Morgunblaðið - 20.08.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGUST 1976
33
VELVAKANDI
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-!
dags
% Enn um skatta ...
Fátt er nú meira rætt meðal
manna en skattamálin. Hvar sem
tveir eða fleiri hittast er farið að
spjalla um þessi mál og margir
telja að nú verði að gera einhverj-
ar breytingar á skattalögum til að
allir beri eðlilega skatta. Kona ein
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
„Við hjónin erum bæði ellilíf-
eyrisþegar og hefur maðurinn
minn unnið fram að þessu en s.l.
vetur veiktist hann og var frá
vinnu i um fimm mánuði. Af þeim
sökum gátum við ekki greitt þá
fyrirframgreiðslu skatta sem
okkur var ætlað og grunlaus um
að við þyrftum að greiða dráttar-
vexti létum við þetta allt bíða. Svo
kom í ljós að okkur var gert að
greiða nokkur þúsund krónur í
dráttarvexti af þessari fyrirfram-
greiðslu og er okkur það sárt, þar
sem við hefðum örugglega reynt
að greiða fyrirfram ef við hefðum
vitað þetta. Skýringin sem við
fengum var sú að þetta yrðu allir
að greiða og við því líka og finnst
okkur það nokkuð furðulegt að
gera ellilífeyrisþegum skylt að
greiða þessa fyrirframgreiðslu,
þar sem fjárráð gamla fólksins
eru ekki svo mikil.
Annað atriði i skatta- og
tryggingarmálum sem mér finnst
skritið er að það er eins og
Tryggingastofnunin áliti hjón
ekki vera tvo einstaklinga heldur
aðeins einn. Hjón fá verulega
skert eililaun mun minni heldur
en tveir einstaklingar fá og það er
eins og við eigum að lifa af sama
matnum. Það er kannski ætlazt til
þess að hjón skilji á gamals aldri
til þess að þau fái meira út úr
tryggingunum heldur en þau fá
sem hjón.
í öllum þessum skattaum-
ræðum hefur það komið fram að
aldraðir búa við verulega erfið
kjör, og þau geta varla haldið
sinum eigum með öllum þeim
gjöldum sem þeim er gert skylt að
greiða af þeim. Það er vonandi að
allar þessar umræður, sem hafa
verið svo miklar að jafnvel veðrið
hefur að nokkru leyti horfið í
skuggann, leiði til einhverra
endurbóta á skattalöggjöf okkar.
# ... og gjöld á
bifreiða-
eigendur
Já, ýmsir óbeinir skattar
eru lagðir á menn og skattar á
bifreiðaeigendur af ýmsu tæi
hafa oft verið undrunarefni
ýmissa viðmælenda Velvakanda.
Fyrir nokkrum vikum var birt
hér bréf frá bifreiðaeiganda sem
átaldi skattheimtu ríkisins af bif-
reiðaeigendum og hvatti til þess
að Félag isl. bifreiðaeigenda léti
til sín heyra varðandi þessi mál. Á
dögunum var eitthvað verið að
tala um bensínhækkun og það
verður efni þess sem hér skrifar:
,,Það er sjálfsagt öllum
íslenzkum bílaeigendum ljóst að
mörg og margs kyns gjöld eru á
þá lögð. Einnig hljóta þeir allir að
vita og muna að bensínið ha'kkaði
í vor snemma, mig minnir í marz
og aftur í mai og nam þessi
hækkun nokkrum krónum. Um
þessar mundir er þvi bensín-
verðið 70 krónur en nú nýlega var
eitthvað talað um að von væri á
nýrri hækkun, og er það ekkert
undarlegt þar sem búið er að aug-
lýsa hækkun á olíu. Er því útlit
fyrir að bensínið hækki um meira
en 10 krónur á þessu ári og senni-
lega er ekkert útséð um
hækkanirnar á þessu ári.
En hvenær og hver á að geta
stöðvað þessa þróun? Það eru svo
margir aðilar, sem skipta bensín-
verðinu á miili sin, að það er e.t.v.
eðlilegt að það hækki svona
mikið, hver liðurinn verður að fá
sitt, og þar fær ríkið sennilega
stærstan hlut. Fyrir nokkrum ár-
um var hætt að innheimta afnota-
gjald af útvarpi sem var í bifreið-
um og var það fellt niður í
áföngum. Mig minnir að ein-
hverjar fleiri breytingar hafi
verið gerðar á síðustu árum varð-
andi sum gjöld á bifreiðaeig-
endur, en treysti mér ekki til að
fara út í hvað það var, gott ef
skoðunargjald eða eitthvað í þá
átt var ekki jafnvel lækkað. En
þessar lækkanir hafa nú annars
alveg fallið í skuggann fyrir
öllum hækkununum og mirinis-
stæðust er sú hækkun sem varð
um áramótin á öllum skráningar-
gjöldum.
Til eru hagsmunasamtök bif-
reiðaeigenda á íslandi. Félag
íslenzkra bifreiðaeigenda F.Í.B.
Það félag rekur með miklum
dugnaði vegaþjonustu eins og
öllum sem eiga útvarp mun vera
kunnugt af tilkynningum hvenær
sem er í dagskránni um helgar.
Þegar einhverjar hækkanir hafa
orðið á álögum á bifreiðaeigendur
hefur félagið birt fréttatil-
kynningar þarsem þeim er mót-
mælt og finnst mér oft að þær
tilkynningar hafi verið fremur
máttlitlar. Nú vil ég beina þeim
tilma'lum til þessa félags hvort
ekki sé hægt að koma á einn dag-
part einhvers konar hópakstri bif-
reiðaeigenda til að sýna meiningu
okkar um þessar hækkanir allar á
þessu ári og leggja áherzlu á að
eitthvað verði gert og þessi mál
tekin til endurskoðunar. Ég
minnist hópaksturs Kvartmílu-
klúbbsins, hann hafði góð áhrif
hefur manni skilizt.“
HÖGNI HREKKVÍSI
„Sverðfiskurinn hefur verið óvenju styggur og
hvumpinn að undanförnu.“
unnarlevsi:
— Og þér hljótið að sjá að þess
vegna varð HANN að deyja ...
Burt frá Hall. Aldrei skal ég
snúa þangað aftur.
Ég skil ekki hvernig svona
margt getur gerst á fáeinum vik-
um og hvað ég hef breytzt á þess-
um skamma tfma.
Hugsa sér að ég hataði hann af
innstu hjartans rótum i tíu ár. Ég
hataði mann sem ég hafði aldrei
hitt! Nú finnst mér það bæði
heimskulegt og barnalegt ... það
er voðalegt að bera með sér nei-
kvæðar kenndir. Stundum fannst
mér ég vera að verða eitthvað ein-
kennileg.
En samt er ég glöð yfir þvf að ég
skyldi fá tækifæri til að kynnast
honum. Ég ætla ekki að minnast
hans eins og hann leit út sfðustu
mínúturnar — heldur eins og þeg-
ar hann gekk um gólf f vinnuher-
berginu og Ias mér fyrir ...
Svo ætla ég ekki að muna fleira
— ekki að svo stöddu. Ekki hvad
var erfitt að ná andanum og ekki
HANA ... ég ætla bara að hugsa
um hvað er yndislegt að sitja
hérna og hafa hönd Petrusar utan
um sig.
Petrus segir að ég verði að koma
til Vásterás og bera vitni. Þetta er
vfst mjög flókið með Gregor Isand-
er og þátt hans í málinu. Og auð-
vitað kem ég aftur til Vásterás ef f
það fer.
En...
Hann hefur auðvitað ekki sagt
neitt...
Ja, þetta var svei mér viðburða-
rfkt kvöld. Helzt vildi ég losna við
að eiga aftur slfk augnablik þegar
við vorum að leita að stúlkunni.
Auðvitað var rétt hjá honum að
við hefðum ekki átt að senda varð-
mennina burt. Hann varð Ifka
vondur en ég held ekki að hann
erfi það.
Ætli það sé viðkunnanlegt að
bjóða honum f brúðkaupið.
Kannski ætti ég ekki að leyfa
mér að hugsa um brúðkaup f öll-
um þessum sorgaratburðum miðj-
um ... En fyrst er nú jarðarförin.
Andreasar Ilallmanns. Ég þori
ekki að hugsa um hvernig hún
muni nú ganga fyrir sig. Það verð-
ur sjálfsagt að jarða hann frá ann-
arri kirkju ... annars verður bara
umferðarstöðvun og allt fer í vit-
leysu ...
Lfklega er hún sofnuð ...
Ætli...
Ætli hún myndi vakna ef ég
kyssti hana?
SÖGULOK
Iþróttaþing hald-
ið á næstunni
IÞRÓTTAÞING ISl eru haldin á
tveggja ára fresti, koma þar sam-
an fulltrúar frá öllum héraðssam-
böndum landsins svo og frá sér-
samböndunum.
Að þessu sinni verður íþrótta-
þingið haldið á Akranesi dagana
4. og 5. sept. 1976, og fer fram i
Gagnfræðaskólanum þar, en á
þeim stað gista fulltrúarnir líka.
t Á iþróttaþinginu verða tekin
fyrir helztu viðfangsefni íþrótta-
sambandsins og fyrir þvf liggja
tillögur um veigamiklar breyting-
ar á lögum ISI, sem gert hefur
sérstök milliþinganefnd er
Iþróttaþing 1974 fól það verkefni
að endurskoða lög iþróttasam-
bandsins.
I tengslum við íþróttaþingið
mun m/s Akraborg fara frá
Reykjavik til Akraness kl. 12.30
laugardaginn 4. sept n.k. og frá
Akranesi til Reykjavíkur kl. 21.00
sunnud. 5. sept. n.k.
I
F // A T
I sýningarsalur
* Tökum allar gerðir notaðra bifreiða í umboðssölu
Fiat 850 special árg. '72
300 þús.
Fiat 126 Berlina árg. '75
600 þús.
Fiat 125 Berlina árg. '68
200 þús.
Fiat 125 special árg. '71
450 þús.
Fiat 125 Berlina árg. '72
580 þús.
Fiat 124 special T árg. '72
500 þús.
Fiat 127 árg. '72 450 þús
Fiat 127 árg. '73 550 þús.
Fiat 127 árg. '74 650 þús
Fiat 127 árg. '75 800 þús.
Fiat 128 árg. '73 570 þús.
Fiat 128 árg. '74 750 þús.
Fiat 1 28 árg. '75 1 millj.
Fiat 128 special 4ra dyra
árg. '76 1.200 þús.
Fiat 128 rally árg. '74
8oo þús.
Fiat 132 special árg. '73
950 þús.
Fiat 132 special árg. '74
1.100 þús
Fiat 132 GLSárg '74
1.250 þús.
Fiat 132 GLSárg.^'75
1.400 þús.
Ford Maverikárg. '74
1.500 þús.
Volkswagen 1300árg. '73
600 þús.
Toyota Carina árg. '74
1.250 þús.
Lada Topasárg. '75 900 þús.
Lancia Beta arg. '74
1.800 þús.
Volv 142 sjálfskiptur
árg. '71 1.180 þús
Peugeot 504 árg. '74
1.700 þús.
Vega station árg. 74
1 400 þús
Saab 99 E árg. '71 1 millj.
i l
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíd Sigurðsson hf.
SÍÐUMULA 35. SIMAR 38845 — 38888