Morgunblaðið - 07.06.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1975
33
VELVAKAiMDI
Velvakandi svarar í síma milli
kl. 14 og 15 frá mánudegi til
föstudags.
0 Sókn og sigrar
gegn hverjum?
J. P. skrifar:
„Forkólfar i sumum flokkum og
ýmsir forystumenn, sem illu
heilli hafa verið kosnir í stjórnir
sumra launþegafélaga, eru ávallt
að staglast á og hrósa sér af ein-
hverjum miklum sigrum, sem
þeir hafi unnið. Fróðlegt væri að
rifja það upp og rannsaka gegn
hverjum þessir menn hafa verið
að berjast og hverja þeir hafi
sigrað. Flest vestræn ríki, t.d.
Norðurlönd og England, eru með
svipaða gengisskráningu og
gengishlutfall og þeir voru með
fyrir heimsstyrjöldina síðari,
jafnvel ^kfci mikið breytt gengis-
hlutfall )frá því fyrir fyrra heims-
strið. Aðeins Islendingar hafa
stöðugt hrakizt niður á við og nú
kostar dönsk króna 28 ísl. krónur,
einn Bandaríkjadollari 152
krónur og enskt pund 353 krónur.
Með þessu móti hefur að visu
verið reynt að halda uppi atvinnu
á íslandi, en vitanlega þýðir þetta
stórfellda skerðingu á öllu
sparifé fólks, en svo til allt
sparifé í bönkum og sparisjóðum
landsins er eign barna, unglinga
og fullorðins fólks, svo og þess
hluta launafólks, sem er að reyna
að safna sér fyrir húsgögnum,
bifreið eða íbúð. Vinnuveitendur
eiga sáralítið, jafnvel ekkert, af
sparifé þjóðarinnar, þeir eru með
allt sitt fé i atvinnurekstrinum, og
auk þess fé að láni. — Það fer því
ekki á milli mála, á hverjum þess-
ir forkólfar hafa sigrazt, jafnvel
fyrri flokkur Björns Jónssonar,
núverandi forseta ASl, heimtaði
gengislækkun þegar þessir menn
voru siðast í ríkisstjórn. Og
flokkur Magnúsar Kjartanssonar
afnam vísitölubætur á kaup og
lögbatt kaupið um leið, meðan
þessi ,,sigurvegari“ var f ríkis-
stjórn. Vitanlega hafa þessir for-
kólfar vitað það, að þeir voru með
þessu fyrst og fremst til að níðast
á launafólki, og eyðileggja sparifé
aldraðs fólks, barna og launa-
manna, sem ekki voru enn búnir
að stofna til verulegra skulda. —
Þegar svo næstu sóknarlotu er
lokið og sigur unninn, er aðeins
um tvennt að velja: Stórfellt at-
vinnuleysi, eða halda áfram að
gera upptækt á „löglegan hátt“
sparifé fólksins í landinu. —
Þegar danska krónan er komin i
60 ísl. krónur, dollarinn í 300
krónur, enska pundið í 600
krónur, þá geta þessir herrar til-
kynnt mikinn sigur. —
J. P.“
0 Óraunhæfir
samningar
Ingjaldur Tómasson, sem
átti pistil hér i dálkunum i gær, er
einnig höfundur þess, sem hér fer
á eftir:
„Það þurfti engan speking til að
sjá að kjarasamningarnir 1974
voru óraunhæfir. Það var viður-
kennt af einum forystumanni
eins stærsta launþegafélags
landsins, að mig minnir i sjón-
varpi, að samningarnir væru
verðbólguhvetjandi. Er það
mögulegt, að helztu forystumenn
launþega vinni gegn eigin 'sann-
færingu, eða er greind þeirra eitt-
hvað brengluð? Ég hefi áður bent
á það, að verkalýðsforystan á
aldrei að fullgilda kjarasamninga
með undirskrift fyrr en allar
aðrar stéttir hafa samið. Ég held,
að blessaðir alþýðuvinirnir ættu
að hætta að tala um „hina lægst
launuðu“, þvi þeir virðast aðeins
nota þá sem skálkaskjól til óhóf-
legra kauphækkana hinna hæst-
launuðu innan verkalýðssamtak-
anna. Ég held, að orð hins mikla
meistara og mannvinar, sem gist
hefir þessa jörð, eigi hér vel við:
„Vei yður, þér hræsnarar."
0 Lífskjör
tslendinga
Það er talið, að þær þjóðir
séu teljandl á fingrum annarrar
handar, sem hafa eins góð lífskjör
og við nú í dag. Ég las i einhverju
blaði um konu, sem vann líknar-
störf í Bangladesh. Við heimkom-
una til Englands mælti hún þessi
orð: „Að koma frá Bangladesh til
Englands er eins og að fara frá
helvíti til himnarfkis." Ég held,
að ekkert bendi til þess, að við
höfum það yfirleitt verra en
Bretar. Eg vil benda þeim á, sem
stöðugt eru að kvarta, kveina og
kerfjast stöðugt fleiri króna i
laun, að stanza um stund á götu-
horni í Reykjavik og vita hvort
nokkuð, sem fyrir augun ber,
bendi til þess, að lífskjör séu
slæm hér.
Bendir klæðaburður til þess,
bilamergðin, skemmtanalífið, vín-
drykkja upp á 6 milljónir um eina
helgi í Reykjavík, ferðalög
almennings, bæði hérlendis og er-
lendis? Fjölmargt fleira mætti
nefna. Það er sannarlega ömur-
legt, að hér hjá okkur skuli vera
til einstaklingar og flokkar, sem
telja það helztu köllun sina í líf-
inu að ala stöðugt á óánægju hjá
þjóðinni.
Það er næstum óhugsandi, að
þeir geri sér grein fyrir því hvert
óþurftarverk þeir vinna. Það eru
þessir menn, sem stöðugt sá bæði
óánægju og hatri i hjörtu lands-
manna.
Afleiðingin? Vansæl þjóð í alls-
nægtum.
Ingjaldur Tómasson."
0 Heppileg heim-
sókn á óheppi-
legum tíma
J. K. skrifar:
„Velvakandi sæll.
Hissa varð ég þegar það kom á
daginn að stefna á hingað kóngi
nokkrum úr austurvegi, einmitt
þegar verst stendur á hér í lýð-
veldinu.
Mér er hulið hvernig nokkur
maður á að hafa tíma til að sinna
honum svo sem vera ber og snúast
í kringum hann þessa daga. Hann
mun væntanlegur annaðhvort
sama dag eða daginn eftir að
verkföll skella á hér á landi, fari
allt sem nú horfir.
Hefði verið tekið illa upp i
kóngsrfkinu ef það hefði verið
látið berast á þekkilegan hátt
eftir diplómatískum leiðum, að
miklu skemmtilegra hefði verið
að fá kónginn hingað ofurlitið
seinna?
Ég held það geti varla verið, að
minnsta kosti^hef ég haft það á
tilfinningunni, að veigamikið
hlutverk diplómata væri að koma
sannleikskornum (jafnvel þótt
neikvæð væru) áleiðis, og gera
viðtakandann ánægðan ineð sinn
hlut.
Vonandi verða málefni þjóðar-
innar ekki látin líða fyrir þau
mistök að stefna kónginum
hingað nú, en ekki öfunda ég ráð-
herrana af því að þjóta á milli
funda með styggum verkalýðsfor-
ingjuin og hófa ineð kóngi.
J. K.“
Við verðum að taka þessu ineð
hetjuskap og vona, að landið vort
fagra brosi við kóngi og föruneyti.
Þá tekur hann kannski ekki eins
mikið eftir því hvað landslýður er
hnugginn.
— Komdu hingað! sagði hann
og haliaði sér aftur f stólnum.
Og þegar hún kom að borðinu
stóð hún vandræðalega þar án
þess að vita hvað hún ætti af sér
að gera. Hann bætti við:
— Fáðu þér sæti ... Hvað ertu
gömul?
— Tuttugu og f jögra ára...
Það var óeðlileg auðmýkt í
framkomu hennar. Dökkir baug-
arnir undir augum hennar, hljóð-
laust göngulag hennar og skelf-
ingin og kviðinn sem var uppmál-
aður á andliti hennar, hún hrökk
í kút við hvaða hljóð sem heyrð-
ist. Þó fannst honum hann skynja
að baki þessa alls einhvers konar
stolt, sem hún reyndi að láta Iftið
bera á.
Þokkafull gat hún ekki talist
við fyrstu sýn. Lfkamsvöxtur
hennar var ekki til þess failinn að
vekja girnd hjá karlmanni. Þó
var hún aðlaðandi vegna þessa
óöryggis og varnarleysis sem
skein úr fasi hennar.
— Hvað vannstu áður en þú
komst hingað?
— Ég er munaðarlaus. Faðir
minn og bróðir fórust f sjóslysi.
Mamma mfn var þá löngu dáfn ...
Ég vann f bókabúð á Place de la
Poste...
HÖGNI HREKKVÍSI
IÐNSKOLINN
í REYKJAVÍK
— auglýsing um innritun -—
IÐNNEMAR Á 1. námsári
Samkv. lögum um iðnfræðslu (20. gr.)
skulu meistarar og iðnfyrirtæki senda
iðnnema til iðnskólanáms næst er það
hefst eftir að námssamningur er gerður.
Innritun nýrra nemenda fyrir skólaárið
1 975 — 1 976 fer fram dagana 9. til 1 3.
þ.m., báðir dagar meðtaldir, kl. 9.00
12.00 og 13.30 —16.00, í skrifstofum
yfirkennara, stofu 312.
Inntökuskilyrði eru að nemandi sé fullra
1 5 ára og hafi staðist miðskólapróf með
lágmarkseinkunnum sem menntamála-
ráðuneytið ákveður.
Nemendur með samræmt gagnfræða-
próf og tilskilinn árangur verða innritaðir
í 2. bekk.
Við innritun ber að sýna námssamning,
vottorð frá fyrri skóla undirrituð af skóla-
stjóra og nafnskírteini.
INNRITUN í 3. BEKK
Nemendur sem lokið hafa prófi úr tré-
eða málmiðnadeildum Verknámsskóla
iðnaðarins, og komnir eru á námssamn-
ing hjá meistara í einhverri hinna lög-
giltu iðngreina, þurfa að láta innrita sig
til framhaldsnáms í 3. bekk iðnskóla á
sama tíma.
Verknámsskóli iðnaðarins
INNRITUN í TRÉ- OG MÁLMIÐNADEILDIR
fer fram í skrifstofui yfirkennara (stofu
312) samkvæmt því sem að ofan grein-
ir.lnntökuskilyrði eru þau sömu og fyrir
Iðnskólann, nema að því leyti, að náms-
samningur þarf ekki að vera fyrir hendi.
Tréiðnaðardeildin er aðallega fyrir þá,
sem hyggja á iðnnám eða önnur störf í
tréiðnum, helstar þeirra eru húsasmíði,
húsgagnasmíði, skipasmíði.
Málmiðnadeildin er fyrir þá, sem hyggja
á iðnnám eða önnur störf í málmiðnaði
eða skyldum greinum, en helstar þeirra
eru: allar járniðnaðargreinar svo og bif-
reiðasmíði, bifvélavirkjun, blikksmíði,
pípulögn, rafvirkjun, skrifvélavirkjun og
útvarpsvirkjun.lNNRITUN í FRAMHALDS-
DEILDIR VERKNÁMSDEILDA
Nemendur sem lokið hafa prófi úr málm-
iðnadeild og hyggja á áframhaldandi
nám í rafidngreinum eða bifvélavirkjun
verða að sækja um skólavist ofangreinda
daga.
TÆKNITEIKNARASKÓLINN
Skóli til þjálfunar fyrir tækniteiknara og
aðstoðarfólk á teiknistofum tekur til
starfa á byrjun september n.k.
Inntökuskilyrði eru, að umsækjandi sé
fullra 1 6 ára, og hafi lokið gagnfræða-
prófi eða landsprófi.
Innritun fer fram í skrifstofu yfirkennara
eins og að ofan greinir.
Við innritun ber að leggja fram undirrit-
að prófskírteini frá fyrri skóla, ásamt
nafnskírteini.
Þeir sem lokið hafa prófum úr 1. bekkk
Tækniteiknaraskólans komi einnig til
innritunar í 2. bekk ofangreinda daga.
Skólastjóri.