Morgunblaðið - 07.06.1975, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNl 1975
25
Blðm Q3)
vikunnar Illgresi!
NÚ FER í hönd sá tími sem viö
keppumst hvað mest við að
rækta hverskyns góðgresi og
skrúðgresi i görðum okkar. I
ákafanum verður okkur einatt
á að gleyma illgresinu sem bíð-
ur á næsta leiti og gerir okkur
oft æði grátt í rót þegar líða
fer á sumar og krefst þá
erfiðrar og miður skemmtilegr-
ar vinnu. Blóm vikunnar ákvað
því að verja 1—2 vikupóstum í
það að ræða um illgresi og að-
ferðir við að eyða því og vonar
að það geti komið að gagni fyrir
þá sem við ræktun fást. Sér-
fræðingur okkar í þessum efn-
um fellst á að gera málinu
nokkur skil og hér fer á eftir
það’sem hann hefur til mála að
leggja:
Krossfífill.
„Illgresi nefnist hver sá gróð-
ur sem vex í ræktuðum görðum
og ekki hefur verið sáð til eða
er ekki talinn æskiiegur þar
sem matjurtir og skrautjurtir
eru í ræktun. Illgresið dregur
næringu og vatn úr moldinni
frá garðplöntunum, minnkar
ijós og hita og stuðlar að ásókn
ýmissa sjúkdóma í ræktuðum
plöntum.
Illgresistegundirnar fjiilga
sér annaðhvort með fræjum
eða líkamshlutum sem losna frá
móðurplöntunni og mynda ræt-
ur er verða að nýjum ein-
staklingum. Margar tegundir
illgresis setja fullþroskað fræ á
miðju sumri og fram á haust.
Einært illgresi eins og arfinn
myndar fjölda fræja sem spíra
fljótt eftir að þau hafa faliið i
moldina. Illgresisfræ getur
lifað í fjölda ára í jarðveginum
án þess að spíra en verði skil-
yrði hagstæð fyrir fræin geta
þau allt i einu farið að spira og
oi'ðið að plágu í görðunum. Ein-
ær fræillgresi í göröum eru
haugarfi, hjartarfi, krossgras,
gullbrá, skurfa og varpasveif-
gras. Rótarillgresi eru mjög oft
fjölærar plöntur sem fjölga sér
með neðanjarðarstönglum. Al-
gengar tegundir eru húsapunt-
ur, njóli, elfting skriðsóley,
þistill og hóffífill.
Illgresi getur borist í garða á
margvislegan hátt, má þar til
nefna: með kartöfluútsæði,
rabbarbara- og graslaukahnaus-
um, rótum fjölærra skraut-
plantna, trjáplöntum og kál-
plöntum. Þá er og algengt að
illgresisfræ berist með vindin-
um. Helst eru það fræ sem hafa
svifhár og svífa þau langar
leiðir. Á haustin feykir vindur-
inn brotnum og visnuðum ald-
inherslum langar eða skammar
vegalengdir og sáldrast þá fræ-
in víða. Fræ dreifist og með
dýrum, fuglum og mönnum.
Það festist i hárum og ull dýra,
festist í fatnaði ogskóm manna.
I'uglar éta mikið fræ og aldini
sem ekki meltist og dreifist þvi
með driti þeirra. Búfjárá-
burður inniheldur oft mikið af
illgresisfræi og einnig safn-
haugaáburður sem myndaður
er úr hverskonar plöntuleifum,
að vísu drepst mikið af fræi
þegar hitnar i safnhauginum.
Illgresi getur auðveldlega bor-
ist með garðyrkjuverkfærum
og er því nauðsynlegt að þrífa
þau vel eftir notkun.
Með sérstöku illgresis-
eyðingarlyfi má drepa mikið af
illgresisfræi I áburðar- og safn-
haugi. En yfirleitt krefst i 11-
gresiseyðing mikillar líkam-
legrar vinnu þó að eyðingarlyf
hafi nokkuð verið notuð á síðari
árum. Flest þessara lyfja eru
mjög sérhæf og aðeins hægt að
nota þau við eyðingu vissra ill-
gresistegunda innan um
ákveðnar tegundir nytja-
plantna. I heimilisgörðum eru
handverkfæri af ýmsum
gerðum handhægust við út-
rýmingu illgresis. Garðhrífa
arfaskafa sem bítur vel, arfakló
og handgref eru ákjósanleg
verkfæri. Best er að reyta ill-
gresi þegar það er að byrja að
koma upp og vinna verkið I
þurrki og sólskini. Visnar þá
illgresið fljótt. Eftir langvar-
andi rigningar nær illgresið
rótfestu og verður þá einatt að
reyta þaö með höndunum
Varast bera ð róta mikið í jarð-
veginum ella getur orðið
röskun á rótarkerfi nytja-
plantna og það jafnvel
skaddazt."
Svo mörg eru þau orð og ef til
vill fáum við annan álika
skammt af fróðleik næsta
laugardag.
AB—E.I.S.
M0RCU2IBL&ÐIS
fyrir 50 árum
Úr Hafnarfirði — Tekju-
skattsskráin var lögð fram á
laugardaginn var. Tekju- og
eignaskattur er samtals krón-
ur 223.628.34. Hæsti skatt-
greiðandi er Geir H. Zoéga
fyrir útgerð á 6 enskum
togurum f. á. — kr.
99.848.00
Annar elsti stúdentinn frá
Reykjavíkur lærðaskóla,
Sophus Anastasíus Trampe
greifi, Ijest í Kaupmannahöfn
8. fyrra mán. tæpra 85 ára að
aldri. Hann var sonur Jörgens
D. Trampe greifa, sem hjer
var stiftamtmaður næstur á
undan Hilmari Finsen.
Sjómenn! Sparið peninga og látið oss bera i og gera við sjóklæði yðar, sem
farin eru að slitna. — Sjóklæðagerð íslands.
Athugið! \2 manna postulínsmatarstejl, falleg og sterk, kosta aðeins kr.
130.00 i versl. „Þörf", Hverfisgötu 56, simi 1137.
"M Jf • "■ • Haukur Eggertsson og Eggert Hauksson við nýja vél,
|%/l *■ I/' 1 I sem skilar fullunnum og áprentuðum burðarpokum.
verðlækkun á plasti
Plastprent h.f. flytur um
þessar mundir starfsemi sína I
nýtt húsnæði að Höfðabakka 9 í
Reykjavík. Húsnæðið á Grens-
ásvegi þar sem verksmiðjan
hefur verið til húsa undanfarin
ár er um 900 fermetrar að
stærð, en nýja húsnæðið er yfir
2000 fermetrar. Um leið tekur
verksmiðjan I notkun nýjan
vélakost.
Á fundi, sem forráðamenn
Plastprents h.f. héldu með
fréttamönnum, kom fram, að
með tilkomu hinnar nýju verk-
smiðju, bættri vinnuaðstöðu og
fullkomnari vélum hefur fyrir-
tækinu tekizt að lækka verð á
framleiðsluvörum sfnum veru-
lega. Þannig lækkar verð á
byggingaplasti til dæmis um
22% og verð á heimilisplastpok-
um lækkar um 8—10%.
Þá kom fram hjá þeim Hauki
Eggertssyni forstjóra og Eggert
Haukssyni framkvæmdastjóra,
að á síðastliðnu ári var velta
Plastprents h.f. um 125 milljón-
ir, og telja þeir, að það muni
hafa verið um 65% veltu allra
fyrirtækja I þessari iðngrein.
Arið 1973 greiddi fyrirtækið
22% af heildarveltunni i laun
til starfsmanna sinna, en með
aukinni framleiðni og hag-
kvæmari framleiðsluháttum
tókst að lækka hlutfallið niður í
19% á síðasta ára
Rit um sníkju-
þráðorma er 20.
rit Neðra-Áss
RANNSÖKNARSTÖÐIN Neðri
As í Hveragerði hefur gefið út rit
um rannsóknir á sníkjuþráð-
ormum í plöntum á íslandi eftir
Einar I. Siggeirsson og dr. Hans
R. van Riel, frá rannsóknarmið-
stöðinni San Cristobal f
Dominicanska lýðveldinu. Fjallar
hún um rannsóknir þeirra á
sníkjuþráðormum hér á landi. En
dr. van Riel dvaldist hér á landi
1972 og ferðaðist á milli garð-
yrkjustöðva i Árnessýslu, Kjósar-
sýslu og Borgarfjarðarsýslu og
safnaði jarðvegssýnum úr gróður-
húsum og volgum jarðvegi. Einar
I. Siggeirsson hefur unnið að
ýmsum rannsóknum, hefur m.a.
rannsakað lifnaðarhætti og
þroskaferil kartöfluhnúðorma og
greint þá í þrjá stofna og 1973
fann hann svokallaðan laukorm
f gróðrarstöðvum, en talið er að
þessir sniklar séu innfluttir með
laukum frá útlöndum.
Undanfarin ár hafa allmargir
erlendir vísindamenn komið hing-
að til lands á vegum Rannsókna-
stofnunarinnar Neðri As og hafa
þeir gert skýrslur um störf sin,
sem hafa verið birtar. Er þetta 20.
ritið af því tagi.
Plastprent h.f. opnar
nýja verksmiðju
Eggert Hauksson sagði m.a.:
„Þetta er okkar aðferð til að sjá
við verðbólgunni. Við kvörtum
ekki um að reksturinn gangi
erfiðlega, — hann gengur þvert
á móti mjög vel. Við höfum nú
um 30 manns í vinnu og stóðum
nýlega andspænis því að þurfa
að stækka við okkur og auka
vélakostinn. A tímabili var
ætlunin að byggja yfir starf-
semina, en við hurfum frá því
ráði. Að dómi okkar var mun
viturlegra að fjárfesta í full-
komnari vélum en steinsteypu
og við höfum komizt að hag-
stæðum samningum við eigend-
ur þessa húsnæðis. Vélarnar,
sem við erum nú að taka i notk-
un hafa kostað um 40 milljónir.
Við erum nú með 18 vélar f
notkun, og af þeim hafa 13
verið teknar í notkun á siðustu
fimm árum, en 6 tökum við í
notkun nú I ár, þannig að
endurnýjun vélakostsins er
mjög ör.“
Meðal véla, sem nú er verið
að taka i notkun i hinni nýju
verksmiðju, er vél, sem plast-
þynnan er sett í og skilar
fullunnum og áprentuðum
burðarpokum, en aðrar helztu
framleiðsluvörur fyrirtækisins
eru hverskonar plastumbúðir
fyrir iðnvarning, sellófanum-
búðir, sorpsekkir, bygginga-
plast, garðaplast og heimilis-
pokar.
^Arið 1965 festi Plastprentii.f.
kaup á fyrirtækinu Plastpokar
h.f., sem síðan hefur verið rek-
ið í nánum tengslum við Plast-
Framhald á bls. 26
Selma Jónsdóttir, forstöðumaður Listasafns Islands, I „kvennadeild“
sýningarinnar, sem opnuð verður I safninu f dag.
Listasafn Islands:
Verk 25 ísl. listakvenna
sýnd í tilefni kvennaárs
I DAG verður opnuð ný sýning í
Listasafni Islands. Hluti
sýningarinnar, sem er i öllu
sýningarhúsnæði safnsins, er
deild, þar sem eingöngu eru verk
eftir 25 íslenzkar listakonur.
Verkin eru 67 að tölu og eru þau
öll I eigu safnsins. Þessi þáttur
hinnar nýju sýningar er I tilefni
kvennaárs Sameinuðu þjóðanna.
Að auki eru sýnd 176 verk eftir
íslenzka og erlenda listamenn.
Þar á meðal eru niu #ustur-
lenzkar smámyndir, sem sænsk
hjón dr. Allan Etzler og kona
hans, hafa gefið safninu. Aður
hafði safnið eignazt fimm þessara
mynda, en þegar frú Etzler lézt
nýlega bárust safninu hinar
fjórar og eru þær nú sýndar hér 'í
fyrsta sinn. Myndirnar eru frá
Indlandi og Persíu. Höfundar eru
ókunnir, en elzta myndin er frá
því um 1550 og sú yngsta frá
síðari hluta 18. aldar.
Sýningin í Listasafni rikisins
verður opin kj„ 13.30—16 alla
daga til 15. september n.k.