Morgunblaðið - 07.06.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JUNI 1975
21
Eftir hádegið var fyrst haldið i
Skúlatún 2, þar sem borgarstjór-
inn, Birgir fsleifur Gunnarsson,
tók á móti hópnum og sýndi
börnunum fundarsal borgarstjórn-
ar og sagði þeim frá stjórnun
borgarmálefna í stórum dráttum.
Benti hann börnunum á, að
borgarstjórnin i Reykjavik gegndi i
rauninni sama hlutverki og
hreppsnefndin t sveitinni hjá
þeim, þótt viðfangsefnin væru
harla ólik yfirleitt.
Náest var sjonvarpið heimsótt
og var augljóst mikill áhugi barn-
anna á öllu. sem þar var að sjá.
Vildu sjálfsagt flest þeirra fá að
dveljast þar miklu iengur en í þær
40 minútur, sem heimsóknin tók,
en allir skiluðu sér þó aftur i hóp-
ferðabilinn, sem ók þeim á milli
staða. En Jóni Pálssyni, sem var
fylgdarmaður þeirra i gær, varð að
orði, að það hefði svo sem ekkert
gert til, þótt einhverjir hefðu orðið
eftir. þvi að þá hefðu þeir bara
verið sendir með kvöldfréttunum
austur i sveitirnar!
Næst var haldið að Hallgrims-
kirkju og útsýnið úr turninum
skoðað, en siðan voru heimsótt
tvö söfn, Árbæjarsafn, þar sem
bömin þágu veitingar. og Sædýra-
safnið. Um kvöldið var svo boðið
upp á „snarl" að Frikirkjuvegi 11,
áður en bömin héldu i Iðnó að sjá
sýningu á Fló á skinni. Að henni
lokinni átti síðan að halda heim á
leið og liklega hafa þau, sem
lengst áttu að fara, ekki farið i
háttinn fyrr en kl. 3 — eða jafnvel
seinna. Dagurinn hefur þvi orðið
óvenjulega langur, en áreiðanlega
einnig mjög skemmtilegur.
Borgarbörn í Gríms-
nes og Tungur
En á meðan börnin af Landi og
úr Fljótshlið segja vinum og
vandamönnum frá Reykjavíkur-
ævintýrinu. biða rúmlega 40 reyk-
visk börn með óþreyju eftir að
komast í sveitina i sams konar
kynnisheimsókn. Þau fara af stað
snemma morguns þann 18. júni
og dreifast á ýmsa bæi i Grimsnesi
og Biskupstungum. Þar munu þau
dveljast i þrjá daga — og þótt þau
fái hvorki að sjá Ómar Ragnarsson
né Fló á skinni þar austur frá, þá
verður án efa nóg að skoða og
Við lofthrædd í Hallgríms-
kirkjuturni? Nehei!
skemmta sér yfir á meðan á dvöl-
inni i sveitinni stendur
Guðmundur Svavarsson, 1 2 ára.
frá Hvolsvelli tók þátt i ferðinni fyrir
tilstilli afa slns og ömmu. en þau
búa i Fögruhlið i Fljótshlið og tóku á
móti borgarbarni í fyrrasumar. Við
spurðum hann hvernig honum þætti
þessi borgarheimsókn:
— Bara göð, svaraði hann.
Og hvað þótti þér skemmtilegast
að sjá?
— Mér finnst þetta allt frekar
skemmtilegt, svaraði Guðmundur,
en ég hlakkaði þó mest til að sjá
Sjónvarpið.
Og varstu ánægður með þá heim-
sókn?
— Já, mjög ánægður.
Dóra Pétursdóttir, frá Núpi í
Fljótshlið, 1 1 ára gömul, var spurð
um heimsóknina:
Hvernig hefur þér þótt þessi.
heimsókn?
— Hún er skemmtileg, svaraði
Dóra.
Hverju hafðir þú mestan áhuga á?
— Sjónvarpinu.
Og var ekki gaman að skoða það?
— Jú, það var ágætt.
Ertu ekkert syfjuð, eftir að hafa
vaknað eldsnemma i morgun?
— Nei, nei, ég finn ekkert fyrir
þvi i
Börnin hittu Birgi ísl. Gunnarsson borgarstjóra I fundarsal borgarstjórnar.
Þegar börnin í sveitinni
brugðu sér í borgina . . .
HVAÐ haldið þið að hafi vakið
mesta athygli 25 barna úr landsveit
og Fljótshlið, sem komu í heimsókn
til Sjónvarpsins á fimmtudaginn? Að
sjá litasjónvarpsmynd af Karli
Gústaf Svíakonungi? Nei. Að sjá
upptöku á skemmtiþætti I sjónvarps-
stúdíóinu? Nei Að sjá kassann, sem
veðurkortin eru llmd á fyrir fréttaút-
sendingarnar á kvöldin? Nei. (Hann
var þó annars mjög merkilegur i
augum barnanna!) Nú, hvað var það
þá? Svarið er aðeins tvö orð: Ómar
Ragnarsson!
Þar er ekki ofsögum sagt af
vinsældum Ómars meðal islenzkra
barna. I hvert skipti sem börnin
sáu Ómari bregða fyrir á göngum i
sjónvarpshúsinu Ijómuðu þau öll
og hrópuðu siðan til hans, til að
skoða hann betur og sjá hvað
hann væri nú að gera.
Heimsókn barnanna til Sjón-
varpsins var annars liður i daglegri
heimsókn þeirra til Reykjavíkur á
vegum Æskulýðsráðs Reykjavikur.
Ráðið hefur á undanförnum árum
gengizt fyrir gagnkvæmum heim-
sóknum borgarbarna og sveita-
barna og á siðasta ári fóru nær 40
börn til þriggja daga dvalar á bæj-
um i landi og i Fljótshliðinni. Börn-
um frá þessum bæjum var siðan
boðið til Reykjavíkur i eins dags
kynnisferð og var dagskráin fjöl-
þætt og án efa bæði forvitnileg og
skemmtileg fyrir bömin.
Langur dagur
Það er alllöng leið úr Fljótshlið-
inni til Reykjavikur og bömin tóku
því daginn snemma, voru komin á
fætur um sexleytið mörg hver, þvi
að þau fyrstu lögðu af stað til
borgarinnar um klukkan sjö. Er til
Reykjavikur var komið, var fyrst
ekið að Frikirkjuvegi 11, þar sem
Æskulýðsráð er til húsa og þar
tóku gestgjafar é móti börnunum
og buðu þeim I hádegismat. Þessir
gestgjafar voru fjölskyldur borgar-
barnanna, sem höfðu dvalizt á
sveitabæjunum i fyrrasumar.
Nei, þarna er hann Ómar!! (Ljósm. EBB.)
Markús Örn Antonsson:
Öll börn á forskólaaldri hafi
kost á að dvelja á leikskóla
Á FUNDÍ borgarstjórnar Reykja-
víkur sl. fimmtudag var til um-
ræðu tillaga borgarfulltrúa AI-
þýðubandalagsins um áætlun um
uppbyggingu dagvistunarstofn-
ana. Markús Örn Antonsson, for-
maður félagsmálaráðs, sagði í
umræðum um þetta mál, að sfn
skoðun væri sú, að borgin ætti að
setja sér það mark, að öll börn á
forskólaaldri fengju af uppeldis-
legum ástæðum tækifæri til að
dveljast I leikskóla hluta úr degi,
en vegna fjárhagsástæðna teldi
hann tæpast fært að setja markið
hærra um sinn.
Þorbjörn Broddason mælti fyr-
ir tillögu borgarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins. Tillagan gerir ráð
fyrir, að borgarstjórn samþykki
að fela félagsmálaráði gerð áætl-
unar til 10 ára um uppbyggingu
dagvistunarstofnana borgarinMr.
Skal markmið áætlunarinnar
vera, að þessar stofnanir geti ann-
ast börn allra fjölskyldna í borg-
inni, sem þess óska um lengri eða
skemmri tíma dag hvern. Þannig
taki borgin forystu um að tryggja
sjálfsagðan rétt allra fjölskyldna f
STJÓRN
þessum efnum, en víki frá þeirri
stefnu að sanna þurfi sérstaka
þörf, áður en börnum er veitt
viðtaka á dagheimili.
Markús Örn Antonsson sagði að
það væri mjög jákvætt, ef öll börn
á forskólaaldri ættu kost á dvöl á
dagvistunarstofnunum. Þessi
skoðun sín mótaðist ekki af þörf-
um foreldra fyrir að geta notið sin
betur á vinnumarkaðnum, heldur
af hinum uppeldislega ávinningi,
sem barnið hefur af slfkri dvöl.
Það væri ástæðulaust að tor-
tryggja dagvistunarstofnanir og
álíta þær skaðlegar eðlilegum
þroska og mótun barnsins, eins og
stundum hefði verið haldið fram.
Hann sagðist þó telja nokkurn
mun vera á hvort barnið dveldist
fáa klukkutíma á dag i leikskóla
líkt og um skólagöngu væri að
A FUNDI borgarstjórnar sl.
fimmtudag var vfsað frá tillögu
borgarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins og Alþýðuflokksins, þar sem
lagt var til að Reykjavíkurborg
leitaði eftir sérsamningum við
verkalýðsfélögin í samræmi við
kauphækkunarkröfur þeirra. Til-
lögunni var vfsað frá með 9
atkvæðum borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins gegn 4 atkvæðum
borgarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins og Alþýðuflokksins. Borgar-
fulltrúar Framsóknarflokksins
sátu hjá.
Frávisunartillagan varsvohljóð-
andi:
ræða eða væri vistað á dagheimili
frá morgni til kvölds. Enginn mót-
mælti þvf, að barninu væri hollt
og nauðsynlegt að hafa meiri
tengsl við heimili sitt og fjöl-
skyldu, svo framarlega sem þar
væri ekki um félagsleg vandamál
að ræða.
Þá minntist borgarfulltrúinn á
aðstöðu fjölskyldna þroskaheftra
barna. Það hlyti að vera verðugt
verkefni borgaranna að leitast
sameiginlega við að leysa vanda-
mál þeirra barna fyrst og fremst,
en létta lika undir með aðstand-
endum, sem miklu meira væri
lagt á en flesta aðra foreldra. Mið-
að við núverandi skilyrði þessa
hóps I þjóðfélaginu vJeri ofureðli-
legt að fólki væri skipað í for-
gangsflokka við úrlausn á þessum
vanda.
Markús örn Antonsson sagði
„Borgarstjórn telur æskilegast,
að nú sem endranær verði samið
um kaup og kjör í frjálsum samn-
ingum verkalýðsfélaga og at-
vinnurekenda. Samningavið-
ræður standa nú yfir fyrir milli-
göngu sérstakrar sáttanefndar,
sem ríkisstjórnin hefur skipað og
er undir forystu sáttasemjara
ríkisins. Reykjavíkurborg hlýtur
að sjálfsögðu að greiða það kaup-
gjald, sem um verður samið, og
íhlutun borgaryfirvalda I samn-
inga nú væri í andstöðu við frjáls-
an samningsrétt launþega og at-
vinnurekenda. Borgarstjórn telur
þvi ekki rétt að leita sérsamninga
fyrir borgina við verkalýðsfélögin
Markús örn Antonsson formaður
félagsmálaráðs.
ennfremur, að samkvæmt nýlegri
áætlun mætti gera ráð fyrir, að
stofnkostnaður vegna leikskóla
fyrir 110 börn væri um 35 millj.
kr. eða rúmar 300 þús. kr. á hvert
barn. Aftur á móti kostaði dag-
heimili fyrir 74 börn 70 millj. kr.
og vísar þvi frá framkominni til-
lögu borgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins og Alþýðuflokksins. Jafn-
framt hvetur borgarstjórn samn-
ingsaðila til að gera allt, sem í
þeirra valdi stendur, til að ná
samningum sem fyrst og forða
þeirri ógæfu, sem verkföll jafnan
eru.“
Borgarfulltrúar Framsóknar-
flokksins létu bóka eftirfarandi:
„Við leggjum áherzlu á mikil-
vægi þess, að samningar geti tek-
izt með eðlilegum hætti milli at-
vinnurekenda og þeirra aðildar-
félaga ASÍ, sem boðað hafa vinnu-
stöðvun hinn 11. júní n.k.
eða nærri eina milljón kr. á hvert
barn. Þetta bæri að hafa hugfast
og einmitt af þeim sökum fyndist
sér eðlilegt að borgin liti á leik-
skólana fyrst og legði niður fyrir
sér, hvernig hún gæti fylgt fram
þeirri stefnu, að öllum börnum á
forskólaaldri skyldi tryggður
möguleiki til dvalar á leikskólum.
Borgarfulltrúinn upplýsti, að í
félagsmálaráði hefðu dagvistun-
armálin meira og minna verið til
umræðu í vetur, sérstaklega þó
rekstur dagvistunarheimila
einkaaðila. Ástæðulaust væri að
draga gildi þessarar starfsemi í
efa að svo stöddu. Félagsmálaráð
myndi eflaust innan tiðar Iáta frá
sér fara vissar ábendingar um
breytingar á lögum um dagvistun-
arstofnanir. Það yrði gert i tengsl-
um við endurskoðun á starfsemi
Félagsmálastofnunar og félags-
málaráðs, sem nú stæði yfir.
Guðrún Ágústsdóttir sagði, að
einkaaðilar hefðu neyðzt til að
setja á fót barnaheimili. Það væri
ekki æskilegt, en þeir hefðu
neyðzt til þessa, þar eð borgin
hefði vanrækt að gegna skyldu
sinni á þessu sviði.
Að loknum umræðum var tillög-
unni visað til umsagnar og athug-
unar félagsmálaráðs.
Jafnframt viljum við, að fram
komi sú skoðun okkar, að þeir
fjármunir, sem þjóðarbúið kann
að hafa til ráðstöfunar nú til
launahækkana, gangi fyrst og
fremst til láglaunastéttanna i
þjóðfélaginu svo og til elli- og
örorkulífeyrisþega og annarra
sambærilegra aðila.
Þar sem ríkisstjórnin hefur ný-
lega skipað sérstaka sáttanefnd
fimm manna til að vinna að lausn
þessarar kjaradeilu og samninga-
umleitanir eru í fullum gangi,
teljum við hvorki skynsamlegt né
rétt, að Reykjavíkurborg fari á
þessu stigi að blanda sér i þær
viðræður.“
Dilutun borgarinnar í samningamálin óæskileg