Morgunblaðið - 07.06.1975, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JUNÍ 1975
Skagstrendingar bjóða
Skagamönnum aðstoð sína
Knattspyrnumönnuin á
Akranesi bauðst óvænt aðstoð nú
í vikunni er þeir fengu bréf frá
Skagaströnd og 16 manns þar
bjóðast til að veita Skagamönnun-
um alla þá aðstoð í sambandi við
fjáröflun er þeir framast geta.
Lárus Guðmundsson sveitarstjóri
á Skagaströnd, er í fararbroddi
Skagstrendinganna, en hann var
Svavar Markússon tekur við söfnunarfénu úr hendi Ragnars Tómas-
sonar.
FRÍ FÉKK 400 ÞIJSUND
FRÁ BINDINDISMÖNNUNUM
sömu upphæð og FRÍ hafði sett sér að
ná út úr vindlingapakkasöfnuninni.
Gekk þeim félögum söfnunin ekki
eins vel og þeir höfðu vonast til og á
fundi með fréttamönnum í gær komu
fram vonbrigði með árangurinn bæði
frá þeim þremenningunum og þá ekki
síður frá stjórnarmönnum í FRÍ. Sagði
Svavar Magnússon að nú væri endan-
lega Ijóst að Reykjavíkurleikarnir sem
hugsaðir höfðu verið með þátttöku er-
lendra keppenda verða ekki í fyrirhug-
aðri mynd vegna mikils kostnaðar og
sennilega yrðu aðeins íslenzkir kepp-
endur með í mótinu.
Knapp njósnar
um Norðmenn
Frjálsíþróttasambandið veitti I gær
viðtöku rúmlega 400 þúsund krónum,
sem þremenningarnir Ragnar Tómas-
son. Sveinn Skúlason og Tryggvi
Gunnarsson höfðu gengist fyrir að
safna Höfðu þeir farið á stúfana í vetur
og mótmælt þeirri fjáröflunaraðferð
FRÍ að safna tómum vmdlingapökkum
og þiggja síðan hálfa aðra milljón
króna frá innflytjanda tóbakstegundar-
innar Fannst þeim þremenningunum
það ekki I samræmi við hugsjón íþrótt-
anna að safna fé á þennan hátt og
buðust því til að gera sitt til að safna
I*að hefur verið I nógu að
snúast hjá landsliðsþjálfaranum
Tony Knapp upp á sfðkastið og
framundan eru sömuleiðis eril-
samir dagar. Á morgun fylgir
hann iiði sfnu. KR, til leiks gegn
Keflvfkingum f Keflavík og á
mánudaginn á hann Ifka leið um
Keflavfk. Þá fer hann til Osló og
fylgist með leik Norðmanna og
Júgósiava, sem fram fer á Ulle-
vaal á mánudaginn. Heim er
Knapp svo væntanlegur á mið-
vikudaginn.
Nú hefur verið samið við Sovét-
menn um fyrri leikinn í for-
keppni Olympíuleikanna og fer sá
leikur fram á Laugardalsvellinum
31. júlí. Norðmennirnir verða
hins vegar andstæðingar íslenzka
liðsins 7. og 17. sama mánaðar og
fer fyrri leikurinn fram hér á
Golfkeimsla í sjónvarpinu
AÐUR hefur í þessum þáttum verið
vikið að þýðingu sjónvarps í þá veru
að kenna golf Að minnsta kosti í
hinum enskumælandi heimi getur
að staðaldri að líta stórmeistara
golfsins á skerminum íslenzka sjón-
varpinu hefur löngum verið legið á
hálsi fyrir framúrskarandi sinnuleysi
í þessum efnum, enda þótt völ sé á
úrvali góðra kvikmynda um golf,
sem byrjendum jafnt sem meistara-
flokksmönnum er mikill fengur í að
sjá Sú viðbára hefur verið höfð uppi
í hrnni virðulegu ríkisstofnun, að
golfmyndirnar séu tengdar nafni
ákveðins olíufélags og felist í því
auglýsing Hins vegar flokkast víst
ekki undir auglýsingu, þegar hand-
knattleiksmenn eru merktir ákveð-
inni vöru — eða fyrirtæki — í bak
og fyrir.
Nú átti að bæta úr vanrækslu-
syndunum með íslenzkum kennslu-
þætti um golf; gerðum af sjónvarp-
inu sjálfu Hugmyndin er lofsverð
og æskilegt hefði verið að geta
þakkað öllum hlutaðeigandi fyrir
framtakið Fyrsti þátturinn af þremur
hefur verið sýndur, en því miður
hefur svo neyðarlega illa til tekizt, að
verr er af stað farið en heima setið
Vissulega er ekki skemmtilegt að
þurfa að vera svo neikvæður, en ég
held ekki að neinum sé greiði gerður
með því að láta sem þátturinn hafi
verið í lagi Óhamingju sjónvarpsins
verður allt að vopni eins.og sagt var
um íslánd á dimmri tíð hér fyrrmeir.
Fyrst koma þeir með Lénharð, sem
allir virðast sammála um að sé til
skammar. En hér tókst þó sýnu verr;
mér liggur við að segja grátlega, og
skal nú reynt að rökstyðja þá skoð-
un
í fyrsta lagi hlýtur einhver tilgang-
ur að hafa vakað fyrir þeim sem að
þættinum stóðu Tilgangurinn gæti
samkvæmt eðli málsins verið þrí-
þættur 1) Kennsluþátturinn hugs-
aður til þess að glæða áhuga
ókunnra á íþróttinni 2) Að hann
hafi verið hugsaður sem tæknileg
leiðbeining til handa þeim, sem eru
að stíga fyrstu skrefin I golfi 3) Að
hann hafi verið hugsaður sem al-
menn golfkennsla, upprifjun á
,,fúndamentum" golfsins, sem einn-
ig hinir betri golfleikarar hefðu gott
af að sjá.
Tökum svo það sem fyrir augu og
eyru bar. Þorvaldur Asgeirsson
sýndi grip, að vísu alltof ónákvæmt
og flausturslega Síðan tók við nem-
andi, sem sýnilega hefur aldrei á
ævinni slegið golfbolta.
Manngreyið var látinn vera með
handlegi og úlnliði svo stífa, að
hann var í rauninni ekki lengur með
handleggi, heldur tvær spýtur fram-
an á sér, tengdar kylfunni Hann rak
þessar spýtur sínar beint aftur og
fram og árangurinn varð eins og við
mátti búast: Boltarnir lyftust ekki, en
skrölluðu nokkra metra eftir jörð-
inni. Engin útskýring var viðhöfð á
því, hverskonar skot hér væri verið
að útfæra; hvernig það ætti helzt að
vera og hvaða tilgangi það þjónaði.
Aldrei var minnst á undirstöðuatriði
svo sem bolsnúning, fótavinnu, að
halda hausnum, rythma og svo
framvegis Aldrei var minnst á að
innáskot af þessu tagi eru ýmist há
eða lág, útfærð með veds eða lengra
járni
Hver verður svo árangurinn? í
fyrsta lagi er gersamlega útilokað,
að þessir tilburðir örvi áhuga þess
sem ekki þekkir til golfs. Sá hinn
sami hlýtur að álykta, að g.olf sé
furðulegt eymdarpot og óskiljanlegt
að nokkur maður skuli nenna að
standa í öðru eins. Að því leyti
álykta ég, að þessi fyrsti kennslu-
þáttur hafi beinlínjs verið til illls
eins.
í öðru lagi er af og frá, að byrjandi
gæti hafa haft gagn af að líkja eftir
þessu og í þriðja lagi er fjarstæða,
að sæmilega sjþaðir golfarar hafi
haft gagn af; þeir hlægja bara að
öllu saman. Hvað mundu menn
segja um skíðakennslu í sjónvarpi,
þar sem byrjandi væri látinn sýna
kúnstirnar og hann dytti alltaf jafn-
harðan og hann stæði upp?
Kennsla byggist á því, að sá sem
útfærir hreyfinguna, geti sýnt hana
rétt — jafnvel með ýmiss konar
göllum líka, ef svo ber undir. Mis-
skilningurinn og vitleysan eru fólgin
í því að nemandinn sem ekkert kann
á að kenna — en kennarinn þegir.
Hér hefði vissulega þurft að fá einn
af okkar beztu golfleikurum og láta
hann útfæra höggin, eða kennarínn
geri það sjálfur Það þarf að sýna
slíka mynd hægt öðru hvoru og
stöðva hana alveg á ákveðnum atrið-
um til undirstrikunar á því sem
kennarinn útskýrir.
Vonandi verða tveir næstu mánu-
dagsþættir skárri, en fróðlegt væri
að vita, hver ábyrgðina ber á þessu;
hver eða hverjir voru sjónvarpinu til
ráðuneytis og hvers vegna kennslan
var höfð með svo fáránlegu formi.
Nóg um þá raunasögu.
Sex kylfingar
á EM í írlandi
LANDSLIÐIÐ í golfi hefur nú verið
valið. Þarmeð raBtist draumur
sumra. en aðrir verða ugglaust
fyrir vonbrigðum og finnst að val-
ið orki að einhverju leyti tvimælis.
Stigatalan hefur verið höfð til
hliðsjónar, en ekki verið látin ráða
alveg Ég hygg að það sé réttari
aðferð; ýmis atvik geta ráðið því,
að verðugur maður geti ekki af
einhverjum ástæðum elt uppi öll
stigamótin. Til dæmis verður það
nálega útilokað fyrir mann eins og
Björgvin Þorsteinsson, sem nú er
kominn norður til starfa við golf-
völlinn á Akureyri. Eftirtaldir
menn skipa landsliðið:
Björgvin Þorsteinsson 86.05
stig, Þorbjörn Kjærbo 74,77 stig,
Einar Guðnason 63,40 stig, Ragn-
ar Ólafsson 96,90 stig, Oskar
Sæmundsson 59,45 stig og Loftur
Ólafsson 50,70 stig. Varamaður
er Sigurður Thorarensen með
61,28 stig. Eins og sjá má er hann
stigahærri en Loftur Ólafsson.
Loftur er hinsvegar eldri og reynd-
ari og trúlega hefur það ráðið
úrslitum.
Þeir sem næstir standa hnoss-
inu eru Július R. Júliusson, Hans
Isebarn. Jóhann Benediktsson og
Jóhann Ó. Guðmundsson. Verk-
efni landsliðsins verður þátttaka i
Evrópumeistaramótinu i golfi, sem
fram fer á jrlandi i lok mánaðar-
ins. Siðast en ekki sizt er þess að
geta að fararstjóri með liðinu til
írlands verður Sverrir Einarsson
tannlæknir, einn af stjórnarmönn-
um GSÍ.
landi. Um leikina við Norðmenn
verður þó að hafa þann fyrirvara
að Norðmenn eiga eftir að leika
síðari leik sinn gegn Finnum, en
unnu fyrri leikinn 5:3 og ættu að
vera öruggir áfram.
Tony Knapp var að vonum á-
nægður í gær er Morgunblaðið
ræddi við hann. — Þeim mun
meira sem ég hugsa um leikinn
þeim frábærari finnast mér úr-
slitin, sagði Knapp. — Það hefði
einhvern tímann þótt í frásögur
færandi að íslenzka knattspyrnu-
landsliðið tæki 3 stig i tveimur
leikjum af A-Þjóðverjum, sem
eitt liða unnu heimsmeistara V-
Þjóðverja i HM í fyrra. Að vera
númer 2 I riðlinum er bezti mæli-
kvarðinn á framfarir íslenzka
liðsins og raunverulega getu þess.
UiTTrliira
Islandsmót
í stangaköstum
ISLANDSMÓT í stangaköstum
vcrður haldið laugardaginn 14.
júnf og hefst kl. 9.00. Verður
mótið haldið á túninu milli
Miklubrautar og Suðurlands-
brautar, austan Skeiðavogs.
Keppt verður f eftirtöldum grein-
um:
Flugulengdarköst — einhendis.
Flugulengdarköst — tvíhendis.
Hittiköst með spinnhjóli, lóð 7,5
gr. Hittiköst með rúlluhjóli, lóð
18 gr. Lengdarköst með spinn-
hjóli, lóð 7,5 gr. Lengdarköst með
spinnhjóli, lóð 18 gr. Lengdarköst
með rúlluhjóli, lóð 18 kr.
Þátttaka tilkynnist til Astvalds
Jónssonar, sími 35158.
KS-dagur í
SUNNUDAGINN 8. júni gengst
Knattspyrnufélag Siglufjarðar
fyrir hátíðarhöldum á íþróttavell-
inum til kynningar á félaginu og
til fjáröflunar. Hefur þessi dagur
verið lengi í undirbúningi og
nokkuð til hans vandað. Er það
von okkar KS-inga, að Siglfirðing-
ar taki þessu framtaki vel og taki
virkan þátt i dagskránni. Kl. 10
f.h. fara KS-ingar um bæinn og
selja merki dagsins og væntum
við þess, að á móti þeim verði vel
tekið. Dagskráin hefst kl. 13 e.h.
við barnaskólann, fjöldaganga,
allir flokkar KS f búningum og
aðrir sem vilja taka þátt i göng-
unni. Gengið verður suður
Norðurgötu upp Gránugötu og út
Túngötu að íþróttavellinum kl.
13.30. Allir flokkar KS sýna upp-
hitunaræfingar undir stjórn
Magnúsar Jónatanssonar þjálf-
ara, kl. 14.00 er knattspyrnu-
leikur milli KS og Fylkis frá
Reykjavík í 2. flokki, kl. 15.30,
kaffisala í Alþýðuhúsinu á vegum
KS, kl. 16.30 spretthlaup 100
metra, pilta á aldrinum 13—14
ára, kl. 16.45 knattspyrnuleikur
12 ára og yngri, norður og suður-
bær, kl. 17.05 boðhlaup norður og
suðurbær 17 og eldri, kl. 17.20
knattspyrnuleikur milli KS úr-
vals og KS old boys. Ath. kaffi-
salan i Alþýðuhúsinu verður opin
fyrir nokkrum árum einn fremsti
spretthlaupari landsins.
Gunnar Sigurðsson formaður
Knattspyrnuráðs Akraness, sagði
að Skagamenn væru eðlilega
mjög þakklátir fyrir þessa aðstoð
þeirra Skagstrendinga. Sömu-
leiðis sagði Gunnar að áhugasam-
ir Skagamenn ynnu gífurlega
mikið starf fyrir knattspyrnu-
mennina á staðnum og ættu allir
sjálfboðaliðarnir sem hönd legðu
á plóginn miklar þakkir skilið.
Akurnesingar leika gegn nýlið-
um FH f dag og verður spennandi
að sjá hvernig meisturunum
gengur gegn FH-ingunum sem
eftir tvær umferðir eru efstir f 1.
deildinni. Hefst leikurinn á
Akranesi klukkan 15.30, en Akra-
borgin fer frá Reykjavfk með að-
dáendur liðanna og aðra farþega
klukkan 14.15 og til baka strax að
leik loknum.
Gott met
Liljn
vi n
Lilja Guðmundsdóttir úr lR
keppti á móti f Gautaborg um
sfðustu helgi og setti þá nýtt
glæsilegt met í 800 metra
hiaupi. Hljóp hún á 2:13,3 og
bætti gamla metið um tæpar
tvær sekúndur. Lilja hafði
yfirburði í hlaupinu og fékk
enga keppni þar sem sú er
varð önnur kom f mark á
2:22,0. Lilja er að komast f
mjög góða æfingu, og ætti að
geta náð enn betri árangri f
sumar við góðar aðstæður.
Annar Islendingur dvelur
einnig við æfingar í Svíþjóð,
Júlfus Hjörleifsson.
frá kl. 15.30 til 18.00. Siglfirðing-
ar, gerum dag þennan ánægju-
legan og hressum upp á bæjar-
lifið.
M.J.
Sund-
meistaramót
SUNDMEISTARAMÖT Reykja-
víkur 1975 verður haldið 14. og
15. júní n.k. í Sundlauginni i
Laugardal. Keppnisgreinar verða
eftirtaldar.
Fyrri dagur: 200 metra bringu-
sund karla, 100 metra bringusund
kvenna, 800 metra skriðsund
karla og 1500 metra skriðsund
kvenna.
Seinni dagur: 400 metra fjór-
sund kvenna, 400 metra fjórsund
karla, 100 metra baksund kvenna,
100 metra baksund karla, 200
metra bringusund kvenna, 100
metra bringusUnd karla, 100
metra skriðsund kvenna, 200
metra skriðsund karla, 100 metra
flugsund kvenna, 100 metra flug-
sund karla, 4x100 metra skrið-
sund kvenna og 4x100 metra
skriðsund karla.