Morgunblaðið - 10.02.1976, Side 32

Morgunblaðið - 10.02.1976, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1976 Pilturinn sem gat breytt sér í fálka, maur og Ijón byssuna fyrir staf dróst ég niður á isinn, til þess að átta mig nákvæmlega á því, hvar ég væri staddur. Mér til mikils léttis sá ég reykjarstrók upp yfir trjátoppana hinum megin árinnar og sá móta fyrir húsþaki þar milli trjánna. Ég þekkti mig þegar. Þetta var Topphaugur, hjáleiga frá bænum sem ég bjó á. Með miklum erfiðismunum skreið ég um hundrað faðma upp aflíðandi brekku, en þá sá ég líka glampann af viðareldi gegnum gluggann. Eg haltraði að dyrunum, lyfti klinkunni og fór inn, eins og ég stóð, — það sá ekki í mig fyrir snjó. „1 Drottins almáttugs nafni, hvað er þetta?“ sagði Berta gamla hrædd og sleppti hangikjötsbita, sem hún var að narta í. „Góða kvöldið, vertu ekki hrædd, þekk- irðu mig ekki, Berta?“ sagði ég. „Æ, það er stúdentinn, ósköp er hann seint á ferðinni. Það setti bara aö mér óhug, — hann er alhvítur af snjó og komin nótt“, svaraði Berta gamla á Toppuhaugi og stóð upp. Ég sagði henni frá óhappi mínu og bað hana að vekja einhvern af strákunum og senda hann heim til mín eftir hesti og sleða. „Ja, er það ekki eins og ég hefi alltaf sagt, úlfarnir hefna sín“, tautaði gamla konan við sjálfa sig. „Þessu vildu þeir ekki trúa, þegar þeir söfnuðu liði til þess að veiða þá í fyrra og hann Pétur fót- brotnaði, en nú sest það, þeir hefna sín úlfarnir“. „Æ já“, sagði hún og gekk að rúmi úti í einu horninu, þar sem fjölskyldan lá og hraut í kór. „Þeir hafa nú verið að aka timbri allan daginn norðan úr skógum, áumingjarnir, og gera það meðan færið er sæmilegt. Vaknaðu Oli litli, þú verður að sækja hest handa stúdentinum, vakn- aðu segi ég, Óli minn“. „Ha?“ sagði Óli gegnum nefið og sneri sér í rúminu. Hann gat nú sofið pilturinn sá og var ekki að láta svona smánöldur trufla sig, og svo leið eilífðartimi, hann geispaði,»neri augun og teygði sig allan en inn á milli spurði hann allskonar heimskulegra spurninga, en loksins komst hann samt fram úr rúminu, komst í buxur og treyju áður en hann skildi almennilega hvað hann átti að gera. En þegar ég lofaði að borga honum vel, virtist allt heldur skýrast fyrir honum og sveipaði á brott úr huga hans öllum ótta, jafnvel við að ganga fram hjá eikinni, þar sem Ólafur á Eskibraut hafði hengt sig. Meðan Berta gamla var að tala við Óla, litaðist ég um í stofunni, sá þ'ar vefstól, rokk og þunga tréstóla, fötur, byttur og hálftelgd axarsköft og hænsn á priki bak við dyrnar, gamla byssu, sem hékk uppi undir þaki og snúrur yfir hlóðunum, þar sem sokkar héngu til þerris, auk fjölda annarra hluta, sem þreytandi væri að telja upp. Þegar Óli loksins var kominn af stað, settist Berta gamla við eldstóna. Hún var vel til fara, í blárri treyju og svörtu fellingapilsi. Hún var hvasseyg, dálítið skakkeyg og hafði mikil kinnbein, breitt nef og gulbrúnan hörundslit. Ekki fannst mér hún ólík galdranorn, enda var sagt að gamla konan kynni hitt og annað fyrir sér. Hún var líka álitin góður læknir. Ég var dálítið hissa á því að kerling skyldi vera á fótum ennþá, og spurði hana, hvort hún ætti von á gestum, úr þvi hún væri í sparifötunum. „Ónei, ekki átti ég það nú“, svaraði hún, „en ég skal segja stúdentinum eins og er, að ég var uppi í Ásasókn að líta á kerlingu, sem var eitthvað lasin, en það- an var ég sótt til barns, sem hafði vind- verki, og gat ég auðvitað hjálpað þeim báðum, og ég var rétt að koma heim núna áðan“. „Og þegar ég hugsa mig um, þá minnir mig að þú getir líka læknað snúna og tognaða ökla, Berta mín“, sagði ég alvar- legur. „Ojá, ætli það ekki. Ekki batnaði henni Sigríði á Norðurbænum fyrr en ég kom og voru þó bæði læknirinn og yfirsetu- konan búin að bjástra þetta líka litla við fótinn á henni“, sagði hún glottandi, „og ef stúdentinn hefir ekkert á móti því, þá myndi ekki skaða að bera svolítið brenni- vín á öklann“. „Lestu bara yfir brennivíninu og komdu með það, það gerir áreiðanlega sitt gagn“, sagði ég og vonaðist til að Þaö er ekki við þvl að búast að (sinn þoli fallþunga markmannsins. Illustaðu: Hún ætlar að falla fyrir sama kjaftæðinu og ég — hér forðum. Brezkur þingmaður var á göngu um byggingu upplýs- ingaráðuneytisins. Allt f einu sá hann myndastyttu, sem kom honum ókunnuglega fyrir sjónir. Hann sncri sér að eftir- litsmanni og sagði: — Ég hef ekki tekið eftir þessari myndastyttu hér fyrr. — Það er ekki von, svaraði eftirlitsmaðurinn. Þetta er ekki myndastytta, þetta er blaðamaður, sem er að bfða eftir fréttum. X Nýja vinnukonan hjá skip- stjóranum spurði, hvort hann vildi teið sterkt. — Nei, sagði skipstjórinn, en þú skalt þynna það með rommi, ekki vatni. X Amma var að skera brauð handa krökkunum. Villi: — Stækka ekki gler- augun þfn mikið, amma mfn, þegar þú Iftur f gegnum þau? — Jú, barnið gott, en af hverju spyrðu? Villi: — Eg ætla að biðja þig um að taka gleraugun ofan, þegar þú sneiðir handa mér. v Það er ákaflega ánægjulegt að hugsa til þess öryggis sem maðurinn minn býr við: Svefn- stól og sjónvarpstæki — og hann er f öruggri vörzlu. Gesturinn: — Kallarðu þetta nautasteik? Þjónninn: — Já, er nokkuð að steikinni? Gesturinn: — Ekki annað en það að mér heyrðist hún hneggja. X — Það er hræðilegt, hvað krakkarnir verða óhreinir f þessu veðri. Ég varð að þvo sex strákum áður en ég fann son minn. X Kaupstaðadrengurinn horfði hugfanginn á, þegar bóndinn var að mjólka kú sfna. Þegar þvf var lokið segir drengur: — Heyrðu manni, helltu mjólkinni til baka og gerðu þetta aftur. J Með kveðju frð hvítum gesti Jóhanna Kristjóns 43 Þú mátt trúa mér Nan, að það er eins og það hefur alltaf verið,, bara vinskapur. Þegar Doon og ég vorum yngri, held ég ekki að við höfum gert okkur grein fyrir að það gæti byggzt á neinu öðru. Að minnsta kosti ekki ég. Tilhugsun- in ein vekur hjá mér andstvggð. Doon vill líka að við séum bara vinir, en þetta er samt dálftið óhugnanlegt. Jæja, svo að þið ætlið að fá ykkur nýjan bfl eina ferðina enn. Ég vildi óska við hefðum efni á að fá okkur bfl en það er útilokað eins og málum er háttað nú. Mik- ið var slæmt að Kím þvrfti endi- lega að fá hcttusótt þegar hann var nýbúinn að hafa mislinga. Það hefur sfnar skuggahliðar að eiga börn, það hlýtur að fylgja þvf ósköp mikið amstur og áhyggjur á stundum. Mér sýnist ekkert benda tfl að okkur Ron auðnist að --r.Vi.- ...—k eignast gleðina eða áhyggjurnar, ég hef ekki orðið vör við nokkurn skapaðan hlut sem benti til þess. En eins og ég hef alltaf sagt: ef maður býr f hamingjusömu hjónabandi eins og við gerum þarf maður ekki börn til að halda þvf saman. Ég held ekki að ég sé öfundsjúk eða afbrýðisöm. En víð erum ánægð og mér finnst Ron miklu glaðari og f betra jafnvægi eftir að við fluttum hingað. Ég mun vfst aldrei læra að skilja hvers vegna fólk á borð við Doon getur ekki verið ánægt með það sem það hefur og þarf alltaf að sækjast eftir einhverju sem er utan seilingar. Jæja, ég slæ botninn i þetta núna. Nan. Það er nóg að gera hjá mér enda þótt ég hafi ekki börn, enda lítið af hjálpartækjum f nýja húsinu mínu! Skilaðu kveðju til Wil og barnanna og beztu kveðjur frá Ron. Vertu sjálf margblessuð. Þfn Meg. Hamingjusamt hjónaband? Gat hjónaband verið hamingjusamt sem grundvallað var á falsi og lygi? Burden lagði bréfið frá sér en gat ekki stillt sig og tók það upp aftur. Wexford sagði frá sfm- tali sfnu við lögreglustjórann f Colorado og það birti eilítið yfir andliti hans. — Við getum aldrei sannað það, sagði Burden. — Þér getið að minnsta kosti far- íð og sagt Drury það, Gates getur svo ekið honum heim. Ef hann vill höfða mál á hendur okkur býst ég við að Douglas Quadrant vcrði boðinn og búinn að hjálpa honum. En það skuluð þér nú láta ósagt og ég vil helzt ekki þurfa að hítta hann. Ég get hreinlega ekki þolað þessa manngerð. Það var að byrja að birta af degi. Himinninn var grár og drungalegur og þó virtist vera að létta til. Wexford reis á fætur og teygði úr stirðum limum áður en hann ákvað að láta hflinn eiga sig og ganga heim til sín. Honum fannst gott að hugsa á þessum tfma sólarhrings. Hvergi var sálu að sjá. Torgið virtist subbulegra en á daginn og á brúnni hitti hann hund sem skokkaði áfram í einhverjum óþekktum erindagerðum. Wex- ford nam staðar og horfði eitt andartak niður f gruggugt vatnið og reyndi að greina spegilmynd sfna. Svo hélt hann göngunni áfram. Framhjá húsi frú Missal, fram- hjá litlum einbýlishúsum og snyrtilegum raðhúsalengjum. Nú var ekki nema spottakorn eftir. A töflunni við kirkjuna sá hann að hengt hafði verið upp spjald: „Herra Ronald Parsons býður félögunt f söfnuðinum að vera við minningarguðþjónustu um eigin- konu sfna, Margaret, sem dó svo sviplega í þessari viku. Guðsþjón- ustan verður f kirkjunni klukkan tfu árdegis ásunnudag." I dag myndi húsið á Tabard Road þar sem hin látna hafði búið vera mannlaust f fyrsta skipti síð- an hún dó... Hugur Wexford beindist til Ronalds Parsons og honum varð einnig hugsað til þess sem Burden hafði sagt: — Við getum aldrei sannað það.....Kröfur mínar voru hóf- samar, Minna. Ég krafðist svo lít- ils, aðeins fáeinar klukkustundir í senn vildi ég fá að eiga mcð þér. Og hvað eru fáeinar klukkustund- ir á mælikvarða eilffðarinnar. Ég óskaði þess eins að tala, að skýra fyrir þér f einlægni kvöi mfna f tfu ár, og hugarvíl. Tfm- inn, hugsaði ég — tfminn sem á að lækna öll sár og deyfa af hina hvössu brodda grimmdarinnar, tfminn — sem slævir skynjunina — tfminn hefur gert augu hennar mildari og eyru hcnnar næmarí. Við sóttum heim hinn þiigla skóg — þar sem við gengum á árum áður, en þú hafðir gleymt blómunum sem við tfndum þá — Ég talaði hægt og blíðiega, ég hélt þú værir að hugleiða orð mfn, og loks þagnaði ég og mig hungraði eftir blfðum viðurkenn- ingar— og skiiningsorðum frá þér. Mig hungraði eftir kærleika þinum. Já, Minna. Kærieikanum. Er það svo ægilegt, Ijótt og for- kastanlegt. Ég starði. Ég kom við hár þitt. Augun voru lokuð þvf að þú stein-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.