Morgunblaðið - 06.03.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.03.1975, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1975 26 Ólafur Dagfinns son — Minning í dag er borinn til grafar frændi okkar Ölafur Dagfinnsson. Hann lést 24. febrúar eftir nokkurra vikna sjúkrahússlegu. Andlát hans bar þó brátt að, því hann var kominn heim og síðustu dagana fyrir andlátið var hann hress og kátur og virtist hafa fengið góðan bata. Ólafur fæddist i Reykjavík 21. september árið 1900, næst yngst- ur níu systkina. Foreldrar hans voru Halldóra Eliasdóttir og Dag- finnur B. Jónsson sjómaður. Þau voru ættuó af Snæfellsnesi, en fluttust til Reykjavikur með sitt fyrsta barn á unga aldri. Ekki naut föðursins lengi við því hann andaðist aðeins 49 ára gamall. A þeim árum þýddi slíkt áfall fyrir barnmargar alþýðufjölskyldur oftast, aó fjölskylduna varð að leysa upp að meira eða minna ieyti. Það lá því fyrir Ölafi að vera sendur i fóstur að Geldingaholti í Gnúpverjahreppi til hjónanna Guðríðar Ámundadóttur og Olafs Jónssonar. Þótt það sé engum vafa undirorpið, að erfitt hefur verið fyrir Ólaf að yfirgefa fjöl- skyldu sína, þá bar hann gæfu til að lenda hjá einstöku sómafólki, enda minntist hann fósturfor- eldra sinna ætíð með mikilli hlýju. Þá tók Ólafur miklu ást- fóstri við sveit þá, sem hann ólst upp i og óhætt er að segja, að vandfundinn var einlægari Hreppamaður þó átt hafi ættir sínar í öðrum landshluta. Ólafur starfaði við almenn sveitastörf í Geldingaholti allt fram til þritugsaldurs. Þá fluttist hann til Reykjavíkur ásamt konu- efni sinu, Þórlaugu Valdimars- dóttur frá Sóleyjarbakka. Þau eignuðust fjögur börn, Valdimar, Helgu, Unni og Dagfinn. Eftir langt og farsælt hjónaband and- aðist Þórlaug þann 9. mars 1972, banamein hennar var sá sami sjúkdómur, sem nú hefur lagt Olaf að velli. Fljótlega eftir að Ólafur fluttist til Reykjavíkur hóf hann að starfa með mági sínum Kristjáni Jó- hanni Kristjánssyni. Þegar Krist- ján Jóhann stofnaði Kassagerð Reykjavíkur árið 1932, gerðist Ölafur starfsmaður fyrirtækisins og hélt tryggð við það alla sína ævi. Hann starfaði þvi við fyrir- tækið allt frá stofnun þess. Á 40 ára afmæli Félags ísl. iðnrekenda var Ólafur ásamt nokkrum öðrum starfsmönnum íslenskra iðnfyrir- tækja, heiðraður fyrir störf við íslenskan iðnað. Það er óhætt að segja, að hann var vel að þeim virðingarvotti kominn. Það munu allir, sem til þekkja hjá Kassagerð Reykjavíkur, sam- mála um, að mikill sjónarsviptir er að Ólafi innan fyrirtækisins. Dugnaður hans samfara óþrjót- andi áhuga fyrir vexti og viðgangi fyrirtækisins gerði hann að þeim ágæta starfsmanni, sem hann alla tíð reyndist. Að öðrum ólöstuðum hefur fyrirtækið varla notið dyggari starfsmanns þau ár, sem það hefur starfað. Öll þau störf, sem Ölafi voru falin leysti hann af jafnmiklum dugnaði og áhuga. Það lýsir honum vel, að aldrei þreyttist hann á að benda á það, sem honum þótti betur mega fara jafnt í smáu sem stóru. Og skoðanir sínar setti hann fram af hreinskilni og einurð. Tvennt var einkum einkenn- andi fyrir Ólaf, tryggð hans við fjölskyldu sína og barngæska hans. Hann var óþreytandi við að heimsækja sitt gamla venslafólk, ekki síst þá, er ekki áttu heiman- gengt af ýmsum ástæðum, og miðlaði þeim af glaðværð sinni og góðum hug. Börn hændust mjög að Ólafi, enda brást aldrei að hann gæfi sér tíma til að sinna þeim. Við minnumst Ólafs með þakk- læti og hlýjum hug sem frænda, vinar og samstarfsmanns. Fjöl- skyldu hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Agnar Kristjánsson Kristján Jóh. Ágnarsson Leifur Agnarsson. 1 dag er til moldar borinn Ólafur Dagfinnsson, starfsmaður í Kassagerð Reykjavíkur. Þegar fréttist um lát Ólafs, setti marga vini hans hljóða, því þrátt fyrir, að vitað var, hversu heilsa hans var orðin léleg, áttu þó fæstir von á því, að hann færi svo snögglega. Nú þegar Ólafur er kvaddur, sækja á hugann margvíslegar endurminningar frá liðnum árum. Kynni mín af Óla Dagg, t Maðurinn minn, GiSSUR ÞORSTEINSSON sem andaðist 26. febrúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 8. þ.m. kl. 2 e.h. Fyrir hönd barnanna. Guðrún Brynjólfsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda sam- úð og vináttu við andlát og útför eiginmanns mins, GUÐMUNDAR BOGASONAR. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Jóhanna Þorvaldsdóttir. eins og hann var gjarnan kallaður í hópi vina og samstarfsmanna, hófust fyrir rúmum 30 árum, er ég kvæntist bróðurdóttur hans. Hann kom oft á heimili tengda- foreldra minna og var þá gjarnan rætt um landsins gagn og nauðsynjar. Ólafur var ekki myrkur í máli, er hann tjáði hug sinn, um menn og málefni líðandi stundar. Þar var ekki verið að klipa utan af hlutunum eða töluð nein tæpitunga, enda maðurinn víða heima í landsmálum og túlk- aði skoðanir sinar umbúðalaust. Ólafur ólst upp á erfiðum tím- um, ásamt systkinum sínum, er atvinnuleysi var meira og minna landlægt og ailir urðu að vinna langan vinnudag strax frá ungl- ingsárum, ef eitthvert handtak var að fá, til þess að létta undir með heimilinu. Hann kynntist því snemma mikilli vinnu og vissi ekki hvað það var að hlífa sér, enda húsbóndahollur, samvisku- samur og velvirkur. Þegar Kristján Jóhann Krist- jánsson, mágur Ólafs, stofnaði af miklum dugnaði og bjartsýni, en litlum efnum, Kassagerð Reykja- víkur árið 1932, réðst Ólafur í vinnu til hans. A þeim árum létu húsakynni Kassagerðar Reykjavíkur ekki mikið yfir sér, þó bæði væri hátt til lofts og vítt til vegja, því unnið var úti undir berum himni, á svö- kölluðu „plani“ við verzlun O. Ellingsen. Þó aðstaðan til fram- kvæmda væri frumstæð, var unnið af kappi og engum datt í hug að hlífa sér við vinnuna. Þar lærðu margir ungir menn fyrst að reka nagla, og sagði Kristján Jó- hann mér einhverju sinni, að Ólafur hefði verið góður kennari hinum ungu mönnum og traustur leiðbeinandi. Þar mun núverandi forstjóri Kassagerðar Reykja- víkur, Agnar Kristjánsson, hafa hafið sin fyrstu störf hjá fyrir- tækinu ungur að árum, undir til- sögn og með eftirliti frænda síns Ólafs. Svo líða árin hvert af öðru og á árinu 1961 var ég ráðinn til starfa hjá Kassagerð Reykjavíkur. Stór- t Maðurinn minn, JÓN ÓSKAR PÉTURSSON, Skammbeinsstöðum, sem andaðist 27. febrúar verður, jarðsunginn frá Marteinstungu- kirkju laugardaginn 8. marz. kl. 2 e.h. Bílferð verður frá Um- ferðarmiðstöðinni kl. 12. Fyrir hönd barna okkar, Guðný Jónsdóttir. t Útför sonar okkar, GRÍMS ÞORSTEINS, Skólagerði 47, Kópavogi, fer fram föstudaginn 7. marz n.k. kl. 1.30 e h. Þeim, sem vildu minnast hans er vinsamleg- ast bent á styrktarsjóð vangef- inna. Bryndís og Grímur Thorarensen. felldar breytingar höföu orðið á rekstri fyrirtækisins á þessum þrem áratugum, sem liðnir voru frá þvi að starfsemi fyrirtækisins hófst. Kassagerð Reykjavíkur var þá orðin eitt at stærstu fyrirtækj- um landsins i einkaeign og rekið af mikilli hagsýni af þeim feðgum Kristjáni Jóhanni og syni hans Agnari. Og nú lágu leiðir okkar Ólafs saman í starfi, þar til Ólafur lést. Hér kynntist ég nýrri hlið á Ólafi. Nú hafði ég þennan vinnu- sama mann við hliðina á mér svo til daglega og skildi nú betur en áður, hverskonar kjörgripur hann i raun og veru var sinum hús- bændum. Hann var með afbrigðum trúr í starfi og hélt mjög á loft þeirri fornu dyggð, að vinna húsbændunum vel. Mér er kunnugt um, að þeir feðgar báðir Kristján Jóhann og Agnar kunnu vel að meta þennan trúa og trausta starfsmann, enda sýndi Agnar Kristjánsson það f verki, er hann verðlaunaði Ólaf með utan- landsferð, eftir að hann hafði starfað hjá fyrirtækinu samfellt í 40 ár. Ólafur hafði sem unglingur dvalið langdvölum í sveit, og var sérlega minnugur á bæja- og mannanöfn svo og sérstæða át- burði, er gerðust á þeim árum, og var gaman að heyra hann segja sögur frá þeim tima. Þar kenndi margra grasa og margar sérkenni legar persónur urðu ljóslifandi og minnisstæðar i fjörlegum frá- sögnum Ólafs, enda kunni hann vel aö segja frá. Ólafur var kvæntur Þórlaugu Valdimarsdóttur sem er látin fyr- ir nokkrum árum. Þau eignuðust 4 börn, sem öll lifa foreldra sína. Þau hjónin áttu bæði við mikla vanheilsu að striða árum saman og er mér kunnugt um, að Ólafur kom oft til vinnu sinnar meira og minna veikur. Það lýsir ef til vill skapgerð hans allvel, að aldrei heyrðist hann kvarta undan þeirri þungu byrði heilsufeysis, sem hann varð að bera. Oft lá hann andvaka um nætur, illa haldinn af sínum erf- iða sjúkdómi, en kom þó til vinnu að morgni, eins og ekkert hefði í skorist. Það má því segja um Ólaf, hann stóð meðan stætt var. Ólafur var snyrtimenni mikið, sem og reyndar systkini hans öll. Hann var höfðinglegur á að líta og bar sig vel og horfói jafnan beint í augu þeirra, er hann ræddi við, enda einarður og ákveðinn að eðlisfari. Þegar Ólafur vinur okkar er nú kvaddur að leiðarlokum, vil ég fyrir hönd okkar samstarfsmanna hans í Kassagerð Reykjavíkur þakka honum fyrir langa og góða samvinnu og trausta vináttu. Við sendum ástvinum hans öllum hugheilar samúðarkveðjur. Halldór Sigurþórsson. JHörgtmhTaíiil* nucivsincnR ^»22480 + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför, HALLDÓRS GUÐMUNDSSONAR frá Bæ i Steingrimsfirði. Alúðar þakkir til lækna og starfs- fólks Landakotsspítala er hjúkruðu honum I veikindum hans. Tómas Kr. Halldórsson, Guðmundur Halldórsson, Anna G. Halldórsdóttir, Jóhann G. Halldórsson, Ármann H. Halldórsson, Guðlaug Ólafsdóttir. Úllaraskreytlngar btömouol Gróðurhúsið v/Sigtún simi 36770 t Sonur okkar, GUNNAR RAGNAR HALLDÓRSSON, andaðist að Barnadeild Landspítalans aðfaranótt 5 þ.m. Ingibjörg Gunnarsdóttir, Halldór Magnússon. + Móðir okkar og fósturmóðir INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Hringbraut 50, R andaðist á Landspítalanum mánudaginn 24 farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. febrúar. Jarðarförin hefur Jóhanna Hjaltalin, Ingibjörg Danielsdóttir, Brynjólfur Vilhjálmsson, Edda Clausen. + Útför móður minnar, LILJU MAGNÚSDÓTTUR, Rauðalæk 55, fer fram frá Fossvogskirkju í dag fimmtudaginn 6. marz kl. 1 5. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Gunnar Grettisson. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem vottuðu okkur samúð við andlát og jarðarför móður okkar, MEKKINAR J. BECK. Börn, tengdabörn og barnabörn hinnar látnu. + Þakka innilega vinsemd við andlát og jarðarför mannsins mins, KRISTMANNS JÓNSSONAR. Pálina Þorleifsdóttir. + Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför, JÚLÍUSAR JÚLÍUSSONAR, vélstjóra, Eyrarvegi 31, Akureyri. Sigtryggur Júliusson, Jóhanna Jóhannsdóttir, Alfreð'Júfiusson, Ingibjörg Þorleifsdóttir, Aðalsteinn Júlíusson, Áslaug Guðlaugsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.