Morgunblaðið - 10.02.1976, Qupperneq 15
3WorjumWnftifr
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1976
15
HftrðHirl
Akurnesingar
komu á óvart
HÖRÐUR Ragnarsson og
Jóhannes Guðjónsson frá
Akranesi unnu nokkuð óvæntan
sigur f tvfliðaleik badmintonmóts
KR sem fram fór um helgina.
Sigruðu þeir þá Steinar Pedersen
og Haraid Kornelfusson úr TBR f
mjög skemmtilegum úrslitaleik
sem fór f odd: 15—6, 12—15 og
15—3. Er greinilegt að Islands-
meistararnir frá f fyrra eru nú
nokkuð frá sfnu bezta, og ekki
eins óvinnandi vfgi og þeir hafa
löngum verið.
1 undanúrslitunum höfðu þeir
Hörður og Jóhannes lagt Sigurð
Haraldson og Jóhann Kjartansson
að velli í jöfnum leik: 15—13 og
15—13, en Haraldur og Steinar
höfðu sigrað félaga sfna úr TBR,
Ottó Guðjónsson og Sigfús Ægi
Árnason, 15—9 og 15—9.
1 tvfliðaleik kvenna sigruðu
Lovfsa Sigurðardóttir og Hanna
Lára Pálsdóttir þær Ernu Frank-
lín og Svanbjörgu Pálsdóttur og
þurfti oddaleik til að fá fram
úrslitin. Urðu úrslit leiksins
11—15, 15—13 og 15—2 fyrir
Lovísu og Hönnu Láru.
Valsmenn
A SUNNUDAGINN fór fram f
hinu nýja Iþróttahúsi Akur-
nesinga innanhússknattspyrnu-
mót með þátttöku allra 1. deildar
liðanna. Var keppt f tveimur riðl-
um og fóru leikar svo, að Vals-
menn sigruðu f öðrum riðlinum
með yfirburðum, en KR-ingar
unnu sigur f hinum riðlinum,
höfðu þar jafnmörg stig og
sigruðn
Akurnesingar, en hins vegar hag-
stæðara markahlutfall.
t úrslitaleiknum hafði Valur
betur allan leikinn og sigraði
verðskuldað 4—1. Er ekki ósenni-
legt að Valsmönnum takist að
krækja f Islandsmeistaratitilinn f
þessari fþrótt, er keppt verður f
Laugardalshöllinni um næstu
helgi.
lslenzku keppendurnir f Alpagreinum á Olympfuleikunum f Innsbruck. Frá vinstri. Hermann
Sigtryggsson, fararstjóri, Ami Öðinsson, Tómas Leifsson, Sigurður Jónsson, Haukur Jóhannsson,
Steinunn Sæmundsdóttir og Jórunn Viggósdóttir.
Allgóð frammistaða Islendinganna
Frá Þórleifi Ólafssyni blaðamanni
Mbl. i Innsbruck.
ftalski skiðagarpurinn Gustavo
Thoeni er I fyrsta sæti i stórsvigi
karla eftir fyrri ferðina, sem farin var
I Lizum i gær. Næstur á eftir honum
er Good Ernst frð Sviss og landi
hans Heini Hemmi er i þriðja sæti.
Sviinn ungi, ingemar Stenmark, er i
sjötta sæti eftir fyrri ferðina næstum
2,5 sekúndum á eftir Thoeni. Menn
höfðu almennt búizt við að Sten-
mark yrði fyrstur eftir fyrri ferðina,
en um miðja brautina fór hann sér
rólega. Annars er það ekkert nýtt, að
Stenmark sé ekki fyrstur eftir fyrri
umferð i svigi og stórsvigi. Hann
virðist taka lifinu með ró eins og
hann gerir yfirleitt, en i seinni ferð-
inni kemur hann oftast eins og
skrattinn úr sauðarleggnum og treð-
ur sér fram fyrir alla.
Fjórir fslendingar kepptu i stór-
sviginu i gær og gekk þeim vonum
framar miðað við að þeir voru með
þeim öftustu i rásröðinni. Sigurður
Jónsson er I 58. sæti með timann
1:58,46 mfn. (Timi Thoenis er
1:44,19). Sigurður hafði rásnúmer
78. Haukur Jóhannsson er i 65. sæti
(rásnúmer 75). Hann fékk timann
2:01.76 min. Tómas Leifsson er i
68. sæti (rásnúmer 84), en hann
kom i mark á 2:01,83 min. og Ámi
Óðinsson er 74. (rásnúmer 90) hann
kom i markið á 2:05,28 min.
Alls tóku 100 keppendur þátt i
keppninni, en 84 komust á leiðar-
enda. Meðal þeirra sem féllu úr voru
Norðmaðurinn Erik Haaker, landi
hans Odd Sörli og Ólympiusigurveg-
arinn i bruni, Franz Klammer, sem
sleppti hliði og hætti keppni.
Ingemar Stenmark var að þvi
spurður i gær hver ástæðan væri
fyrir þvi að hann hefði ekki náð betri
tima i stórsviginu. Hann sagðist hafa
farið varlega i miðhluta brautarinnar
og ætlað sér að bæta það upp með
þvi að fara hratt siðasta kaflann, en
það hefði ekki dugað. — En keppn-
inni lýkur ekki fyrr en á morgun,
sagði Stenmark.
Morgunblaðið ræddi við fslending-
ana fjóra eftir að þeir höfðu lokið
keppni i gær. Þeir sögðu að brautin
hefði ekki verið erfið en færið hins
vegar afar slæmt. Þegar þeir hefðu
lagt af stað hefðu þeir orðið að skiða
á grasi á köflum, þar sem þeir sem
fyrstir fóru grófu brautina niður. Þá
voru þeir mjög óvanir að skiða á svo
hörðu færi sem var yfirleitt i braut-
inni. — Við erum heldur ekki miklu
betri en þetta, það er grátleg stað-
reynd, sagði Haukur Jóhannsson.
fslendingarnir fá betri rásnúmer i
seinni ferðinni en i þeirri fyrri, þar
sem röð manna ræður rásnúmeri, i
seinni ferðinni. Þannig færist t.d.
Sigurður Jónsson fram fyrir 20
keppendur, Haukur Jóhannsson
einnig fram um 20, Tómas Leifsson
færist fram um 24 og Ámi Óðinsson
um 16.
Glœsilegur íslenzkur sigur
í júdólandskeppninni við Noreg
fSLENZKA júdólandsliðið náði frá-
bærum árangri I landskeppninni
við Norðmenn sem fram fór 1
iþróttahúsi Kennaraháskólans á
laugardaginn. Sigruðu fslendingar
I 14 viðureignum af 20, Norð
menn sigruðu I 5 en einni lauk
með jafntefli. Þetta var þvi is-
lenzkur sigur 14:5. Voru forráða-
menn islenzka Júdósambandsins
á einu máli um það eftir keppnina
að árangur islenzka liðsins hefði
farið fram úr björtustu vonum að-
standenda þess. Vitað er, að Norð-
menn eru sterkir um þessar mund-
ir, þeir unnu t.d. Dani ekki alls
fyrir löngu með 11 vinningum
gegn 5, Til marks um yfirburði
íslenzka liðsins I landskeppninni á
laugardaginn má nefna, að A-lið
okkar vann bæði A og B-lið Norð-
manna en B-lið okkar vann B-lið
Norðmanna og náði jöfnu gegn
A-liði þeirra. Allir islenzku kepp-
endurnir hlutu vinning og 10 við-
ureignir unnu okkar menn á Ippon
sem er algjört fall og gefur 10
stig. Norðmenn unnu aðeins eina
viðureign á Ippon. Fullt hús var af
áhorfendum og góð stemmning og
voru islenzku keppendurnir óspart
hvattir til dáða.
A-lið fslands gegn A-liði Noregs
4.1
Fyrst leiddu A-lið landanna saman
hesta sina og náði islenzka liðið
strax góðu forskoti.
Léttvigt, Jóhannes Haraldsson-
Tore Betg 1.0. Jóhannes var allan
tímann betri aðilinn Norðmaðurinn
náði eitt sinn hættulegu bragði en
Jóhannes snéri sig vel úr þvl og
vann stig. Hann sigraði með 5 stig-
um.
Léttmillivigt, Halldór Guð-
björnsson — Petter Lind 1:0. Hall-
dór náði afgerandi bragði og Norð-
maðurinn gaf merki um uppgjöf.
„Betri útkoma en
nokkur bjóst við”
EYSTEINN Þorvaldsson formadur Júdósambands
Islands var í sjöunda himni yfir frammistöðu sinna
manna þegar Morgunhlaðiö hitti hann að máli eftir
keppnina.
„Ég er mjög ánægður með útkomuna, það segir
sig sjálft. Allir okkar menn stóðu sig betur en
nokkur þorði að vona,“ sagði Eysteinn. „Þetta ætti
að sýna íslenzkum júdömönnum hvað það þýðir að
æfa vel. Eg trevsti því að þeir haldi áfram að
ástunda íþrótt sína eins vel og þeir hafa gert í vetur,
því framundan eru mikil verkefni. Norðurlanda-
mótið, Evrópumótið og loks Olympíuleikarnir.
Frammistaðan á tveimur fyrrnefndu mótunum
mun skera úr um það hvort íslenzkir júdómenn
verða með á Ölympíuleikunum og vissulega er það
stóri draumurinn,“ sagði Eysteinn að lokum.
Hart barizt f landskeppni Islands og Noregs
Halldór vann á Ippon, 10 stigum.
Millivigt, Viðar Guðjohnsen-
Karstein Hansen, 1:0. Tilþrifalltil
viðureign I byrjun en siðan fór að
hitna I kolunum. Norðmaðurinn
reyndi bragð en Viðar sá við honum
og vann glæsilega á Ippon.
Léttþungavigt, GIsli Þorsteinsson-
Per Steinar Ottestad 1:0. Glsli var
betri aðilinn I viðureigninni og vann
á 5 stigum.
Þungavigt, Svavar CarlsenUohn
Lysholt Petersen 0:1. Hinn kunni
þungavigtarmaður Erik Haugen kom
ekki til keppninnar og kom ungur
júdómaður að nafni Petersen I hans
stað. Svavar sótti meira I viðureign
þeirra en Norðmaðurinn varðist vel.
Hann náði slðan að koma einu
bragði á á Svavar seint I gllmunni
og vann því óvænt á 5 stigum.
B-lið fslands gegn B-li8i Noregs
3:2.
Léttvigt, Sigurður Pálsson-Geir
Otterbeck 0:1. Norðmaðurinn var
allan tlmann sterkari aðilinn og vann
á Ippon, afgerandi bragði sem gaf
honum 10 stig
Léttmillivigt, Ómar Sigurðsson-
Uli Berget 1:0. Ómar gllmdi vel en
virkaði úthaldslltill Hann vann á 5
stigum en Norðmaðurinn hlaut auk
þess 7 refsistig
Millivigt, Kári Jakobsson-Öysten
Hagen 1:0. Þessi viðureign var stutt
og snaggaraleg. Kári náði afgerandi
bragði eftir nokkrar sekúndur og
vann glæsilega á Ippon.
Léttþungavigt, Benedikt Páisson-
Sven Kjensrud 1:0. Norðmaðurinn
tók bragð en Benedikt snéri þvl upp
I gagnsókn og náði fastataki I gólfi
sem hann gat haldið I 30 sekúndur
og vann þvl á Ippon.
Þungavigt, Hannes Ragnarsson-
Örn Terje Foss 0:1. Þetta var fjörug
viðureign sem lyktaði með þvi að
Norðmaðurinn hafði betur og sigr-
aði á 5 stigum
B-H8 Islands gegn A-liSi Noregs
2:2.
Léttvigt, Sigurður Pálsson-Tore
Bergl :O.Sigurður var nú allur annar
en I fyrstu gllmunm Hann var allan
timann betri og gerði sér litið fyrir
undir lokin og skellti Norðmannin-
um óvænt og sigraði á Ippon við
mikinn fögnuð viðstaddra.
Léttmillivigt, Ómar Sigurðsson-
Petter Lind V2.V2. Þetta var allfjörug
viðureign Norðmaðurinn náði
þremur stigum en Ómari tókst að
jafna metin á siðustu sekúndunum
Jafnt þrjú stig gegn þremur.
Millivigt, Kári Jakobsson-Karsten
Hansen 0:1. Þetta var jöfn viðureign
en Norðmaðurinn sigraði á vitastig-
um sem dæmd voru á Kára fyrir að
stíga út fyrir keppnisvöllinn.
Léttþungavigt, Benedikt Pálsson-
Per Steinar Otterstad 0 1 Norðmað-
urinn sigraði á 5 stigum, en Bene-
dikt náði sér aldrei vel á strik
Þungavigt, Hannes Ragnarsson-
John Lysholt Petersen 1:0. Þetta var
óvæntur en verðskuldaður sigur
Hannes náði fastataki 1 gólfi og hélt
andstæðingi sínum i 30 sekúndur
og sigraði á Ippon.
A-lið fslands gegn B-liði Noregs
5:0.
Léttvigt, Jóhannes Haraldsson-
Geir Otterbeck 1:0 Jóhannes var
betri aðilinn allan timann en sigraði
þó heldur naumt með 3 stigum.
Léttmillivigt, Halldór Guð-
björnsson-Ulf Berget 1:0. Halldór
var sterkari maðurinn alveg eins og
ifyrri viðureign sinni og vann á 7
stigum.
Millivigt, Viðar Guðjohnsen-
Öysten Hagen 1:0. Viðar hafði
mikla yfir burði og sigraði á Ippon.
Er Viðar greinilega I mjög góðri
æfingu.
Léttþungavigt, Glsli Þorsteinsson-
Sven Kjensrud 1:0 Gisli er einnig I
mjög góðri æfingu að þvi er virðist
og hann vann andstæðfng sinn
snaggaralega á Ippon.
Svavar Carlsen-Örn Terje Foss
1:0. Svavar kom mjög ákveðinn tii
leiks eftir hið óvænta tap gegn Pe-
tersen. Liðu aðeins nokkrar sekúnd-
ur þar til Foss lá I gólfinu og Svavar
hafði unnið á Ippon.
Þetta er önnur landskeppni Is-
lendinga þar sem teflt er fram 10
manna sveitum. Fyrri landskeppnin
með þvl formi var við Norðmenn úti
i Noregi 1974 og unnu Norðmenn
þá 12:7, þannig að framfarir ís-
lenzku júdómannanna eru umtals-
verðar.
S.S.