Morgunblaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 Kristín Helgadótt- ir—Minningarorð Fædd 21. apríl 1888. Dáin 24. ágúst 1976. Með Kristínu Helgadóttur frá Alfatröðum í Hörðudal er mann- kostamanneskja gengin. Hún öl aldur sinn að mestu leytí í Dala- sýslu, bjó lengst af að Álfatröð- um, eða 44 ár alls. Bernsku- og unglingsárin ólst hún upp hjá for- eldrum sínum, Helga Guðmunds- syni, hreppsstjóra, og Asu Kristjánsdóttur. Hún fæddist að Hóli í Hörðudal 21. apríl 1888 og síðar flutti fjölskyldan að Ketils- stöðum. Á þeim árum var það ekki almenn regla að konur menntuðust og Kristín var ein þeirra fáu sem fóru suður til mennta. Hún stundaði nám í Kvennaskólanum í þrjú ár og lauk prófi vorið 1914. I stað þess að setjast að á mölinni og „hafa það gott“ eins og sagt er, sneri hún aftur heim til Dala, þótt ekki væru þar rafvædd býli eða renn- andi vatn inn í hús. I Fremri- Vífilsdal bjó hún ásamt eftirlif- andi manni sínum, Hirti ögmundssyni, um skeið og einnig í Stykkishólmi. Árið 1926 fluttu þau að Alfatröðum i Hörðudal og bjuggu þar alla tíð þar til þau brugðu búi og fluttu suður til Reykjavíkur. 1 Álfatröðum beið þeirra hjóna forystuhlutverk. Hjörtur var hreppsstjóri sveitar- innar og Kristín formaður kven- félagsins. Sú óhjákvæmilega kvöð sem fylgir slíkum störfum er tíðar gestakomur og talsverður erill jafnvel þó um hábjargræðistim- ann sé. Þau voru höfðingjar heim að sækja. Ég kynntist Kristínu fyrir um það bil 20 árum, þegar hún var húsfreyja að Álfatröðum. Við stóra eldhúsborðið var gjarnan samankominn hópur gesta úr Fæddur 12. júll 1912. Dáinn 3. september 1976. 1 dag verður kvaddur i F'oss- vogskirkju prúðmennið Magnús Bergmann Sigurðsson er varð bráðkvaddur að heimili sínu þann 3. sept. s.l. Magnús fæddist að Geitagili i Örlygshöfn þ. 12. júlí 1912, sonur hjónanna Sigríðar Guðmunds- dóttur og Sigurðar Jónssonar. Hann ólst upp hjá foreldrum sín- um og gekk að algengum störfum, til sjós og lands, eins og flestir í þá daga. 1954 gekk hann að eiga eftirlif- andi konu sina Nönnu, dóttur Sveinbjargar Sigfúsdóttur og Péturs Hoffmanns Salómonsson- ar, og settust þau að á Patreks- firði. Síðustu árin bjuggu þau I Reykjavík. Nönnu og Bergmanni varð fimm barna auðið, 3ja sona og 2ja dætra. Einnig ólu þau upp dóttur Nönnu, sem hann reyndist bezti faðir. Öllum drengjunum hafa þau orðið að sjá á bak aftur en dæturnar lifa. Magnús Berg- mann var óvenju vel gerður mað- ur, hæglátur í umgengni en þó glaðsinna. í öll þau ár sem ég þekkti hann sá ég hann aldrei skipta skapi. Hann var mikill elju- maður, einnig mjög verklaginn og lét sig aldrei vanta til vinnu svo fremi hann kæmist úr rúminu, en síðast liðin 13 ár hefur hann strítt við þann sjúkdóm, sem nú hefur orðið honum að aldurtila. Síoustu dagana var hann óvenju lasinn, en gekk þó eigi að ýmsum áttum. Það var alltaf pláss fyrir eina eða einn í viðbót og viðurgerningur siikur að veru- lega reyndi á viljaþrekið. A sumr- in komu ættingjar úr þéttbýlinu að njóta friðarins í sveitinni eða taka þátt i hinum fjölbreyttu störfum sem líf í sveit býður upp á. Dætur Kristinar og Hjartar eru þrjár, þær Ragnheiður, Ása og Erla. Þær vörðu gjarnan sumar- leyfum sinum heima í Alfatröð- um. Barnabörnin sóttu þangað mjög og lærðu sitthvað um verk- lega menningu á tslandi. Slíkt gat enginn skóli kennt þeim eins vel og amma Kristín og afi Hjörtur í sveitinni. Og svo vorum við flakk- ararnir aufúsugestir. Við stóra eldhúsborðið var margt skemmti- iegt skrafað áður en farið var í háttinn á kvöldin. Það var talað um stjórnmál og skólahald, bú- skap og mannlega veru í landinu. Þetta var nefnilega á þeim árum þegar gott fólk gaf sér tíma til að blanda geði i stað þess að leita afþrey ngar hvert á sinn hátt. Þá réð ekki lúxusinn i iveruhúsinu hamingju manna, að minnsta kosti ekki hamingju þeirra Alfatraðahjóna. Aldrei heyrði ég Kristínu orða það að vantaði þessa eða hina vélina til heimilis- halds. Hún komst vel af án slíkra hluta. Þó skorti aldrei neitt, hvorki í mat né öðru viðurværi. Kristín veitti öðrum af því ríki- dæmi sem verður til I þeli hugans og því viðmóti sem er öðrum til góðs. Þess vegna þótti okkur vænt um hana og þess vegna komum við ailtaf aftur og aftur að Álfa- tröðum, skyid sem óskyld. Kristín Helgadóttir var trúuð kona og sótti kirkju regulega. Kærleiksboðskapur kristindóms- ins var henni uppspretta sem hún síður til vinnu sinnar og var ný- kominn heim frá vinnu þegar kallið kom. Nokkrum mínútum áður en hann sofnaði sagði hann við konu sína, að sér væri ekkert að vanbúnaði ef ekki væri litla dóttirin, aóeins 6 ára gömul. Einn- ig hafði hann orð á, að það væri góður dauðdagi að fara fljótt. Þá fékk hann aðsvif, en virtist svo jafna sig aðeins, stóð upp, fór úr skóm, og lagðist fyrir í rúm sitt. Eftir örskamma stund var öllu lokið. Þannig gekk dauðinn jafn hljótt um garð hjá honum og hann hafði lifi sínu lifað. Gunnar Pétursson. Mann setur hljóðan þegar góð- ur vinur hverfur á braut. I>á koma fram í hugann allar þær mörgu ánægjustundir sem við höfum átt saman á rúmlega 20 ára tímabili. Fjölskyldur okkar eru tengdar sterkum fjölskyldubönd- um enda var vinfengi Magnúsar slíkt að aldrei bar skugga á. Hann var prúður maður, snyrtimenni, góðmenni. Magnús var viðræðugóður og þótt við værum ekki alltaf sam- mála lét hann dægurmál ekki breyta skapi sínu. Það var vitað að Magnús var ekki heill heilsu hin siðari ár, samt sem áður lét hann lítið á því bera, hann stundaði vinnu sina af venjulegri kostgæfni fram á sið- ustu stundu. Vist er að Magnús hefur grunað að hverju dró, en hann æðraðist sótti kraft og viljaþrek til. Vilja- kraftur hennar var einstæður. Siðustu árin átti hún við veikindi að striða. í stað þess að barma sér eða kvarta sótti hún til baráttu til þess að sigrast á sjúkleika sinum. Með eigin atorku og hjálp góðra lækna fékk hún sjónina aftur eft- ir að hafa verið nær þvi blind einn vetur. Hún reis svo aftur seinna upp úr alvarlegum veik- indum staðráðin I að safna kröft- um á ný. Það tókst. Síðustu sex æviárin bjuggu þau hjónin í Reykjavik, að Laugarnes- vegi 118. Það var mikið átak að yfirgefa Dalina. Það vissu þeirra nánustu, en um það var aldrei haft hátt frekar en annað sem erfitt var í lífinu og þurfti glimu við. Börnin min voru rétt nýfarin að tala þegar þau fóru að kalla hana „ömmu á Laugó“. Þegar barn grét gaf hún þvi það sem það þurfti — tlma, athygli, ástúð. Þannig var Kristin raunar við all- ar manneskjur, þvi að hún var auðug af þeim verðmætum sem mest virði eru og aldrei verða metin til fjár. Þannig minnist ég hennar nú þegar leiðir skilja og kveð hana með þakklæti. Inga Birna Jónsdóttir. ekki. Hann var búinn að ganga þannig frá hinum ótrúlegustu hlutum og málefnum sem honum hefur þótt skipta máli, allt skyldi vera í röð og reglu, þannig var hann. Við hjónin viljum þakka for- sjóninni fyrir að hafa gefið okkur tækifæri til að verða samferða slíkum öðlingsmanni sem Magnús Bergmann var, það er mikið lán að hafa átt slíkan mann að vini. Við þökkum samfylgdina. Við vottum konu hans og dætr- um okkar innilegustu samúð. Helgi Jóhannsson. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast 1 sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða hundnu mðli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. Kirkjufélag Digranes- prestakalls efnir til happdrættis FYRIR 5 árum var Kópavogs- prestakalli skipt I tvö, Digranes- og Kársnesprestakall. Gjáin, er sker miðbæinn skiptir löndum, — þannig að Digranesprestakall nær yfir Austurbæinn. Ut frá því var gengið, að söfnuð- urnir báðir ættu Kópavogskirkju og notuðu til helgihalds á jafn- réttisgrundvelli. Þetta tel ég þó nánast bráðabirgðasamkomulag, en tæpast raunhæfa framtíðar- lausn. Það kom og brátt til tals, að æskilegt væri, að Digranessöfnuð- ur ætti einhvern samastað innan prestakallsins, þar sem ferming- arundirbúningur gæti farið fram, barnastarf og félagslíf safnaðar- ins ætti skjól. I ársbyrjun 1975 var Kirkjufé- lag Digranesprestakalls stofnað og þegar á fyrstu fundum þess var rætt um nauðsyn þess að koma upp húsi til bráðabirgða, þar sem bið gæti orðið á því, að endanleg ákvörðun yrði tekin um staðsetningu og gerð safnaðar- miðstöðvar í prestakallinu. Sóknarnefnd Digranespresta- kalls var skrifað um málið og heit- ið stuðningi Kirkjufélagsins. Er skemmst af því að segja, að umrætt safnaðarhús er nú risið af grunni við Bjarnhólastig austan- verðan, nokkurn veginn miðsvæð- is I prestakallinu. Fé skortir til að búa húsið svo, að það geti gegnt hlutverki sínu þegar i haust, sem að er stefnt. Kirkjufélagið hefir þegar safn- að kr. 500.000,- er nota á til kaupa á húsgögnum, en meira fjár er þörf og því hefir fjáröflunar- nefnd félagsins nú ákveðið að hleypa happdrætti af stokkunum. Vfst er í mörg horn að líta, en ef safnaðarmenn allir leggjast á eitt og kaupa miða eftir efnum og ástæðum, þá getur það ráðið úr- slitum, ekki bara um búnað bráðabirgðahússins, heldur getur það gefið vísbendingu um vilja safnaðarins varðandi framtiðar- starfsaðstöðu innan prestakalls- ins. Happdrættismiðarnir verða boðnir til sölu nú næstu daga og ég vona, að sölumenn fái góðar móttökur. Þorbergur Kristjánsson. — Hlíðarendi Framhald af bls 11 — heyrist í raun og veru til sjáv- arins hingað upp eftir? „Öjá, það heyrist þegar hljóðglöggt er.“ Hvað verður um Hliðarenda — fer hann að lokum í eyði? — „Nei, ekki hef ég trú á því og ekki ef fjölskyldan fær við ráðið,“ svarar Ingibjörg. Bróðir hennar, Guðjón, er bóndi að Rauðuskrið- um, framan Þverár og nytjar heirnahaga að Hliðarenda, þarna eru búsaddarlega grösug tún. „En ef einhver settist hér að,“ segir Ingibjörg, „yrði að reisa nýtt íbúðarhús og raunar bæta allan húsakost og það myndi ekki kosta lítinn pening. En vonandi verður það gert þótt seinna verðí." Ég kveð þau hjón, Ingibjörgu Svöfu og Ingvar, og held heim á leið. Sagan er enn með í förinni og við tökum á okkur krók, kom- um við í lundi Þorsteins Erlings- sonar, fyrir innan Hlíðarendakot. Brjóstmynd Þorsteins horfir í suður, en yfir henni gnæfir hátt klettabelti, og foss fleygir sér fram af brúninni. Oft sleit ég nauðugur augu mín frá þeim indælu brekkum og hæð- um, sem litu á mig brosandi og liðu svo hjá á léttum og angandi klæðum. Ljósm/Texti Ms — Heimild: Jón Skagan, Saga Hlíðarenda í Fljótshlíð t Móðir okkar KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR Skólabrú 2, andaðist i Landakotsspítala. 8 september Stefán Ólafsson, Þorsteinn Ólafsson og Ólafur Ólafsson. Magnús Bergmann Sigurðsson - Minning ORÐ í EYRA Grunn- speki Aldrei hefur Jakob verið í nokkrum minnsta vafa um að grunnskólinn er eitt mesta snilldarverk sem upp- hugsað hefur verið á landi hér enda settur á laggirnar umþaðbil sem svokallaðir frændur vorir á Norðurlönd- um voru búnir að fá sig full- sadda og vel það af sínum poppstofnunum. Hér áður fyrri þótti ýms- um sæmilega greindum mönnum hæfilegt að venju- legir skólar störfuðu frá veturnóttum til sumarmála. Hinum hluta ársins skyldu nemendur verja til að afla fjár og taka þátt í lífsbaráttu þjóðar sinnar. — Auðvitað er útí hött að halda slíkum kenníngum fram á vorum dögum. Þó september hafi laungum boðið únglingum hvað fjölbreyttust viðfángs- efni til sjávar og sveita er öllum málkvörnum, rit- fauskum og silkihúfum menntakerfisins ljóst að það er öllum fyrir bestu að loka únglínga inni í kennslustof- um nokkru áður en sumri hallar og hausta fer. Enda hafa svíar gert slíkt leingi. Og þeir eru sem kunnugt er nútímamenn og setja próf og einkunnir upp í normal- kúrfu (hvur fjandinn sem það nú annars er) einsog frægt er orðið. Það skipt- eingu að íslenzka sumarið er stutt og veðráttan getur tek- ið uppá þeirri ósvinnu að vera stórum blíðari i sept- ember en í ágúst. Inn skulu allir — nema þeir taki það út í enn leingri innisetu að vori. Nú má vel vera að sumir þeirra sem sátu aðeins á skólabekk í svartasta skammdeginu og kannski tæplega það hafi reynst sæmilegir þegnar þegar til kastanna kom. En við stefn- um að flóknu nútimasamfé- lagi einsog prófanefndir og félagsfræðingar vita manna best og þessvegna er nauð- synlegt að leingja dvölina í skólastofunum. í gamla daga voru lika til letíngjar og haugaletíngjar og prakkarar og tossar og hættu sumir f skóla og gerð- ust verkamenn allgóðir fyrir aldur fram. Slíkir fyrirfinn- ast ekki leingur heldur ein- úngis nemendur með sér- þarfir og dittó með hegðun- arvandkvæði. Og ekkert er sjálfsagðara en allir sitji jafnleingi I skóla og læri jafnmikið. Það er hið fullkomna jafnrétti. Að vísu halda einstaka gamaldags kennarar því fram að það sem einn lærir á viku taki annan ævina alla að tileinka.sér ef hann nær því þá nokkurntímann. Með tilliti til þess og alhliða þroska grunnskólamanna yf- irleitt væri ekki órökrétt að leingja skólaárið um þessa þrjá mánuði sem enn standa eftir af sumarleyfi íslenskra skólanemenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.