Morgunblaðið - 06.03.1975, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1975
25
Halldór Guðmundsson
frá Bœ — Minning
F. 1. október 1897.
D. 13. febrúar 1975.
„Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
Halldór var fæddur á Smáhömr-
um í Tungusveit og voru foreldr-
ar hans Ragnheiður Halldórsdótt-
ir og Guðmundur Guðmundsson.
Ungur að árum flyzt hann með
foreldrum okkar að Dr^gsnesi við
Steingrímsfjörð, þar sem lífsaf-
koman var aðallega byggð á sjó-
sókn. Halldór var elztur af níu
sonum þeirra hjóna. Hann var
ekki hár i lofti eða aldinn að árum
er hann fór að róa með föður
sinum. Það var ekki löng skóla-
gangan hjá honum, frekar en
öðru almúgafólki á þeim tímum.
Þó var hann tvo vetur í unglinga-
skólanum á Heydalsá, hjá Sigur-
geiri Ásgeirssyni kennara. Námið
gekk vel. Skiðaíþróttin var þar
mjög í heiðri höfð, þar bar hann
af, og alla tið síðan var hann
mikill iþróttaunnandi og reyndi
að sækja skiða- og önnur íþrótta-
mót allt fram til síðustu ára.
Árið 1914 flytja foreldrar okkar
að Bæ á Selströnd, þá var Halldór
orðinn sterkasta reipið í fjölskyld-
unni, að því er vinnuna snerti.
Strax var hafizt handa um að
slétta túnið og einnig var stundað-
ur sjór haust og vor, eins og enn
er og verða mun. Þar veiddist
mikið af hrognkelsum og var stutt
á fiskimið fyrstu árin, en það
hefur breytzt.
Árið 1920 kvæntist Halldór
Guðrúnu Petrínu Árnadóttur,
hinni mætustu konu, sem nú er
látin. Þá urðu þau straumhvörf í
lífi þeirra, að þau fengu hálfa
jörðina Bæ til ábúðar, þar eð þá
flytja þaðan búferlum inn að
Kleifum á Selströnd, Guðrún Guó-
mundsdóttir móðir Guðrúnar
Petrínu og stjúpfaðir hennar Jó-
hann Jónsson. Það má segja að
ekki yrði nein kyrrstaða hvaó bú-
skaparhætti snerti hjá Halldóri,
heldur þvert á móti stórstígar
framfarir, enda var hann fljótur
að tileinka sér allar nýjungar á
því sviði. Hann gróf ekki pund
sitt í jörðu heldur bar það ríku-
legan ávöxt i dáórökku starfi.
Þau hjón eignuðust sex börn,
fjóra drengi og tvær stúlkur.
Aðra stúlkuna misstu þau rúm-
lega tvítuga að aldri, og hafði hún
verið sjúklingur alla tíð. Börn
þeirra eru þessi: Tómas, Guð-
mundur, Jóhann Gunnar,
Ármann og Anna. Allt er fólk
þetta harðgert, dugmikið og vel
metið. Lengi bjuggu þau hjón aó
vinnu barna sinna, er hjálpuðu
þeim til að gera Bæ að þvi stórbýli
sem hann er í dag. Börnin fóru að
heiman jafnframt því að stofna
eigin heimili, og að síðustu voru
þau hjón tvö ein að vetrinum, en á
sumrin komu börnin og hjálpuðu
til við heyskapinn. Auk sinna
eigin barna ólu þau hjón upp
stúlku, Guðlaugu Ólafsdóttur að
nafni, sem kom til þeirra barn að
aldri. Hún reyndist þeim sem
bezta dóttir.
Halldór var búinn að sitja Bæ-
inn í rúm fimmtíu ár, starfsdagur-
inn var orðinn langur, er hann
fyrir réttum tveimur árum hné
niður við skyldustörfin, fékk
heilablæðingu og varð máttlaus
hægra megin. Hann var þá fluttur
suður og hefur legið í Landakots,-
spítala síðan, þar sém vel var um
hann séð. Biðtíminn var langur og
engin lifs von, en hann var mikið
karlmenni i þeim þrautum sem
öðrum. Með honum fellur dug-
mikill niðji ættjarðarinnar, einn
af þeim sem byggðu upp og bjó í
haginn fyrir komandi kynslóðir.
Hans mun verða minnzt svo lengi
sem Bær er í byggð.
Halldór var á yngri árum fríður
maður sýnum, hlaðinn lífsorku og
óbugandi starfsþreki, sem
einkennir ætt okkar svo mjög.
Hann var vel gefinn og hagmælt-
ur, en því mun hann lítt hafa
haldið á loft, þó að einstaka kvæði
og vísa spyrðust út og yrði lífs
auðið. Hann var glaður maður og
góðhjartaður, og munu margir
minnast hans með þökk og hlýju í
huga. Hinn 20. þessa mánaðar fór
fram minningarathöfn um Hall-
dór í Fossvogskapellu, að við-
stöddum miklu fjölmenni. Hann
var jarðsunginn frá Drangsnes-
kapellu 22. þ.m. og lagður til
hinztu hvíldar í vinalegum graf-
reiti á sólríkum og skjólsælum
stað, við hlið konu sinnar. Þá er
hann aftur kominn heim til æsku-
stöðvanna, þar sem hann undi sér
svo vel og unni svo mikið, aó þar
var aliri ævinni eytt.
En nú er hún stirðnuð
hin starfsfúsa hönd,
Þar munu birtast þérónumin lönd,
og almættið veginn mun benda.
Við kveðjum hann öll með
hjartans þökk fyrir samfylgdina
og allt hið glaða og góða, sem
alltaf fylgdi honum. Farðu í friði,
friður guðs þig blessi.
20.2.1975.
Þuríóur Guðmundsdóttir
frá Bæ
ASTRAD
VIÐTÆKI
Verö
frá kr. 3610.-
ÚTSÖLUSTAÐIR:
AKRANES ÓLAFSVÍK
VerzlUnin Örin Verzlunin Sindri.
AKUREYRI PATREKSJÖROUR
Gunnar Ásgeirsson, h.f. Verzl Baldvins Kristjánssonar.
K.E.A. Hljómdeild. REYÐARFJÖRÐUR
Hljómver. Kaupfélag Héraðsbúa.
BORGARNES
Verslunin Stjarnan. REYKJAVÍK
Kaupfélag Borgfirðinga Dómus Laugavegi 91.
BLÖNDUÓS F.Björnsson. Bergþórugötu 2.
Kaupfélag Húnvetninga. Fönix. Hátúni 6 a
BREIÐDALSVÍK Gunnar Ásgeirsson Suðurlands-
Kaupfélag Stöðfirðinga. braut 1 6
BÚÐARDAL Gunnar Ásgeirsson Laugarveg 33.
Kaupfélag Hvammsfjarðar Hljómur Skipholti 9.
EGILSSTAÐIR J.P. Guðjónsson Skúlagötu 26.
Kaupfélag Héraðsbúa. Jón Loftsson Hringbraut 121.
Versl. Gunnars Gunnarssonar. Radíóbær Njálsgötu 22
ESKIFJÖROUR Rafeindatæki Glæsibæ
Verzlunin Rafvirkinn. Rafkaup Snorrabraut 26
FÁSKRÚSFJÖROUR Radióvirkinn Skólavörðustíg.
Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar Radió og Raftækjav.stofan
FLATEYRI Óðinsgötu 2.
Verzlunin Dreyfir. Sjónvarpsmiðstöðin Þórsgötu 1 5.
GARÐAHREPPUR Sveinn Jónsson. Óðinsgötu 4.
Bókaverzlunin Gríma. Tiðni h.f. Einholti 2.
GRINDAVfK
Kaupfélag Suðurnesja. SAUÐÁRKRÓKUR
HAFNARFJÖRÐUR Kupfélag Skagfirðinga.
Söluturninn Sóley. Radíó og Sjónvarpsþjónustan
Radlóröst. SEYÐISFJÖRÐUR
Vaki Bókaverzlun Ara Bogasonar
HELLA Kaupfélag Héraðsbúa.
Kaupfélagið Þór. SELFOSS
Verzlunin Mosfell. Kaupfélag Árnesinga.
HVOLSVÖLLUR Kaupfélagið Höfn.
Kaupfélag Rangæinga. G.Á Böðvarsson.
HÚSAVÍK Haraldur Arngrimsson.
BókaverZlun Þórarins Stefánssonar. SIGLU FJÖROUR
HÖFN-HORNAFIRÐI Verzl. Gests Fanndal.
Verzl. Sigurðar Sigfússonar. SÚGANDAFJÖRÐUR
ISAFIRÐI Verzl. Hermanns Guðmundssonar.
Bókaverzlun Jónasar Tómassonar VÍK
Verzl. Jóns A Þórólfssonar. Kaupfélag Skaftfellinga.
KEFLAVÍK VOPNAFJÖROUR
Kaupfélag Suðurnesja. Versl. Ólafs Antonssonar.
Radiovinnustbfan Hringbraut 91. STÖOVARFJÖROUR
NESKAUPSSTAÐUR Kaupfélag Stöðfirðinga.
Kaupfélagið Fram SKAGASTRÖND
Bókaverzl Höskuldar Stefánssonar. Verzl Björgvins Björgvinssonar
ÓLAFSFJÖRÐUR VESTMANNAEYJAR
Múlatindur. Verzl. Stafnes.
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
SUÐURLANDSBRAUT 14 - REYKJAVlK SlMI 38600
HEIMDALLUR
Klúbbfundur
um iðnaöar-
og orkumál
Heimdajlur S.U.S. í Reykjavík heldur klúbb-
fund í Útgarði Glæsibæ (niori) laugardaginn 8.
mars n.k. kl. 1 2.00.
Gestur fundarins verður Gunnar
Thoroddsen iðnaðar- og orku-
málaráðherra. Mun hann ræða
um iðnaðar og orkumál og svara
fyrirspurnum fundarmanna.
Félagar eru hvattir til að mæta
og taka með sér gesti Stjórnin
Góóar
^kur
^drrialt
Bókamárkaóurinn
' HÚSI IÐNAÐARINS VIÐ
INGÖLFSSTR/ETI
argus