Morgunblaðið - 06.03.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.03.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1975 3 Tillögur um skipulagsbreytingu á Reykjavíkurflugvelli: Ný 1500 metra flugbraut Gunnar Sigurðsson, ' Agnar Kofoed-Hansen, Bertil Hell- man og Leifur Magnússon út- skýra fyrirhugaðar breytingar á Reykjavíkurflugvelli. GERÐ hefur verið áætlun um framtfðarskipulag á Reykja- víkurflugvelli. Tvær tillögur liggja fyrir. 1 annarri er gert ráð fyrir lagningu nýrrar flug- brautar, sem yrði um 1500 metrar að lengd og yrði hún skáhallt meðfram þeirri flug- braut, sem nú liggur frá austri til vesturs á vellinum. I hinni tillögunni er gert ráð fyrir ýms- um minni háttar skipulags- breytingum án þess að ný flug- braut yrði lögð. Finnskur verkfræðingur, Bertil Hellman, hefur unnið að þessum skipulagsáætlunum s.l. 10 ár, en hann hefur unnið að samskonar verkefnum í mörgum löndum. Á fundi, sem Agnar Kofoed- Hansen, flugmálastjóri, Gunnar Sigurðsson, flugvallar- stjóri, og Bertil Hellman héldu með fréttamönnum i gær kom fram, að bruninn á Reykja- vikurflugvelli í janúar s.l. varð til þess að tillögum um skipu- lagsbreytingar á Reykjavíkur- flugvelli var flýtt. Gert er ráð fyrir því, að í framtiðinni fari allt viðhald og viðgerðir á flug- vélum fram á Keflavikurflug- velli, og nú hefur næturflug véla með þrjá hreyfla og fleiri verið bannað á Reykjavíkur- Á myndinni sést hvernig skipulag Reykjavfkurflugvallar verður, ef farið verður eftir þeirri tillögu, sem mælt er með. Nýja brautin er sú, sem byrjar til hægri fneðrahorni og sést greinilega hvernig miðað er við að hún liggi meðfram Öskjuhlíðinni (lengst til hægri) sem verið hefur veruleg hindrun f lagningu flugbrauta í upphafi. flugvelli, nema í undanþágu- tilfellum. Flugmálastjóri sagði, að gert væri ráð fyrir því að Reykja- víkurflugvöllur yrði notaður a.m.k. næstu 25 ár og væri löngu orðið tímabært að gera endurbætur á honum með nota- gildi og öryggi í huga. A fundinum var lega flugvailarins rædd nokkuð. Sagði flugmálastjóri, að þegar hugmynd um fiugvöll á Álfta- nesi hefði verið útrædd og séð að aðrir ákjósanlegir staðir fyrir flugvöll í nágrenni Reykjavíkur væru ekki fyrir hendi, væri sá kostur einn að endurbæta Reykjavikurfiug- völl eftir föngum. Sagði hann, að öllum sérfræðingum, sem hefðu verið kvaddir til, bæri saman um, að Keflavíkurflug- völlur væri of langt frá Reykja- vík til að þaðan væri hægt að annast flugþjónustu innan- lands. Þá benti flugmálastjóri á, að ýmsar aðstæður varðandi flug- rekstur hefðu breytzt verulega til bóta hin siðari ár, bæði hvað snerti öryggi flugvalla og flug- véla. Þá væru aðflugsskilyrði í Reykjavík heppileg að þvi leyti að komið væri að vellinum af sjó úr þremur áttum og víða erlendis hagaði þannig til að 15 mínútna aðflug að flugvöllum væri yfir borgum og þéttbýli, enda þótt vellirnir sjálfir væri á svæðum þar sem byggð væri dreifð. Bertil Hellman var spurður álits á legu Reykjavíkurflug- vallar. Sagði hann að engan veginn væri hægt að teija hana ákjósanlega, og ef ætlunin væri að gera nýjan flugvöll, dytti engum i hug að setja hann á sama stað. Spurningin væri hins vegar sú hvað hægt væri að gera til endurbóta og aukins öryggis við núverandi aðstæður. Verði horfið að því ráði að leggja hina nýju flugbraut mun flugumferð að verulegu leyti geta flutzt yfir á hana, en núverandi braut, sem liggur frá suðri til norðurs, þolir vart meira álag en nú er. Hellman sagði að um mitt síðasta ár hefði kostnaóaráætlun vegna nýju brautarinnar verið um 150 millj. króna, en þessi lausn yrði bæði kostnaðarminni og hag- kvæmari á allan hátt en sú, sem gerir ráð fyrir þvi að ekki verói lögð ný braut. Tillögurnar hafa enn ekki verið lagðar fyrir borgaryfír- völd, en flugmálastjóri sagði að það yrði gert fljótlega. Hann sagði að allar framkvæmdir á Reykjavikurflugvelli væru að Framhald á bls. 20 Utboð á verðtryggðum ríkisskuldabréfum aukið í 700 milljónir Tvennir fjölskyldutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands UTBOÐ Seðlabankans á 500 milljón króna rikisskuldabréfum, sem gefin voru út um mánaðamót- in janúar-febrúar hefur gengið Skákkeppni stofnana: Þrjár sveitir urðu efstar og jafnar KEPPNI í A-riðli Skákkeppni stofnana iauk s.l. mánudagskvöld. Tefldar voru 7 umferðir eftir Monrad-kerfi, en 25 fyrirtæki og stofnanir tóku þátt í keppninni. Hún varð ákaflega spennandi og tvisýn og lauk henni á þann veg að þrjár stofnanir urðu i efsta sæti með 18vinning, Utvegs- bankinn, sameiginleg sveit Orku- stofnunar og Rarik og kennarar Menntaskólans við Hamrahlió. Búnaðarbankinn hlaut 18 vinn- inga og Kennaraháskólinn 17 vinninga. Þrjár efstu sveitirnar munu keppa um titilinn. Keppni i B-riðli lýkur i kvöld, miðvikudag, en þar er Flensborgarskólinn í efsta sæti. mjög vel að sögn Stefáns Þórarinssonar, aðalféhirðis Seðla- bankans. Hefur nú verið ákveóið að auka útboðið um 200 milljónir króna eða í 700 milljónir. Stefán sagði að heimildir hefðu upphaflega verið fyrir hendi fyrir 600 milljónum króna, en að auki verið heimilt að selja bréf upp í nafnverð og verðbót eldri bréfa. Sagði hann talsvert hafa verið um það aó bréfin frá 1964 hefðu verið tekin upp í nýju bréfin og kvað hann um 50% af útboðinu frá 1964 hafa farið i nýja útboðið. Ekið á bíl ÞRIÐJUDAGINN 4. febrúar s.l. var ekið á bifreiðina R 36713, sem er brúndrappleitur Volkswagen þar sem bifreiðin stóð i stæði vió Tjarnargötu, gegnt Háskólahapp- drættinu. Gerðist þetta á tíma- bilinu frá kl. 10 til 22. Bifreiðin er dælduð á vinstra afturbretti. Þeir, sem eitthvað um þennan at- burð vita, eru beðnir aó hafa sam- band við rannsóknarlögregluna strax. SINFÖNlUHLJÖMSVF.IT Is- lands heldur á næstunni tvenna fjölskyldutónleika í Háskólabíói. Veróa hinir fyrri laugardaginn 8. marz en þeir síðari laugardaginn 5. apríl. Tónleikarnir hefjast kl. 14 báða dagana. A hljómleikunum á laugardag verða flutt verk eftir Mozart, Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson og Benjamin Britten. Hljómsveitar- stjóri verður Páll P. Pálsson en Atli Heimir Sveinsson kynnir tónlistina og hin ýmsu hljóðfæri hljómsveitarinnar. Hægt er að fá áskriftarskírteini, sem gilda að tvennum tónleikum, bæði i bökabúðum og i barnaskól- um, en fjölskyldutónleikarnir eru ekki hvað sizt hugsaðir fyrir skólabörn á aldrinum 7—13 ára og foreldra þeirra. Tónleikar fyrir börn á þessum aldri hafa verið snar þáttur í starfi hljóm- sveitarinnar og haldnir í ýmsu formi, síðustu árin sem fjöl- skylduhljómleikar sem hafa gef- izt einkar vel, að þvi er Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, upplýsir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.