Morgunblaðið - 13.07.1976, Side 36
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13.JULÍ 1976
SEX HJOLA SIGUR
í SVÍÞJÓÐ OG HUNT
VANN í FRAKKLANDI
Grand Prix Svíþjóðar, sem haldið var á Anderstorp
brautinni 13. júní s.l., markaði nokkur þáttaskil í heims-
meistarakeppninni í ár. Það var ekki Ferrari sem sigraði
og bíll sigurvegarans var ekki fjögurra hjóla heldur sex.
Það var Suður
Afríkumaðurinn Jody
Schekter, sem ók
sigurbilnum, Elf Tyrr-
ell Ford, og i öðru
sæti varð félagi hans
Frakkinn Patrick
Depailler, á sams
konar bil. Þessi nýi
bill, sem aðeins ör
sjaldan hefur verið
notaður í keppni
hingað til er þannig,
að framhjólin eru
tvofold (sjá mynd),
þau eru einnig minni
en tiðkast með fram
hjól annarra bila i
formúlu 1. Ökumenn
Tyrrell hafa reynzt
nokkuð tregir til að
láta i Ijós kosti bils-
ins svo að aðrir fram
leiðendur séu lengur
að átta sig. Þetta
þótti heldur brosleg
ur bill i fyrstu, en
hann hefur nú sann
að ágæti sitt. Greini-
legt er að hann er
mjög hraðskreiður á
beinum brautarköfl-
um og bremsukraft-
urinn er aukinn. Það
kom engum á óvart á
fyrsta degi æfing
anna i Sviþjóð að
heimsmeistarinn frá
Austurríki, Niki
Lauda, náði bezta
timanum á Ferrari bil
sinum. Síðari daginn
átti Niki hins vegar
við ýmsa erfiðleika
að striða í bil sfnum,
sjaldan þessu vant.
Honum tókst ekki að
bæta tima sinn og
Jody Schekter náði
pólstöðu fyrir keppn
ina (þ.e. bezta æf-
ingatíma) og Banda
rikjamaðurinn Mario
Andretti átti næst
bezta timann á JPS
Lotus. í annarri röð i
keppnisbyrjun voru
þeir Chris Amon frá
Nýja Sjálandi á
Ensign Ford og
Patrick Depailler.
Niki Lauda var aftur i
þriðju röð og hefur
ekki fyrr á árinu haf-
ið keppni svo aftar-
lega. Við hlið hans
var Sviinn Gunnar
Nilsson á JPS Lotus,
en hann er nýbyrjað-
ur að keyra i formúlu
1
Mario Andretti
þeysti fyrstur af stað
þegar keppnin hófst
og náði góðri torystu
(8 sekúndum), en
Jody var annar,
Depailler þriðji, Am-
on fjórði og þá
Lauda
Siðan kom hver á
fætur öðrum, alls 26
bilar. Þ.á m. var Sví-
inn Ronnie Peterson
á March Ford, en
honum hefur ekki
gengið sem bezt upp
á siðkastið. Þarna
var lika Brasilíumað
urinn Emerson Fitti-
paldi, fyrrum tvöfald-
ur heimsmeistari, á
silfurlitum Coper
sucar Fittipaldi bíl
sfnum, sem bilar allt
of oft og var hann úr
keppni fremur
snemma.
Eftir marga hringi
kom í Ijós að
Andretti fékk heila
mfnútu i mínus af þvi
hann hafði farið of
fljótt af stað. Á þetta
reyndi hins vegar
aldrei þvi eftir 30
hringi (af 72) kom
mikill reykur úr Lot-
'usnum hans og hann
var úr keppninni með
vélarbilun. Eftir það
var forystu Jody
Schekters aldrei ógn-
að og hann var ör-
uggur sigurvegari á
nýja sex hjóla Tyrrell
bilnum. Depailler
varð annar en þeir
voru einnig í tveim
fyrstu sætunum f
sömu keppni fyrir 2
árum. í fyrra sigraði
Niki Lauda á Ander
storp, en nú var hann
,,aðeins" þriðji. Am
on hafði keyrt mjög
vel í þriðja (til fjórða)
sæti f keppninni þeg-
ar bilun olli því að
hann fór allharkalega
útaf, eyðilagði bflinn
en slapp lítið meidd-
ur sjálfur.
Frakkinn Jacques
Laffitte var fjórði á
Gitanes Ligier Matra
bflnum franska, eftir
ágætan og oruggan
akstur. Talsverð bar-
átta var hins vegar
um fimmta og sjötta
sætið, en Bretanum
James Hunt tókst að
halda fimmta sæti á
Marlboro McLaren
Ford bíl sfnum, en
Svisslendingurinn
Clay Regazzoni, sem
ekur Ferrari, fór fram
úr Ronnie Peterson
og náði sjötta sæti.
— Þrem vikum
sfðar var Grand Prix
Frakklands á Paul
Richard brautinni við
Miðjarðarhaf ið.
Enn gekk heims
meistaranum Niki
Luada ekki vel, þvf
vélin bilaði í Ferrari
bíl hans eftir aðeins
tfu hringi, en hann
var þá fyrstur. Félagi
hans Regazzoni fór
útaf, þannig að þetta
var ekki góður dagur
fyrir Ferrari.
Bretinn James
Hunt var nú fyrstur á
McLaren Ford og
Frakkinn Patrick
Depailler annar á
Tyrrell, og hélzt sú
röð til loka keppninn-
ar. James Hunt ók
keppnina, sem var
54 hringir, á 1 klst,
40 mín, 58.60 sek.,
og meðalhraði hans
var 186,423
km/ klst.
írinn John Watson
náði sfnu bezta f
Grand Prix til þessa
og var þriðji á First
National Penske bfl
sfnum. Brasilfumað-
urinn Carlos Pace
var fjórði á Martini
Brabham bíl, Mario
Andretti fimmti á
JPS Lotus og Jody
Schekter sjötti á öðr-
um sex hjóla Tyrrell
bflnum.
Grand Prix keppn-
istfmabilið er nú
u.þ.b. hálfnað og
Niki Lauda hefur
góða forystu í heims-
meistarkeppninni.
Næsta keppni
verður á Brands
Hatch brautinni í
Bretlandi.
br.h.
Jody Schekter veifar eftir fyrsta sigur sex hjóla bfls f Grand Prix.
Myndin var tekin á Anderstorp.
Til að sýna sex hjMm bflian er hér einnig mynd af Patrick Depailler, sem
varð annar bm$i f Svtyrjóð og Frakklandi
Vestmanneyingar sækja að marki Þórs og Samúel markvörður Akureyrarliðsins virðist ekki vera alveg
með á nótunum að þessu sinni. (ljósm. Sigurgeir).
ÍBV TAPAÐIFYRSTA STIG-
INU í 2. DEILD GEGN ÞÚR
ÞÓRSURUM frá Akureyri tókst þaö sem öðrum 2. deildarliðum hefur hingað til
ekki tekizt í deildinni, að taka stig af ÍBV. Liðin léku s.I. laugardag í austan
strekkingi, sem stóð eftir veilinum endilöngum og hefði því átt að ráða miklu um
gang leiksins. En svo varð ekki. Eyjamenn léku móti rokinu í f.h. og sóttu mun
meira en Þórsarar. Liðsmönnum ÍBV tókst frábærlega vel að hemja boltann við
jörðina, og með góðri knattspyrnu og örum skiptingum réðu þeir mestu um gang
leiksins. Þórsarar reyndu hinsvegar mest langskot sem ýmist fóru framhjá eða
lentu í öruggum höndum Ársæls Sveinssonar.
Fyrsta mark leiksins kom á 27.
mín. Dæmd var aukaspyrna á Þór
og sendi Tómas Pálsson snöggan
jarðarbolta fyrir markiö til Arnar
Óskarssonar sem skoraði af stuttu
færi. Á 44. mín. fá Þórsarar horn-
spyrnu og úr henni jafna þeir
metin, 1—1. Einar Sveinbjörns-
son náði að skalla inn, en þarna
voru Ársæll og félagar hans í IBV
vörninni illa á verði.
Áhorfendur bjuggust við því að
Eyjamenn myndu fljótlega gera
út um leikinn í s.h. þegar þeir
hefðu vindinn í bakið. En það fór
nú á annan veg. Að vísu sótti IBV
engu minna en áður en nú var
skynsemi í spilinu sem var svo
áberandi í f.h. fokin vestur af
Hamrinum og upp voru tekin
sömu tilgangslausu kýluspörkin
eins og Þór hafði ástundað í f.h.
Vissulega áttu Eyjamenn færi en
Það var greinilegt að hitinn
hafði mikil áhrif á leikmenn.
Menn tóku rokur en á köflum
voru leikmenn sem lamaðir. KA-
menn sköpuðu sér nokkur hættu-
leg tækifæri í fyrri hálfleik en
lengi vel gekk illa að stýra knett-
inum rétta leið í markið. Það var
ekki fyrr en um tvær mínútur
voru eftir af fyrri hálfleik sem
Eyjólfur Ágústsson skoraði fyrsta
mark leiksins, og Eyjólfur var aft-
ur á ferðinni hálfri mínútu síðar.
KA-menn voru því kampakátir
þegar blásið var til leikhlés, tvö
mörk á síðustu mínútunni. Marka-
kóngurinn Gunnar Blöndal inn-
þau nýttust ekki. Svo allt í einu
þegar Þórsarar komast loksins
upp að marki IBV á 73. min. skora
þeir mark, 1—2. Langsending
kom fyrir markið og þar lentu í
návígi Ársæll markvörður og Jón
Lárusson. Jón hafði betur og
skallaði i netið.
Þetta mark, svo óvænt sem það
kom, orkaði eins og vænn vang-
skellur á ÍBV og loks fór liðið að
spila á jörðunni og dreifa spilinu
út á kantana og jöfnunarrnark
IBV kom einmitt eftir slika spila-
mennsku. Snorri Rútsson brunaði
upp hægri kantinn og gaf vel fyr-
ir markið, beint til Arnar Óskars-
sonar sem tók boltann niður, lék
aóeins til hliðar og skaut síðan
þrumuskoti upp í bláhornið. Stór-
glæsilegt mark. Það sem eftir lifði
leiks reyndi ÍBV árangurslaust að
skora vinningsmark en það tókst
siglaði siðan sigurinn í upphafi
síðari hálfleiks. Fleiri urðu mörk-
in ekki og sigur KA fyllilega
sanngjarn.
Leikurinn sem slíkur var ann-
ars fremur slakur og hefur hitinn
án efa haft þar sitt að segja.
Haukarnir áttu og sin færi, en
tókst ekki sem skyldi að nýta þau.
Ef til vill hefðu tölur eins og 5
mörk gegn 2 gefið réttari mynd af
gangi leiksins, en úrslitin urðu
sem sagt 3 mörk gegn engu, og tvö
dýrmæt stig til KA í baráttunni
um 2. sætið i deildinni.
Sigb.G.
ekki. Áhorfendur heimtuðu samt
víti rétt fyrir leikslok, þegar Tóm-
asi Pálssyni var brugðið innan
vitateigs, en dómarinn vildi ekk-
ert hafa með það að gera, og lauk
því leiknum með jafntefli 2—2.
Eyjamenn geta sjálfum sér um
kennt aó hafa gloprað niður þessu
stigi. Hefðu þeir haldið sömu
spilamennsku í s.h. og þeir
sýndu i þeim fyrri hefði ekki
þurft að spyrja að leikslokum.
Beztu menn liðsins voru Karl
Sveinsson og örn Óskarsson.
Tómas Pálsson gekk ekki heill
til þessa leiks en sýndi þó
margt fallegt. Erfitt er að
dæma Þórsliðið eftir þennan
leik. Liðið sýndi liila knattspyrnu
og getur hrósað happi yfir stiginu
sem það fór með norður. Beztu
menn liðsins á laugardag voru
Einar Sveinbjörnsson og Gunnar
Austfjöró, þótt svo Gunnari hafi
gengið illa að hemja Örn Óskars-
son í þessum leik.
—hkj
ÍBÍ - Ármann 3:0
ÍSFIRÐINGAR unnu Armenn-
inga örugglega á Isafirði á
laugardaginn. Úrslitin urðu
3:0, en það var þó ekki fyrr en
f seinni hálfleik sem heima-
menn náðu undirtökunum f
leiknum. Þá skoruðu þeir Jón
Oddsson, Gunnar Pétursson og
Haraldur Leifsson eitt mark
hver og tryggðu isfirðingum
sanngjarnan sigur.
Selfoss -
Völsungur 2:0
VÖLSUNGAR gerðu sér Iftið
fyrir og unnu Selfyssinga á
heimavelli þeirra sfðarnefndu
í 2. deildinni á laugardaginn.
Úrslitin urðu 2:0 og skoraði
Hafþór Helgason baeði mörkin
f seinni hálfleik. Þótti leikur-
inn lélegur og Iftió spennandi.
TVÖ DÝRMÆT
STIG TIL KA
ÞAD VAR 25 stiga hiti í forsælu á Akureyri á laugardag, þegar viðureign
KA og Hauka f 2. deild hófst. Fyrir leikinn fóru leikmenn þess á leit við
dómarann, Rafn Hjaltalfn, að fá að hafa vatnsfötur við hliðarlfnur til þess
að menn gætu hresst sig í þrúgandi hitanum, en Rafn vísaði þeirri bón á
bug.