Morgunblaðið - 10.02.1976, Qupperneq 1
36 SÍÐUR
32. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Luns fer beint til London eftir
fundinn með Ford og Kissinger
Josef Luns með Sisco aðstoðarutanrfkisráðherra Banda-
rfkjanna á fundi þeirra á sunnudag.
London, Washington og Brtissel 9. febrúar AP — Reuter.
MIKIL fundahöld eru framundan og hafa verið yfir
helgina hjá Josef Luns, framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, vegna fiskveiðideilu Breta og
Islendinga. Framkvæmdastjórinn, sem er á ferð f
Bandarfkjunum, hefur verið f stöðugu sambandi við
brezka og fslenzka ráðamenn og hefur hann þegið boð
brezku stjórnarinnar um að koma til London á miðviku-
dag til viðræðna um landhelgismálið.
Luns ræddi landhelgismálið á
sunnudag við Joseph Sisco að-
stoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og i dag við David Rums-
feld varnarmálaráðherra, en
fyrirhuguðum fundi hans með
Ford forseta og Kissinger utan-
ríkisráðherra var frestað til
morguns, þriðjudag, þar sem
Kissinger var við sjúkrabeð konu
sinnar í Boston, en hún gekkst um
helgina undir stóra skurðaðgerð
vegna magasárs. Var Kissinger
væntanlegur til Washington seint
í gærkvöldi.
I samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi sagði Einar Ágústsson
utanríkisráðherra að hann hefði
rætt við Luns í síma frá
Washington og hefði Luns þá
skýrt sér frá viðræðunum við
Sisco svo og símtölum við sendi-
herra Breta og Þjóðverja í
Washington og Donald Rumsfeld
varnarmálaráðherra Bandarfkj-
anna.
Þá tjáði Luns Einari einnig, að
hann myndi fljúga beint til
Lundúna að loknum fundi sínum
með Ford forseta og Kissinger
utanríkisráðherra á þriðjudag og
ræða þar málið við Wilson og
fleiri ráðherra.
Sagði Einar Ágústsson að hann
hefði beðið Harold Kröyer sendi-
herra í Washington að fylgjast
með málinu eins og unnt væri.
Eins og fram kom i fréttum
eftir fund Wilsons og Schmidts
kanslara Vestur-Þýzkalands,
sagði Schmidt að hann vildi verða
milligöngumaður í d^ilunni, en
Wilson gæti hugsað sér milli-
göngu þriðja aðila.
Morgunblaðið spurði Einar
Agústsson að þvi hvort hann væri
hlynntur þvi að milligöngumaður
yrði fenginn i deilunni.
Framhald á bls. 34
Guatemala:
Tala látinna hefur margfaldazt
Guatemala-borg 9. febr. Reuter.
FORYSTUMENN erlendra hjálp-
arsamtaka sem vinna að björgun-
arstörfum í Guatemala, töldu (
dag einsýnt að tala látinna gæti
farið f fimmtfu þúsund. Vfða hafa
heil þorp þurrkazt gersamlega út
og óttazt er að
svkurakrar lands
ins séu meira og
minna eyðilagð-
ir. Opinberar
tölur um látna eru um þrettán
þúsund, slasaðir um þrjátfu þús-
und og vitað er að milli 3—400
þúsund manns hafa misst heim-
ili sfn. Enn er ekki vitað hvernig
ástandið er f fjölda mörgum þorp-
um og bæjum, þar sem hjálpar-
sveitir hafa enn ekki komizt til
allra staða á jarðskjálftasvæðinu.
Hermenn og björgunarsveitar-
menn hafa reynt eftir föngum að
halda uppi lögum og reglu i höf-
uðborginni, en þar er eymd fólks
ólýsanleg að sögn fréttamanna.
Vitað er að hermenn skutu fimm
menn til bana, er þeir voru staðn-
ir að því að stela matvælum. I
höfuðborginni leggur nályktina
um allt og mikill ótti er manna á
meðal um að hættulegar farsóttir
komi upp. Þá er hræðsla um að
annar jarðskjálfti fylgi í kjölfar-
ið, en það gerðist í landinu árið
1917 og var síðari skjálftinn jafn-
vel sterkari en hinn fyrri.
Stjórnvöld hafa reynt eftir
föngum að koma upp matvæla-
dreifistöðum og veita læknishjálp
þeim mörgu, sem slasaðir eru og
sjúkir, en allt hefur þetta gengið
mjög hægt vegna þess hve erfitt
hefur verið um vik víða úti um
landið að athafna sig. Stjórnvöld
hafa hvatt fólk til að sýna itrustu
stillingu og með þvi móti einu
muni takast að sinna þörfum
þeirra, sem eiga um sárt að binda.
Engu að síður hefur siðasta sólar-
hring hvað eftir annað komið til
átaka og slagsmála þar sem mat-
vælum er úthlutað og talsmenn
Rauða krossins hafa sagt að
óvandaðir menn fari inn á heimili
Framhald á bls. 35
Sjá grein
bls 14
Bernharð
Hollands-
prins:
Sakað-
ur um
mútu-
þægni
Haag, 9. febrúar Reuter
Hollenzka stjórnin kom sam-
an f dag ti) að skipa óháða
nefnd til að rannsaka ásakanir
um að Bernharð prins eigin-
maður Hollandsdrottningar,
hafi þegið 1.1 milljón dollara i
mútufé frá bandarfska flug-
vélafyrirtækinu Lockheed.
Bernharð prins er æðsti yfir-
maður hollenzka heraflans og
var í stjórn hollenzka flugvéla-
fyritækisins Fokker þegar það
smíðaði Starfighter-þotur með
leyfi Lockheed á árunum eftir
1960.
Joop de Uyl forsætisráð-
herra segir, að stjórn sín hafi
komizt aó þeirri niðurstöðu, að
Bernharð prins hafi verið sá
háttsetti Hollendingur sem
forstjóri Lockheed, A.C.
Kotchian, minntist á í vitna-
leiðslum i einni nefnd
öldungadeildarinnar í siðustu
viku.
De Uyl sagði að fyrirhuguð
rannsókn merkti ekki að Bern-
harð prins hafði gert sig sekan
um ámælisverðan verknað.
Sjálfur hefur prinsinn neitað
ásökununum.
Forsætisráðherrann sagði,
Framhald á bls. 34
Sjá frásagnir frá V'etrar-
olympíulcikununi
bls 15—22.
„Með nokkrum góðvílja manna
má hugsanlega finna sáttaleið”
„ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ skilur fyllilega nauðsyn þess
að fínna lausn á fiskveiðideilu Breta og tslendinga, sem lslend-
ingar geta sætt sig við og ég vona að með nokkrum góðvilja
manna verði hugsanlega hægt að finna fullnægjandi sáttaleið, en
ég hef enga fullvissu fyrir þvf,“ sagði Jósef Luns framkvæmda-
stjóri Atlantshafsabandalagsins f sfmtali við Morgunblaðið undir
miðnættið f nótt frá Washington. Aðspurður um viðræður sfnar f
Washington sagði framkvæmdastjórinn.
„Ég hef átt miklar viðræður
við bandaríska ráðherra og em-
bættismenn í gær og dag. Eg
ræddi lengi við Joseph Sisco f
gær svo og háttsetta embættis-
menn í utanríkisráðuneytinu.
Þá ræddi ég einnig við sendi-
herra Bretlands í Washington
og sendiherra V-Þýzkalands,
sem færði mér skilaboð frá
Helmut Schmidt kanslara V-
Þýzkalands. Einnig skýrði ég
— sagði Jósef Luns í samtali við Mbl.
sendiherra tslands frá
viðræðum. A morgun mun ég
snæða hádegisverð með Henry
Kissinger og eiga annan langan
fund með Joseph Sisco. Síðar
um daginn á ég svo fund með
Ford forseta í Hvíta húsinu og á
þeim fundi verða einnig Henry
Kissinger og Donald Rumsfeld
varnarmálaráðherra sem ég
ræddi við í dag ásamt háttsett-
um embættismönnum utan-
ríkisráðuneytisins. Að þeim
fundum loknum mun ég fljúga
beint til Lundúna til viðræðna
við brezku ríkisstjórnina, en
hún hefur skýrt mér frá þvi að
hún vildi mjög gjarnan að ég
kannaði möguleikana á að
draga úr spennu hins alvarlega
ástands, en brezka stjórnin vill
eyða þessari spennu.
— Teljið þér möguleika á að
hægt sé að komast að jákvæðri
niðurstöðu?
— Með nokkrum góðvilja
Framhald á bls. 35