Morgunblaðið - 20.08.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGUST 1976
3
Lítil loðnuveiði
LÍTIL loðnuveiði var hér í
gær og aðeins eitt skip,
Grindvíkingur, tilkynnti
loðnunefnd um afla, 500
tonn, sem skipið ætlaði
með til Siglufjarðar. Jakob
Jakobsson fiskifræðingur,
sem nú er um borð í Árna
Sigurði frá Akranesi í
loðnuleit, sagði í samtali
við Mbl. í gær, að þeir
hefðu fundið nokkrar góð-
ar torfur þá um daginn um
90 sjómílur í norður af
Straumnesi, en loðnan
væri stygg og straumar
miklir og því lítil veiði.
Jakob sagði að þeir á Árna
Sigurði yrðu á þessum slóð-
um eitthvað áfrám, en
mundu síðan að líkindum
halda áfram í norðaustur
með landinu til leitar.
ÚTHLUTAÐ hefur verið
lóð við Stuðlaháls í Reykja-
vík undir starfsemi ÁTVR
ATVR og
Lyfjaverzl-
unin fá lóð
Hrossauppboð 1
Svignaskarði
HROSSAUPPBOÐ verður haldið
í Svignaskarði nk. laugardag og
verða þar boðin upp um 30 hross,
eign Kjartans Jónssonar á Guðna-
bakka og Skúla Kristjánssonar á
Svignaskarði. Að sögn Kjartans
er hér um að ræða hross á öllum
aldri, folöld, hryssur, tamda hesta
og ótamda og fola á tamninga-
aldri. Sagði hann að þeir Skúli
vildu fækka við sig hestum og því
væri þetta uppboð haldið, en það
er sýslumaðurinn í Borgarnesi,
sem sér um uppboðið. Sjaldgæft
er að slík uppboð séu haldin hér-
lendis. Uppboðið hefst kl. 2 á
iaugardaginn í Svignaskarðsrétt.
Gæzluvarð-
hald framlengt
um 15 daga
STÖÐUGT er unnið að
rannsókn hins mikla fíkni-
efnamáls, sem Fíkniefna-
dómstóllinn hefur verið
með til meðferðar. í gær
rann út 30 daga gæzluvarð-
hald 19 ára pilts, sem setið
hefur inni vegna málsins.
Var gæzluvarðhald hans
framlengt um 15 daga.
Borgarstjóri afhendir Ólafi Ingvasyni lyklana að fbúðinni.
Fyrsta íbúðin í verkamanna-
bústöðum í Seljahverfi afhent
og Lyfjaverzlunar ríkisins
við hlið lóðar þeirrar sem
verksmiðja ÁTVR er nú til
húsa á. Að sögn Jóns Kjart-
anssonar forstjóra ÁTVR
er fyrirhugað að stækka
þar húsnæði ÁTVR og
byggja framtíðarhúsnæði
fyrir Lyfjaverzlunina.
Einnig er ætlunin að þarna
rísi skrifstofuhús fyrir báð-
ar stofnanirnar og að með
tímanum flytjist öll starf-
semi þeirra beggja á þenn-
an stað.
NU HEFUR verið afhent
fyrsta íbúðin í verka-
mannabústöðunum í Selja-
hverfi í Reykjavík. Það er
fjölskylda Ólafs Ingvars-
sonar, sem hana fékk og
afhenti borgarstjóri Ólafi
lykla íbúðarinnar í gær.
Eyjólfur K. Sigurjónsson
formaður stjórnar verka-
mannabústaða sagði að
Ólafur og fjölskylda hans
væru fyrstu íbúar í Selja-
hverfinu þarna og gert
væri ráð fyrir því að á
næstu mánuðum yrðu
íbúðirnar afhentar hver af
annarri og fyrir októberlok
yrði búið að afhenda íbúðir
fyrir 580 til 600 milljónir
króna.
Eyjólfur þakkaði ölium bygg-
ingaraðilum fyrir góða samvinnu
og sérstaklega vildi hann þakka
borgaryfirvöldum fyrir þeirra
hlut i þessu máli, en upphaflega
átti þetta hverfi að vera einbýlis-
húsahverfi. Fyrir tilstilli borgar-
yfirvalda var því svo breytt í fjöl-
býlishúsahverfi að mestu. Eyjólf-
ur sagði að í þessari úthlutun
hefði borizt 1021 umsókn um þær
308 íbúðir sem byggðar verða í
þessum áfanga. Svo virtist sem
ekki væri hægt að byggja nógu
hratt, alltaf væru einhverjir sem
ekki fengju Ibúð en þess bæri að
gæta í því sambandi að nú fengi
ungt fólk sina eigin íbúð strax
eftir giftingu, miklu fyrr en fyrir
fáum árum.
Borgarstjórinn I Reykjavík,
Birgir ísleifur Gunnarsson, af-
henti síðan Ólafi Ingvarssyni
lykla ibúðarinnar og sagði við það
tækifæri að gott samstarf hefði
verið milli borgarinnar og stjórn-
ar verkamannabústaða, en sam-
kuæmt lögum eiga þessir aðilar að
vinna saman um þau mál.
Borgarstjóri sagði að hann
hefði orðið var við nokkrar
áhyggjur fólks af samgöngumál-
um við þennan nýjasta hluta
Breiðholtsins og vildi hann nefna
það að frá 1. september hæfist
akstur á leiðinni Hólar-Bakkar
inn I hverfið og þannig tengdist
það við Breiðholt eitt og þrjú.
Þau hjónin Ólafur Ingvarsson
og Artha Ingvarsson sýndu siðan
fréttamönnum íbúðina. Er hún I
Teigaseli 11, I svonefndrí B-gerð,
rúmlega 90 fermetrar að flatar-
Framhald á bls. 22
Ólafur Ingvarsson og f jölskylda I eldhúsinu (Teigaseli 11.
„ÞESSI viðurkenning kom mér
vissulega á óvart,“ sagði Berg-
Ijót Gunnarsdóttir þegar Mbl.
leit inn hjá henni að Njarðar-
götu 9, en eins og kunnugt er,
var húsið valið fegursta einbýl-
„Viðurinn
kom í ljós
(ljósm. Friðþjófur)
eftir enda-
— segir eigandi fallegasta einbýlishússins
laus lög
af dúkum”
ishús borgarinnar I fyrradag.
— „Að vísu hef ég tekið eftir,
að fólk hefur veitt húsinu
mikla athygli en mér datt þetta
nú samt ekki I hug.“
Bergljót býr L/öllu húsinu
ásamt fimm manna fjölskyldu
sinni, en alls er húsið þrjár
hæðir. Að innan er húsið ekki
siður fallegt en að utan. Veggir
og gólf eru úr viði og i loftinu
eru sverir bitarnir sýnilegir. —
„Þetta er allt upphaflegt, eins
og það kom undan betrekkinu
og gólfdúkum," sagði Bergljót.
— „Þetta voru endalaus lög af
gólfdúkum og betrekki, svona
6—7 lög af hvoru. En við þurft-
um að láta pússa það allt upp og
setja nýja bita I loftið.
Bergljót sagði okkur að húsið
hefði verið teiknað 1923 og að á
teikningunni stæði að Þorlákur
Ófeigsson hefði teiknað það.
Guðmundur H. Þorláksson
stjórnaði smiðinni en fyrsti eig-
andi hússins var Kristján
Snorrason. Guðrún Ólafsdóttir
sem seinna byggði Njarðargötu
5 keypti húsið af Kristjáni og
leigði hún Kristni Ármannssyni
rektor hæúina. Árið 1931 keypti
Guðmundur JONSSON HÚSIÐ
Framhald á bls. 22