Morgunblaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976
GOLFMOT
UM næstu helgi, 11.—12.
september, verður keppt í
kvennaflokki í Ron Rico-
golfkeppninni, en verðlaun til
þessarar keppni gefur fyrir-
tæki Einars Th. Mathiesen.
Jafnframt verður opið
drengjamót, Dunlop-keppnin,
en verðlaun til þess móts gefur
umboðsfyrirtæki Dunlop,
Austurbakki hf.
Tilkynna skal þátttöku í
bæði þessi mót í sfma 53360 og
52388 fyrir kl. 19 n.k. föstudag.
Badminton
hjá Víkingi
BADMINTONDEILD Vikings
hefur vetrarstarfsemi sína inn-
an skamms og hafa Víkingar
nú yfir fleiri timum að ráða en
verið hefur áður. Þeir sem
ætla sér að fá fasta tíma hjá
félaginu eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við
Badmintondeild Víkings f síma
38524 eða 34161 næstu kvöld.
Golfkeppni
handknattleiksmanna
HIN árlega golfkeppni handknatt-
letksmanna fer fram á velli Nes-
klúbbsms í dag og hefst kl 1 5 00
Margir þekktir handknattleiks-
kappar munu taka þátt i keppninni
að þessu sinni sem endranær, en
nokkrir handknattleiksmenn hafa
getið sér gott orð í golfiþróttinni og
nægir þar m a að nefna Birgi
Björnsson, Berg Guðnason, Ágúst
Svavarsson og fl
Erfitt að meta hvort um
rangstöðu var að ræða
MYND þessa tók Ijósmyndari Morg
unblaðsins, Kristinn Ólafsson, af
hinu umdeilda marki f fyrrakvöld.
Rensenbrink (sést ekki á myndinni)
tók aukaspymu og lyfti knettinum
yfir fslenzka varnarvegginn til Geels
(nr. 10), sem kominn var á fulla ferð
og tókst að senda knöttinn f fslenzka
markið, framhjá Áma Stefánssyni
sem sést lengst til hægri á myndinni.
Leikmaður nr. 3 á myndinni er Jón
Pétursson.
Skiptar skoðanir manna á marki Hollendinganna
MIKIÐ var rætt um það manna á
meðal f gær hvort mark það sem
Hollendingar skoruðu í lands-
leiknum 1 fyrradag hefði verið
rangstöðumark, og sýndist þar
sitt hverjum. Af sjónvarpsmynd
þeirri er sýnd var í fyrrakvöld var
ekki annað að sjá en að hollenzki
leikmaðurinn sem markið skoraði
hefði verið kominn á hreyfingu
er félagi hans vippaði knettinum
yfir varnarvegg Islendinga og til
hans. Hins vegar var sjðnvarps-
myndavélunum þannig fyrir
komið á vellinum að þær náðu
ekki atviki þessu vel.
Islenzku leikmennirnir sem
Morgunblaðið ræddi við eftir leik-
inn í fyrrakvöld voru flestir sam-
mála um það að markið hefði
komið úr rangstöðu, en töldu hins
vegar erfitt að fullyrða slíkt þar
sem atvikið hefði gerzt á sekúndu-
brotum.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við nokkra kunna islenzka
Mótsstað ekki breytt - segir KSI
Mætum ekki - segja Afturelding og Reynir
SEM kunnugt er er íslandsmótunum
í knattspyrnu enn ólokið. Eftir er að
leika um eitt aukasæti f fyrstu deild
og tvö f annarri deild. Þessir leikir
eiga að fara fram dagana 10. —12.
sept. og leika þá Þór og Þróttur um
fyrstu deildar sætið 1 1. sept. á gras-
vellinum í Kópavogi, en Afturelding,
Reynir Árskógsströnd og Þróttur
Nesk. eiga að leika á malarvellinum
á Eskifirði 10.—12. sept.
Risið hafa mjög kröftug mótmæli hjá
Aftureldingu og Reyni vegna þessarar
ákvörðunar K.S í. og hafa þessi lið
gengið svo langt að neita að mæta til
keppni Blaðið sneri sér þvi til stjornar
K.S.Í og forráðamanna félaganna til að
afla sér nánari vitneskju um þessi mál
og fara svör þeirra hér á eftir, fyrst svar
K.S.Í og síðan svar félaganna
Stjórn K S I er ósveigjanlcg í þessu
máli, því sem hún hefur ákveðið verður
ekki breytt og hyggst hún beita þau lið
hörðu sem ekki mæta til keppni, enda
telur stjórnin mótbárur liðanna ekki
nægilega sterkar eða rökstuddar til að
breyta því sem ákveðið hefur verið
Mótanefnd hefur sent félögunum
skeyti til að minna þau á 1 7 , 18 og
27 grem reglugerðar K.S.Í.. en þar
stendur meðal annars
1 7 gr Lið. sem ekki mætir til leiks,
skal greiða allan kostnað af leiknum
vegna dómara, vallar, auglýsinga og
ferðalaga mótaðilans og sæta sekt að
upphæð kr 5 000
18 gr Lið sem ekki mætir til leiks
og hefur engar gildar ástæður, getur
ekki orðið sigurvegari i yfirstandandi
móti eða riðli Mótstjórn skal haga
niðurröðun i næsta mót þannig að lið,
sem ekki hefur mætt til leiks án gildra
ástæðna, fái ekki leiki á heimavelli
næsta keppnistimabil
27 gr Mæti lið ekki til leiks, skal
leikurinn dæmdur tapaður, og skal
liðið sæta sektum samkvæmt 1 7 gr "
Páll Sturluson hjá Aftureldingu hafði
þetta um málið að segja
,,Við mætum ekki til leiks á Eskifirði
þrátt fyrir hótanir mótanefndar Við
teljum völlinn alls ekki hlutlaúsan og
bendum auk þess á að aðstaða Þróttar
er margfalt brtri en hinna liðanna, sem
þurfa einnig að standa undir miklum
ferðakostn iði, meðan Þróttarar eru 25
mínútur a* aka á milli
Við erum óánægðir með vinnubrögð
mótanefndar í þessp máli og teljum að
hún hefði átt að taka boði Vest-
manneyinga, sem buðu full afnot af
grasvelli sinum áður en ákveðið var að
leikið skyldi á Eskifirði, en við teljum
rangt að leika á möl, þar sem bæði við
og Reynir leikum á grasi Er þetta enn
einn kosturinn-fyrir Þrótt Stjórn K S I
virðist ekki afar ánægð með þetta, að
minnsta kosti sagði einn úr henni í
samtali við okkur, að þetta hefði verið
miður heppileg ákvörðun. Og að
lokum: Ætlar stjórn K.S í. að láta þessa
vitleysu viðgangast?.
Bjarni Jóhannsson hjá Þrótti var
ánægður með ákvörðun mótanefndar,
hann sagði að timi væri kominn til að
Þróttur losnaði við kostnaðarsöm og
erfið ferðalög sem ávallt hafa orðið
hlutskifti liðsins síðan það tók fyrst þátt
i úrslitum 3 deildar. ,,Við æfum af
fullum krafti og komum sterkir i úrslit-
in, sem vonandi verða, þrátt fyrir mót-
mæli hinna liðanna Okkur finnst fram-
koma þeirra leiðinleg og teljum stjórn
og mótanefnd K.S.Í hafa allan rétt í
þessu máli "
Gylfi Baldvinsson hjá Reyni sagðist
litlu vilja bæta við það sem fram væri
komið, aðalatriðið væri að þeir væru
það óánægðir með ákvörðun K.S í, að
þeir ætluðu ekki að mæta til leiks ,.Við
teljum að völlurinn sé ekki hlutlaus og
auk þess viljum við leika á grasi, en
ekki möl Við teljum það ekki rétta
stefnu hjá K.S í að setja úrslitaleikina á
möl, þegar hægt er að fá grasvelli Við
höfum því ákveðið að sitja heima og
taka afleiðingunum af því "
Fari svo að Afturelding og Reynir
mæti ekki til úrslitakeppninnar á Eski-
firði, munu Þróttarar á Neskaupsstað
leika i 2 deild að ári svo og Fylkir sem
varð í fjórða sæti í úrslitakeppni þriðju
deildarinnar í ár
H.G.
knattspyrnudómara og spurðu þá
álits.
Guðmundur Haraldsson: Það
vildi þannig til að ég sat á þeim
stað í stúkunni að ég var í beinni
línu við atvikið og sá það mjög
vel. Ég var strax sannfærður um
að leikmaðurinn sem skoraði,
hefði verið rangstæður og sann-
færðist enn betur þegar ég sá
myndina í sjónvarpinu. Hann var
greinilega lagður af stað áður en
sá, sem tók aukaspyrnuna,
spyrnti knettinum og kominn inn
fyrir íslenzku varnarleikmenn-
ina. Það sem gerðist þarna, að
mínu mati, var það að það voru
ekki bara íslenzku varnarleik-
mennirnir sem „frusu“ eitt and-
artak heldur og línuvörðurinn,
sem var þó ágætlega staðsettur til
að sjá hverju framfór.
Magnús V. Pétursson: Ég
treysti mér alls ekki til þess að
fullyrða neitt um hvort leikmað-
urinn var rangstæður eða ekki.
Atvik þetta gerðist á andartaki og
þegar setið er í stúku er erfitt að
átta sig nákvæmlega á því sem
gerist. Ég tel sjónvarpsmyndina
ekki sanna neitt né afsanna. Leik-
maðurinn sem tók aukaspyrnuna
tók alllangt tilhlaup og ég er á því
að leikmaðurinn sem skoraði hafi
verið lagður af stað áður en hann
spyrnti. Spurningin er þó fremur
sú, hvort Jón Pétursson, sem
einnig lagði af stað, hafi ekki ver-
ið enn innar, þegar leikmaðurinn
sem tók aukaspyrnuna lyfti knett-
inum yfir íslenzku vörnina.
Óli Ólsen: Ég treysti mér alls
ekki til þess að skera úr um þetta
atriði. I sjónvarpsmyndinni virð-
ist leikmaðurinn vera rangstæð-
ur, en ég tel myndina ekki þannig
tekna að unnt sé að átta sig á
afstöðu leikmanna á vellinum eft-
ir henni. Þarna er um að ræða
atvik þegar örfá sekúndubrot
skera úr um hvort maðurinn er
rangstæður eða ekki, og því
óhugsandi að segja til um það
eftir á.
Einar Hjartarson: Ég sat ekki á
þeim stað í stúkunni að ég ætti
gott með að átta mig á því hvað
gerðist, og ég tel að sjónvarps-
myndin segi lítið til um staðsetn-
ingu leikmanna. Hins vegar sá ég
að línuvörðurinn var hárrétt stað-
settur, og ég treysti honum
manna bezt til þess að hafa séð
hvað gerðist. Hann sýndi það í
báðum leikjunum, að hann var
mjög vakandi fyrir því sem gerð-
ist á vellinum og gerði sig ekki
sekan um villur. Ég ræddi um
atvikið við hann eftir leikinn, og
sagðist hann ekki hafa verið í
minnsta vafa um að markið var
löglega skorað.
Fimleikaflokkar frá Ollerup
- sýna í Vestmannaeyjum, Reykjavík og Akureyri
N.K. SUNNUDAG á að vígja
Iþróttahús Vestmannaeyja. 1
vfgslunni taka þátt leikfimiflokk-
ar karla og kvenna frá fþrðtta-
skólanum I Ollerup f Danmörku.
Flokkar skólans eru heimskunnir
fyrir sýningar sfnar. Sfðast
dvöldu þeir f Japan og sýndu þar
og hlutu mikið lof.
Þessir flokkar verða í Vest-
mannaeyjum og einnig munu þeir
sýna í Reykjavík mánudaginn 13.
september f Iþróttahúsi Haga-
skólans. Síðan heimsækja þeir
Akureyri og sýna þar í Iþrótta-
skemmunni miðvikudaginn 15.
september. Áður en flokkurinn
heldur utan hefur hann kveðju-
sýningu í Laugardalshöllinni og
verður hún föstudaginn 17. sept-
ember.
Tvívegis áður hafa flokkar skól-
ans sýnt hér og komust þá færri
að en vildu til þess að sjá sýning-
arnar.