Morgunblaðið - 07.06.1975, Side 20
20
MORGUNBLAÐlÐ, LAUGARDAGUR 7. JUNÍ 1975
Sögulegum kosningum lokið
Framhald af bls. 3
Svíakonungur gefur
blað úr KRINGLU
KARL 16. Gústaf Svfakonungur mun fyrir hönd Svía
færa tslendingum að gjöf eitt skinnblað úr handritinu
Kringlu þegar hann kemur til íslands í opinbera heim-
sðkn í næstu viku. Skinnblaðið hefur að geyma kafla úr
ólafs sögu helga, en blaðið er hið eina sem varðveitzt
hefur úr þessu elzta handriti Heimskringlu.
Allir leiðtog-
arnir börðust
fyrir aðild.
Kannski er ekkert undarlegt,
að þessi skyldi verða niðurstaða
kosninganna, þegar tekið er til-
lit til þess, að allir leiðtogar
flokkanna, Wilson, Thatcher,
Thorpe, auk tveggja fyrr-
verandi leiðtoga, Grimmond og
Macmillan hafa barizt af alefli
fyrir aðild Breta að Efnahags-
bandalaginu. Minni spámenn
eins og Michael Foot, atvinnu-
málaráðherra, Barbara Castle,
félagsmálaráðherra og Benn,
iðnaðarmálaráðherra og fleiri
voru á móti aðild, að ógleymd-
um, Enok Powell, sem sagði í
kvöld, að baráttunni væri ekki
lokið frekar en að þingkosning-
ar giltu eilíflega. Þetta sagði
hann í sjónvarpsumræðum og
þá brosti gamli umdeildi utan-
rfkisráðherra Breta, George
Brown. Hann leit vel út, a.m.k.
betur en þegar hann bauð
sendifulltrúa páfa, virðulegum
kardinála, upp í dans í
veizlunni frægu í Washington.
Öll helztu blöð Bretlands
lýstu yfir stuðningi við aðild að
Efnahagsbandalaginu fyrir
kosningar og skrifuðu mikið
um þær, auk þess sem allir
helztu stjórnmálaleiðtogarnir
skrifuðu greinar og skýrðu af-
stöðu sína. Þar sneru saman
bökum Wilson og Thatcher svo
að dæmi sé tekið, en nú er talið,
að pólitísku tilhugalífi þeirra sé
lokið.
Einhver sagði, að margir
hefðu tekið þá afstöðu að vera á
móti þeim pólitísku samherjum
sfnum, sem þeir hefðu ekki áð-
ur haft tækifæri til að ráðast á
og skamma, en hefðu brunnið í
skinninu að gera upp við þá
sakir. Þannig sagði bréfritari
eins dagblaðsins, að hann hefði
verið á móti aðild að Efnahags-
bandalaginu, þangað til Benn,
iðnaðarráðherra, hefði tekið
forystu fyrir nei-mönnum,
hann hefði ákveðið að vera ætíð
á móti því, sem Benn berðist
fyrir, því að iðnaðarráðherrann
hefði alltaf á röngu að standa.
Ástæður margar
fyrir því
hvernig fólk
kaus
Rithöfundurinn frægi,
Kingsley Aims lýsti yfir því í
einu dagblaðanna, að hann
ætlaði að greiða atkvæði gegn
aðildinni, ekki sfzt vegna þess,
að stórir kommúnistaflokkar
Frakklands og Italfu væru —
og hann vildi ekki, að Bretar
hefðu náið samstarf við lönd
með svo sterkum kommúnista-
flokki.
Nei-úrslit hefðu haft
víðtæk áhrif.
Álitið er, að nej-niðurstaða'
hér í Bretlandi hefði haft mikil
áhrif í Danmörku, þar sem
vafasamt er, að enn sé meiri-
hluti fyrir aðild að Efnahags-
bandalaginu. En í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni á sfnum tíma
sögðu 57% kjósenda í Dan-
mörku já, en 37% nei — en á
þeim forsendum, að Bretar
gengju í bandalagið. Margt
gengur á afturfótunum í Dan-
mörku eftir tveggja ára aðild
landsins að Efnahagsbandalag-
inu, óðaverðbólga gengur yfir
landið, atvinnuleysi og aðrir
efnahagserfiðleikar. Ef Bretar
hefðu ákveðið að ganga úr
Efnahagsbandalaginu, er lítill
vafi á því, að Danir hefðu fylgt
i kjölfarið.
Nú veröur að snúa sér að
efnahagsmálunum.
Nú geta brézkir stjórnmála-
menn snúið sér aftur að efna-
hagsmálum, enda ekki vanþörf
á. Wilson hefur sagt, að hættan
sé meiri nú en í Dunkirk vegna
ástandsins í efnahagsmálum og
dýrtíðar. Járnbrautarstarfs-
menn hafa boðað verkfall frá
23. júní. En nú þegar hefur
hreyfing eiginkvenna þeirra
gegn verkfalli hafið starfsemi
sína og heyrzt hefur, að kon-
urnar ætli að nota sama vopn
og lýsiströturnar i samnefndu
leikriti. „Lesley Meredith, 27
ára gömul, eiginkona eins járn-
brautarstarfsmannsins, hefur
sagt í blaðasamtali: „That sex
— ban is the only way to bring
the men to their senses."
Það á eftir að koma í Ijós, en
að lokum má geta þess, að ýms-
ir telja, að brezka stjórnin muni
setja lög um bann við kaup-
gjaldshækkunum í Iandinu.
Ein amman sagði i lesenda-
bréfi, að ástæður þess, að hún
kysi aðild væru tvær: barna-
börn hennar Daniel 4!4 árs og
Jane 7 ára. Hún ætlaði að
krossa við já-ið, svo að framtíð
barnabarnanna yrði örugg. Með
bréfi ömmunnar birtist mynd
af henni og barnabörnunum
tveimur og fjölskylduhundin-
um, sem sneri baki í myndavél-
ina. Þó að amman hefði tekið
ákvörðun, sýndist hundurinn
hafa lítinn áhuga á Efnahags-
bandalaginu, en áreiðanlega
hafa margir Bretar greitt at-
kvæði i kosningunum á þann
hátt, sem þeir töldu hundinum
sínum fyrir beztu.
Furðulegt
fóstbræðralag
Einkennilegt fóstbræðralag
hefur sett mikinn svip á kosn-
ingabaráttuna, sérstaklega i
sjónvarpi og á myndum i dag-
blöðum. Barbara Castle,
Michael Foot og Enok Powell
hafa snúið saman bökum. Wil-
son, Thorpe, Thatcher, Heath
og Roy Jenkins og svo mætti
lengi telja. Hefur hnifurinn
ekki komizt á milli samherj-
anna, en nú má fara að búast
við því, að þeir oti pólitísku
kutunum hver að öðrum. Má
ætla, að þá verði minna mark
tekið á pólitísku rifrildi þeirra
en áður var og t.d. getur vafizt
fyrir einhverjum næstu mán-
uði, að Wilson er leiðtogi
Verkamannaflokksins en ekki
Ihaldsflokksins. Á síðasta kosn-
ingafundi sinum átti hann erf-
itt með að komast að vegna and-
stæðinga Efnahagsbandalags-
ins, sem gerðu mikil hróp að
honum og lýsti hann framkomu
þeirra við framkomu kommún-
ista og nasista, sem hann lagði
að jöfnu.
Sumir segjast vera orðnir
hundleiðir á þessum kosning-
um og megi ekki heyra orð eins
og fullveldi, sjálfstæði, markað-
ur, já, nei og Benn. Aðrir segj-
ast vera ánægðir með þjóðarat-
kvæðagreiðsluna og skoðana-
kannanir sýna, að flestir vilja
fá tækifæri til að tjá sig um
dauðarefsingu, fóstureyðingar,
klám og stöðu Norður-Irlands í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Enn
aðrir segja, að þingmenn séu
kosnir til þess að taka ákvarð-
anir um slik efni. En ringul-
reiðin, áróðurinn og ruglingur-
inn hafa verið slík, að ýmsir eru
þeirrar skoðunar, að brezkt
stjórnarfar verði aldrei hið
sama og áður, svo mjög sem
fylkingar flokkanna hafa riðl-
azt í þessum miklu átökum.
Kommúnistar, t.d. á Italíu
hafa vonazt til, að meirihluti
Breta segði nei í þessari þjóðar-
atkvæðagreiðslu, því að það
yrði lóð á þá vogarskál, að
Evrópa yrði kommúnístískt. Á
þessa afstöðu kommúnista hef-
ur verið bent í kosningabarátt-
unni, en þó hefur mest verið
tönnlazt á því, að með þvi að
eiga aðild að Efnahagsbanda-
laginu muni Bretar glata sjálf-
stæði sínu.
Geysir syngur á
Akureyri í dag
Akureyri 6. júní.
KARLAKÓRINN Geysir heldur
samsöngva í Borgarbíói á Akur-
eyri 7. júni kl. 17. og 8. og 9. júni
kl. 19. Söngstjóri er Sigurður
Franzson Demetz og undirleikari
er dr. Hörður Kristinsson. Ein-
söngvarar eru séra Birgir Snæ-
björnsson, Helga Alfreðsdóttir,
Ingvi R. Jóhannsson, Kristján
Jóhannsson og Sigurður Svan-
bergsson. Einnig kemur fram
flokkur söngkvenna í einu atriði.
— Sv.P.
Dr. Bjarni Aðalbjarnarson hef-
ur gert rækilega grein fyrir þessu
handriti f formála 3. bindis út-
gáfu Heimskringlu á vegum Forn-
ritafélagsins (1951). Hyggur
hann að íslenzkur maður hafi rit-
að Kringlu nær 1260 eða litlu síð-
ar. Ferill hennar er gersamlega
ókunnur þangað til Norðmennirn-
ir Laurents Hanssön og Mattis
Störssön fengu hana i hendur um
miðja 16. öld. Síðan lenti hún I
háskólabókhlöðunni í Kaup-
mannahöfn og hníga rök að því að
hún hafi verið meðal bóka A.S.
Vedels, er afhentar voru háskóla-
bókhlöðunni 1595, eða meðal
bóka ArildHwitfeldts.er afhentar
voru henni 1618.
Jón Eggertsson frá ökrum
skrifaði meginhluta Kringlu upp
fyrir Antikvitetskollegiet f Upp-
sölum á árunum 1681—82, og
fengu Svíar uppskrift hans 1687.
Þormóður Torfason fékk
Kringlu að láni til Noregs 1682 og
hafði hana lengi, ef til vili allt til
1718. Er handritið f verkum Þor-
móðar jafnan nefnt Kringla (eftir
upphafi Ynglingasögu: Kringla
heimsins, sú er mannfólkið bygg-
ir).
Ásgeir Jónsson gerðist skrifari
Þormóðar 1688 og dvaldist með
honum um langt árabil. Þykir allt
benda til, að hann hafi á fyrstu
árunum, sem hann var í þjónustu
Þormóðar, skrifað Kringlu upp,
og er sú uppskrift varðveitt í
Árnasafni f Kaupmannahöfn. Rit-
hönd Árna Magnússonar er á
tveimur blöðum þessarar upp-
skriftar og hefur hann að líkind-
um ritað þau sfðla árs 1689, er
hann dvaldist með Þormóði. Árni
kallaði Kringlu Codex
Academicus primus (þ.e.í fyrsta
bók í háskólabókhlöðu).
Allur bókaforði háskólabók-
hlöðunnar í Kaupmannahöfn
brann í brunanum mikla haustið
1728, þar á meðal Kringla. Enginn
veit nú, með hverjum hætti
Kringlublaðið barst til Svíþjóðar
Tónleikar á
Akureyri í dag
Næstu daga munu þau Sigríður E.
Magnúsdóttir og Simon Vaughan
baritonsöngvari halda tónlcika
norðanlands og austan við undir-
leik Jónasar Ingimundarsonar pf-
anóleikara.
Simon Vaughan er enskur
baritonsöngvari frá London.
Hann söng ungur með ensku
þjóðaróperunni. Árið 1971 vann
hann í Englandi keppni, serú
kennd er við Richard Taube, og
það gerði honum mögulegt að
stunda frekara söngnám f Vín.
Síðan hefur hann starfað í Eng-
landi og sungið víða þar i landi.
Þau Sigríður E. Magnúsdóttir,
Simon Vaughan og Jónas Ingi-
mundarson hafa haldið tónleika
hér sunnanlands að undanförnu
við góðar undirtektir.
Næstu tónleikar þeirra verða á
Akureyri næstkomandi laugardag
kl. 3.00, í Skjólbrekku, Mývatns-
sveit, n.k. sunnudagskvöld kl.
21.30. Á Húsavík n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 21.00 og á Egílsstöðum á
miðvikudagskvöld kl. 21.30.
FERMINGAR
Fermingarbörn I Haga og
Brjánslæk 8. júnf 1975.
Anna Guðrún Árnadóttir, Krossi.
Arney Guðmundsdóttir,
Brekkuvöllum.
Arndís Einarsdóttir, Seftjörn.
Katrinna Mikkelsen, Hvammi.
Ölöf Sigríður Pálsdóttir, Hamri.
Erlendur Hólm Gylfason,
Hreggs* öðum.
Marteinn Þórðarson, Holti.
seint á 17. öld (það var ekki í
handritinu, þegar Asgeir Jónsson
skrifaði það upp), en sú hending
að það var viðskila við handritið
hefur orðið þvf til bjargar.
Kringlublaðið hefur um langan
aldur verið varðveitt í Konungs-
bókhlöðu f Stokkhólmi, Cod.
Holm. Isl. perg. fol. nr. 9. Kon-
ungsbókhlaðan er landsbókasafn
Svía.
Samkvæmt ákvörðun mennta-
málaráðherra hefur blaðinu verið
valinn staður i Landsbókasafni Is-
lands þegar hingað kemur. Þar
eru þegar varðveittar ýmsar
merkar opinberar sænskar bóka-
gjafir t.d. bæði frá 1930 og 1944.
Verður efnt til sýningar á völdum
bókum úr þessum gjöfum í Lands-
bókasafni, og verður hún opnuð
almenningi miðvikudagsmorgun
11. júní. A þeirri sýningu verður
einnig Kringlublaðið, en Svfakon-
ungur mun afhenda forseta Is-
lands það f Landsbókasafninu við
sérstaka athöfn þriðjudaginn 10.
júní að viðstöddum Vilhjálmi
Hjálmarssyni menntamálaráð-
herra.
17% hækkun á
sjúkraflutningum
Á FUNDI verðlagsstjóra sl. mið-
vikudag var heimilað að hækka
taxta sjúkraflutningabifreiða
sem svarar 17%. Einnig var á
þeim fundi heimiluð hækkun á
gjaldskrá flóabátsins Baldurs.
— Portúgal
Framhald á bls. 20
ganga á fundi Costa Gomes, for-
seta Portúgals, þegar hann kemur
heim frá Frakklandi á morgun,
laugardag, og verður það væntan-
lega ekki fyrr en að þeim viðræð-
um loknum sem jafnaðarmenn
taka endanlega ákvörðun sína um
framtíðarstöðu sfna innan stjórn-
ar landsins.
Talsmaður lögreglunnar í
Portúgal sagði að f ýmsum héruð-
um landsins væri mikil ólga
meðal kaþólskra vegna þeirrar
skerðingar sem gerð hefði verið
varðandi málgagn kirkjunnar og
gætti þess sérstaklega í bænum
Coimbra í Mið-Portúgal og einnig
f Oporto.
— „Stuðlar að
meira misrétti”
Framhald af bls. 2
við þessari þróun í launamál-
um.“
Eðvarð Sigurðsson sagði enn-
fremur í þessu sama viðtali:
„En að þessu leyti höfðu samn-
ingarnir ekki þau lok, sem ég
hefði helzt haft ástæðu til að
vona. Þvi miður stuðlar þetta
jafnvel frekar að meira mis-
rétti heldur en hinu, sem var
nú eitt af höfuðmarkmiðunum,
að jafna laun meira og hækka
þá, sem lægstir voru. Að því
leyti verður maður að segja, að
því miður tókst það ekki.“
- Bretar og EBE
Framhald af bls. 1
sagði að brezka þjóðin hefði verið
heilaþvegin til að kjósa áfram-
haldandi aðild að bandalaginu.
En engu að síður sýndu úrslitin
og sönnuðu að mikill hluti þjóðar-
innar, eða þriðji hver maður, vildi
fara úr því.
I Peking voru Kínverjar já-
kvæðir að sögn fréttastofufrétta.
Kina hefur margsinnis hvatt Evr-
ópuþjóðir til aukinnar samvinnu
til að standa betur saman gegn
vaxandi ógnun Sovéta í Evrópu.
Á gjaldeyrismörkuðum styrkt-
ist staða pundsins allverulega
þegar fór að koma á daginn
hversu afdráttarlaus stuðningur
hefði verið Iátinn í ljós við áfram-
haldandi EBE-aðild. Margir verð-
bréfasalar létu í Ijós óblandna
ánægju og sögðu að það hefði haft
hin hrikalegustu áhrif, ef Bretar
hefðu neyðzt til að hverfa úr
bandalagi Evrópuþjóða.
Augljós gleði var að sögn frétta-
stofnana með úrslitin og virtust
allir aðilar fengir því að skýrar
Iinur hefðu Ioksins fengizt i þessu
umdeilda máli og voru menn á
einu máli um að nú væri loksins
unnt að snúa sér að því að leysa
þau flóknu mál sem steðja að inn-
anlands en hafa óneitanlega fallið
mjög í skuggann vegna deilna um
aðildina að Efnahagsbandalaginu.
— Sement
og áburður
Framhald af bls. 3
starfsmati, væri launajöfnunar-
samningur. Hann sagði að sú tala,
sem Mbl. hefði birt í gær hefði
reynzt rétt samkvæmt útreikning-
um starfsmannanna. Meðaltals-
hækkunin væri um 11%, en hann
benti hins vegar á að sumir starfs-
menn væru fyrsta sinni að fá
samning með starfsaldurs-
hækkunum og þvi yrði hækkunin
hlutfallslega hærri hjá þeim en
öðrum. Að þvi undanskildu væri
útkoman sú að þeir sem hæstu
launin hefðu, fengið lægstar
prósentuhækkanir og hinir lægst-
launuðu aftur á móti hæstar.
Sagðist hann vonast til þess að
samninganefndarmenn verk-
smiðjanna hefðu öðlazt ákveðið
hugarfar í þessari fyrstu eldraun,
sem nauðsynlegt væri i gerð
slikra kjarsamninga, sem hér
hefði verið um að ræða.
— Evensen
Framhald af bls. 36
Dm fiskveiði- og hafréttarmál.
Fara viðræðurnar fram í London
og munu snúast um fiskveiði-
mörk og hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna, en bæði Even-
sen og Ennals sátu Genfarfund
hennar.
Ekki er að efa, að ummæli Ev-
ensens f þessari viku um að Norð-
menn kynnu að hætta við 50
mílna útfærslu og snúa sér þess í
stað að 200 mflunum, beri á góma.
Evensen var sfðast f London í
janúar þar sem hann gekk frá
samkomulagi um togveiðibann-
svæði undan Noregsströndum.
Þegar hefur brezka utanrikis-
ráðuneytiö skýrt frá því að Knut
Frydenlund, utanríkisráðherra
Noregs, sé væntanlegur til við-
ræðna við brezka ráðherra 18.
júní um efnahags- og varnarmál
Evrópu og önnur mál.
— EBE
Framhald af bls. 36
Undanfarna daga hefur verð það,
sem islenzku síldveiðiskipin hafa
fengið fyrir síldina farið niður i 9
kr. pr. kg. og stundum aðeins
neðar, þannig, að ef skipin halda
áfram að selja síld á svona verði
þyrftu þau að borga i toll allt að
17 kr. með hverju kílói.
Morgunblaðið hafði samband
við Kristján Ragnarsson formann
Landssambands ísl. útvegsmanna
i gær og spurði hann hvað hann
vildi segja um þetta mál. Kristján
sagði, að þetta væri skipstjórun-
um sjálfum að kenna með því að
vera að veiða of mikið af smásfld
og menn hefðu aldrei átt að gera
það.
Hann sagði, að skeyti hefði ver-
ið sent i fyrradag til Niels Jens-
ens ræðismanns í Hirtshals og f
því hefði m.a. staðið: „Astæðan til
þess að sild hefur verið seld undir
lágmarksverði er, að óvenjulega
mikið magn smásildar hefur
veiðzt. Virðist Ijóst, að smásild er
ekki markaðshæf vara og verður
þvf að stöðva þær veiðar, enda
ótækt að veiða smásfld upp í þann
takmarkaða kvóta, sem við höfum
yfir að ráða.
Hér eftir verður því hver og
einn að ábyrgjast að ekki sé seld
síld undir lágmarksverði, sem
virðist bezt tryggt með því að
hirða ekki smásíld."