Morgunblaðið - 07.06.1975, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JtJNl 1975
29
félk í
fréttum
Thang og Chinh
endurkjörnir í
N-Víetnam
Bangkok 5. júni.AP.
ÞJOÐÞINGIÐ í N-Vietnam end-
urkaus í dag Ton Duc Thang for-
seta landsins og Truong Chinh
formann framkvæmdanefndar
þingsins. Forsetaembættið er svo
til valdalaust í N-Vietnam og er
það Chinh, sem er raunverulega
æðsti vaidamaður landsins. Bæði
Thang og Chinh komu til S-
Vietnam í sl. viku, þar sem þeir
sóttu fundi er fjölluðu um meiri-
háttar ákvarðanir varðandi fram-
tíð S-Vietnams.
+ BOTNHREINSUN —
Ekki fólk en samt ... Það
eru fleiri en bílarnir sem
þurfa sinn þvott. Öðru
hverju þarf að taka skipin í
slipp til að hreinsa slý af
botninum og mála þau. Hér
sjáum við hvar verið er að
botnhreinsa skuttogarann
BESSA IS-410 í slippnum í
Reykjavik. Eins og flestum
er kunnugt um er Bessi eitt
mesta aflaskip Islendinga
en hann er gerður út frá
Súðavfk. Myndina tók
Olafur K. Magnússon.
Lestarrán
á Spáni
Bilbao, Spáni, 5. júní.
TVEIR vopnaðir menn, taldir
vera úr aðskilnaðarhreyfingu
Baska, náðu I morgun á sitt
vald San Sebastian-
Bilbaohraðlestinni, skutu
öryggisvörð til bana og særðu
annan alvarlega. Flúðu mennirn-
ir eftir skotbardagann og komust
undan. Engan farþega sakaði.
Öryggisvörðurinn var 6. lög-
reglumaðurinn, sem fallið hefur í
Baskahéruðunum á sl. 9 vikum,
en mikil spenna rikir á þessum
slóðum. Lögreglan hefur hafið
mikla leit að mönnunum tveimur,
sem sjónarvottar segja að hafi
verið kornungir.
+ „Hver var það sem sagði að
móðurástin væri sú eina sanna
ást.“ Þetta var afsannað þegar
þessi litli apaungi var tekinn
frá móður sinni, þar sem hún
vildi ekkert hafa með hann að
gera í Gladys Porter dýragarð-
inum i Brownsville í Texas í
Bandarfkjunum, fyrir
skömmu. Starfsfólk dýragarðs-
ins sér um munaðarleysingj-
ann, og hann þrífst vel af með-
ferðinni. Það er ekki óalgengt
að villt dýr hafni fyrstu af-
kvæmum sinum.
+ Þeir eru ekki ófáir fundirnir
sem hann verður að sitja hann
Kissinger. Þessi mynd af utan-
ríkisráðherranum var til
dæmis tekin í Briissel nú fyrir
nokkrutn dögum er hann sat
þar fund hjá Noróur-
Atlantshafsbandalaginu. Þreyt-
an Ieynir sér ekki — þessar
þrjár myndir tala sínu máli...
MEGRUN
Nú er að hefjast síðasta námskeiðið í megrunar-
leikfimi, fyrir sumarleyfi.
Þessi námskeið hafa náð ótrúlegum vinsældum
hjá konum sem þurfa að léttast um meira en 1 5
kíló. Margar hafa þegar losnað við það sem
þær þurftu, þess vegna getum við boðið fleiri
konum að vera með núna.
Það næst örugglega góður árangur ef viljínn er
með. Læknir gefur okkur holl ráð. Gufuböð —
Ijós — vigtun — mæling. Innritun og upplýs-
ingar í síma 83295 alla virka daga kl. 13—22.
Júdódeild Ármanns. Ármúla32.
kominn í,ferðaskrifstofustríðið'|
Við bjóðum þér (þ.e.a.s. ef þú ert á aldrinum
18—32, 14 daga dvöl á Hótel Club 33.
Mallorka. Þar býr eingöngu fólk á þínum aldri,
og öll aðstaða á hótelinu er miðuð við þinn
aldursflokk. Stórt diskótek, sundlaug, veitinga-
salir, barir og ails kyns íþróttaaðstaða.
Öll herbergi hafa m.a. bað, svalir, síma og
útvarp. Verð 54.000.— m. fullu fæði í 14
daga, þ.á m. næturmatur (geri aðrir betur)!!
Fyrsta ferð 1 5. júní. Fá sæti laus.
KLÚBBUR 32,
Lækjargötu 2, símar 16400—26555.
Gulur, rauéur,
grænn&blár
Brauölvvt
gerðuraf
vÆ* meistarans
höndum
Kráin isbúð
VIÐ HLEMMTORG