fuga í d-moll.
Seinna kvöldið, þriðjudags-
kvöldið leikur Ragnar Björnsson
Introduktion og Passacalia eftir
dr. Pál Isólfsson, Fantasia trion-
fale eftir norska tónskáldið K.
Nystedt, eftir sjálfan sig leikur
Ragnar Fantasi Funébre og að
lokum Inter Mediae Noctis. Bæði
kvöldin hefjast tónleikarnir kl.
8.30 siðd. og er aðgangur ókeypis
eins og geta má nærri þegar um
slíka tónleika við opið hús er að
ræða.