Morgunblaðið - 02.03.1975, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1975
o. 4 ^ a
í
Piltur og stúlka eí
til þess að hafa hana fyrir framan; en hitt er það, ég
held þú yrðir að fá þér einhverja konumynd.
Já, sagði Guðmundur og dró langan seim á jáinu.
Þessi kvenþjóð! Og þessar konur!
Það hef ég þó komizt að raun um, Guðmundur
minn, síðan konan mín dó, að skárri eru konurnar en
þessar ráðskonuskammir; og sannast er að segja um
það, að þó að hún Guðrún mín heitin væri óráðs-
skepna í mörgu, þá dró hún þó ekki allt út úr
höndunum á mér eins og skrattinn hún Gudda; en
hvað ég ætlaði að segja, hefurðu ekki augastað á
neinni hérna í sveitinni, sem þú vildir eiga?
Ónei, fóstri minn, ekki hef ég það; og það á heldur
engin neitt hérna í sveitinni; og til hvers skollans er
að taka þá, sem ekki á spjarirnar á sig?
Og satt er nú það, neyðarúrræði eru það; hér er þó
ein fram á bæjunum, sem loðin er um lófana.
Á, hver er það, fóstri minn?
Hún Sigríður Bjarnadóttir í Tungu.
Á, ætli það? Ætli það eigi nokkuð til þar í Tungu?
En ekki eru börnin mörg, trúi ég.
Læt ég nú það vera, ekki held ég það sé feitan gölt
að flá, búið þar í Tungu, og ekki átti hann Bjarni
heitinn jarðirnar; en hitt er það, hún kvað hafa
fengið þrjár ef ekki fjórar jarðir eftir hana systur
sína.
Nú, það var annað mál! sagði Guðmundur og neri
saman lófunum.
Og því hefur mér dottið það í hug, aó þaö væri ekki
Hafið ekki áhyggjur, hann verður kominn aftur í
samt lag og breimandi upp á girðinguna áður pn þér
vitið.
svo fjarri lagi fyrir þig, því góður stofn getur það
orðið, ef vel er á haldið, meó þessu litla, sem þú átt
sjálfur, þó það sé nú ekki mikið; þú átt þó þenna
part, sem ég hef ánafnað þér; og svo nokkra skild-
inga, hugsa ég.
Ég! skildinga, nei, ég á ekki peningana, ég er
öldungis peningalaus.
Ekki trúi ég nú því; en þú vilt aldrei láta bera neitt
á því; og hvað kemur til, að þú lofar mér aldrei að sjá
skildingana þína, Gvendur?
Nú, þeir eru engir! En því fæ ég aldrei að sjá
peningana þína, fóstri minn?
Annað mál er það; ég hef aldrei átt neina skild-
inga; þú skyldir fá að sjá þá, ef þeir væru nokkrir;
eitt gripsverð, það er allt og sumt.
Sagan af kóngsdóttur
og svarta bola
En áður en þau fóru inn í skóginn, sagði boli við
konungsdóttur: „Þegar við komum inn í skóginn,
verður þú að gæta þess vel, aö snerta ekki einu sinni
eitt einasta blað, annars er úti um bæði þig og mig,
því í skóginum býr þríhöfðaóur þursi, og hann á
skóginn.“
Nei, hún sagðist skyldi vara sig á að snerta ekki
neitt í skóginum.
Hún var mjög varfærin og beygói sig til þess að
rekast ekki á greinarnar, en trén voru þétt, og
hvernig sem hún gætti sín, varð henni það samt á að
rekast á blað, svo það rifnaði af.“
„Æ, æ, hvað gerðirðu nú?“ sagði boli. „Nú verð ég
að berjast upp á líf og dauða. En geymdu vel blaðið,
sem þú reifst af.“
Skömmu síóar komu þau út úr skóginum, og þá
kom þríhöfóaður þursi æðandi á móti þeim.
„Hver snertir koparskóginn minn?“ spurði hann.
„Ég á nú eins mikið í honum eins og þú,“ sagði
boli.
„Við skulum nú berjast um það,“ sagói tröllið.
„Já, komdu þá bara,“ sagði boli.
Svo ruku þeir saman og börðust, og boli stangaði
allt hvað hann orkaði, en risinn barði og lamdi og
þetta gekk allan daginn, en loksins gat svarti boli
gert út af við þursann, en þá var boli orðinn svo
meiddur og móður, að hann gat varla staðið. Svo
urðu þau að hvíla sig heilan dag, en þá sagði boli við
konungsdóttur, að hún skyldi taka horn með smyrsl-
um, sem risinn hafði við belti sér, og smyrja smyrsl-
unum á meiðslin. Þá bötnuðu þau og svo héldu þau
áfram aftur.
Þau héldu nú áfram í marga, marga daga, og svo
komu þau loksins að stórum skógi, þar sem tré og
blöð, og allt var úr skíru silfri.
ffta&j^CHrgunkoffinu
40.000
Fœrey-
ingar
Yvir 40.000 fólk
í Feroyum
Fólkatalið vaks
í fjer við 641
Fyri fyrstu ferð í tús-
undára gomlu s0ru F0r-
oya er íbújrvaratalið nú
farið upp um tey fjör-
uti túsund.
Nýugjasta uppgerðin,
sum er frá januar 1975,
vísir eitt samlað fólka-
tal í Fproyum uppá
40.441.
I mun til januar 1974
er hetta ein vpkstur
uppá 641 íbúgvar.
Þessi blaðaúrklippa
hér að ofan er úr
stærsta blaði Færeyja
Dimmalættning, þar
sem blaðið segir frá
því að fbúatala Fær-
eyja sé komin yfir
40.000.
Táknmynd
harðnandi
samkeppm
Þessa teikningu birti
stórblaðið Berl. Tid-
ene fyrir nokkru er
sagt var frá því að
flugfélagið Sterling
Airways, sem er
danskt flugfélag eign
ferðaskrifstofu
„Tjæreborgar“ prests-
ins, muni taka upp
samstarf við amerfska
flugfél. PANAM og
veita SAS hinu nor-
ræna flugfélagi mjög
harða samkeppni.
Teiknarinn setti undir
teikninguna svohljóð-
andi texta: Heyrðu nú,
þú tekur brauðmolann
úr nefi mér!