Morgunblaðið - 10.02.1976, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1976
Spáin er fyrir daginn í dag
Hrúturinn
21. marz — 19. aprll
Verðu ekki of miklum tfma f dagdrauma.
Góðvilji þinn gæti endurvakid ánægju-
legt samhand við fólk sem stendur þér
nærri. Iæggðu ekki eyrun við sögusögn-
um og trúðu ekki öðrum fyrir einka-
málum þfnum.
Nautið
20. aprfl — 20. maf
Nú er að renna upp fyrir þér mjög
ánægjulegur tfmi. (ierðu þér góða grein
fyrir dagsverkinu ef þú vilt að allt gangi
snurðulaust fyrir sig. Það ætti ekki að
reynast þeim erfitt sem fæddir eru í
Nautsmerkinu.
Tvíburarnir
21. maf — 20. júnf
Það reynir á þolinmæðina í dag en ef þú
tekur öllu með heimspekilegri ró gengur
allt vel. I dag skaltu Ifta yfir farinn veg
og gera þér grein fyrir hvert stefnir.
Krabbinn
^«4 21. júnf — 22. júlí
Það er engin ástæða til að missa móðinn
þó að þú hafir andhyr sem stendur. Þú
ert á réttri leið. Haltu áfram við það verk
sem þú vinnur að — treystu á sjálfan þig.
Ljónið
23. júlf — 22. ágúst
Þér verður hoðið nýtt starf en láttu það
ekki freista þin. Minnstu þess að enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Þú hefur áhuga á starfi þfnu og mátt eiga
von á miklum frama f þvf.
flEf Mærin
23. ágúst — 22. sept.
Láttu ekki deigan síga þó að þú standir í
harðri samkeppni við menn sem sjást Iftt
fyrir. Þú veizt innst inni að þú stendur
þeim fyllilega á sporði.
Vogin
23. sept. — 22. okt.
Kunnátta þín og þekking á þeim málum
sem þú hefur með að gera kemur sér
mjög vel í dag. Stjörnurnar eru mjög
hlynntar nýjum tilraunum ef þú gætir
þess að spenna hogann ekki of hátt.
Drekinn
23. okt. — 21. nóv.
Stjörnuarnar hafa fátt til málanna að
leggja í dag svo að allt er undir sjálfum
þér komið. Vertu viss um að hverju þú
stefnir og hagaðu þér f samræmi við það.
Flýttu þér hægt.
Bogmaðurinn
22. nóv. — 21. des.
Þú ert stundum nokkuð vanstilltur en
stjörnurnar ráða þér frá að stökkva upp á
nef þér þó að þér finnist gengið á rétt
þinn. Teldu upp að tfu áður en þú svarar
fyrir þig.
Steingeitin
22. des. — 19. jan.
Nú er rétt að sækja heim frændur og vini
og endurnýja gömul kynni. Skemmti-
legar samræður geta orðið uppspretta
nýrra áhugamála og ýmiss konar félags-
starfa.
SElfá! Vatnsberinn
20. jan. — 18. feb.
Stjörnurnar gefa til kynna. að ýmsar
hindranii verði í vegi þínum. en ef þú
ert ákveðinn munfu sigrasf áöllum erfið-
leikum. Vertu útsjónarsamur. það kann
að ríða baggamuninn.
Fiskarnir
19. feb. — 20. marz
Vertu stórhuga og tefldu djarft. Láttu
dugnað og samvízkusemi vera þitt leiðar-
Ijós f dag. Sfjörnurnar styðja þá sem
takast á við vandann af einurð og festu.
TINNI
þaS er þá a/vey öruggt, að
þú segir engurrr frá þess u
L eynda rdó murirrrr /rgaur þgk
UÓSKA
KÖTTURINN FELIX
FERDINAND