Morgunblaðið - 10.02.1976, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1976
fltargmiftbifeUt
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10 100.
Aðalstræti 6, sími 22 4 80
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Síðustu daga, eða frá því
að brezki flotinn kom á ný
inn í íslenzka fiskveiðilögsögu,
hafa talsverðar umraeður orðið
um það, hvort slíta bæri stjórn-
málasambandi við Breta þegar
í stað vegna hinnar nýju flota-
íhlutunar. Margir virðast líta
svo á, að yfirlýsing ríkisstjórn-
arinnar um slit stjórnmálasam-
bands frá því í janúarmánuði
eigi við um þær aðstæður sem
nú hafa skapazt. Ástæða er því
til að staldra við þessa
spurningu.
Þegar ríkisstjórnin gaf út yfir-
lýsingu sína i janúarmánuði
kvað hún augljóst, að ítrekaðar
ásiglingar brezkra freigátna á
íslenzk varðskip mundu leiða til
slita á stjórnmálasambandi.
Slík ásigling hafði átt sér stað
áður en yfirlýsingin var gefin út
og einnig daginn eftir að hún
var gefin út. Þá var þvi lýst yfir,
að endanleg ákvörðun um slit á
stjórnmálasambandi yrði ekki
tekin fyrr en sjópróf hefðu farið
fram og sérstök sérfræðinga-
nefnd fjallað um niðurstöður
sjóprófa. Þegar það hafði gerzt,
lýsti ríkisstjórnin yfir þvi, að
stjórnmálasambandi yrði slitið
við Breta innan tiltekins tima,
ef brezki flotinn hefði ekki horf-
ið úr íslenzkri fiskveiðilögsögu
innan þeirra tímamarka.
í kjölfar þessara yfirlýsinga
og aðgerða ríkisstjórnarinnar
hvarf brezki flotinn á brott, við-
ræður hófust, sem báru ekki
árangur og nú hefur brezki flot-
inn komið inn í íslenzka fisk-
veiðilögsögu á ný. Ástæða ertil
að undirstrika, að hvorki 1 958,
í maí 1973 eða í nóvember og
desember 1975 var flotaíhlut-
un í sjálfu sér talin forsenda
slita á stjórnmálasambandi við
Breta. Það voru fyrst og fremst
ásiglingar brezkra freigátna á
íslenzk varðskip, sem leiddu til
yfirlýsinga um slit á stjórnmála-
sambandi, bæði haustið 1973
og í janúar 1976. Augljóst er,
að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í
janúarmánuði síðastliðnum
getur ekki sjálfkrafa átt við
ástandið nú af þeirri einföldu
ástæðu, að hún þjónaði
ákveðnum tilgangi á tilteknum
tíma og atburðarásin hefur ver-
ið svo hröð, að við þær aðstæð-
ur sem nú ríkja, hlýtur ríkis-
stjórnin að þurfa að taka nýjar
sjálfstæðar ákvarðanir, óháðar
hinum fyrri um þessi efni. Mið-
að við fyrri þorskastríð ætti
flotaihlutunin ein út af fyrir sig
því ekki að teljast forsenda fyrir
slitum á stjórnmálasambandi.
Hins vegar kann ásiglingin á Tý
á dögunum að vekja upp þá
spurningu, hvort þar sé komin
svipuð forsenda og áður hefur
leitt til yfirlýsinga um slit á
stjórnmálasambandi. í því efni
er rétt að benda á, að sjópróf
hafa enn ekki farið fram vegna
þeirrar ásiglingar og sér-
fræðinganefnd hefur því ekki
yfirfarið gögn sjóprófa, þannig
að þegar af þeirri ástæðu sýnist
ekki vera hægt að krefjast slíkr-
ar ákvörðunar nú á þessari
stundu. Einnig er ástæða til að
benda á, að í janúarmánuði
taldi ríkisstjórnin að ítrekaðar,
þ.e. margendurteknar, ásigl-
ingar á íslenzk varðskip hlytu
að leiða til slita á stjórnmála-
sambandi, en eftir flotaíhlutun
Breta hina nýju er margendur-
teknum ásiglingum ekki enn til
að dreifa, hvað svo sem verður
þegar frá líður.
Þegar menn ræða slit á
stjórnmálasambandi, er ástæða
til að vega kosti þess og galla
út frá hagsmunum íslendinga í
fiskveiðideilunni. Hvaða mark-
miðum náum viðfram með slit-
um á stjórnmálasambandi við
núverandi aðstæður? Einar
Ágústsson, utanríkisráðherra,
sagði réttilega ! umræðum á
Alþingi i gær, að Bretar mundu
ekki hætta að veiða smáfiskinn
á íslandsmiðum, þótt við
slítum stjórnmálasambandi og í
þessari einu setningu utanríkis-
ráðherra felst auðvitað kjarni
málsins. Við náum ekki fram
aukinni friðun á íslandsmiðum
með slitum á stjórnmálasam-
bandi en það er markmið okkar
með útfærslunni og öllum þeim
aðgerðum, sem í kjölfar hennar
hafa fylgt. Við höfum tvívegis
reynslu af því að yfirlýsing um
væntanleg slit á stjórnmála-
sambandi hefur verið áhrifarfk
ásamt stuðningi frá Atlants-
hafsbandalaginu. Haustið
1973 og nú fyrir nokkrum vik-
um hvarf brezki flotinn á braut
úr íslenzkri fiskveiðilögsögu eft-
ir slíka yfirlýsingu og atbeina
Atlantshafsbandalagsins. Mun-
urinn er hins vegar sá að í fyrra
tilvikinu leiddu viðræður til
samninga en í síðara tilvikinu
náðist ekki samkomulag í kjöl-
far slíkra viðræðna. Ef fs-
lendingar slíta stjórnmálasam-
bandi við Breta mundi það að
sjálfsögðu vekja mikla athygli
en hefur það einhver áhrif?
Líklegra er, að hótun um slit á
stjórnmálasambandi sé áhrifa-
meiri en framkvæmdin sjálf.
Líklegt er, að þær fjölmörgu
þjóðir innan Atlantshafsbanda-
lagsins, sem nú beita áhrifum
sínum gagnvart Bretum,
mundu fella slíkar aðgerðir nið-
ur og líta svo á, að í kjöfar á
slitum stjórnmálasambands
milli þjóðanna væri tilgangs-
laust að reyna að koma á mála-
miðlun fyrr en eftir alllangan
tíma.
Þá hljótum við einnig að
spyrja hvernig fara mundi um
önnur samskipti okkar við
Breta, ef við slítum stjórnmála-
sambandi við þá. Ef á annað
borð yrði gripið til slíkra að-
gerða gætum við varla verið
þekktir fyrir annað en fylgja
þeim eftir með þeim hætti að
skera á öll tengsl og samskipti
við Bretland. í því mundi felast
að við mundum skipa
íslenzkum námsmönnum, sem
í Bretlandi eru við nám, að
koma heim, enda gætu þeir
varla þegið gistivináttu og
kennslu í brezkum skólum eftir
slíkan atburð í samskiptum
þjóðanna. Þá mundum við
væntanlega leggja niður allt
áætlunarflug milli íslands og
Bretlands og ferðir íslenzkra
flutningaskipa þangað mundu
væntanlega stöðvast Enn-
fremur mundum við væntan-
lega taka fyrir öll viðskipti við
Bretland, ferðalög almennings
til Bretlands, ferðir sjúklinga til
lækninga í Bretlandi og yfirleitt
mundum við skera á öll
hugsanleg tengsl milli íslands
og Bretlands, enda mundi það
eitt vera okkur samboðið ef á
annað borð væri gripið til slita á
stjórnmálasambandi. Þegar við
höfum þetta í huga hljótum við
að spyrja okkur sjálf, hvort allt
þetta mundi þjóna hagsmun-
um okkar í landhelgismálinu.
í þingræðu í gær lýsti Lúðvík
Jósepsson þeirri skoðun sinni,
að þegar í stað ætti að slíta
stjórnmálasambandi við Breta
en jafnframt sagði hann, að við
þyrftum að stórauka áróður
okkar á aðþjóðavettvangi. Slit
á stjórnmálasambandi mundi
að sjálfsögðu leiða til lokunar
íslenzka sendiráðsins í London
en það hefur verið ein helzta
miðstöð upplýsingastarfsemi
okkar í Bretlandi og þar hefur
verið haldið svo á þeim málum,
að við höfum unnið verulega
sigra í upplýsingastríðinu svo-
nefnda. Augljóst má vera, að
slit á stjórnmálasambandi
mundi torvelda okkur mjög
nýja sókn í upplýsingastríðinu,
sérstaklega á brezkum vett-
vangi, þar sem það skiptir
kannski langmestu máli.
Þegar á allt þetta er litið
sýnist full ástæða til þess að
ríkisstjórnin athugi vel sinn
gang áður en hún stígur það
skref að slíta stjórnmálasam-
bandi við Breta. Meiri.ástæða
sýnist til þess að gefa þeim
öflum, sem nú eru að verki í
þágu íslenzkra hagsmuna,
tækifæri til þess að ná einhverj-
um árangri. Menn taki eftir því,
að landheigisdeila íslendinga
hefur nú síðustu daga verið
rædd af ýmsum helztu ráða-
mönnum hins vestræna heims.
Dr. Joseph Luns mun ræða
hana við Ford, Bandaríkja-
forseta, og Kissinger, utanríkis-
ráðherra í dag og Helmut
Schmidt, kanslari Vestur-
Þýzkalands, ræddi hana við
Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta. Það sýnist fremur
vera í þágu íslenzkra hags-
muna nú að gefa þeim öflum,
sem þarna eru að verki, tæki-
færi til þess að ná árangri.
Árið 1973 varaði Morgun-
blaðið við, að við rösuðum um
ráð fram og slitum stjórnmála-
sambandi við Breta. Þá var
vinstri stjórn. Enn sem komið
er, hefur Morgunblaðið sömu
skoðun, enda fara skoðanir
Morgunblaðsins ekki eftir því
hverjir sitja í stjórn og hverjir
ekki. Þar sitja hagsmunir ís-
lands einir í fyrirrúmi.
Á að slíta
stjómmálasambandi?
Hamfarirnar í Guatemala:
„Mörg þorp hafa
bu rrl kazt ú t
af yi irl jorðin .u”
GUATEMALA-borg 9. febr.
Reuter. AP.
„MÖRG þorp og bæir virðast hafa
þurrkazt gersamlega út af yfir-
borði jarðar I miShluta Guatemala
og annars staðar blasa við ömur-
legar rústir og eitt og eitt hus í
stangli sem virðist hafa staðizt
skjálftana. Hvarvetna sáum við
leifar af brúm sem brotnaS höfSu
og hruniS og vegir höfSu hreinlega
horfiS. V(8a I þorpum sem
hjálparsveitir höfSu komizt til
sáum vi8 langar biSraSir fólks
hungraS og slasaS. Fólk gengur
um eins og I dái og leitar a8
ættingjum sinum, neySin og sorg-
in og eySileggingin er slik a8
henni ver8ur ekki me8 orSum
lýst. .
Þannig segir fréttamaður Reuters
Antonio Monzon frá ferð, sem hann
fór um helztu hluta Guatemala I gær
ásamt varnarmálaráðherra landsins
Lucas Garcia, sem er yfirmaður
hjálparstarfsins I landinu
Hann segir að þar sem þv! hafi
verið við komið hafi verið komið upp
bráðabirgðabúðum fyrir fólk en tugir
þúsunda hafi orðið að sofa úti undir
beru lofti f köldu veðri og tíundi hver
maður hafi lltið sem ekkert fengið að
borða slðan á miðvikudag. Frétta-
maðurinn segir að hvar sem þeir
komu hafi ótti fólks við annan jarð-
skjálfta og jafnvel enn harðari verið
rikjandi og enda þótt sumir gætu
hafzt við I húsarústum þyrðu þeir
það ekki vegna þess að þeir óttuðust
frekari náttúruhamfarir.
Sérfræðingar hafa ekki treyst sér
til að kveða upp úr með það, að ekki
komi fleiri skjálftar, þar sem ókyrrð
hefur verið síðan á miðvikudag,
enda þótt fæstir þeir kippir hafi verið
umtalsverðir I samanburði við þann
skjálfta sem kom á miðvikudaginn.
Enda þótt ástandið I höfuð-
borginni hafa skánað verulega og
sæmileg skípan sé að komast á
matvæladreifingu og hjúkrunarmál
er þó mjög ömurlegt ástand I
fátækrahverfum borgarinnar þar
sem kofar og hreysi Ibúa hafa ger-
eyðilagzt og fólkið hefur varla að
neinu að hverfa. Ungur bllstjóri
sagði Reuters-fréttamanni að hann
vonaðist til að geta byggt upp fátæk-
legt hús fjölskyldu sinnar, en nokkrir
mánuðir kynnu að llða þar til efni
yrðu næg til þess Hann sagði að
hann og fjölskyldan væru þó
mörgum öðrum heppnari, þar sem
þau hefðu öll sloppið ómeidd og
þeim hefði tekizt að bjarga nokkru af
fátæklegum eigum sínum og hann
gæti stundað vinnu sína.
Læknar, sem vinna að hjálpar-
störfunum, segja að þjáningar fólks-
ins séu ægilegar. Margir hafa legið
klemmdir undir húsarústum I tvo
sólarhringa þar til tókst að bjarga
þeim meira og minna limlestum.
Hundruð þúsunda manna hafi
hvorki bragðað vott né þurrt slðan á
miðvikudag og vonleysi og ótti hafi
verið I þann veginn að grlpa fólkið
heljartaki Þar sem svo virðist að
hjálparstarfið sé vel skipulagt og allt
virðist gert sem I mannlegu valdi
stendur til að bregða við skjótt sjáist
þess þó merki að fólkið sé ekki jafn
örvæntingarfullt og útlit var fyrir
Myndin er frá höfuðborg Guatemala og tekin daginn eftir jarSskjðlftann
mikla. Hún gefur nokkra mynd af eyBilegginaunni I borainni
Gomul kona og nokkur ung böm sem hafa orðið að hafast vi8 úti undir
beru lofti slðan jarSskjálftarnir ur8u. Vonleysið á andlitum fólksins
leynir sár ekki.