Morgunblaðið - 07.06.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JUNÍ 1975
7
I--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1
Sr. Bernharð Guðmundsson — Addis Abeba
„Þið elskizt og giftizt svo.
Við giftumst og elskumst síð-
an.“
Viðmælandi minn er ind-
verskur plantekrueigandi, vel
búinn og öruggur í fasi. Við
þjótum yfir sléttur Indlands í
hraðlestinni frá Bombay. Sem
flestir landsmenn hans er hann
ræðinn vel og er engin launung
á einkamálum sinum. Hann var
við nám í landbúnaðarverk-
fræði við einn kunnasta
háskóla Bandarfkjanna, lauk
þar meistaragráðu og tók síðan
við landsvæðum fjölskyldunn-
ar, um 70.000 ekrum af ræktan-
legu landi. Hann hefur skipt
því niður og seit á vægu verði
til leiguliða sinna, hjálpað þeim
með útvegun og val á áburði og
korniLSjálfur heldur hann eftir
8000 ekrum og rekur þar marg-
þætta tilraunastarfsemi. En nú
eru komin ný lög, enginn Ind-
þar sem börn hans ganga í
kristniboðsskóla. Þar er bíllinn
hans, vestrænt heimili, hann
klæðist jakkafötum og silki-
slifsi og sækir fundi í Rotary.
Ég vissi, að hann var hindúi
og spurði hvers vegna hann
sendi dætur sínar i trúboðs-
skóla, hvort hann óttaðist ekki
að þær myndu kristnast.
— Þær fá þar beztu fáanlegu
menntun, kynnast kristnum
áhrifum og það er gott, við för-
um meira að segja til messu á
hátíðum. En þær verða aldrei
kristnar. Það er útilokað i okk-
ar stétt. Við Braminarnir höld-
um fast við okkar kerfi. Það
sagði ég líka ölium stúlkunum
sem ég kynntist í Bandaríkjun-
um — þær skyldu ekki líta á
mig sem hugsanlegan eigin-
mann.
var nú anzi spennandi augna-
blik!
Viðmælandi minn skellihlær.
— Þú talar um aðra hætti
vestra. Eru þeir betri? 60%
hjónabanda í Los Angeles enda
með skilnaði. Hvarvetna sér
maður yfirgefnar konur, fram-
hjáhöld og óskilgetin börn.
Ætli þið getið einmitt ekki
eitthvað af okkur lært? Við
giftumst — og elskumst eftir
það ævina alla. Við erum ákveð-
in við giftinguna að láta hjóna-
bandið heppnast. Við litum
mest á jákvæðar hliðar hvors
annars og reynum að hefla af
þær neikvæðu. Menn hafa
stundum svo undarlegar skoð-
anir á því hvað ástin í rauninni
er. Fyrir vestan takið þið hana
út úr samhengi sínu, blásið út
suma þætti hennar og afskræm-
ið hana þannig, og vesalings
unglingarnir vkkar vita ekki
Ástin og kerfið
verji má eiga meir en 35 ekrur.
— Hvað á ég að gera? Slíkur
bleðill ber ekki einu sinni
rekstur einnar dráttarvélar.
Það væri hjákátlegt fyrir mig
að fara að vinna með haka og
skóflu.
Ég spyr hann, hvort hann
geti ekki gengið í þjónustu
ríkisins. Nóg eru verkefnin á
sviði landbúnaðar í landi þar
sem hungursneyð er árviss
reynsla.
— Þegar maður hefur unnið
sjálfstætt er ógjörningur að
verða liður í ríkisbákninu, sér i
lagi svo seinfara og gjörspilltu
sem okkar. Ég“ ætla að reyna
vínþrúguræktun, það þarf lítið
land og þá get ég verið nær
fjölskyldunni.
Hagir þessa samferðamanns
míns eru sem sé þeir, að hann
dvelst í þorpinu sinu tvær vik-
ur I senn. Þar lifir hann alger-
lega á bændavisu, án rafmagns
eða sima, við vatnsskort, situr á
gólfi við máltíðir, gengur ber-
fættur. og vefur sig pilsdúk
undir' siðri skyrtu. Þriðju vik-
una dvelst hann í Hýderabad,
Og hann sagði mér frá kerfi
þeirra er til hjónabands skal
stofna.
— Fjölskyldan lætur það
fréttast, þegar einhver er kom-
inn á giftingaraldur og eftir
nokkuð jaml, japl og fuður er
fundin brúður eða brúðgumi.
Það er byggt á reynslu í þessum
málum. Þess er gætt, að áhuga-
mál og menntun beggja sé svip-
uð, félagslegur bakgrunnur
líka. Þá er að þvi hugað, að útlit
hjónaefnanna sé í nokkru sam-
ræmi og skapgerð falli þokka-
lega saman. Rétt áður en ég
lauk prófi vestra, fékk ég að
vita að brúður væri fundin
fyrir mig, svo að ég fór heim að
loknu prófinu til að kvænast.
Ég spurði, hvort þetta hefði
ekki verið erfiður biti að
kyngja, þar sem hann hefði
kynnzt öðrum og frjálslegri
háttum í vestrænum heimi.
— Nei, okkur þykir þetta
sjálfsagt. Ég sá meira að segja
andlit konu minnar í fyrsta
sinn eftir brúðkaupið. Hún
huldi það við athöfnina. Það
sitt rjúkandi ráð. Hér tökum við
þessu öllu með stillingu, slök-
um á og skilnaðir eru afar fátíð-
ir.
Ég spurði hvort þetta kerfi
væri þó ekki að losna úr bönd-
um siðustu árin.
— Dálítið meðal þeirra sem
minna eru menntaðir — en
halda að þeirséuboðberarnýrra
tíma. Þeir sem hafa numið er-
lendis hins vegar skilja betur
hvað er gott í okkar eigin menn-
ingu og þeir halda flestir fast
við fornar hefðir I þessu máli
— og reyndar fleirum. Þetta
dugar okkur vel. Ég hefði ekki
getað fundið betri konu fyrir
sjálfan mig.
Lestin rann inn á stöðina.
Glæsileg kona I gullofum sari
með tvær stelpur sér við hlið
veifaði frá nýlegum bíl til sam-
ferðamanns míns. Hann leitaði
í tösku sinni, tók þar vegiegt
armbandsúr og sagði um leið og
hann festi það á úlnlið sér.
— Klukka er nauðsynleg hér
í menningunni. I þorpinu mínu
fylgjum við sólinni!
L_
_l
Framleiðni-
hvetjandi
launaform
Ekkert þjóðfélag,
hvort sem það lýtur leik-
reglum lýðræðis eða
kommúnisma, býður
upp á algjöran launa-
jöfnuð. Launamismunur,
sem byggist á eðli
starfs, starfsmenntun
eða reynslu, ábyrgð,
áhættu eða afköstum, er
og verður óhjákvæmi-
legur. Ákvæðisvinna og
„bónuskerfi",sem verka
hvetjandi á afköst, auka
framleiðni og verðmæta-
sköpun, eru I flestum til-
fellum jákvæð fyrir þjóð-
félagið, viðkomandi fyr-
irtæki og starfsfólk. Um
þetta eru flestir sam-
mála, enda staðreynd,
að ýmis þjóðfélög, sem
byggja á sóslalisma.
hverfa nú i ríkara mæli
að þvi að nýta fram-
leiðnihvetjandi launa-
form af þessu tagi.
Þetta þarf ekki að
þýða það. að þróunin á
Vesturlöndum leiði ekki
til áframhaldandi launa-
jöfnunar, eins og verið
hefur um árabil, á sama
tima og launamismunur
í sósíölskum ríkjum
fremur vex en minnkar.
Hvergi á jarðarkringl-
unni mun launamismun-
ur minni en hér á landi
og liggja til þess marg-
víslegar staðbundnar að-
stæður og ástæður, sem
ekki verða tiundaðar hér
og nú.
Sérstakar
aðstæður
í íslenzku
efnahagslífi
Sérstakar aðstæður i
íslenzku efnahagslifi
hafa skapað forsendur,
sem taka verður tillit til i
þessu efni. Kaupmáttur
þjóðarf ramleiðslunnar
hefur rýrnað um þriðj-
ung á nokkrum misser-
um. Þjóðartekjur á ein-
stakling minnka enn fyr-
irsjáanlega á þessu ári
samkvæmt spám Þjóð-
hagsstofnunar. Þetta
veidur því að minni
raunveruleg verðmæti
eru og verða til skipt-
anna milli þjóðfélags-
þegnanna en áður.
Hugsanleg verkföll,
stöðvun á verðmæta-
sköpun i þjóðarbúinu,
kunna að rýra verðmæti
þjóðarframleiðslunnar
enn frekar en spár Þjóð-
hagsstofnunar gera ráð
fyrir á árinu 1 975.
Viðskiptakjör þjóðar-
innar hafa kallað á efna-
hagsráðstafanir, sem
fyrst og fremst hafa ver-
ið við það miðaðar að
tryggja rekstur atvinnu-
veganna, sem voru á
barmi rekstrarstöðvun-
ar, og forða frá dyrum
þjóðarinnar svipuðu at-
vinnuleysi, og nú herjar
nágrannaþjóðir okkar.
Viðskiptakjör þjóðarinn-
ar, innflutt og heimatil-
búin verðbólga, sem og
efnahagsráðstafanir
fyrrverandi og núver-
andi ríkisstjórnar (m.a.
sú stjórnarákvörðun
vinstri stjórnarinnar að
slita tengsl visitölu og
kaupgjalds), hafa rýrt
lifskjör og kaupmátt
launa allra starfsstétta
þjóðfélagsins. Þessar
aðstæður allar hafa m.a.
leitt til sérstakrar launa
málastefnu núverandi
rikisstjórnar, sem kemur
einkum fram I þvi að
vernda kaupmátt hinna
iægst launuðu i þjóðfé-
laginu (láglaunabætur,
lækkun tekjuskatts,
söluskatts og tolla). Það
hefur og verið stefna
rikisstjórnarinnar, að við
núverandi aðstæður
verði hinir betur settu
launalega að sætta sig
við óbreytt kjör, meðan
þjóðarskútan er að kom-
ast á réttan kjöl í erfið-
um sjó alþjóðlegrar
efnahagskreppu.
Nýir
febrúar-
samningar?
Það hefur hins vegar
vakið furðu að kjara-
stefna forystu AS( virð-
ist sú, að hugsanlegar
launahækkanir i þjóðfé-
laginu, sem kröfur hafa
verið settar fram um,
m.a. með óbreyttu visi-
töluformi, verði hinum
hærra launuðu mjög i
hag.
Við þvi var búizt, að
kröfur ASÍ, við rikjandi
aðstæður i þjóðfélaginu,
myndu einskorðast við
hina lægst launuðu, og
verða þann veg raun-
hæfari og höfða frekar
til réttlætiskenndar
þjóðarheildarinnar.
Raunin varð önnur. Og
sú spurning verður æ
áleitnari, hvort eitthvað
annað og meira búi að
baki en raunverulegir
hagsmunir verkafólksins
i landinu. Og það hlýtur
að vera krafa þeirra,
sem við lægst laun búa,
að forysta ASf geri þeg-
ar og undanbragðalaust
grein fyrir þvl, hvort hún
stefni enn að nýjum
„febrúarsamningum"?
Hestamenn athugið
Góð sumarbeit í nágrenni Reykjavíkur. Upp-
lýsingar í síma 66179.
Breiðholtsbúar
Hef opnað bakarí í verzlunarmiðstöðinni Hóla-
garði, Lóuhólum 2.
Gunnar Jóhannesson.
Sumarblómaplöntur
Höfum mikið úrval af ágætum sumarblóma-
plöntum Morgunfrú, Levkoj, Paradísarblóm,
Chrýsantenum, Kornblóm, Hádegisblóm, Pet-
únía, Nemesía, Ljónsmunni, Skrautnál, Apa-
blóm, Flauelsblóm, Stjúpur og Fjólur í fjöl-
skrúðugum litum. Margar tegundir af fjölærum
plöntum. Dahlíur, bæði stórvaxnar og smærri
mjög glæsilegar. Einnig hvítkáls- og blómkáls
og rófuplöntur.
Gróðrastöðin Grænuhlíð v/Bústaðaveg, Furugerði
23. Sími 341 22. Opiðtilkl. 10ákvöldin.
Yogastöðin — Heilsubót
Mýkjandi æfingar
við allra hæfi. — Æfingar sem stuðla að
heilbrigði og friði.
Yogastöðin —
Heilsubót
Hátúni 6A — Sími 27710
■i
ÚTVEGSMENN
Höfum til sölu
fiskiskip
af flestum gerðum og
stærðum
Á söluskrá skuttogarar frá 180 til 2000 brútto
tönn.
Leitið upplýsinga í síma 1-7373.
MarsTrading Co. h.f.
Laugavegi 18 a.
Fjórðungsmótið
Faxaborg
auglýsir
Lokaskráning kappreiðahrossa er þann 15.
júní. Margir beztu hlaupahestar landsins þegar
skráðir, búast má við spennandi hlaupum.
Skráning fer fram hjá Þorsteini Valdimarssyni,
Borgarnesi í sima 7 1 94.
Framkvæmdanefndin.