Morgunblaðið - 30.03.1976, Síða 33

Morgunblaðið - 30.03.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1976. 17 Armann Islands- meistari í körfu- knattleík 1976 Islandsmeistarar Ár- manns, fremri röð frá v: Jón Björgvinsson. Atli Arason. Jón Sigurðsson. Haraldur Hauksson. Guð- steinn Ingimarsson. Aftari röð frá v: Ingvar Sigur- björnsson þjálfari. Guð- mundur SÍRurðsson. Björn Christenssen. Jimmv Rog- ers, Sigurður InRÓlfsson. Birgir Birgirs, Björn Magnússon. Sveinn Christ- enssen. Hallgrímur Gunn- arsson. Flensan lagði Svavar og iiísli lagði Viðar Gísli Þorsteinsson hefur náð fastataki við gólf á andsta>ðiniíi sínum og þá var ekki að sökum að spvr.ia. ÍSLANDMEISTARAMÓTIÐ í opnu flokkunum I júdó var háð í fþróttahúsi Hagaskólans á laugar- daginn og voru þátttakendur alls 33 talsins. Islandsmeistarar urðu Gísli Þorsteinsson, Ármanni. í karlaflokki ok Þóra Þórisdóttir. Ármanni. f kvennaflokki. Þess má geta. að Islandsmeistarinn frá í fvrra. Svavar Carlsen. JFR. varði ekki titil sinn. Svavar. sem hefur verið nær ósigrandi hér innanlands undanfarin ár fann nú ofjarl sinn. Var það flensan sam lagði Svavar svo heiftarlega í rúmið að hann gat ekki varið titilinn. í opnum flokki karla voru keppendur 20 og var hart barizt. Röð efstu manna varð þessi: 1. Gísli Þorsteinsson Á 2. Viðar Guðjohnsen Á 3. Sigurjón Kristjánsson JFR 3. Halldór Guðbjörnsson JFR Þeir Gísli og Viðar glímdu til úrslita og stóð viðureign þeirra heila lotu eða 10 mínútur. Gísli hafði yfirhöndina og vann á 7 stigum. Er Gísli orðinn geysilega öflugur júdómaður og Viðar sömuleiðis. þótt hann sé aðeins 18 ára. Athygli vekur að Halldór Guðbjörnsson skuli ná svona langt því hann keppir í léttmilli- vigt og er afar fátítt að keppendur í svo léttum flokkum nái langt í opnu flokkunum, þar sem allir keppa við alla alveg sama hver þvngdin er. I opna flokknum hjá konunum voru keppendur 13 talsins. Röð efstu stúlknanna varð þessi: 1. Þóra Þórisdóttir Á 2. Anna Lára Friðriksd. Á 3. Rósa Össurard. Gerplu 3. Magnea Einarsdóttir Á í þessum flokki hafði Þóra mikla yfirburði og sigraði verð- skuldað. Þóra bar einnig sigur úr býtum í þungavigt íslandsmótsins um fyrri helgi og þá lagði hún að velli danska meistarann i grein- inni. Conny Kristjánsson. sem keppti sem gestur. — SS. Eru 50 metrar á viku ofmikið eða lítið? Einarðar umrœður um íþróttir og fjöl- miðla í ráðstefnu íþróttafréttamanna — NJÓTA íþróttir forréttinda fram yfir annað fréttaefni hjá fjöl- miðlum. Er skrifað of mikið eða of lítið um iþróttir. Hver eru viðhorf íþróttahreyfingarinnar til fjölmiðla og gagnstætt. Allar þessar spurn- ingar komu til umræðu á ráð- stefnu Samtaka íþróttafrétta- manna um íþróttir og fjölmiðla sem haldin var á laudardaginn. Allsnarpar umræður urðu á köfl- um á ráðstefnu þessari, en jafnan voru þær málefnalegar og bar ráð- stefnugestum saman um það í lok ráðstefnunnar að hún hefði verið til mikils gagns fyrir báða aðila og lýstu yfir áhuga sinum á að halda slika ráðstefnu aftur á næsta ári. Ráðstefnan var allvel sótt, en til hennar hefði verið boðið fulltrúum frá ÍSÍ, UMFÍ og sérsamböndum ÍSÍ Að vísu vantaði fulltrúa frá nokkrum sérsambandanna, en mjög mikið var um að vera á íþróttasvið- inu á laugardaginn, er ráðstefnan var haldin. Flestir fundarmanna tókutil máls á ráðstefnunni og gerðu grein fyrir afstoðu sinni til fjölmiðlanna og urðu iþróttafréttamenn fyrir tölu- verðri gagnrýni sem þeir svöruðu í íömu mynt og töldu að samskipti þeirra við iþróttahreyfinguna væru um' of einhæf. Leitaði hreyfingin yfirleitt ekki til þeirra i öðru skyni en að koma á framfæri upplýsingum um mót og leiki fyrirfram Forystu- mennirnir töldu margir að íþrótta- fréttir fjölmiðla væru of einhæfar bundnar við þær iþróttagreinar sem taldar væru vinsælastar sérstaklega knattiþróttirnar Þeir tölu iþrótta- fréttamenn sýna íþróttastarfinu lít- inn áhuga og oft kæmi fram hrein vanþekking þeirra á þeim málum sem þeir væru að fjalla um Þá bar aðstöðuleysi iþróttafréttamanna á góma og var bent á að aldrei væri hugsað um að búa þeim aðstöðu við gerð iþróttamannvirkja og væru því þeir yfirleitt á hrakhólum Auk þess var einnig bent á að iþróttafréttalið fjölmiðla er yfirleitt mjög fámennt og einstökum íþróttamönnum ætlað að skrifa um allar greinar iþrótta og skila fréttum frá sér á skömmum tíma. Könnun á vinsældum iþróttaefnis i fjölmiðlum kom mikið til umræðu og voru ráðstefnugestir sammála um að þar hefði ekki sannleikurinn komið í Ijós, og niðurstöður hefðu að auki beinlinis verið rangtúlkaðar Bent var á að iþróttaefni í fjölmiðlum væri eitt vinsælasta efni yngri kyn- slóðarinnar, en til hennar hefði um- rædd könnun ekki tekið Töldu margir ráðstefnugestrr að könnun þessi hefði verið hreint kák, þar sem aðstandendurnir hefðu beinlinis gef- ið sér niðurstöður fyrirfram. Ekki voru þó allir á þessp máli Páll Heiðar Jónsson, dagskrárfull- trúi- hjá Ríkisútvarpinu, fjallaði i framsöguerindi um forgang iþrótta i fjölmiðlum. og taldi hann fjölmiðl- ana Ijá iþróttunum alltof mikið rúm Væru íþróttirnar sér á báti að þvi leyti að á þvi sviði störfuðu sérhæfð- ir fréttamenn og væri það meira en hægt væri að segja jafnvel um und- irstöðuþætti atvinnulífsins. Páll hafði meðferðis á ráðstefnuna úr- klippur úr dagblöðum eina viku, og hafði hann limt þær saman i eina lengju sem mældist 50 metrar Færði Páll heiðar ÍSÍ úrklippulengju þessa að gjöf Stjl Nokkrir þátttakendanna á ráðstefnu íþróttafréttamanna. með hluta af íþróttafréttum daghlaóanna síðastliðina viku á milli sin. (I.iósm. RAX) FH og Fram leika í kvöld BÚIÐ er art ákveda hvenær leikir í 8-liúa úrslitum hikar- keppni HSl fara fram. Allir leikirnir fara fram í Laugar- dalsholl og átti sá fvrsti að fara fram í gærkvöldi. leikur Víkings og Gróttu. I kvöld veröur svo aöal leikurinn. viö- ureign Islandsmeistara FH og Fram. Hefst leikurinn klukk- an 20,15. Annað kvöld verða tveir leikir á dagskrá í I.augar- dalshöil. Valur mætir Fvlki klukkan 20,15 ogKR mætir IR klukkan 21.30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.