Morgunblaðið - 26.09.1975, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Jónína Sigurðardóttir
— Minningarorð
Dáin 19.9.1975
Dáin 19.9. 1975
Hún Jóna frænka mín er dáin.
Fyrir tveimur árum fékk hún
hjartaáfall og þurfti eftir það að
fara sér hægar en hún var vön.
Hún hafði lengi ekki gengið heil
til skógar, þó að hún væri ekkert
að flíka því. Síðan þá höfum við
verið hrædd um að eitthvað kæmi
fyrir hana. Samt sem áður er erf-
itt að sætta sig við að fá ekki að
sjá hana oftar meðal okkar hressa
og káta.
Síðast, þegar ég hitti hana, var
hún afar ánægð og lífsglöð. Hún
var þá nýkomin úr ferð til Kan-
ada með Þjóðræknisféiaginu.
Hún sýndi mér myndir úr ferða-
laginu og sagði mér frá ótal stöð-
um, sem hún hafði heimsótt. Fal-
legan minjagrip gaf hún mér og
syni mínum, borðfána, sem hann
er mjög hreykin af. Næst langaði
hana að far'a til Florida og ætlaði
ég þá að reyna að slást í för með
henni. Nú verður sú för aldrei
farin. Jóna hafði gaman af að
ferðast og var alltaf tilbúin að
fara af stað, ef tækifæri gafst.
Margar góðar minningar eigum
við hjónin um ökuferðir, veiði-
ferðir og ferðir upp á Akranes
með Jónu. Á Akranesi dvaldi
Jóna oft hjá systur sinni, Ingi-
björgu (ömmu minni) og heim-
sótti þá lfka aðra ættingja og vini
og þá átti hún marga.
Jóna fæddist f Akrakoti, rétt
hjá Akranesi, 5. janúar 1907. Hún
var yngst í stórum systkinahópi.
Móðir hennar dó stuttu eftir fæð-
ingu hennar og þá var Jónu komið
í fóstur til sjö ára aldurs. Jóna
sagði mér oft frá æsku sinni og
uppvaxtarárum og hversu ólíkt
allt var þvf sem nú er. Trúmál
voru einnig oft ofarlega á baugi.
Jóna var mjög trúuð kona. Hún
kærði sig lítið um að safna fjár-
sjóðum á jörðu. Hún var afar gjaf-
mild og rausnarleg. Hún gaf ekki
af auðlegð sinni heldur sínum
verkalaunum. Við systurnar feng-
um frá fyrstu tíð að njóta þessa.
Jóna var okkur alltaf eins og önn-
ur amma.
Marga fallega hluti á ég, sem
hún hefur gefið mér. Á veggnum
á móti mér hangir mynd af gam-
alli konu, sem er að mala kaffi.
Þessa mynd gaf Jóna mér einu
sinni í afmælisgjöf. Jóna varð
aldrei gömul, eins og þessi kona,
þó að árin væru orðin 68. Hún var
svo ung í anda, að hún gat samlag-
azt hvaða aldursflokki sem var.
Hún skrapp t.d. í fyrra til Noregs
með Ungmennafélagi Islands.
Einnig hafði hún gaman af að
ræða við stúdentana á Nýja-Garði
um ýmis málefni.
Jóna var höfðingi heim að.
sækja, og var stundum þröng á
þingi hjá henni í litla húsnæðinu
á Nýja-Gárði. Þar bjó hún I fjölda
ára, fyrst með Gústu, vinkonu
sinni, en síðar ein.
Við kveðjum Jónu f dag, og
þökkum henni fyrir alit, og ósk-
um henni velfarnaðar, þar sem
hún er núna.
Harpa Jósefsdóttir Amin.
Jón Þórarinsson
lyfsali — Minning
Jón Þórarinsson varð bráð- ....
kvaddur þriðjudaginn 16. septem-
ber. Það er harmsaga að slíkur
mannkostamaður skuli vera
kallaður burt langt fyrir aldur
fram. Jón var góðum gáfum
gæddur, jsviphreinn og fríður.
Hann var^greiðvikinn, vildi hvers
manns vanda leysa og framúr-
skarandi raungóður.
Jón var skemmtilegur og hlýr
persónuleiki. öllum leið notalega
í návist hans. Tíminn leið fljótt og
óðar en varði gleymdist það sem
hafði verið til angurs. Samtal og
sögur kryddaði hann með græsku-
lausu gamni sem gaf þeim lit og
líf. Mörg hnyttinyrði Jóns
gleymdust ekki og vöktu gleði á
ný hvert sinn er þau komu í hug-
ann. Margir humoristar eru
hugsuðir og svo var um Jón. Hann
var hlédrægur maður og naut sín
bezt í þröngum vinahóp.
Ungur giftist hann Gunnlaugu
Hannesdóttur. Þau eignuðust
þrjú mannvænleg börn: Þórarin,
önnu Kristrúnu og Hannes. Þau
voru samhent um það hjónin að
koma sér upp fallegu og aðlað-
andi heimili. Vinnudagur Jóns
var oft langur og hann naut þess
að hvílast á hinu friðsæla hreimili
sfnu ásamt konu sinni og börnum.
Það var ánægjulegt að heimsækja
Gunnlaugu og Jón. Þau tóku á
móti gestum sínum með einlægri
hlýju og vildu allt gera til þess að
gleðja þá. Enda geymir margur í
hug sér ljúfar endurminningar
frá dvöl á heimili þeirra.
Þau hjónin máttu reyna þungan
harm. Hvorugt þeirra flíkaði til-
Framhald á bls. 22
Fréttabréfúr
Miklaholtsh reppi
ÞEGAR síðustu vikur sumarsins
eru nú á næsta leiti er ekki úr
vegi að rifja upp í stórum dráttum
atburðarás veðráttunnar, sem við
bændur erum svo ótrúlega mikið
háðir með lffsafkomu okkar.
„Bóndi þú sem allt þitt átt und-
ir sól og regni.“ Ef litið er til baka
og hugsað til þess tíma sem aðal
uppskerutíminn við fóðuröflun
stendur yfir. Aldrei hafa bændur
látið á tún sín jafn dýran tilbúinn
áburð og gjört var á þessu sumri.
Af því hlýtur að leiða að hey eru
aldrei dýrari en nú. En hvernig
hafa þessi hey sem af túnum hafa
komið verið: Um það hlýtur
veðráttan að ráða ansi miklu.
Heyskapur hófst hér almennt um
miðjan júlí, var þá kominn ágæt-
ur grasvöxtur. Náðist þá inn
nokkuð af heyjum, þó aðeins hjá
þeim sem hafa góða og örugga
súgþurrkun. Góð veður voru svo
marga daga en þurrkleysur að
heita má þar til um miðjan ágúst.
Þá brá til meiri úrkomu og sfðan
hafa oft verið stórrigningar með
smá upprofi á milli. En þeir dagar
sem þurrir komu þar á milli nýtt-
ust illa vegna þess hve túnin voru
blaut víðast hvar eftir mikla úr-
komu.
Nú um þessar mundir hafa
komið þurrir dagar sem breytt
hafa heyskaparástandi til hins
betra. Vil ég meina að heyskap sé
hér um slóðir vfðast hvar lokið,
þrátt fyrir erfiða tíð. Grasspretta
var að heita má alls staðar ágæt,
en margir eiga nokkuð af hröktu
heyi. En hey eru víðast hvar með
mesta móti að vöxtum. Sá, sem
skrifar þetta fréttabréf, hefur
þann sið að skrifa dagbók, þá
fyrst og fremst veðurlýsingu.
Telst mér til að frá 15. júlf og til
þessa dags geti talizt 10 þurrk-
dagar og það með löngu millibili.
Þrátt fyrir það, þá eru bændur
búnir það vel tækjum til hey-
öflunar að heyskap má taka á
mjög skömmum tíma ef tíðarfar
er hagstætt. En eitt ætti þetta
t
Innilegt þakklæti fyrir veitta
samúð við andlát og útför
MAGNÚSAR BJARNASONAR
Elfn Þorgerður Magnúsdóttir,
Margrét Björnsdóttir,
Bjarni Guðmundsson.
sumar að geta minnt okkur bænd-
ur áþreifanlega á. Við þurfum að
brynja okkur enn betur fyrir
rosanum, þurfum enn að auka
votheysverkun stórlega. Tíðar-
farið í sumar var einmitt um lang-
an tíma mjög hagstætt til slíkrar
heyöflunar og slík heyöflun er
örugg og ódýr, grasið á að vera, f
flestum tilfellum, hægt að nýta f
fullum blóma, ótrénað og óhrakið.
Vonandi fáum við gott og hlýtt
haust, sem bætti upp þetta
drungalega sumar, sem bráðum
kveður.
Um uppskeru garðávaxta get ég
lítið um sagt, víðast ólokið, en
kuldinn í júnf hefur örugglega
spillt þar nokkru um, en kartöflu-
rækt er hér víðast hvar aðeins til
heimanota.
Slátrun sauðfjár hófst hér um
10. sept. Um vænleik dilka er lftið
vitað ennþá, en mig grunar að
þeir muni tæpast verða eins væn-
ir og f fyrra. Með meira móti var
tvílembt hér í vor og vorkuldar og
gróðurleysi lengi fram eftir. En
meðalvikt er þó ekki einhlítur
mælikvarði á vænleikann. Heldur
hvað skilar hver vetrarfóðruð
kind miklum kjötþunga.
Ræktunarframkvæmdir hafa
verið með svipuðu móti og undan-
farin ár. Skurðgrafa er búin að
vera hér f sveitinni í allt sumar og
mikið verið grafið, virðast ávallt
vera nægjanleg verkefni til land-
þurrkunar.
Ber hafa vart sézt hér í sumar,
enda lynggróöur skemmzt veru-
lega í vorkuldunum.
Si. laugardag þann 13. þ.m. fór
frám frá Fáskrúðarbakkakirkju
útför Ingibjargar Guðmundsdótt-
ur frá Miðhrauni, hún lézt 4. þ.m.
Utför hennar var mjög fjöl-
menn, enda uppalin hér í sveit og
bjó hér að Miðhrauni og víðar í
sveitinni. JJm frú Ingibjörgu á
Miðhrauni eiga allir góðar og
bjartar minningar. Hún var ein af
þeim konum sem fórnaði tíma til
félagsmála og sinnti sfnu heimili
þrátt fyrir það af frábærri elju og
umhyggjusemi. Hún vildi alls
staðar, hvar sem leið hennar lá,
láta gott af sér léiða. Hennar
glaða viðmót og hjartahlýja er öll-
um ógleymanleg sem henni
kynntust. Blessuð sé minning
þeirrar góðu konu.
Þá fór fram frá Kolbeinsstaða-
kirkju þann 23. ágúst sl. útför
Júlíusar Jónssonar bónda í Hftar-
nesi, var hann jarðsettur í heima-
grafreit sama dag að viðstöddu
miklu fjölmenni. Júlíus var rúm-
lega 90 ára gamall. Allan sinn
búskap bjó hann rausnarbúi í
Hítarnesi. Hann var mikill bú-
hyggjumaður, skáld gott og gjör-
hugull. Hann var ekki langskóla-
genginn en lffsreynsluskóli var sá
aðall sem hann hagnýtti sér á
hagkvæman hátt. Kom það sér
vel, því Hitarnes ber þess merki
að þar hafi búhöldur setið í önd-
vegi um langan tfma. Hvar sem
hans leið lá vakti hann athygli,
stór og kempulegur höfðingi fór
þar sem hann var.
Þótt ég hafi getið hér lauslega
látinna samferðamanna, sem
mörkuðu hér merkileg og
ógleymanleg spor með samtíð
sinni, þá er ekki úr vegi að geta
afmælis áttræðs góðbónda hér í
sveit. Þann 16. þ.m. varð Ásgrím-
ur Þorgrímsson fyrrverandi
bóndi hér á Borg 80 ára. Við það
tækifæri heimsótti hann mikill
fjöldi vina og vandamanna sem
gjörðu honum daginn ógleyman-
legan. Æviatriði Ásgrfms rek ég
ekki hér. Vinir hans minntust
hans f Morgunblaðinu á afmælis-
daginn. páll Pálsson.
- íslendingar
Framhald af bls. 18
Þar hefur dr. Barnea m.a.
undir höndum ritstjórn á riti
sem deildin gefur út og er aðal-
driffjöðrin í jarðhitaráðstefn-
um sem farið hafa fram á
vegum Sameinuðu þjóðanna
undanfarin ár. Sú fyrsta var
haldin f Piza á Ítalíu árið 1970
og sú önnur í röðinni var haldin
í San Fransisco í Bandaríkj-
unum á síðastliðnu sumri. Þá
ráðstefnu sóttu um 1300 sér-
fræðingar en ráðstefnuna á
Italíu sóttu 500 manns. — Við
sem störfum áð þessum málum
hjá Sameinuðu þjóðunum höf-
um mikinn áhuga á þvi að
næsta jarðhitaráðstefna verði
haldin hér á Islandi árið 1978.
En ef svo yrði þyrfti íslenzka
ríkið að taka þátt í kostnaðinum
og um það atriði hef ég einmitt
átt viðræður við fulltrúa
íslenzka utanrfkisráðuneytisins
í heimsókn minni hingað til
lands. Búast má við 1000—1500
þátttakendurn ef ráðstefnan
verður haldin hér því ég veit
fyrir vfst að mjög margir hafa
hug á því að heimsækja Island
og skoða landið, um leið og þeir
hafa gagn af ráðstefnustörf-
unum. Ráðstefnur sem þessar
hafa mikla þýðingu. Menn
kynnast hver öðrum og læra
hver af öðrum. Hlutur íslenzku
sendinefndarinnar á ráðstefn-
unni í San Fransisco var Is-
landi til mikils sóma, nefndin
var sú allra fámennasta en
framlag hennar var aftur á
móti með þvf athyglisverðasta
sem fram kom á ráðstefnunni,
sagði dr. Joseph Barnea í lok
samtals síns við Morgunblaðið.
— SS.
Lokað
í dag eftir hádegi vegna jarðarfarar.
Efnablandan h.f.
Lokað
í dag vegna jarðarfarar
TECHNICA H.F.
Frakkastíg 12.
t
ÞURÍÐUR JÚNÍUSDÓTTIR
frá Syðra-Seli
sem andaðist 22 september, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju
laugardaginn 27. september kl. 2 e.h.
Sigrtður Júnlusdóttir,
Páll Júnfus Pálsson.
Minningarathöfn um
EIRÍK ÁSGRÍMSSON
Laugarvatni
ferfram í Fossvogskirkju laugardaginn 27 septemberkl. 10.30
Jarðsett verður að Laugarvatni sama dag kl 1 5 00 og verður ferð frá
Fossvogskirkju til Laugarvatns og til baka, fyrir þá sem þess óska.
Þorbjörg Eirfksdóttir, Ásgrfmur Jónsson
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
HeiSaveg 6. Vestmannaeyjum.
Jónfna Einarsdóttir,
Guðbjörg Sigfrfð Einarsdóttir, Ásberg Lárentsfnusson,
Rannveig Snót Einarsdóttir, Hörður Sigurbjörnsson,
Jóhann Ingi Einarsson, Birna Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
í dag kl. 2—5 vegna jarðarfarar.
Lyfjabúðin Iðunn.