Morgunblaðið - 30.03.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.03.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1976. 27 Von á kartöflum í verzlanir á föstudag Kílóið á 150 kr.? KARTÖFLUSKORTUR sá. sem rfkt hefur hér síðustu vikur, ætti nú að öllu óbrevttu að taka enda I vikulokin. Grænmetisverzlun landbúnaðarins hefur fest kaup á 260 tonnum af kartöflum I Hol- landi og koma um 160 tonn með skipi. sem fór frá Rotterdam á föstudagskvöld en I verzlanir f Revkjavík ættu þessar nýju kartöflur að koma á föstudag. Þá hefur orðið sú brevting á veðrátt- unni að Ifkur eru taldar á að hægt verði að skipa kartöflum um borð í m.s. Langá um miðja þessa viku. I samtali við Jóhann Jónasson. forstjöra Grænmetisverzlunar landbúnaðarins. kom fram að kartöflurnar, sem keyptar hafa verið í Hollandi. eru mexikanskar og komu á markað í Hollandi á mánudag í síðustu viku. Jóhann tók fram að þessar kartöflur yrðu dýrar, þegar þær kæmu í verzlan- ir hér og mætti jafnvel gera ráð fyrir að verð hvers kílós yrði nálægt 150 krónum. Hvað snerti verð pólsku kartaflnanna, sagðist Jóhann gera ráð f.vrir að verð þeirra út úr búð hér yrði ekki langt frá því verði. sem ákveðið var á íslenzkum fyrsta flokks kartöflum nú f.vrir skemmstu en samk. því kostar hvert kíló 83.50 krónur. Vegna frétta i Dagblaðinu á fimmtudag og föstudag óskaði Jóhann eftir að taka eftirfarandi fram: „Það er rangt að skrif Dag- blaðsins hafi orðið kveikjan að kaupum Grænmetisverzlunar- innar á fyrrnefndum kartöflum i Hollandi. Rétt atburðarás þessara kaupa er á þann veg. að umboðs- maður Grænmetisverzlunarinnar f Hollandi hafði samband við mig seint á mánudagskvöld í síðustu viku og tjáði mér að þar væru nú að koma á markað kartöflur frá Mexíkó. Ég bað umboðsmanninn að kanna. hversu mikið magn væri hægt að fá af þessum kartöflum og á hvaða verði, auk þess sem áríðandi væri að fá um það upplýsingar. hvort heilbrigðisvottorð þessara kartaflna væru fullnægjandi. Fyrir hádegi á þrið.judag lágu fyrir jákvæð svör frá umboðs- Framhald á bls. 31 PLÖTUJÁRN Höfum fyrirliggjandi plötujárn i þykktunum 3,4,5og6mm. Klippum ni<Jur eftir máli ef óskad er. Sendum um allt land STÁLVER HF FUNHÖFÐA17 REYKJAVÍK SÍMI 83444. Stjórnunarfélag íslands Um þjóðarbúskapinn 8. — 1 2. marz Stjórnunarfélagið hefur ákveðið að gangast fyrir nýju námskeiði. sem hlotið hefur nafnið „UM ÞJÓÐARBÚSKAPINN". Námskeiðið stendur yfir mánudaginn 5. april til föstudagsins 9. apríl kl. 15.00—18.30 dag hvern. Tilgangur námskeiðsins er að kynna ýmis þjóðhagfræðihugtök sem oft er getið i opin- berri umræðu. Ætlast er til, að þátttakendur geti, að námskeiðinu loknu, hagnýtt sér betur en áður ýmsar upplýsingar, sem eru birtar um þjóðarbúskapinn. Þá er vænst, að námskeiðið auðveldi þátttakendum að meta umræður um efnahagsmál. Fjallað verður um helstu hugtök og stærðir þjóðhagsreikninga og -áætlana svo sem þjóðarframleiðslt), þjóðarútgjöld og utanrikisviðskipti. Dæmi verða tekin úr hag- tölum liðandi stundar og siðustu ára. Ennfremur verður drepið á skýrslur um afkomu atvinnuvega og rikisbúskapar. Þá verður gripið á áhrifum efnahagsaðgerða, svo sem i fjármálum, peningamálum, gengis- málum og launa- og verðlagsmálum. Námskeiðið sem er opið öllum, er tilvalið fyrir forráðamenn hagsmunasamtaka og aðila vinnu- markaðarins. Leiðbeinendur eru: Jón Sigurðsson, hagrannsóknar- stjóri, Ólafur Davíðsson, hagfræðingur og Hallgrimur Snorrason, hagfraeðingur. Þátttaka tilkynnist í síma 82930. Eitt nýjasta verk Hans Richter's á sýningunni. Sýning á verkum Hans Richters Á mánudag verður opnuð I Menningarstofnun Randaríkj- anna sýning á list Hans Richters. Hans Richter lézt 1. febrúar s.l. 87 ára að aldri en hann var einn mesti frumkvöðull dadaismans. Verk Hans Richter's hafa ekki áður verið sýnd á Norðurlöndum og sum þeirra verka sem eru á sýningunni hafa ekki verið sýnd áður. A sýningunni eru einnig bækur Richters og sýndar verða kvikmvndir sem hann gerði. Sýningin spannar vfir 58 ára tímabil. Hefst hún á verkum gerð- um undir áhrifum dadaismans. en lýkur með verkum sem eru gerð 1975. Dadaisminn kom fyrst fram i Zurich árið 1916 og var Richter eins og áður sagði einn af upp- hafsmönnum hans. Ýmsar, aðrar stefnur eru komnar frá dadaism- anum, s.s. popplist. antidadaismi o.fl. Frank Ponzi. sérfræðingur i listasögu og vinur Richter’s mun einnign í tengslum við sýninguna ræða um Hans Richter og list hans. Sýninginni lýkur23. april. .Tilboð, sem ekki verður endurfekið... SKODA 100 -630.000. til öryrkja ca. kr. 460.000.- I tilefni af því að 30 ár eru síðan fyrsti Skodinn kom til landsins, hefur verið samið við SKODA verksmiðjurnar um sérstakt afmælisverð á takmörkuðu magni af árgerðum 1976. 5000asti SKODA bíllinn verður fluttur inn á næstunni. Hver verður sá heppni? SKODA 110L verð ca. kr. 670.000.- til öryrkja ca. kr. 492.000.- SKODA 110LS verð ca. kr. 725.000.- til öryrkja ca. kr. 538.000.- SKODA 110R Coupé verð ca. kr. 797.000.- til öryrkja ca. kr. 600.000.- TEKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐ/Ð Á ÍSLANDIH/E AUÐBREKKU 44 - 46 KÓPAVOGI SÍMI 42600 AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ A AKUREYRI H/F. OSEYRI 8. EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR. ■ ■ ■ ■ ■ I ■ ■ ■ ■ I ■ ■ ■ ■ ■ ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.