Morgunblaðið - 07.06.1975, Page 1
36 SIÐUR
126. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 7. JUNÍ 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bretar geta farið að gegna
^ 1 1 1 • ö
sínu rétta hlutverki í hvrópu
Mikil ánægja er víðast hvar með úrslit EBE-kosninganna
□
□
Sjá frétt Matthíasar
Johannessen ritstjóra á
öðrum stað á síðunni og á
bls. 3.
□ -------------------------□
London, 6. júní. AP. Reuter.
ÞEGAR Mbl. fór I prentun f kvöld
höfðu atkvæði verið talin f 67
kjördæmum af 68 og voru úrslitin
þá löngu ljós, að fylgismenn
aðildar að Efnahagsbandalaginu
höfðu unnið glæsilegan sigur.
Þeir höfðu þá fengið 67,3%
atkvæða og 17.337.779 millj. og
nei-menn höfðu 32,7% og þeim
höfðu greitt atkvæði 8.436.094
kjósendur. Voru niðurstöður þvf
mjög f samræmi við skoðana-
kannanir sem sfðustu daga spáðu
þvf að um 68% myndu styðja
veru Breta f Efnahagsbanda-
laginu.
Leiðtogar í Bretlandi höfðu þá
lýst skoðun sinni eins og fram
kemur f frétt Matthfasar
Johannessen annars staðar f blað-
inu.
Úrslitunum var og mjög fagnað
í öðrum Efnahagsbandalagsrfkj-
um og bar Ieiðtogum þar saman
um að samstarf Evrópurfkja
myndi eflast mjög svo og sam-
staða.
I aðalstöðvum bandalagsins i
Briissel segja fréttastofur að
menn hafi dregið andann léttar
og talsmaður bandalagsins sagði:
„Ástæða er til að gleðjast yfir því,
að aðild Breta að bandalaginu
hefur verið endanlega staðfest.
Brezkur sjóliði á herskipinu
„Fearless" staddur f Stokkhólmi á
dögunum virðist velta fyrir sér hvern-
ig hann eígi að greiða atkvæði. Nú
liggur niðurstaðan Ijós fyrir og
brezka þjóðin hefur tjáð skoðun sfna á
óvenju afdráttarlausan hátt.
Harold
Wilson
Úrslitin benda til að brezka
þjóðin skilji að Evrópuþjóðir
þurfa að vinna saman, ef þær ætla
að leysa sín mál. Nú liggur þvf
fyrir að snúa sér að þvf að skipu-
leggja framtiðina."
Georges Spenale, forseti
Evrópuþingsins, fagnaði úrslitun-
um og sagði þetta geta orðið til að
starf þingsins yrði nú með eðli-
legum hætti upp frá þessu. Willy
Brandt, fyrrverandi kanslari,
sagði að brezka þjóðin hefði tekið
sögulega ákvörðun og hann vænti
þess að Bretland gæti nú gegnt
sínu rétta hlutverki i samfélagi
Evrópuþjóða.
A ítalíu kvað við sama tón og
bentu ráðamenn þar á að þessi
úrslit ættu einnig að gefa Banda-
ríkjamönnum vísbendingu um að
þau yrðu að líta á Evrópuþjóðir
sem mun sterkari aðila en þau
hefðu virzt gera frám að þessu.
Hjá EFTA var einnig ánægja
með niðurstöðuna og i Ósló sagði
Frydenlund, utanríkisráðherra.
að hann gleddist yfir þvf að Bret-
ar hefðu svo afdráttarlaust látið í
ljós þann vilja sinn að vera áfram
i bandalaginu.
Annað hljóð var f strokknum
hjá TASS-fréttastofunni. Þar
Framhald á bls. 20
Jafnaðarmenn unnu póli-
tískan sigur í Portúgal
og byltingarráðið samþykkir útgáfu blaðs þeirra
Lissahon 6. júnl Reuter.
Jafnaðarmannaflokkurinn í
Portúgal vann mikinn pólitískan
sigur þegar byltingarráðið sem
Norska þing-
ið samþykkir
f-16 vélarnar
Ósló 6. júnf Reuter.
NORSKA þingið samþykkti f dag
tillögu stjórnarinnar um að festa
kaup á 72 bandarfskum f-
16-orrustuvélum f stað Starfight-
ervéla sem mjög eru komnar til
ára sinna. Eitt hundrað greiddu
tíllögunni atkvæði en 19 voru á
móti, þar af voru 16 úr Sósfaliska
kosningabandalaginu, en innan
þess eru einnig kommúnistar.
Noregur er eitt fjögurra
Atlantshafsbandalagsrfkja sem
hafa verið að bræða með sér sið-
ustu mánuði hvort heppilegra
væri að kaupa 5-16 eða frönsku
Mirage f-1 vélarnar. Belgia mun
taka ákvörðun fljótlega og mun
afstaða Belga ráða miklu um end-
anlega niðurstöðu málsins.
landinu stýrir samþykkti í kvöld
að leyfa á ný óskoraða útgáfu
málgagns flokksins, Republica,
og afhenda það á ný stjórn blaða-
mannanna.
Byltingarráð hersins hafði
komið saman til skyndifundar að
ræða hótun jafnaðarmanna um að
hætta starfi f rfkisstjórn ef deilu-
málið um Republica yrði ekki
leitt til lykta og útgáfa þess leyfð
án nokkurra takmarkana. Þá
veldur það byltingarráði hersins
hinu mesta angri að mikil ólga
hefur blossað upp á ný í Luanda,
höfuðborg Angola, og var þar bar-
izt á götum í dag eftir að frelsis-
hreyfingin rauf mánaðarvopna-
hlé sem reyndar hefur ekki verið
virt allar stundir. Ilundruð hvftra
manna hafa flúið frá Luanda síð-
ustu daga vegna ástandsins þar.
Þá á byltingarráðið einnig i vök
að verjast vegna gagnrýni sem
talsmenn rómversk-kaþólsku
kirkjunnar hafa sett fram, en
kommúnistar hafa að nokkru yfir-
tekið stjórn á útvarpsstöð kirkj-
unnar, Renassenca, þó ekki allar
stöðvar þeirra sem eru á ýmsum
stöðum í landinu.
Búizt er við að Mario Soares,
foringi jafnaðarmanna, muni
Framhald af bls. 1
Muskie vill einhliða út-
færslu USAí 200 mílur
Washington, 6. júní. AP.
TVEIR öldungadeildarþingmenn
á Bandarfkjaþingi, þeir Edmund
Muskie frá Maine, sem er
Já-atkvæði urðu um
68% eins og spáð var
Aðeins tvö kjördæmi sögðu nei
London 6. júnf
Frá ritstjóra Mbl. Matthfasi Johannessen.
ÚM 64% atkvæðisbærra manna
tóku þátt f kosningunum f gær
og er það um 10% minni þátt-
taka en f sfðustu þingkosning-
um en hcldur meiri en gengur
og gerist f sveitarstjórnarkosn-
ingum f Bretlandi. Þegar
99,5% atkvæða höfðu verið tal-
in voru já-atkvæðin orðin 17.3
milljónir eða 67,3%, nei-
atkvæðin 8.2 milljónir eða
32,7%, meirihluti já-manna var
þvf um 9 milljónir eða 34,6%.
úm 69% kjósenda f Englandi
sögðu já, en 65% f Wales og um
59% f Skotlandi, í Norður-
trlandi var munurinn einna
mestur eða um 20.000 atkvæði,
þar sögðu 260.000 já, en 240.000
nei. 1 London var munurinn
um 1 milljón atkvæða, þar
sögðu um 2,2 milljónir já, en
um 1,1 millj. nei. 1 Englandi
öllu er niðurstaða kosninganna
tveir á móti einum og er það
svipað og skoðanakannanir
hafa spáð.
Einungis tvö kjördæmi sögðu
nei, annað þeirra var Hjalt-
landseyjar, ástæðan mun vera
sú, að íbúar þar telja sig fremur
norræna en skozka eða brezka
og líta gjarna yfir hafið til að
afla sér fyrirmynda. Þeir fóru
að dæmi Norðmanna, sem höfn-
uðu í þjóðaratkvæðagreiðslu
aðild að Efnahagsbandalaginu,
sællar minningar. A Hjaltlands-
eyjum sögðu 56% kjósenda nei.
önnur ástæða mun vera sú, hve
fiskveiðar ganga erfiðlega þar.
Fiskveiðieyjarnar í Atlants-
hafi, ísland, Færeyjar og Hjalt'-
landseyjar virðast því hafa
svipaða afstöðu til Efnahags-
bandalagsins af þessu að dæma.
En hvað sem líður niðurstöðu
kosninganna á Hjaltlandseyj-
um er 14 ára deilu um aðild
Breta að Efnahagsbandalaginu
lokið, svo að vitnað sé í orð
Wilsons forsætisráðherra, þeg-
ar hann talaði við blaðamenn í
Downing Street 10, síðdegis i
dag.
demókrati, og Bob Packwood,
sem er repúblikani frá Oregon,
hvöttu f dag til einhliða aðgerða
til verndunar fiskstofnum með
útfærslu landhelgi út að 200
mflum. Sögðu þeir sjávarútvegs-
og viðskiptanefnd þingsins að án
aðgerða af þessu tagi væri ljóst að
fiskstofnarnir yrðu uppurnir
vegna ofveiða erlendra verk-
smiðjuskipa.
Öldungadeildin samþykkti til-
lögu í svipuðum dúr á síðasta
þingi með miklum meirihluta
atkvæða en fulltrúadeildin taldi
hins vegar rétt að bíða eftir niður-
stöðu hafréttarráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna.
Muskie og Packwood gagn-
rýndu báðir hversu lítill raunhæf-
ur árangur hefði enn orðið af
fundum hafréttarráðstefnunnar í
Genf og lýstu því að neyðarástand
væri að skapast úti fyrir strönd-
um Bandaríkjanna, ef svo héldi
áfram sem horfði. Muskie sagði
að árið 1950 hefðu sjómenn í
Maine landað 353 milljónum
punda af mörgum fisktegundum,
en árið 1970 hefði magnið verið
aðeins helmingur og á sl. ári hefði
aðeins verið landáð 143 milljón-
um punda.