Morgunblaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 3 Undruðumst hve míkíð Maó vissi um Island ÞEIR eru allmargir Islendingarnir, sem á slnum tfma heilsuðu upp á Maó formann. Sendinefndir stjórnmálamanna, flokksfor- ystumanna og menntamanna fóru til Kfna og meðal þeirra framámanna þar f fandi, sem nokkrir Islcndinganna hittu að máli, var Maó Tse-tung. Árið 1956 fóru þeir Haukur Hafstað, Steinþór Guðmunds- son og Stefán ögmundsson í sendinefnd héðan á 7. flokks- þing kinverska Kommúnista- flokksins. Stóð flokksþingið i hálfan mánuð og þennan tíma hittu Islendingarnir meðal annarra mætra manna Mao Tse-tung að máli. Haukur Haf- stað sagði Morgunblaðinu í gær lauslega frá fundi þeirra. — Við undruðumst það mjög hversu mikið Mao vissi um Island og íslendinga, sagði Haukur — Hann vissi að við lifðum nær eingöngu á fiskveið- um og sjávarútvegi. Hann vissi að á Islandi var þingræðis- stjórn ein sú elzta í heiminum. Hann vissi líka að Island var harðbýlt land og hafði á orði að þar hlyti að búa dugmikið fólk. — Vinstri stjórn var nýkomin til valda á íslandi og Maó hafði frétt að á stefnuskrá hennar var að koma hernum á Miðnes- heiði i burtu af landinu. Hann óskaði okkur til hamingju með þann vilja og sagðist vita það manna bezt hvað það þýddi að hafa erlendan her í landinu. Það var í mikilli veizlu, að við hittum Maó og við heilsuðum honum með handabandi. Ég man að hann hafði gott hand- tak, sagði Haukur Hafstað. Þeir voru fleiri Islendingar sem hittu Maó að máli. Einar Olgeirsson var þeirra á meðal og er við ræddum við hann í gær sagði Einar að hann hefði hitt Maó rétt sem snöggvast í Kína fyrir mörgum árum. — Maður nær þó ekki kynnum við slíka menn með því að taka í hönd þeim og skiptast á fáum orðum, sagði Einar. — Til að kynnast þeim þarf maður að lesa rit þeirra. Jakob Benediktsson, ritstjóri orðabókar háskólans, fór til Kína árið 1956 eins og Haukur Hafstað og félagar hans. Jakob var í sendinefnd stjórnmála- manna og menntamanna, en ekki hitti Jakob Maó sjálfan að máli. — A þjóðhátíðardegi Kínverja stóðum við hins vegar allnálægt hvor öðrum á „Svölum hins himneska friðar", sagði Jakob. — Mikil hátíðahöld fóru fram á götunni fyrir framan okkur og fylgdist Maó með þeim og hélt síðan stutta ræðu. Hann bar með sér mikla persónu, það duldist engum, þó maðurinn væri stilltur og hæglátur. STEINÞÓR Guðmundsson heilsar Maó Tse-tung er (s- lenzk sendinefnd sótti þing klnverska Kommúnista- flokksins fyrir réttum 20 árum. Aldraðir Siglfirð- ingar á ferðalagi Siglufirði 9. september Um síðastliðna helgi fóru félag- ar úr Kiwanisklúbbnum Skildi með 40 aldraða Siglfirðinga I ferðalag kringum Skaga. Gekk þessi ferð að óskum og rómaði fólkið ferð þess. Fararstjóri í ferðinni var Eyþór Hallsson skip- stjóri, en hann gjörþekkir stað- hætti á Skaga. mj Vel gengur að bræða Siglufirði 9. september Reykjaborg kom hingað í morg- un með 480 lestir af góðri loðnu, sem landað var hjá Sildarverk- smiðjum ríkisins. Verðmæti afl- ans var um 4 milljónir króna. Bræðslá gengur nú hreint ljóm- andi vel hjá SR. Aðeins er brætt á einni vakt, og er loðnan brædd um leið og hún berst að landi. mj. Najdorf tapaði einni skák NAJDORF tefldi fjöltefli við bankamenn á miðvikudagskvöld. Teflt var á 29 borðum. Najdorf vann 20 skákir, gerði 8 jafntefli, en tapaði einni skák. Sá sem vann stórmeistarann var Jóhann örn Sigurjónsson. Sýningunni lýkur á sunnudag Verið velkomin - strax í dag. ÍSLENSK FÖT/76 LAUGARDALSHÖLL 8.-12. SEPT. 30 framleiöendur sýna úrval íslenskrar fataframleiöslu í aóalsal Laugardalshallarinnar. Stærstu og glæsilegustu tískusýningar hérlendis eru á sýningarpöllum i aöalsalnum, þar sem jafnframt er veitingasala. Allt besta sýningarfólk landsins (Karon og Modelsamtökin) sýnir þaö nýjasta i islenskri fatagerö, viö tónlist og Ijósskreytingu. Tískusýningar veröa: Miðvikudag, fimmtudag og föstudag kl. 17.30 og 21.00. Laugardag og sunnudag kl. 15.30, 17.30 og 21.00. í veitingasal fást Ijúffengir smáréttir, og auövitað kaffi og kökur og öl, þar geta gestir því fengió sér hressingu um leió og þeir horfa á tískusýningarnar. í anddyri eru hárskerar og hárgreióslufólk með hárgreiöslusýningu, þar verður starfrækt hárgreiöslu- og rakarastofa þar sem gestir geta séö nýjustu klippingar, og jafnvel fengið sig klippta. I anddyrinu verða einnig kjólameistarar og klæöskerar meó sýningardeildir. Í ókeypis gestahappdrætti verður dreginn út vinningur daglega; úttekt á íslenskum fatnaði fyrir 25.000 krónur, og i sýningarlok verður dreginn út aöalvinningurinn, föt á alla fjölskylduna fyrir krónur 200.000. Opið kl. 3-10 daglega, svæöinu lokað kl. 11. og kl. 2-10 laugardag og sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.