Morgunblaðið - 07.06.1975, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNI 1975
27
— Aftökulistar
Framhald af bls. 16
upplýsingum. sem Stalin og undir-
menn hans höfðu gefið.
Forystumenn Bandamanna tóku
þá stefnu, að vegna mikilvægis
þess að viðhalda einingu gegn
Hitler væri rétt að sneiða hjá
öllum ágreiningi. Þeir tóku þó
sjálfir skýringar Rússa alls ekki
sem góða og gilda vöru. Dagblöð á
Vesturlöndum tóku hins vegar
nær samhljóða undir hina rúss-
nesku skýringu.
Þjóðverjar leyfðu stórum hópi
sérfræðinga og annarra sem
áhuga höfðu á þvi að koma til
Katyn-skóga, — m.a. rannsóknar-
nefnd evrópskra lækna, sem
skipuð var sérfræðingum frá
háskólum víða i Evrópu, t.d. frá
hlutlausum löndum eins og dr.
Naville í Genf, fulltrúum pólsku
neðanjarðarhreyfingarinnar og
nokkrum háttsettum hermönnum
bandamanna i fangabúðum Þjóð-
verja. — Þessir aðilar neituðu
réttilega að gefa opinberar yfir-
lýsingar um málið, en sendu rikis-
stjórnúm landa sinna skýrslur sem
trúnaðarmál, þar sem þeir lýstu
frásögn Þjóðverjanna rétta.
(Aðeins einn sérfræðinganna i
hinni læknisfræðilegu rannsóknar-
nefnd dró siðar til baka vitnisburð
sinn. Það var Búlgarinn dr.
Markov. Hann var tekinn hönd-
um, þegar Rússar réðust inn i
þjóðland hans. Þegar hann hafði
verið tvo mánuði i fangetsi Rússa
gaf hann opinbera yfirlýsingu.).
Sönnunin fólst i þvi að sérfræð-
ingarnir grófu upp grafir, sem ekki
hafði áður verið hreyft við. Á
likunum, sem báru þess merki, að
hafa legið undir jarðvegsfargi
fundust rússnesk dagblöð og hlið-
stætt efni með dagsetningum allt
fram i apríl 1940, en engar yngri
dagsetningar. Sömuleiðis höfðu
hinir líflátnu greinilega klæðst
þykkum klæðnaði. sem ekki kem-
ur heim og saman við frásögn
Rússanna, sem héldu þvi fram, að
aftökurnar hefðu átt sér stað i
hitunum i september 1941!
4143 Ifk fundust i Katyn-
skógum, sem svarar einungis til
þeirra, sem dvöldu i búðunum i
Kozielsk 2914 lik var unnt að
þekkja. Nöfn 80% þessara manna
voru á listunum, sem pólsk yfir-
völd höfðu látið taka saman.
Enn þá er ekki vitað, hvað varð
um þá 10400 menn sem voru i
hinum tveimur þrælkunarvinnu-
búðunum. Sögusagnir herma að
fjölda pólskra fanga hafi verið
staflað i gamla skipsdalla sem
siðar var sökkt i Hvftahafið. Það
eru einnig sögusagnir um fjölda-
aftökur og fjöldagrafir f nágrenni
Kharkov hliðstæðar þeim, sem
fundust i Katyn-skógum.
Dómararnir I Nurnberg athug-
uðu Katyn-málin mjög yfirborðs-
lega 1.—3. júli 1946 en þeir
minnast ekki einu orði á sök Þjóð-
verja i þeim efnum i dómsorði
sinu. Enginn minnsti vottur vitnis-
burðar, sem bendir til ábyrgðar
nazista á gtæpunum i Katyn-
skógum, hefur komið fram hjá
þýzkum föngum né heldur i nokkr-
um gögnum, sem Bandamenn
tóku herfangi.
Úr kaflanum: „Hreinsan-
irnar og heimsstyrjöldin".
Pólskur fangi i Rússlandi lýsir
með eftirfarandi orðum almennum
vonum þeirra, sem voru i haldi f
þrælkunarvinnubúðum: „Ég hugsa
með hryllingi til þess tima þegar
áin Bug skipti Evrópu i tvo hluta.
Annars vegar voru milljónir þrælk-
aðra manna i búðum Ráðstjórnar-
rikjanna, sem báðu i bænum
sinum, að herir Hitlers kæmu og
leystu þá úr ánauð. Hins vegar
voru milljónir manna i
einangrunar- og tortímingarbúð-
um Þjóðverja, sem ólu með sér þá
síðustu von, að rauði herinn kæmi
og bjargaði þeim."
Ehrenburg lét að þvi liggja, að
Stalin hefði verið lagnari að fást
við imyndaða en raunverulega
svikara. Sú aðdróttun hefur við
rök að styðjast. I ágúst 1 941 drap
hann siðustu hugsanlegu keppi-
nauta sina um stjórnartaumana.
Tveir fyrrverandi aðstoðarfor-
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Frá Bændaskólanum
á Hvanneyri
Nemendur, sem hyggja á nám í búvísindadeild
og óska eftir að sækja undirbúningsdeild
Tækniskóla íslands að vetri komanda, skulu
senda umsóknir til Bændaskólans á Hvanneyri,
fyrir 1 5. júní n.k.
Umsóknarfrestur fyrir bændadeild skólans er til
1. ágúst n.k.
y Skolastjóri.
sætisráðherrar, Chubar og
Antipov, voru þá skotnir, sá fyrri
tólfta, hinn siðari tuttugusta og
fjórða ágúst. Slíkar aftökur virðast
hafa verið umfangsmiklar um þær
mundir. Pólverji, sem var i haldi i
þrælkunarvinnubúðum i Yetsevo,
nefnir tvo hershöfðingja, fjóra lög-
fræðinga. tvo blaðamenn, fjóra
stúdenta og háttsettan lögreglu-
foringja i N.K.V.D. ásamt fimm
óþekktum mönnum, sem voru sér-
staklega valdir úr búðunum og
skotnir i júni 1 941.
Aðalfundur
Þernufélags íslands
verður haldinn að Lindargötu 9 mánudaginn 9.
júní kl. 1 7.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Húseigendatryggíng SJÓVA bœtir vatnstjón, glertjón,
foktjon og ábyrgdarskyld tjón.
Svo er 90 % iógjalds frádráttarbœrt til skatts.
SUÐURLANDSBRAUT 4
82500
íwrr Ilfll
JmKT* wr w
f L 1
, ' *' * .. j
■■
LANDSHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
DRÆTTI EKKI FRESTAÐ
Afgreiðslan í Galtafelli, Laufásvegi 46,
er opin í dag til kl. 23.00. Sími 17-100
GREIDSLA SÚTT HEIM EF ÓSKAD ER