Morgunblaðið - 07.06.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JUNI 1975
13
ú fá allir tækifærið
HB-stúdfö í Brautarholti 20 1 Reykjavfk
hefur verið lagt niður og þessa dagana er
verið að innrétta þar nýjan skemmtistað,
neðstu hæð hins nýja Þórscafés, sem
stendur til að opna 1. október.
Ekki hefur verlð unnið við hljóðritun f
rúmlega tvo mánuði, að sögn Hjartar
Blöndal, HB sjálfs, og óvfst er með fram-
tíð HB-stúdfós áveranlegumstað. t sumar
fer Hjörtur aftur á móti um landið með
sínar fjórar rásir f Ford Transit bfl, sem
hann hefur fest kaup á, — til að táka upp
karlakóra, kvennakóra, kirkjukóra, sma-
grúppur og allt það, sem hefur áhuga á að
komast á band, sagði Hjörtur f spjalli við
Stuttsfðuna fyrir helgi.
Fyrsta upptakan af þessu tagi verður
um miðjan mánuðinn, þegar Hjörtur fer
norður á Sauðárkrók til að taka upp karla-
kórinn á staðnum. — Eg vonast til að
verða búinn að koma bflnum f gagnið þá,
sagði Hjörtur.
Hann vildi þó ekki viðurkenna, að þar
með væri HB stúdfó alveg úr sögunni.
— Það erjeitt og annað f gangi, sagði hann,
— og ég vonast til að hægt verði að halda
áfram f féiagi við einhverja aðra.
Meira vildi Hjörtur Blöndal, sem í sum-
ar fer með fyrsta, fslenska „mobile**
stúdfóið um landið, ekki segja, — f biii.
,,Ég skal rota ykkur...“
gæti Herbert Guðmunds-
son verið að segja á þessari
mynd, hinni fyrstu sem
Stuttsíðan birtir af Pelican
eftir breytingar. Eftir hin-
ar miklu sviptingar í popp-
tónlistarlífinu að undan-
förnu þótti Stuttsíðunni
rétt að kanna hljóðið í
mönnum og voru þeir
féíagarnir í Pelican að von-
um heldur hressir eftir
fyrstu helgina sem Her-
bert söng með þeim.
Hljómsveitin kom fram í
fyrsta skiptið á föstudags-
kvöldið (30/5) í Tónabæ og
var uppselt, eða 600 manns
í húsinu. Á laugardags-
kvöldið var Pelican í Festi í
Grindavík og þar var líka
fullt hús, 500 manns. „—
Miklu betra en við þorðum
að vona,“ sögðu Pelicanar,
— „og við teljum helgina
mikinn sigur fyrir okkur.“
Annars var hljóðið í þeim
félögum mjög gott en þeir
voru í þann mund að leggja
upp í ferð norður á land
þar sem þeir kynna breyt-
ingarnar á hljómsveitinni
fyrir norðlendingum um
þessa helgi.
sv.g.
Eins og vi8 er a8 búast er söngurinn
yfirleitt pottþéttur, enda lögin öll fyrst
og fremst sönglög. sem allir eiga a8
geta lært og kyrjaS hvar og hvenær
sem er. Þar er Björgvin Halldórsson
áberandi bestur — eins og svo oft i8ur
— og raunar er þa8 dilitiS einkenni-
iegt a8 hafa ekki Björgvin lengur, svo
samgróinn og ómissandi virtist hann
vera orSinn. En þar sannast þa8: lik-
lega er enginn ómissandi, og kemur
einn i annars staS.
Platan var hljóSrituS i London
skömmu eftir sl. áramót, þegar Björg-
vin fórtil Ii8s viS Change, en a8 ö8ru
leyti unnin i New York. Upptaka virSist
mjög þokkaleg og hljóSblöndun öll og
frigangur til sóma, enda vanir menn i
ferB. HljóSfæraleikur er allur mjög lip-
ur, nema kannski trommuleikurinn en
eins og einhver sagSi einhvers staðar
nýlega, þá setja amerisk strengjahljóð-
færi eins og mandólín og banjó
skemmtilegan svip i svona músik.
Beach Boys, Merle Haggard, Buck Ow-
ens og Dean Ford — svo ekki sé
minnst i Jón Leifs — sem allir eiga lög
i plötunni „STUÐ STUÐ STUÐ", geta
allir vel við unað. Eins Hljómar. Eins Ðe
Lónli Blú Bojs. Eins við. _____ó.
vald I
Evrópmnótið:
Keppendur Islands valdir
SÍÐAST liöinn sunnudag fór
fram á Kjóavöllum í Kópavogi
úrtökukeppni fyrir Evrópumót
islenzkra hesta 1975. Fyrir
keppnina var öllum for-
mönnum hestamannafélaga i
landinu send kynning á þessu
móti en framkvæmd mótsins
var í höndum Félags tamninga-
manna. Evrópumót islenzka
hestsins fer fram i Semriach
hjá Graz í Austurríki dagana
12. — 14. sept. 1975.
Á mótinu s.l. sunnudag voru
valdir 6 hestar til að keppa a
Evrópumótinu fyrir hönd Is-
lands. Alls sendir tsland 7
hesta i keppnina, þvi að í hóp-
inn bætist Dagur frá Núpum,
sem er sigursæll og vel
þjálfaður til keppni erlendis.
Dagur var fluttur út fyrir
nokkrum árum og er enn í eigu
Sigurbjörns Eiríkssonar, sem
lætur þjálfa hann erlendis.
Dagur er ættaður frá Núpum í
ölfusi, sonur Harðar 591 frá
Kolkuósi. Dagur hefur áður
keppt á Evrópumótum en knapi
hans verður Reynir Aðalsteins-
son.
Til keppni um þessi 6 sæti
voru mættir 15 hestar og meðal
þeirra eru nokkrir, sem áður
hafa verið sýndir á mótum hér-
lendis.
Sem bezti gæðingur var val-
inn Gammur frá Hofsstöðum,
brúnn, 8 vetra, eign Péturs
Behrens í Keidnakoti og knapi
var Ragnheiður Sigurgríms-
dóttir. Faðir Gamms er Sómi
670 frá Hofsstöðum en móðir
Jóna frá Dýrfinnustöðum.
Gammur stóð efstur I flokki
klárhesta með tölti á landsmót-
inu á Vindheimamelum s.l.
sumar. Annar bezti gæðingur
var valinn Ljóski frá Hofsstöð-
um, leirljós, 7 vetra, eign Sigur-
björns Eiríkssonar en knapi var
Albert Jónsson. Þetta er
óþekktur hestur.
Fyrsti töltari var valinn
Léttir frá Álfsnesi, rauður, 8
vetra. Eigandi hans er Sigur-
björn Eiríksson en knapi var
Eyjólfur Isólfsson. Annar tölt-
ari var valinn Hrafn 737 frá
Kröggólfsstöðum, brúnn, 8
vetra, eign Sigurbjörns Eiriks-
sonar en knapi var Aðalsteinn
Aðalsteinsson. Hrafn er sonur
Harðar 591 og Reykja-Brúnku.
Hrafn var sýndur á landsmót-
inu s.l. sumar og hlaut þá dóms-
orðin: Traustur og viljagóður,
gangrúmur reiðhestur. Þriðji
töltarinn var valinn Stefnir frá
Hreðavatni, jarpsokkóttur, 8
vetra, eigandi og knapi Trausti
Þór Guðmundsson. Stefnir var
dæmdur þriðji bezti klárhestur-
inn með tölti á hvítasunnu-
kappreiðum Fáks í vor.
Til að keppa sem skeiðhestur
var valinn Skúmur frá Hellu-
landi, sótrauður, 6 vetra, eign
Halldórs Sigurðssonar en knapi
var Reynir Aðalsteinsson.
Skúmur hefur áður verið sýnd-
ur í gæðingakeppnum og hlotið
misjafna dóma. Það skal tekið
fram að ekki er enn ákveðið
endanlega f hvaða greinum
hver hestur keppir.
Kostnaður við fþitning hest-
anna út og uppihald þeirra er-
lendis er greiddur úr sameigin-
legum sjóði Búnaðarfélags Is-
lands og Sambands Islenzkra
samvinnufélaga. Þá fá knapar
friar ferðir að heiman og heim
en uppihald erlendis verða þeir
að greiða. Hestarnir verða flutt-
ir út viku fyrir mótið, því talið
er að þá séu hestarnir ekki enn
farnir að finna fyrir áhrifum
breytts loftslags, þegar að mót-
inu kemur.
Nokkur hópur Islendinga
hefur farið utan til að fylgjast
með Evrópumótunum, þegar
þau hafa verið haldin, og má
gera ráð fyrir að svo verði
einnig nú.
'rgrfrns{ióttir f<a‘
l8"í,eiV)(j7
Í
k ■' "■ ' ^
SKUMUR
steinsson
Reynir Aðal
umsjón: TRYGGVI
GUNNARSSON