Morgunblaðið - 10.02.1976, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1976
33
VELVAKANDI
^Velvakandi svarar í slma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
§ Vélsleðarall
Þ. R. skrifar:
Hvað eftir annað hef ég heyrt
fréttamenn sjónvarps tala um
snjósleða og nú nýlega var í
Morgunblaðinu talað um snjó-
sleða-rallý. I auglýsingu í sama
blaði, sem beint var til snjósleða-
eigenda, voru auglýstir vagnar
fyrir snjósleða. Af þessu má sjá
að þetta snjósleðanafn er nokkuð
algengt orðið. Er ekki hugtaka-
ruglingur á ferðinni? Eru ekki
allir sleðar snjósleðar, eða farar-
tæki sem. renna á snjó? Krakkar
tala um sklðasleða og magasleða,
hundasleða, hestasleða og jafnvel
seglsleða þekkjum við að minnsta
kosti af afspurn, en allt eru þetta
snjósleðar. Eftir því sem næst
verður komist er átt við vélsleða,
þegar talað er um snjósleða. Væri
ekki rökréttara að nota vélsleða-
nafnið?
I dálkum Velvakanda stingur
einhver viðskiptavina hans upp á
þvl að nota orðið rall i stað rallý.
Þá má vel vera að orðið rall eigi
við íþróttina — um það er mér
ekki kunnugt. Yrði farið yfir
þessar uppástungur tel ég að
íþróttin ætti að heita vélsleðarall,
en ekki snjósleðarall.
0 Einabunu
á vélsleðanum
Ur þvl vélsleða ber á góma,
er rétt að nota tækifærið og
minna snjósleðadýrkendur á að
siik farartæki eru illa séð i eða við
skíðabrekkur, þó þau séu góð til
síns brúks. Enda hreinn óþarfi að
valda með þeim slysahættu og
eyðileggja skiðabrekkurnar, þvi
þessi farartæki komast á fleygi-
ferð á aðrar slóðir. Ökumenn
þeirra geta allt eins leikið sér út
um heiðar, þar sem þeir eru ekki
skiðafólki til ama með hávaða og
látum. Sumir segja að pabbarnir
hafi bara ekkert gaman af því að
leika sér á þessum leikföngum
sínum, ef þeir ekki séu að sýna
konum og börnum listir sfnar og
láta horfa á sig á dýrgripnum. En
slikt hlýtur að mega leysa með því
að fara með fjölskylduna eina
bunu áður en þeim er plantað
niður I sklðabrekkurnar. Ef
sleðarnir eru innan um skíða-
fólkið eða neðan við brekkurnar,
býður það upp á hættu, þegar það
kemur niður. Auk þess eru menn
gjarnan að reyna að klífa brekk-
urnar á þessum farartækjum og
mynda holur, sem skiðafólk lend-
ir svo i. Raunar er I Bláfjöllum
bannað að vera á vélsleðum við og
I skiðabrekkunum og flestir hlýða
þvi. Þó eru örfáir menn, sem ekki
geta sætf sig við að fá ekki að vera
á sleðunum einmitt þar, öllum til
ama.
• Spjall um snjó
og krakka
Við kvörtum yfir fannfergi
hér i vetur. Víðar er snjór en hjá
okkur, eins og sjá má af Spjalli
hennar Karolinu Gunnarsson í
blaði Vestur-Islendinga Lögbergi
Heimskringlu. Töluverður snjór
virðist hafa verið í Winnipeg í
janúar eftir því að dæma.
Carolina, sem er ritstjóri Lög-
bergs Heimskringlu, er alltaf
hressileg i spjalli sínu. Hún segir:
„Þegar ég lagði af stað í vinn-
una i rökkrinu I morgun, sá ég
þrjá svarta hnoðra uppi á toppi á
háu fjalli, sem er allt búið til úr
snjó, og hækkaði svo mikið í nótt
að nú nær það stóru trjánum við
strætið alveg upp að mitti. Hann
kann það, hann Þorri gamli, að
hlaða snjófjöll.
Áður en ég vissi af hafði einn
hnoðrinn flögrað eða fokið upp í
tré og sat þar á grein eins og fugl.
Hvaða fugl getur þetta verið?
hugsaði ég. Ætli hann sé frosinn
og geti ekki látið heyra i sér. En
svo öskraði þetta allt I einu svo
hátt og vel að það hlaut að hafa
heyrst langar leiðir, og mér
heyrðist á hljóðinu að þarna væri
einhverskonar manneskja. Mér
varð svo bilt við, að loksins glað-
vaknaði ég og fór að hlaupa yfir
strætið, en þá fauk af mér hattur-
inn. Hnoðrarnir tveir sem eftir
voru uppi á fjalli, veltu sér niður
og fóru í eltingarleik við hattinn
minn. Annar þeirra náði honum,
steig ofan á hann svo hann þyti
ekki aftur út I veður og vind, tók
hann svo og kom með hann til mín
undir handleggnum, dustaði af
honum snjóinn og fékk.mér hann.
Þá sá ég að þetta voru krakkar.
„Af hverju eruð þið ekki að
flýta ykkur I skólann?“ sagði ég
eins og hver önnur óþakklát kerl-
ingar ótukt. — Blessuð börnin
sögðu ekki orð, bara fóru að leika
boltaleik með vettlingunum sín-
um berhent í kuldanum.
Ég skammaðist min allan
daginn og gat ekki um annað
hugsað en krakkana nú á dögum,
hvað þeir eru kurteisir og góðir í
sér. „Þetta er besta fólk,“ sagði ég
við einhvern.
„Krakkar eru ekki fólk,“ sagði
þessi svokallaða manneskja.
„Þetta er bara hnoðað saman úr
óhemju krafti, fjöri og óþekkt,
veltur ofan á stræti úr trjám og
snjósköflum til að tefja fyrir
körunum manns þegar maður er
að flýta sér í vinnuna."
Þeim er allt bannað nú á dög-
um, greyunum litlu, hugsaði ég,
en gaman væri samt að vera
krakki og byrja daginn í fullu
fjöri, fyrst maður má ekki láta
það eftir sér að lúra fram á
morgun og taka tíma til að safna
f jörinu. Svo leyfa líka krakkar sér
að hafa gaman af lifinu hvað sem
fólkið segir.
C. G. “
• Sólá
kyndilmessu
Við erum líklega ekki búin
að bita úr nálinni með snjóinn, ef
marka má gömlu visuna, sem seg-
ir að skini sólin á kyndilmessu, þá
verði mikið fannfergi. Því 2.
febrúar, á kyndilmessu, skein
sólin glatt hér í Reykjavík.
svafst. Þá vissi ég að allt var um
seinan. Kærleikurinn var ekki til
lengur. Allt var um seinan. Allt
nema dauðinn...
14. kafli.
Parsons var í dökkum fötum.
Svarta hðlstauið hans var áreiðan-
lega ekki nýtt og það glansaði
eins og hann hefði strokið yfir
það með straujárni. Hann hafði
saumað svartan sorgarlepp við-
vaningslega á aðra ermina.
— Okkur langar til að fá leyfi
til að rannsaka húsið einu sinni
enn, sagði Burden. — Ég vona þér
hafið ekkert á móti því að lána
okkur lykilinn.
— Ykkur er velkomið að gera
það, sagði Parsons. — Presturinn
hefur boðið mér í hádegismat. Ég
kem ekki fyrr en seinna i dag
heim.
Hann fór að taka af borðinu
eftir morgunverðinn og gekk frá
öllu af hinni mestu hirðusemi.
Burden sá hann taka blaðið, sópa
brauðmylsnunni á það og henda
þvi I ruslið. — Ég ætla að selja
húsið eins fijótt og ég mögulega
get, sagði hann.
HÖGNI HREKKVÍSI
5SKUM EFTIR SAMBANDI
/IÐ AÐILA SEM VILJA
rAKA AÐ SÉR SÖLU Á
3EZT SELDU HÚSTJALDA-
i/ÓGNUM f SKANDINAVfU'.
>krifið eða hringið strax.
DOMBICAMP %
)K 4571 GREVINGE DENMARK
EL. 3 45 93 00 TELEX 441 51
PLÖTUJÁRN
Höfum fyrirliggjandi plötujárn
i þykktunum 3(4,5og6mm.
Klippum nidur eftir máli ef óskad er.
Sendum um allt land
STÁLVER HF
FUNHÖFÐA17
REYKJAVÍK SÍMI 83444.
álnavöru
markaður
( GLÆSIBÆ
Bútarnir
eru komnir
KLASSISK
TÓNLIST
á hljómplötum og cassettum,
eftir öll beztu tónskáld veraldar
Verö á hljómplötum kr. 820
og kr. 1.515.-
Verð á cassettum frá kr. 1.280.-
Ath. mjög fjölbreytt úrval
heimilistæki sf
jjaíriarstræti 3 - 20455. ,