Morgunblaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1976 15 Chile: Sjö þúsund pólí- tískir fangar Fjöldi hverfur sporlaust dag hvern Helsinki, 30. marz. NTB. NÚ sitja I fangelsum í Chile að minnsta kosti sjö þús. pólitísk- Útför Montys á morgun London 30. marz AP. FJÓRIR yfirhershöfðingjar munu ganga meðfram kistu Montgomerys hershöfðingja við útför hans á fimmtudag og verður kistan fána sveipuð. Mun verða gengið um fornar götur Windsor og útförin öll með einum hinum mesta við- hafnarbrag. Þegar til kirkj- unnar kemur verður hleypt af nítján skotum í heiðursskyni og meira en eitt þúsund hermenn munu taka þátt í prósessíunni á eftir her- vagninumsem kistuna ber. I kapellu Windsorkastala verður síðan minningar- guðsþjónusta yfir hershöfð- ingjanum. Síðar verður kistan flutt til Binuteadkirkju í Suður-englandi skammt frá heimili hershöfðingjans og þar verður hann jarðsettur að við- stöddum aðeins nánustu ættingjum sinum. ir fangar og ekkert bendir til að dregið hafi úr handtökum og pyndingum segir í niðurstöðu al- þjóðlegrar mannréttinda nefndar á vegum kirkjunnar sem hefur rannsakað brot herforingja- stjórnarinnar f Chile á almennum mannréttindum þar I iandi síðan Allende forseta var steypt af stóli. I yfirlýsingunni segir að margir hverfi sporlaust og sé þar á ferð enn eitt vandamálið, en að sögn vitna sem yfirheyrð hafa verið um málið, mun margt af því fólki hafa verið myrt með köldu blóði af útsendurum stjórnarinnar. Er talið að i hitteðfyrra hafi milli 60 og 70 manns horfið í hverjum mánuði og að samkvæmt upplýs- ingum sem hefur verið aflað að staðaldri síðan bendi flest til að þessi tala hafi enn farið hækk- andi. Oft gangi það fyrir sig á þann veg að lögregla handtaki mann og síðan spyrjist ekki til hans meir. Síðan herforingja- stjórnin tók völdin i Chile hafi samtals 180 þúsund manns verið handtekinn og setið í fangelsi um lengri eða skemmri tíma. Leyni- lögregla stjórnarinnar hefur tak- markalaust vald til að handtaka fólk og ber ábyrgð á aðgerðum þessum og þróun málanna. Fram- koma herforingjastjórnarinnar brjóti í bága við lög landsins og mannréttindayfirlýsingu Sam- einuðu þjóðanna, segir í skýrslu þessari. Brezki flotinn kvartar undan ástandi freigátna Aðeins 25 af 60 hæfar til aðgerða London, 30. marz. Einkaskeyti til Mbl. frá AP. YFIRMENN brezka flotans hafa gert varnarmálaráðuneytinu við- vart um að flotinn geti ekki tryggt að hann standi við skuld- bindingar sínar á þessu ári, og þar i felst verndun togaraflotans við tsland, að því er brezka blaðið Daily Mail sagði í dag. Blaðið sagði að aðeins 40% af sextfu freigátum Breta væru I full- komnu lagi vegna viðgerða, lang- tima endurbóta og annars almenns viðhalds sem fram- kvæma þyrfi. Ekki bætir úr skák það sem gerðist um helgina er freigátan Diomede varð að snúa til Eng- lands eftir árekstur við varð- skipið Baldur, segir í skýrslunni til ráðuneytisins. 1 forystugrein í Daily Mail segir að það sé fráleit röksemd hjá flotayfirvöldum að svo stórfelldar endurbætur og viðgerðir þurfi að vera I gangi. Blaðið segir: „Hvað er það eiginlega sem vakir fyrir brezka flotanum? Sjóliðsfor- ingjarnir hafa skýrt utanrikis- ráðuneytinu svo frá að aðeins 25 af 60 freigátum flotans geti farið til átarfa og verði ekki bundinn endir á þorskastriðið við Islend- inga kunni svo að fara að flotinn geti ekki varið togara okkar. Þetta eru gersamlega óframbæri- leg rök“. x. . c - ' ÖSKARINN — Jack Nicholson setur skóinn á Lousie Fletcher, meðleikara sinn i Öskarsverð- launamvndinni One Flew Overt the Cuckoo’s Nest, við afhendingu verðlaunanna i fyrrinótt, en myndin fékk alls fimm verðlaun. Slíkt hefur ekki komið fyrir i marga ára- tugi. T.v. er Saul Zaentz, annar af framleiðendum mvndar- innar. Louise hafði tekið af sér skóinn vegna myndatöku með karlmönnunum tveimur, þvi hún er kona hávaxin og þótti skyggja á þá báða. Sfmamynd AP George Burns, hinn þekkti gamanleikari bæði á leiksviði og í útvarpi, hlaut Oscar fyrir beztan leik í aukahlutverki i myndinni „The Sunshine Boys“. Burns er nú áttræður að aldri. Milos Forman, sem var leikstjóri Cuckoo's Nest fékk verðlaun fyrir bezta leikstjórn, en það kætti ekki síður huga Formans, sem er Tékkóslo- vaki að hann fékk heimsókn tvíburasona sinna ellefu ára gamalla, sem hann hefur ekki séó í fimm ár. Synirnir fengu sérstakt leyfi til að fara til föður síns í tilefni Oscars- hátiðahaldanna. „Barry Lyn- don“ og „Jaws“ skiptu á milli sin nokkrum verðlaunum. Barry Lyndon fékk verðlaun Loks kom að því að Nicholson fengi Oscar Los Angeles, 30. marz Reuter. NTB. VIÐ 48. afhendingu hinna eftir- sóttu bandarisku Oscarsverð- launa í gærkvöldi hlutu Jack Nicholson og Louise Fletcher verðlaun fyrir beztan leik í að- alhlutverki, bæði fyrir leik I myndinni „One flew over the Cuckoo’s Nest“. Myndin hlaut samtals fimm Oscarscerðlaun og var meðal annars talin bezta mynd ársins og fékk og verð- laun fyrir bezta handritið. Jack Nicholson sem er 39 ára gamall hefur fjórum sinnum áður kom- ið til greina við úthlutun Oscarsverðlaunanna Nicholson fer með hlutverk sjúklings á geðveikrahæli er gerir upp- reisn gegn kerfinu, en Louise Jack Nicholson I hlutverki hins erfiða geðsjúklings Randle P. McMurphy f myndinni „One flew over the Cuckoo’s Nest“ sem hann hlaut Oscarinn fyrir. Fletcher leikur stranga hjúkr- unarkonu þar. fyrir bezta listræna stjórn, beztu búningateikningar og beztu tónlistarútsetningu en „Jaws“ fyrir bezta hljóðsetn- ingu og klippingu. Þá var Mary Pickford veitt sérstök verðlaun fyrir framlag hennar til kvikmyndanna. Var sjónvarpað frá afhendingu þeirrar viðurkenningar sem fór fram á heimili leikkonunnar í Beverly Hills. Mary Pickford er nú 82ja ára. Verðlaunaafhendingin sem er mikið og árlegt sjónarspil í kvikmyndaborginni dró til sin hinar ýmsu stjörnur, en tekið er fram að af þeim hafi Eliza- beth Taylor að venju vakið hvað mesta athygli þegar hún kom á vettvang. Þorskastríðsátök bezta íréttamynd í Bretlandi Hull, 30. marz. Einkaskeyti til Mbl. frá Mike Smart. BILL Nicol, þritugur kvikmynda- tökumaður, fékk í dag verðlaun brezkra sjónvarpsstöðva fyrir beztu fréttamyndina á sl. ári fyrir mynd sem hann kallar „þorska- striðsátök” og var hún tekin á fjörtíu klukkustunda tímaskeiði um borð í freigátunni Brighton. Hljóðsetningarmaður sá sem var með Nicol um borð f freigátunni tók upp allar samræður og loft- skeytasendingar sem fóru á milli á þessum fjörtíu stundum. Þar sem verulegur hluti myndarinnar var tekinn að nóttu til notaði Nicol sérstaka kvik- myndavél sem kölluð er „night sight“ vélin og sjónvarpsmenn BBC hafa búið til og nota sem fyrirmynd byssusjónauka. Skipherra Diomede við heimkomu: Okkur tókst að bjarga mynd af drottningunni Rosyth, 30. marz. Einkaskeyti til Mbl. frá AP og Mike Smart í Hull. SKIPHERRA freigátunnar Diomede, sem kom til hafnar hér til viðgerða stórlöskuð á bakborðshlið, sagði að fslenzka varðskipið Baldur hefði á laugardaginn skorið 20 feta rifu I hlið skipsins „eins og dósahnffur." Skipstjórinn sem heitir Robert McQueen og er 41 árs, sagði að sameiginleg bar- stofa áhafnarinnar á freigát- unni hefði skemmzt mikið, mynd af „Philip prins hefði eyðilagzt í átökunum „en tekizt hefði að bjarga mynd af Elfsa- betu drottningu. McQueen sagði að freigátan hefði veri að taka olíu úr tank- skipi, þegar frétt hefði borizt um að freigátan sem fylgdi Baldri eftir hefði bilað smá- vegis, og Diomede hefði því tekið að sér eltingarleikinn. Skipstjórinn sagðist hafa varað Baldur við því að með þvi að halda óbreyttri stefnu færi varðskipið of nálægt freigát- unni. „Eg reyndi að stugga hon- Framhald á bls. 31 Skipherrann á Diomede Robert McQueen við komuna til Rosyth I gærmorgun. Bretar segjast hafa virt friðunarsvæði! London, 30. marz. Einkaskeyti til Mbl. frá AP. EINS og sagt var frá í gær veiddu brezkir togarar á íslandsmiðum 8.257 lestir að sögn brezka land- búnaðarráðuneytisins á tímabil- inu frá 2. febrúar til 20. marz og segir þar að það sé 484 tonnum undir þeim kvóta sem Bretar hafi sett sér. Þá sagði talsmaður land- búnaðarráðuneytisins orðrétt: „Togararnir hafa frá þvi deilan upphófst virt friðunarsvæðin, sem tilgreind voru í samningi landanna er gerður var í nóvem- ber 1973. „Og talsmaður samtaka togaraeigenda sagði að þær tölur sem að ofan greindi sýndu hversu langt Bretar hefðu gengið og Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.