Morgunblaðið - 10.02.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.02.1976, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1976 Spáin er fyrir daginn í dag Hrúturinn 21. marz — 19. aprll Verðu ekki of miklum tfma f dagdrauma. Góðvilji þinn gæti endurvakid ánægju- legt samhand við fólk sem stendur þér nærri. Iæggðu ekki eyrun við sögusögn- um og trúðu ekki öðrum fyrir einka- málum þfnum. Nautið 20. aprfl — 20. maf Nú er að renna upp fyrir þér mjög ánægjulegur tfmi. (ierðu þér góða grein fyrir dagsverkinu ef þú vilt að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Það ætti ekki að reynast þeim erfitt sem fæddir eru í Nautsmerkinu. Tvíburarnir 21. maf — 20. júnf Það reynir á þolinmæðina í dag en ef þú tekur öllu með heimspekilegri ró gengur allt vel. I dag skaltu Ifta yfir farinn veg og gera þér grein fyrir hvert stefnir. Krabbinn ^«4 21. júnf — 22. júlí Það er engin ástæða til að missa móðinn þó að þú hafir andhyr sem stendur. Þú ert á réttri leið. Haltu áfram við það verk sem þú vinnur að — treystu á sjálfan þig. Ljónið 23. júlf — 22. ágúst Þér verður hoðið nýtt starf en láttu það ekki freista þin. Minnstu þess að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þú hefur áhuga á starfi þfnu og mátt eiga von á miklum frama f þvf. flEf Mærin 23. ágúst — 22. sept. Láttu ekki deigan síga þó að þú standir í harðri samkeppni við menn sem sjást Iftt fyrir. Þú veizt innst inni að þú stendur þeim fyllilega á sporði. Vogin 23. sept. — 22. okt. Kunnátta þín og þekking á þeim málum sem þú hefur með að gera kemur sér mjög vel í dag. Stjörnurnar eru mjög hlynntar nýjum tilraunum ef þú gætir þess að spenna hogann ekki of hátt. Drekinn 23. okt. — 21. nóv. Stjörnuarnar hafa fátt til málanna að leggja í dag svo að allt er undir sjálfum þér komið. Vertu viss um að hverju þú stefnir og hagaðu þér f samræmi við það. Flýttu þér hægt. Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des. Þú ert stundum nokkuð vanstilltur en stjörnurnar ráða þér frá að stökkva upp á nef þér þó að þér finnist gengið á rétt þinn. Teldu upp að tfu áður en þú svarar fyrir þig. Steingeitin 22. des. — 19. jan. Nú er rétt að sækja heim frændur og vini og endurnýja gömul kynni. Skemmti- legar samræður geta orðið uppspretta nýrra áhugamála og ýmiss konar félags- starfa. SElfá! Vatnsberinn 20. jan. — 18. feb. Stjörnurnar gefa til kynna. að ýmsar hindranii verði í vegi þínum. en ef þú ert ákveðinn munfu sigrasf áöllum erfið- leikum. Vertu útsjónarsamur. það kann að ríða baggamuninn. Fiskarnir 19. feb. — 20. marz Vertu stórhuga og tefldu djarft. Láttu dugnað og samvízkusemi vera þitt leiðar- Ijós f dag. Sfjörnurnar styðja þá sem takast á við vandann af einurð og festu. TINNI þaS er þá a/vey öruggt, að þú segir engurrr frá þess u L eynda rdó murirrrr /rgaur þgk UÓSKA KÖTTURINN FELIX FERDINAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.