Morgunblaðið - 07.06.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JUNÍ 1975
3
WILSON: SÖGULEGUM KOSNINGUM LOKIÐ-
KJÓSENDUR FÓRUAÐ ÁSKORUN STJÓRNAR
Kfnverjar eru ánægðir með úrslit EBE-kosninganna, eins og fram
kemur f forsfðufrétt f Mbl. f dag. Þessi skopmynd birtist f danska
blaðinu Berlingske Tidende f tilefni þjóðaratkvæðisins og þarfnast
varla nánari skýringa.
London, 6. júnf
frá Matthfasi
Johannessen, ritstjóra.
ER HUN að koma út? spurði
miðaldra kona heldur ungan
mann, sem stóð i Downing
Street, og beið ásamt allmörg-
um forvitnum áhorfendum og
blaðamönnum eftir því að Wil-
son forsætisráðherra kæmi út á
tröppur nr. 10, og gæfi yfirlýs-
ingu um þjóðaratkvæðagreiðsl-
una. Ha? sagði maðurinn rugl-
aður. Frú Thatcher, sagði þá
konap^Nei, sagði maðurinn, —
Wilson. — Æjá, sagði konan,
hann.er ennþá forsætisráð-
herra.
Svo kom Wilson í bíl, gekk að
tröppum forsætisráðherrabú-
staðarins og talaði i 2 mínútur
við blaðamenn. Þá var Big Bén
18.30 og hafði forsætisráðherr-
ann látið bíða eftir sér i hálf-
tíma. Hann sagði, að niðurstaða
þessara sögulegu kosninga væri
ákveðin, kjósendur hefðu farið
eftir áskorun stjórnarinnar,
aldrei hefði nein ríkisstjórn í
þingkosningum fengið jafn
mikinn meirihluta. Loks skor-
aði forsætisráðherrann á fólk
að taka saman höndum og
reyna að leysa efnahagsvand-
ann, sem steðjar að Bretlandi.
Svo veifaði hann af gömlum
vana.
Enoch Powell var á annarri
skoðun, og þegar Heath var
spurður í kvöld um, hvað hann
segði um niðurstöður þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar, brosti
hann út að eyrum og sagði, að
hann hefði unnið fyrir þennan
málstað í 25 ár. Ég er mjög
ánægður með úrslitin, sagði
hann, en ég held að þessi þjóð-
aratkvæðagreiðsla hafi verið
ónauðsynleg — en það hefur
heyrzt úr ýmsum öðrum áttum í
þessari kosningabaráttu.
Roy Jenkins, einn helzti for-
ystumaður já-manna, sagði að í
dag væri 31 ár liðið frá D-degi,
en þegar Benn, iðnaðarráð-
herra, var spurður hvað hann
hefði að segja um úrslitin og
hvort hann mundi segja af sér,
ef Wilson forsætisráðherra
bæði hann um það, svaraði
hann: Að sjálfsögðu, ef Wil-
son segir að ég eigi að hætta,
geri ég það, það er í sam-
ræmi við lýðræðislegar regl-
ur. Síðan lýsti hann yfir, að
hann mundi hitta 5 aðra ráð-
herra Verkamannaflokksins,
sem hefðu verið nei-menn,
fundur þeirra var haldinn í
þinghúsinu, og að honum lokn-
um gáfu þeir út yfirlýsingu um,
að þeir mundu hlita niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar og
skoruðu á verkalýðsforingja að
gera það sama. Ýmsir verka-
lýðsforingjar hafa í kvöld lýst
yfir því, að þeir muni hlíta nið-
urstöðu þjóðaratkvæðagreiðsi-
unnar, enda þótt við mörg
vandamál verði að etja. En við
erum lýðræðissinnar, bættu
þeir við.
Heath af mörgum
talinn maður dagsins
Enda þótt Wilson forsætis-
ráðherra telji niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar
mikinn sigur fyrir stjórnina,
eru flestir þeirrar skoðunar, að
Heath, fyrrum forsætisráð-
herra, hafi verið maður dagsins
og var hann ávarpaður með
þeim orðum, þegar sjónvarps-
maður BBC árri samtal við
hann i kvöld. Benn iðnaðar-
ráðherra tók úrslitunum vel
eins og aðrir nei-menn, en
þess má geta, að Jenkins
innanríkisráðherra Verka-
mannaflokksstjórnarinnar
hefur sagt i kosningabarátt-
unni, að hann geti ekki tekið
Benn alvarlega sem iðnaðar-
málaráðherra eftir afstöðu
hans til Efnahagsbandalagsins.
Þegar við gengum upp á
Trafalgar Square af fundinum
með Wilson bar Nelson við
heiðan júníhimin, þar sem
hann stóð á sigursúlunni og
virti fyrir sér menn og dúfur á
torginu. Hafði hann þá til
einskis misst handlegginn?
Blöðin æptu
já á forsíðum
A forsíðum dagblaðanna fyrr
í dag voru aðalfréttirnar um
hörmulegt járnbrautarslys, sem
varð í nótt, þegar hraðlestin
milli London og Glasgow fór út
af teinunum. Fjöldi manna
slasaðist, 7 létu lifið. Fréttirnar
af þjóðaratkvæðagreiðslunni
hafa síðan náð yfirhöndinni á
forsiðum siðdegisblaðanna: Já,
já og aftur já, við áframhald-
andi aðild að Efnahagsbanda-
laginu, æpir eitt þeirra á forsíð-
unni, annað hrópar: Já, milljón
sinnum já. Og það má vist til
sanns vegar færa, þvi að fleiri
Bretar greiddu atkvæði með
áframhaldandi aðild að banda-
laginu en jafnvel var búizt við.
Wilson forsætisráðherra reyndi
á fundi sinum með blaðamönn-
um að minna á að kjósendur
hefðu farið að vilja rikis-
stjórnarinnar og aldrei hefði
nein rikisstjórn i Bretlandi
hlotið jafn mikinn meirihluta i
þingkosningunum og nú hefði
verið raunin.
Heath er auðvitað alls hugar
feginn, hann kom Bretlandi i
bandalagið á sinum tíma og
hefur staðið sig eins og hetja i
kosningabaráttunni nú og beitt
sér miklu meira en t.a.m.
Thatcher. Leiðtogar Verka-
mannaflokksins, sem börðust
gegn aðild að Efnahagsbanda-
laginu' hafa lýst yfir, að þeir
muni virða úrslit kosninganna,
þær raddir heyrast meðal nei-
manna i Verkalýðsflokknum,
að það sé þó bót í máli, að
Wilson skuli hafa unnið mikinn
sigur I þessum kosningum, en
sú var tiðin að aðild að Efna-
hagsbandalaginu hefði ekki
verið hans pólitíski lárviðar-
sveigur. Veður skipast i lofti,
en umfram allt í þjóðmálum.
Wilson getur sagt, að hann hafi
ekki viljað hafa Efnahags-
bandalagið eins og eitthvert
steinbarn í maganum. Nú hefur
hann losnað við þetta barn og
getur haldið áfram að veifa til
kjósenda sinna.
Framhald á bls. 20
Sement og áburður eru af-
greidd myrkranna á milli
Afgreiðsla á sementi mun verða opin
yfir helgina til að anna eftirspurn
KJARASAMNINGUR starfsfölks ríkisverksmiðjanna
þriggja og verksmiðjanna hafði verið samþykktur f
öllum aðildarfélögum samningsins einróma klukkan
19,30 í fyrrakvöld og fóru verksmiðjurnar yfirleitt í
gang þá um kvöldið. Afgreiðsla á sementi hófst f
Sementsverksmiðjunni klukkan 19 og í Áburðarverk-
smiðjunni skömmu eftír að samningafundum lauk um
miðjan dag í gær. í dag munu verksmiðjurnar allar ná
fullum afköstum. 1 fyrrakvöld lauk afgreiðslu á sementi
klukkan 00,30 og á áburði klukkan að ganga 23.
Grétar Ingvason, fulltrúi I A-
burðarverksmiðju rikisins, sagði
að I gær hefði starfið i verksmiðj-
unni allt verið orðið með eðlileg-
um hætti. Starfsfólkið kom yfir-
leitt beint af samningafundunum
til þess að vinna og fram til klukk-
an 23 voru afgreidd 1.100 tonn af
áburði. í gær átti að afgreiða til
klukkan 21,30 og var búizt við að
unnt yrði af afgreiða um 1.200
tonn, þar af um 200 tonn, sem áttu
að fara í Flóabátinn Baldur, sem
flytur áburðinn á Breiðafjarðar-
hafnir og til Arnarstapa á Snæ-
fellsnesi. Síðan á mánudag og þar
til klukkan 23 i gærkveldi höfðu
verið afgreiddar 3.600 lestir af
áburði frá verksmiðjunni, en á
mánudag var veitt undanþága til
afgreiðslu á sekkjuðum áburði,
sem til var í birgðageymslum. 1
gærkveldi voru síðustu vélar A-
burðaverksmiðjunnar að fara í
gang.
Guðmundur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Sementsverk-
smiðju ríkisins, sagði að starfið i
Jenna Jensdóttir
ísl. ríthöfunda
formaður Félags
AÐALFUNDUR Félags Islenzkra rit-
höfunda var haldinn í Tjarnarbúð
slðastliðinn fimmtudag.
Jenna Jensdóttir var kosin formaður
félagsins en ritari Gísli J. Ástþórsson
og gjaldkeri Sveinn Sæmundsson.
Meðstjórnendur voru kjörnir þeir
Ragnar Þorsteinsson og Þorsteinn
Thorarensen, og til vara Indriði
Indriðason og Jón Björnsson, Jakob
Jónasson og Gunnar Dal voru endur-
kosnir endurskoðendur. Jónas
Guðmundsson, fráfarandi formaður
Félags islenzkra rithöfunda, baðst ein-
dregið undan endurkosningu.
verksmiðjunni gengi eins vel og
búast hefði mátt við. Reynt væri
að koma eins miklu út af sementi
og frekast væri kostur og allar
vélar verksmiðjunnar væru að
komast í gang. Gangsetning aðal-
ofns verksmiðjunnar tekur um
tvo sólarhringa. Utskipun var i
fullum gangi I gær.
Guðmundur sagði að erfitt væri
að anna gifurlegri eftirspurn eftir
sementi. Bílar koma langar leiðir
að til þess að sækja sement i verk-
smiðjuna og fyrirhugað væri að
hafa afgreiðslu opna yfir helgina.
I gærkveldi var fyrirhugað að
hafa afgreiðslu á sementi opna
fram eftir kvöldi, og freista þess
að fullnægja eftirspurn allra, sem
biðu í löngum biðröðum við verk-
smiðjuna í gær. Sagði Guðmund-
ur að reynt yrði að hafa opið svo
lengi, sem starfsmenn vildu
vinna.
Björn Friðfinnsson, forstjóri
Kísiliðjunnar h.f., sagði að starf-
ræksla verksmiðjunnar gengi vel.
Framleiðsla er þó ekki hafin,
heldur aðeins dælingin á hráefni
úr vatninu í þrær verksmiðjunnar
Sagði Björn að verksmiðjan væri í
raun ekki miklu betur sett, þótt
samizt hefði við starfsfólkið, þar
sem farmannaverkfallið hamlaði
framleiðslu, þar sem allar birgða-
geymslur eru fullar af fullunnum
kisilgúr, sem ekki er unnt að
flytja á brott.
Halldór Björnsson, ritari Dags-
brúnar, sem var formaður samn-
inganefndar starfsfólksins, sagði
að samningarnir hefðu í öllum
félögum verið samþykktir ein-
róma — bæði í Reykjavík, á Akra-
nesi og á Húsavík og i Mývatns-
sveit. Halldór sagði að samningar
sem slikir hefðu verið sam-
ræmingarsamningar milli verk-
smiðjanna á kjörum starfsfólks-
ins. I raun mætti segja að slikur
samningur, sem byggður væri á
Fi amliald á bls. 20
I jjós my nd: B rynjól fu r.
RUSTIR REYKJAVlKURBÆJARINS forna eru nú óðum að gægjast
undan rauðamölinni og plastinu, sem hefur hulið þær í vetur.
r
Afram leitað að bæ Ingólfs
SlÐASTLIÐINN mánudag hófst á ný uppgröftur á horni Suðurgötu og
Vonarstrætis. Undanfarin sumur hefur verið grafið í miðbæ Reykja-
víkur og hefur sá uppgröftur haft þann tilgang að leita bæjarrústa
Reykjavíkurbæjarins gamla. Bæjarrústir og ýmsir munir hafa komið í
ljós við þennan uppgröft, sem er undir stjórn Else Nordahl, sænsks
fornleifafræðings. Ætlunin er að kanna i sumar enn nánar, hvaða
minjar er að finna á þessum stað en i vetur hafa bæjarrústirnar verið
huldar rauðamöl.