Morgunblaðið - 02.03.1975, Side 39
39
Sigurveigu Ingibjörgu Jónsdótt-
ur, BA. Þau eiga þrjá drengi.
Asta Bryndís Þorsteinsdóttir,
hjúkrunarkona, sem gift er Ast-
ráði Heiðarssyni, lækni. Þau eru
búsett í Arósum í Danmörku og
eiga tvö börn.
Yngst er svo Hafdis Björg, tví-
tug stúlka sem verður stúdent í
vor.
Þau 18 ár, sem liðin eru siðan
Þorsteinn fór í land, voru um
margt erfið. Þótt vanur væri hann
erfiðinu á togurum fyrir og eftir
vökulög, varð dagurinn ekki
styttri eftir að í land var komið.
Fiskverzlun í Reykjavik er með
hálfgerðum miðaldabrag. Fisksal-
inn verður að sækja aflann oni
bát síðla nætur og rétta hann hús-
móðurinni yfir borðið. Þetta
þýddi langan vinnudag og
skamman svefntíma. Fiskmiðstöð
var engin og verðlagsyfirvöld
hugsuðu gjarnan meira um vísi-
tölustig og áhrif þeirra á kaup-
gjald, en það hvort menn fengju
svefn og fisk. Þorsteinn beitti sér
fyrir því ásamt nokkrum öðrum
mönnum að stofna til dreifimið-
stöðvar, er átti að gegna því hlut-
verki að afla fisks fyrir fiskbúð-
irnar í bænum.
Sat hann í stjórn þessa félags og
var um tíma formaður þess. En
allt kom fyrir ekki, verðlagsyfir-
völd vildu ekki leyfa heildsölu-
álagningu á fiskmeti og fiskmið-
stöðin var þar með úr sögunni
með litlum svefni og vondum
fiski. Þessi afdrif féllu Steina
frænda minum þungt. Ég held að
þá hafi hann gefið upp alla von
um stjórnmálamennina, sem ekki
voru í stóru áliti fyrir.
Mér hefur hér orðið tíðrætt um
lífshlaup þessa ágæta frænda
míns og bróður, en hefi þó fram
til þessa varla minnst á þaó sem
skipti hann mestu máli, en það
var fjölskyldan, barnabörnin,
börnin og konan. Þau voru honum
allt. Eftir að hann var kominn
niður á annað hnéð, eða bæói, af
þeim sjúkdómi er leiddi hann til
dauða, fékk hann að halda siðustu
jólin heima. Þá gat hann ekki
gengið óstuddur lengur og síðustu
jólin liðu með undarlegum friði,
— og nú er öllu lokið. Saga hans
stendur ein eftir.
Þess saga er orðin löng. Hún fer
á skútum og togurum, hún er saga
úr stríði, saga úr friði. Líka er
hún ástarsaga og kannski ekki
minnst. Og þegar við göngum
heim frá jarðarförinni á mánu-
daginn verður farangur okkar svo
smár.
Guð blessi Steina frænda.
Jónas Guðmundsson.
Við erum alltaf að heilsa og
kveója á þessari jörð. Einhver
sem var í hringiðu lífsins í gær er
horfinn i dag. Svo snögg geta
skiptin stundum oróið. Aðrir
hverfa smám saman af sjónarsvið-
inu. Veikjast — þjást — deyja —
Þorsteinn Þorsteinsson kvaddi
lifið eftir nokkra sjúkdómslegu
•— þjáningarmikla — á Borgar-
spítalanum 21. febrúar siðast lið-
inn aðeins 56 ára að aldri.
Hann barðist karlmannlega við
sjúkdóm sinn og lífsvon hans var
sterk til síðustu stunda.
Ef til vill hafa engir nema þeir
sem kynntust honum og fjöl-
skyldu hans vel, vitað hve ein-
dæma vel hann vann fjölskyldu
sinni — hve óeigingjarn og fórn-
fús hann var í öllu gagnvart
henni. Þar hugsaði hann ávallt
um að gera sitt besta.
Hann lifði það líka að sjá börn
sin menntast og vaxa mannvæn
leg úr grasi. Barnabörnunum
sínum fimm var hann ástríkur afi
og þar gætti hinnar sömu fórnfýsi
og hann hafði ávallt sýnt börnum
sinum.
öllum frístundum sinum sióast
liðið sumar varði hann til að
byggja sumarbústað sinn i Grims-
nesi, til þess að börn hans og
barnabörn gætu átt þar rólegar
stundir með fjölskyldunni í fram-
tiðinni.
Hirti hann eigi um þótt sjúk-
dómur sá er leiddi hann til dauða
væri þá farinn að veikja krafta
hans.
Þorsteinn var giftur ágætri
konu, Asdísi Eyjólfsdóttur, og
eiga þau þrjú börn sem öll eru
uppkomin.
Viglundur lögfræðingur,
kvæntur Sigurveigu Jónsdóttur
þjóðfélagsfræðingi, Asta Bryndis
hjúkrunarkona gift Astráði B.
Hreiðarssyni lækni og Hafdís sem
enn er í foreldrahúsum og lýkur
stúdentsprófi i vor.
Vinir og ættingjar drúpa þögul-
ir höfði og senda samúðarkveðjur
að Hofsvallagötu 16. Þar er nú
skarð fyrir skildi.
Megi minningin um sérlega ást-
ríkan heimilisföður vera ástvin-
um hans ljós fram á veg.
Þorsteinn verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni á morgun.
Blessuð veri minning hans.
Jcnna og Hreiðar.
Þegar góður vinur kveður
þennan heim vill hugurinn
hvarfla að stöðu mannsins í jarð-
lífinu. Við gerum okkur þá betur
en ella grein fyrir því, að við
erum hér sem gestir og fáum sjálf
litlu um það ráðið, hvað gistingin
verður löng. Okkur er heldur ekki
veitt nein vitneskja um það, hvað
á undan hefur farið né hvað á
eftir kemur; þar kemur trúin til
bjargar. En þótt ailir verði að
sætta sig við þetta lögmál lífsins,
þá er það sárt fyrir aðstandendur
og vini að sjá af sínum nánustu,
stundum á bezta aldri, yfir
móðuna miklu.
Þorsteinn Þorsteinsson fæddist
8. júli 1918 í Reykjavík og ólst
upp á Ránargötu 29 hjá foreldr-
um sinum, Þorsteini Guólaugs-
syni og Ástríði Oddsdóttur, en
alla sína daga átti hann heima í
vesturbænum, siðustu 15 árin að
Hofsvallagötu 16. Ungur að árum
réðst hann á togara og var alllengi
samskipa föður sinum, sem hafði
stundað togarasjómennsku um
langt árabil. Kom fljótt í Ijós
hversu afburða verkmaður hann
var og ósérhlífinn í hverju starfi,
enda var hann vinsæll af yfir-
mönnum jafnt sem félögum. Eftir
20 ára starf á togurum kom hann í
land árið 1956 og setti þá á stofn
fiskbúð i verkamannabústöðun-
um við Asvallagötu, sem hann rak
til dauðadags. Þeir sem áttu við-
skipti við Þorstein í fiskbúðinni
kunnu vel að meta hreinlega um-
gengni hans og vöruvöndun, og
einnig urðu þeir þess áskynja, að
hann sparaði enga fyrirhöfn til að
geta haft beztu fáanlega vöru á
boðstólum. Voru þær ófáar
ferðirnar, sem hann þurfti að fara
i verstöðvar á Suðurnesjum til að
sækja fisk handa viðskiptavinum
sinum, þegar hann taldi sig ekki
fá nægan eða nógu góðan fisk í
Reykjavik.
Þorsteinn giftist árið 1943
Asdísi Eyjólfsdóttur, sem nú sér á
bak traustum lífsförunaut. Þau
eignuðust þrjú börn, Víglund, lög-
fræðing, sem er kvæntur Sigur-
veigu Ingibjörgu Jónsdóttur þjóð-
félagsfræðingi, Ástu Bryndisi
sem gift er Astráði Benedikt
Hreiðarssyni lækni, og Hafdisi
nema í Verzlunarskóla íslands,
Þau Asdis og Þorsteinn létu sér
mjög annt um uppeldi og mennt-
un barna sinna, og það hefur alla
tið verið kappsmál þeirra að
stuðla að vellíðan og velgengni
barna sinna, tengdabarna og
barnabarna, og siður hugsað um
eigin hag.
Ég kynntist Þorsteini fyrst árið
1952, er ég varð svili hans, og hef
ég alla tíð síðan talið mig lán-
saman að eiga með honum sam-
leið. Hann var hressilegur í tali,
vel fróður um flesta hluti og
skemmtilegur í viðræðum. Hann
var einstaklega hjálpsamur og
greiðvikinn og óspar á að taka á
sig ómak fyrir vini sína og vanda-
menn, ef þeir þurftu á að halda,
og engu síður var hann vanur að
bjóða fram aðstoð sina óumbeðið.
A unglingsárunum hafði Þor-
steinn verið nokkur sumur i sveit
að Snæfoksstöðum í Grímsnesi.
Eflaust hefur honum liðið vel þar,
því að hann minntist oft á við-
burði frá þeim tíma. Fyrir
nokkrum árum festi hann kaup á
landspildu undÍT sumarbústað í
landi Vaðness, sem er næsti bær
við Snæfoksstaði. Hafði hann
lokið við að koma upp sérlega
reisulegum sumarbústað á
landinu siðastliðið sumar. Hann
gætti þess að hafa bústaðinn
nægilega stóran til þess að börn
og barnabörn gætu gist þar með
þeim hjónunum, auk þess aðvinir
mættu með þeim njóta. Mátti
gjörla finna, að staðurinn var
þeim hjartfólginn.
Við hjónin þökkum góðum
dreng fyrir alla þá vinsemd, sem
hann sýndi okkur og ánægjulegar
samverustundir.
Valtýr Hákonarson
Kirkjuvika
í Lágafellskirkju
MÖRG undanfarin ár hefur pao
verið fastur liður i kirkjustarfi
í Mosfellssveit að þar sé haldin
kirkjuvika í Lágafellskirkju,
með fjölbreyttu efni til
skemmtunar og fróðleiks með
kristilegu ivafi. Hafa kvöldvök-
ur kirkjuvikunnar verið fjöl-
sóttar og tekizt mjög vel. I dag
klukkan 2 siðdegis hefst kirkju-
vikan að þessu sinni með æsku-
lýðsguðsþjónustu. Verður við
messuna fluttur vixllestur úr
40. sálmi Davíðs, vixllestur
safnaðarprestsins séra Bjarna
Sigurðssonar og kirkjugesta.
Spurningabörn taka og þátt í
guðsþjónustunni með bæna-
lestri lir kórdyrum.
Annað kvöld, mánudagskvöld
kl. 9. verður kvöldvaka í kirkj-
unni. Klara Klængsdóttir kenn-
ari stjórnar samkomunni. Til
kvöldvökunnar koma gestir úr
bænum, eins og það heitir þar í
sveit. Tvö erindi verða flutt:
Asgerður Jónsdóttir flytur það
fyrra og það siðara flytur Krist-
mann Guðmundsson rithöfund-
ur. Barnakór Hvassaleitisskóla
kemur í heimsókn undir stjórn
Herdisar Oddsdóttur.
Þriðjudagskvöldið hefst
kvöldvaka kirkjuvikunnar á
sama tíma kl. 9. Meðal atriða er
erindi sem menntamálaráð-
herra, Vilhjálmur Hjálmarsson,
flytur. Þetta kvöld verður
almennur söngur kirkjugesta.
Þá tekur lagið í kirkjunni Þjóð-
hátiðarkórinn, sem Oddur And-
résson á Hálsi stjórnar og
einnig leikur Skólalúðrasveitin
i Mosfellssveit nokkur lög.
Bæði kvöldin taka spurninga-
börn og sóknarprestur þátt i
kvöldvökunni með vixllestri. Á
miðvikudagskvöldið lýkur
kirkjuvikunni með föstumessu.
Séra Karl Sigurbjörnsson
prestur i Hallgrimskirkju pré-
dikar og kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Páls Halldórsson-
ar.
Þess skal að lokum getið, að
að sjálfsögðu kemur mjög til
kasta kirkjukórs Lágafells-
kirkju á kvöldsamkomunum,
en stjórnandi hans er Sighvat
ur Jónasson.
Richard Tómasson
— Minningarorð
F. 22. maf 1923.
D. 23. febrúar 1975.
ÞAÐ KOM mér ekki alveg á óvart,
þegar hringt var til min s.l.
sunnudagsmorgun og tilkynnt að
Gæi, en svo kölluðum við hann,
væri dáinn. Daginn áður hafði ég
heimsótt hann og vissum við báðir
að hverju stefndi, nema krafta-
verk gerðist.
Ég kann ekki að segja frá æsku-
árum hans, nema að hann var
fæddur i Vestmannaeyjum og
dvaldist þar til 3ja ára aldurs, en
fluttist til Reykjavikur með föður
sinum eftir að móðir hans dó. Gæi
hefir því ekki notið móðurhlýj-
unnar, sem við vitum hvers virði
er. Gæi dvaldi með föður sínum á
uppvaxtarárunum í Reykjavik og
tók jafnvel þátt í störfum hans.
Til dæmis höfðu þeir feðgar þann
starfa um tíma, að aka yfirbyggð-
um handvagni milli húsa og bjóða
fólki brýningu á skærum og hnif-
um. Sá litli hljóp þá i húsin og
bauð þjónustuna, en pabbinn
vann verkin á meðan.
Fyrstu kynni okkar Gæja voru á
fyrstu styrjaldarárunum um 1939
eða 1940. Ég var þá bilstjóri i
Kassagerð Reykjavikur, en Gæi
átti heima í húsi rétt á móti
Kassagerðinni.
Einhvern veginn orsakaðist
það, að kynni okkar leiddu til
þess, að hann bjó hjá foreldrum
mínum af og til upp frá þvi. Gæi
hlaut ekki mikla menntun, en las
alls konar bókmenntir og var ekki
síður vel að sér en margur maður-
inn, sem hefir skólapróf upp á
vasann. Hann var vel gefinn og
alltaf var gaman að spjalla við
hann. I ársbyrjun 1942 skildu
leiðir okkar um tveggja ára bil.
Ég fór til Kanada, en hann fór til
sjós. Hann var einn af þeirri
gæfusömu áhöfn Brúarfoss, sem
bjargaði 44 mönnum af enska
skipinu DALEBY þann 4. nóvem-
ber 1942, eftir að skipinu var
sökkt af þýzkum kafbáti úti á
miðju Atlantshafi. Það var fræki-
leg björgun. Sagan um þessa ein-
stöku björgun mun skráð í annál-
um um siðari heimsstyrjöldina.
Um tíma stundaði Gæi bifvéla-
virkjun jöfnum höndum og sjó-
mennsku. Hann var t.d. á togaran-
um Þorkeli Mána i mannskaða-
veðrinu vió New Foundland,
nálægt Ritubanka þegar togarinn
Júlí fórst. Talið var að skipshöfn-
in undir stjórn síns duglega skip-
stjóra, Marteins Jónassonar,
núverandi framkvæmdastjóra
Bæjarútgerðar Reykjavikur, hafi
næstum unnið kraftaverk er þeir
brutu ísinn af skipinu og að
lokum logsuðu mastrið og bómur
af því, til þess að losa það við ís og
yfirvigt. Ég held, að eftir þá
martröð hafi margir farið í land.
Nokkru eftir að ég kom heim
frá Kanada og við nokkrir félagar
stofnuðum Loftleiðir h.f., réðst
Richard til félagsins, sem þá hafði
aðsetur í Vatnagörðum. Gæi var
ekki mjög stöðugur á lífsins leið
hvað vinnu snerti, en glaðir
vorum við báðir þegar ég afhenti
honum fyrir nokkrum árum 20
ára starfsaldursmerki Loftleiða
h.f.
Þótt að sumum hafi þótt hann
nokkuð hrjúfur á ytra borði á
köflum, þá hafði hann allt annan
innri mann að geyma. Hann var
mikil barnagæla og dýravinur.
Það var ekki ósjaldan að við
fórum saman á sunnudagsmorgn-
um i ökuferó um höfnina í
Reykjavík og þarf ég ekki að lýsa
þvi hve yngstu börnin mín kunnu
að meta það. Þau kunnu að meta
alúð og elskulegt viðmót Gæja,
sem alltaf gat sagt þeim sannar
sögur eða hínsegin.
Fyrir nokkrum árum tók sjúk-
dómur hans, sem dró hann til
dauða, að gera vart við sig. I ljós
kom, að nýrun voru að bila og var
hann fyrst skorinn upp hér, en
siðar eftir langa bið fór hann til
Danmerkur og fékk þar igrætt
nýtt nýra. Eftir heimkomuna
gekk allt vel og hann horfði bjart-
sýnn til heilbrigðs lífs i framtíð-
inni. Eftir hina miklu aðgerð gat
hann aldrei tekið til starfa aftur.
Hann var þó hress og gat ekið bil.
Hann var mjög hjálplegur móður
minni, sem hann leigði hjá til
dauðadags. Móðir min, systir og
f jölskyldur okkar sjá nú af góðum
dreng, sem var orðinn einn af
okkur og við dáðum og elskuðum.
Við (og ég er viss um dýrin
lika) kveðjum nú öll Gæja vin
okkar með söknuði. Enginn mun
fylla hans skarð. Við óskum
honum góðrar ferðar þangað sem
góður Guð mun lina þjáningar
hans, sem hann hefur borið með
karlmennsku fram á siðasta dag.
Utför Richards Tómassonar fer
fram frá Fossvogskapellu mánu-
daginn 3. marz n.k. kl. 3.00 e.h.
Alfreð Eliasson.
Sunnudaginn, 23. febrúar, lést
á Landspítalanum, af langvarandi
sjúkdómi, vinur okkar og frændi
Richard Tómasson, eða Gæi, en
undir þvi nafni og ekki öðru gekk
hann alla tíð, meðal ættingja og
vina.
Gæi var fæddur í Vestmanna-
eyjum 22. maí 1923, en fluttist til
Reykjavíkur á fjórða ári eftir lát
móður sinnar. Gæi naut því aldrei
hins venjulega uppeldis, sem við
flest fáum hjá fjölskyldu okkar,
heldur þurfti að þreifasig áfram í
hinum stóra heimi einn síns liðs.
Við frænkurnar höfum þekkt
hann og umgengist allt frá því er
við fæddumst. Þá var hann sjó-
maður og leigði hjá Áslaugu
ömmu, sem hann gerði allt til hins
siðasta. Gæi var ókvæntur og
barnlaus. Við vorum því börnin
hans og var hann okkur ávallt
góður og umburðarlyndur, sem
væri hann pabbi okkar. Þegar
hann kom af sjónum færði hann
okkur gjafir og sagði okkur sögur.
Alltaf hafði Gæi tima til að
ræða við okkur um lífsins mál eða
eitthvað i léttum tón. Eftir að
hann veiktist var hann jafn hress
og kátur sem fyrr og ekki hafði
frásagnargáfunni hrakað.
Hans mikla viljaþrek hjálpaði
honum í veikindunum og héldum
við öll að eftir það sem hann var
búinn að ganga i gegnum mundi
hann ekki fara frá okkur fyrr en
ellin færi að segja til sín.
Minningin um Gæa er okkur
ljúf og munum við aldrei gleyma
hans miklu lifslöngun, sem hann
hafði, þrátt fyrir allt það er á móti
blés.
Við kveðjum Gæa með miklum
söknuði og þökkum þátt hans í lífi
okkar, sem alls ekki er svo lítill.
Anna, Ragnheiður,
Katrin og Geirþrúður.