Morgunblaðið - 10.02.1976, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRtJAR 1976
23
Thatcher
fékk þorsk
London, 9. febrúar. AP
FRtJ Margaret Thatcher, leió-
toga brezka Ihaldsflokksins,
var afhentur frystur þorskur
þegar hún ávarpaði þing ungra
fhaldsmanna og svaraði fyrir-
spurnum fundarmanna f Scar-
borough um helgina.
Guy Harrison foringi ungra
fhaldsmanna frá Hull, spurði
hana hvað thaldsflokkurinn
mundi gera f fiskveiðimáíum
ef hann væri f rfkisstjórn og
hvað henni fyndist um þorska-
strfð tslendinga og Breta.
Þegar Harrison spurði að
þessu gengu þrfr félagar hans
klæddir sjóstökkum upp á
ræðupallinn með þorskinn sem
gekk á milli manna á pallinum.
Frú Thatcher sagði: „t
svipinn stunda menn okkar lög-
legar fiskveiðar og við verðum
að vernda líf borgara okkar
sem stunda lögleg störf.“
Hún kallaði brezka sjómenn
„einhvern frábærasta hóp
manna f Bretlandi" og sagði að
það yrði að vernda þá.
„Þeir eru trúir for-
göngumenn hins frjálsa
framtaks og þeir stunda störf
sín við hin erfiðustu skilyrði.
Við erum þakklát þeim fyrir þá
björg sem þeir færa f bú.“
Hún sagði að komizt hefði
verið hjá sliti á stjórnmálasam-
bandi Bretlands og Islands og
bætti við: „og við getum haldið
áfram viðræðum um að ná ein-
hvers konar samkomulagi milli
þjóðanna."
Hún sagði að ef ekki tækist
alþjóðlegt samkomulag yrði að
kanna aðrar leiðir „því það yrði
afskaplega alvarlegt mál fyrir
þjóðina.“
Frú Thatcher veifar þorskinum á fundi ungra íhaldsmanna. stmamynd ap
Japan:
Þingrannsókn
í Lockheedmáli
Tokyo, 9. febrúar.
AP. Reuter
JAPANSKA stjórnin ákvað f dag
að kalla átta menn fyrir þing-
nefnd til að svara ásökunum um
að þeir hafi þegið greiðslur frá
flugvélafyrirtækinu Lockheed.
A.C. Kotchian, einn af fram-
kvæmdastjórum Lockheed, sagði í
vitnaleiðslum fyrir einni nefnd
bandarfsku öldungadeildarinnar i
síðustu viku, að fyrirtækið hefði
greitt 12.3 milljónir dollara í
Japan á árunum 1958 til 1975 til
að auka sölu sfna þar og að talið
væri að hluti upphæðarinnar
hefði farið til nokkurra háttsettra
embættismanna.
Kotchian nafngreindi þá átta
menn, sem nú hefur verið ákveðið
að kalla fyrir þingnefndina í
Framhald á bls. 35
Aftökurnar í Angóla:
Wilson telur frétt-
ina geta verið sanna
London 9. febr. Reuter. AP
TÖLUVERÐUR fjöldi brezkra
málaliða mun hafa látið lffið á
vfgvellinum f Angóla, sagði
Harold Wilson á fundi í Neðri
málstofunni f dag. Forsætisráð-
herrann gaf einnig f skyn, að
„einhver sannleikur" virtist vera
f fréttum þess efnis, að fjórtán
málaliðar hefðu verið teknir af
lífi af félögum þeirra fyrir að
reyna að komast hjá þvf að taka
þátt f bardögunum. Wilson sagði,
að enn hefði þó ekki tekizt að fá
opinbera staðfestingu á þessari
frétt, en margt benti til, að hún
væri sönn. Wilson kvaðst vonast
til að geta fjallað ftarlegar um
málið á þingfundi á morgun.
Er nú talið vfst að ríkisstjórnin
muni beitt gífurlegum þrýstingi
til að hún skerist í leikinn og
banni að brezkir menn gerist
málaliðar í Angóla. Fram að þessu
munu um 150 Bretar hafa farið
þangað.
Aftur á móti sagði talsmaður
þeirrar umboðsskrifstofu í Lond-
on, sem hefur haft milligöngu um
ráðningu brezkra málaliða til að
berjast gegn hersveitum MPLA í
Angóla, um helgina, að engarstað
Framhald á bls. 35
\V/
ERLENT
Gaddafi
London, 9. febrúar. Reuter.
Forseti Lfbýu, Muammar
Gaddafi ofursti, gaf hryðjuverka-
manninum Carlos eina milljón
punda I verðlaun fyrir ránið á
ráðherrum OPEC-landanna í Vfn
f desember að sögn blaðsins
Sunday Telegraph.
Spánverjar
fella gengið
Madrid, 9. febrúar.
Reuter.
SPANVERJAR felldu gengi pe-
setans um 10% f dag og Juan
Muguel Villar Mir fjármálaráð-
herra kvað það fyrsta skrefið til
að leysa efnahagsvanda þjóðar-
innar.
Astæður gengisfellingarinnar
eru greiðsluhalli upp á 2.000
milljón dollara, minnkandi
straumur ferðamanna og alda
pólitfskra verkfalla, sem kostaði
Framhald á bls. 35
„Peningarnir voru lagðir inn á
sérstakan bankareikning meðan
Carlos hvfldi sig f villu við strönd-
ina sem lfbýska leyniþjónustan
lét honum f té,“ segir blaðið.
Carlos hafði þegar fengið
greiðslu frá Gaddafi ofursta fyrir
árásina á aðalstöðvar OPEC í Vín
og milljón pundin voru sérstök
aukagreiðsla. Carlos heitir réttu
nafni Illich Ramirez Sanchez og
er Venezúelamaður.
Gaddafi ofursti borgaði einnig
einum undirmanna Carlosar,
Hans Joachim Klein, 100.000
pund þar sem hann særðist alvar-
lega f árásinni. Þýzkur læknir var
sóttur flugleiðis til að stunda
hann.
Telegraph segir að Gaddafi
ofursti hafi „verið frá sér numinn
yfir afreki Carlosar og þeir hafi
skipzt á gagnkvæmum hamingju-
óskum þegar hryðjuverkamenn-
irnir lentu I Tripoli".
The Observer segir, að Líbýu-
stjórn hafi tjáð Afrfkusérfræðing-
um sínum, að Gaddafi ofursti hafi
skipulagt OPEC-árásina.
Schmidt í viðræðum við Wilson:
Patty Hearst:
Var neydd
til ránsins
San Fransisco 9. febrúar
AP.
PATRICIA Hearst kom í vitna-
stúkuna í kvöld f réttarhöldunum
yfir henni og lýsti hún yfir þar, að
henni hefði hundrað sinnum ver-
ið hótað lffláti af meðlimum
Symbíónesíska frelsishersins,
henni verið misþyrmt og hún
geymd i öskutunnu. Sagðist hún
hafa verið neydd til að taka þátt í
bankaráninu, sem er aðalákæran
gegn henni af hálfu ákæruvalds-
ins.
London 9. febrúar AP — Reuter.
FISKVEIÐIDEILA tslendinga og Breta var töluvert
rædd á fundum Harolds Wilsons forsætisráðherra Breta
og Helmut Schmidts kanslara V-Þýzkalands á fundum
leiðtoganna í London um helgina og einnig var mikið
spurt um landhelgismálið á fundi, sem tvímenningarnir
héldu með fréttamönnum áður en Schmidt hélt aftur til
Bonn. Á fundinum sagði Wilson, að Bretar væru reiðu-
búnir til að samþykkja óháðan sáttasemjara í málinu, en
þá greip Schmidt fram í og sagði að V-Þjóðverjar ætluðu
ekki að taka að sér sáttasemjarahlutverkið
Á fundinum voru endurteknar
allar fyrri yfirlýsingar brezkra
ráðamanna um að Bretar hefðu af
frjálsum vilja lækkað aflamagn
sitt niður i 85 þúsund lestir og
fækkað togurum niður í 105. Þá
hefðu þeir einnig lýst þvf yfir að
þeir myndu áfram virða öll friðuð
svæði, sem kveðið hefði verið á
um í samningum Islendinga og
Breta 1973 og að þeir væru reiðu-
búnir til viðræðna við Isiendinga
um ný friðunarsvæði, sem lið í
nýju samkomulagi. A fundinum
lagði Wilson áherzlu á að Bretar
vildu að allt yrði gert sem unnt
væri til að koma á samningum, en
vandinn væri að fá Islendinga til
að samþykkja þau samkomulags-
drög sem Bretar legðu fram.
Sagði Schmidt, að deila
Islendinga og Breta ylli Þjóðverj-
um og öðrum NATO-þjóðum
áhyggjum og að hann vonaðist til
að tækist að leysa deiluna með
samningum.
Schmidt og Wilson á blaðamannafundinum.
,gVr,?rTVWd^e,
Gaddafi gaf
Carlos bónus
V-Þjóðverjar ætla ekki að
miðla málum í þorskastríðinu