Morgunblaðið - 30.03.1976, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.03.1976, Blaðsíða 38
22 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1976. Badmintondómara- félag stofnað MIÐVIKUDAGINN 3. marz s.I. stofnuðu dómarar í hadminton með sér félag. Félagið mun vinna í samráði við B.S.I. að málum bad- mintondómgæzlu og sjá um að ætíð sé nægur fjöldi dómara til í landinu. Félagið mun því skipu- leggja nokkur dómaranámskeið nú á næstunni, og það fyrsta var haldið á Siglufirði helgina 20. og 21. marz n.k. en þá fer fram Ung- lingameistaramót íslands í bad- minton. Annað dómaranámskeið verður að öllum líkindum i Reykjavík í þessum eða næsta mánuði, en það mun verða aug- lýst síðar. Félagið mun í framtíðinni halda dómaraþing a.m.k. einu sinni á ári, en þá koma badmin- tondómarar saman, samræma túlkun á leikreglum og skipu- leggja dómarastörf. Formaður dómarafélagsins er Sigfús Ægir Árnason, en með' honum eru í stjórn: Grétar Snær Hjartarson, Sigurður Haraldsson.i Jóhann Hálfdánarson og Árni Sigvaldason. Þeir sem hafa hug á að ganga í félagið en hafa ekki gert það enn, eru beðnir að hafa' samband við formann þess í símaí 33887. Stofnfélagar teljast allir þeir sem ganga í félagið á þessu ári. Myndasamkeppni um Ólympíuleikana ÍÞRÓTTAKENNARAFÉLAG íslands hefur ákveðið að efna til myndgerðarsamkeppni milli skólanemenda á aldrinum 9—12 ára og 13—15 ára í tilefni Ólympíuleikana 1976. Þátttakend- ur skulu í verkum sínum fjalla um íþróttir og eðli og gildi Ólympíuleikanna. Veitt verða þrenn Verðlaun fyrir beztu verkin í hvorum aldurshópi að mati dóm- nefndar og verða þau í fvrsta lagi flugferð til Færeyja með Flug- leiðum, í öðru lagi ELAN-skíði sem verzlunin Sport hefur gefið og í þriðja lagi bækur. Stærð myndanna skal vera 30x40 sentimetrar sem lágmark og er þátttakendum frjáls notkun á efni og tækni. Skilafrestur i samkeppninni er til 1. maí n.k. Dómnefnd skipa þeir Halldór Þorsteinsson, Hörður Ingólfsson og Þórir Sigurðsson, og skal skila myndunum til Iþróttakennara- félags Islands, Klapparstíg 16. Reykjavík. Hár yetraunavinningur HJA dönsku getraununum hefur undanfarin ár gengið illa að koma þátttökunni upp á sama stig og er í Noregi og Svíþjóð. Hafa Danir verið hálfdrættingar á við Norð- menn. enda notað danská kapp- leiki svo sem hægt hefur verið. Með fjölgun leikja á danska get- raunaseðlinum í 13 leiki var re.vnt að fá fram hærri upphæðir í f.vrsta vinning. og í byrjun febrúar kom fram ein röð með 13 réttum og varð vinningurinn 904.000 danskar krónur. eða sem svarar til 25 millj. ísl. krónum. Stefán Hallgrlmsson — farinn í æfingabúðir til Spánar ásamt félaga sfnum úr KR, Erlendi Valdimarssvni. Frjálsíþróttaíólk í æíingááðír NU I vikulokin fara þrír íslenzkir frjálsíþróttamenn utan til æfinga. Eru það þeir Stefán Hallgríms- son, KR, og Erlendur Valdimars- son, KR, sem báðir fara til Spánar og munu dvelja í æfingabúðum finnska frjálsíþróttasambandsins á Malaga um hríð, og Friðrik Þór Óskarsson, sem fer til Vestur- Þýzkalands til æfinga. Verða því alls átta islerizkir frjálsíþrótta- menn erlendis á næstunni við æfingar sínar Fyrrnefndir þrír, Guðni Halldórsson og Hreinn Halldórsson, sem eru í Vestur- Þýzkalandi Li!ja Guðmundsdótt- ir, sem er í Svíþjóð, og þeir Ágúst Ásgeirsson. Siefús Jónsson og Vil- mundur Vuh.i dmsson. sem eru í Englandi. Þegar kemur lengra fram á vorið munu sennilega fleiri bætast við. Stendur til að þau Ingunn Einarsdóttir og Jón S. Þórðarson fari þá til Spánar, og eins er líklegt að Óskar Jakobs- son, spjótkastari úr IR, fari utan í æfingabúðir. Þeir Hreinn Halldórsson og Guðni Halldórsson hafa æft af kappi síðan þeir fóru til Vestur- Þýzkalands, en ekki tekið þátt í mótum. Guðni er nú á förum til Englands þar sem hann mun æfa með hinum þekkta kúluvarpara Capes. Kynntist Guðni honum á Evrópumeistaramótinu innan- húss í Múnchen, og varð að ráði að Guðni færi til hans til æfinga. HANDKNATTLEIKSMENN Knattspvrnufélags Akurevrar voru á ferð hér svðra um fvrri helgi og léku þá tvo leiki, við KR og Breiðablik. Var leikur KA við KR mjög veigamikill fvrir liðið þar sem það var á toppnum í 2. deildinni hefði sigur unnist. En innflúensan setti strik f reikninginn fvrir Norðanmenn og nokkrir af fastamönnum Iiðsins gátu ekki leikið með. Við liðstjórninni tóku þeir Sveinn Sveinsson, fvrrum kunnug handknattleiks- maður með Fram og Daníel Hálfdánarson, sem gert hefur garðinn frægan með knattspvrnuliði Hauka. Er Sveinn lengst til hægri á mvndinni, en Danfel er annar frá vinstri. Milli þeirra situr landsliðsmarkvörðurinn f knattspvrnu, Arni Stefánsson, en hann var kallaður austan frá Iþróttakennaraskólanum að Laugarvatni til þess að leika með KA liðinu. Lengst til vinstri á mvndinni er svo Ármann Sverrisson, einn efnilegasti hand- knattleiks og knattspvrnumaður Akurevringa. Þótt hann stæði fvrir sínu tapaði KA hinum mikilvæga leik við KR og þar með mátti heita að endi væri hundinn á vonir liðsins um sigur f 2. deildar keppninni í ár og sæti í 1. deild að ári. Steinunn og Sigurður sigruðu nokkuð örugglega UM fyrri helgi, dagana 21. og 22. marz fór fram punktamót ung- linga á skíðum á Isafirði. Var all- góð þátttaka í mótinu og í flestum greinum var um skemmtilega keppni að ræða. Meðal keppend- anna voru tveir af Olympíuförun- um, Steinunn Sæmundsdóttir og Sigurður Jónsson, og unnu þau UNGMENNASAMBAND Austur- Húnvetninga hélt 59. þing sitt f Félagsheimilinu á Blönduósi fvrir skömmu. Þingið sótti á fjórða tug fulltrúa, auk stjórnar sambandsins og gesta, en þeir voru Hannes Þ. Sigurðsson, stjórnarmaður í Iþróttasamhandi tslands, Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri ISI, Ólafur Oddsson, félagsmálaleiðbeinandi og stjórnarmaður í UMFl, Sig- urður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ, og Arni S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KH og hrepps- nefndarmaður á Blönduósi. Magnús Ólafsson, formaður sam- bandsins, setti þingið, en þingfor- seti var kjörinn Hilmar Kristjánsson. í skýrslu stjórnar kom fram að unnið hafði verið að margvísleg- um verkefnum á síðasta ári og íþróttafólk hafði keppt bæði heima og heiman. Sambandið sá um framkvæmd Norðurlands- meistaramóts í frjálsum íþróttum og var mótið haldið á Blönduósi. Á árinu var lögð áherzla á keppni í yngri aldursflokkunum og m.a. hófst s.l. haust keppni á vegum sambandsins milli allra skóla í héraðinu í nokkrum greinum íþrótta. Af samkomum sem sambandið gekkst fyrir bar Húnavökuna hæst og fóru þar fram fjölbreytt dagskráratriðí til fróðleiks og skemmtunar. Ritið Húnavaka kom út um Húnavökuna og var þá á þriðja hundrað blaðsíður að stærð með fjölbreyttu efni. Á þinginu voru samþykktar margar tillögur. m.a. um að sam- bandið réði sér framkvæmda- stjóra næsta sumar. Fram- nokkuð öruggan sigur bæði í svigi og stórsvigi. Helztu úrslit í keppninni urðu annars sem hér segir: SVIG: Stúlkur 13—15 ára (17 keppendur) Steinunn Sæmundsd.. R. 100,35 Aldís Arnardóttir. A 108,14 kvæmdastjóri starfaði hjá sam- bandinu í þrá mánuði á síðasta sumri og þótti ljóst að nauðsyn bæri til að halda áfram á þeirri braut. Úr stjórn sambandsins gengu Hilmar Kristjánsson og Jóhann Guðmundsson, en í þeirra stað voru kjörnir Páll Kristinsson og Karl Lúðvíksson. Bedford að hœtta BREZKI langhlauparinn Dave Bedford lýsti því yfir nýlega að hann hefði nú gefið upp alla von um að keppa á Ólympiuleikunum i Montreal næsta sumar. Sagðist Bedford eiga enn við meiðsli að striða og ef hann fengi sig ekki góðan alveg á næstunni væri ekki um annað fyrir sig að gera en að gefast upp og hætta að æfa og keppa. Dave Bedford sem verið hefur i fremstu röð langhlaupara um ára- bil setti heimsmet i 10.000 metra hlaupi árið 1973 og hljóp þá á 27:31,0 min. Siðan hefur hann átt erfitt með að finna form- ið og hefur talið sig vera meidd- an. Þeir læknar sem hafa skoðað Bedford segjast hins vegar engin meiðsli finna. — Þeir stagast alltaf á þvi að ég sé fyrst og fremst veikur i höfðinu, sagði Bedford, — en svo er alls ekki. — Ég veit bezt sjálfur að ég geng ekki heill til skógar, og og það er ekki af því að ég sé „klikkaður" að ég hef stöðugan sársauka i fótunum þegar ég hleyp. Sigurður Jónsson — sigraði í svigi og stórsvigi. Sigurður Jónsson — sigraði í svigi og stórsvigi. María Viggósdóttir, R 110,42 Ása Hrönn Sæmundsd., R 110,70 Nína Helgadóttir, R 111,30 Drengir 13—14 ára (20 keppendur) Valdimar Birgisson, I 109,71 Árni Þór Árnason, R 111,22 Erling Arthúrsson, I 115,24 Ólafur Grétarsson, A 115,30 Trausti Sigurðsson, R 117,51 Drengir 15—16 ára (24keppendur) SigurðurH. Jónsson, 1 91,47 Gunnar B. Ólafsson, I 98,63 Friðbjörn Sigurðsson H 104,31 Kristján Olgeirsson, H 105,81 Jónas Ólafsson, R 106,93 STÓRSVIG: 13—15 ára (17 keppendur) Steinunn Sæmundsd., R 121,38 Sigríður Jónasdóttir, A 127,25 María Viggósdóttir, R 128,73 Ólöf Jóna Kristjánsd., 1 130,87 Nína Helgadóttir, R 132,01 Drengir 13—14 ára (20 keppendur) Björn Olgeirsson, H 113,18 Valdimar Birgisson, I 114,62 Árni Þór Árnason, R 116,76 Ólafur Grétarsson, A 119,25 Finnbogi Baldursson, A 120,09 Drengir 15—16 ára (24 keppendur) Sigurður H. Jónsson, I 106,48 Björn Vikingsson, A 110,55 Jónasólafsson, R 114,26 Kristján Olgeirsson, H 114,56 Halldór Svanbergsson, A 116,22 KARIN Guthke frá Austur- Þýzkalandi sigraði sænska Ólympíu- og heimsmeistarann I dýfingum kvenna, Ulrike Knape, á dýfingamóti sem fram fór i Rostock f Austur-Þýzkalandi ný- lega. firóska í starfi IISAH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.