Morgunblaðið - 10.09.1976, Síða 11

Morgunblaðið - 10.09.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 11 Ingvar Þórðarson og Ingibjörg Svafa Helgadóttir. henni allri. Vigfús var faðir Bjarna Thorarensens, skálds og amtmanns á Möðruvöllum. Bjarni kom að Hlíðarenda með foreldr- um sínum 4 ára gamall og ólst upp i Fljótshlíðinni. Það er því ekki undarlegt þótt honum hafi fund- izt flatneskja Sjálands „sem nef- laus ásýnd, augnalaus með“ í sam- anburði við útsýnina frá Hliðar- enda: „öðruvísi er að sjá á þér hvítfaldinn há heiðhimin við.“ Þannig heldur sagan áfram að rekja ævi Hlíðarenda og ábúenda hans. Nú er ekki lengur búið þar. En i gamla íbúðarhúsinu fer ég á fund Ingibjargar Svöfu Helga- dóttur, sem hefur það sem sumar- bústað. Ingibjörn Svafa er fædd og uppalin á Hiíðarenda. Faðir hennar, Helgi Erlendsson, bjó þar eins og gerðu faðir hans, afi og langafi. Ingibjörg og Ingvar Þórð- arson, maður hennar, gengu með mér um hlaðið, upp fyrir bæinn og bentu á hóla og hæðir, sem bera nöfn til vitnis um fyrri ábú- endur. „Þarna var í minni æsku ofur- lítill hóll, sem var kallaður Sams- reitur eftir hundinum hans Gunn- ars,“ sagði Ingibjörg. „Hér norður af bænum má enn sjá móta fyrir garði, hann er kallaður húsagarð- ur. Þar hafa e.t.v. húsin staðið allt frá timum Gunnars. — Jú, auðvit- að lásum við Islendingasögurnar, þær voru okkur Ijóslifandi fyrir augum, þvi öll örnefni t.d. í Njálu, voru okkur svo vel kunn.“ Við ræðum um sögur og kvæði. Kann Ingibjörg Gunnarshólma? „Já, það geri ég,“ svarar hún bros- mild og fyrir fortölur fer hún með allt kvæðið og við okkur blasa nöfnin og atburðirnir. „. . . úr rausnargarði, háum und- ir Hlíð, þangað sem heyrist öldu- falla einum. ..“ Framhald á bls. 30 Minnisvarði Þorsteins Erlingssonar. Valdimar Björnsson fyrrverandi fjármálaráðherra Minnesotaríkis 70 ára „Vfða til þess vott ég fann, þótt vendist oftar hinu, að Guð á margan gimstein þann, sem glóir f mannsorpinu**. Hjálmar Jónsson frá Bólu. Þessar linur eru heldur síðbún- ar, en þar sem áðrir hafa ekki orðið til þess, leyfi ég mér að minna Islenzku þjóðina á þennan einstaka heiðursmann og ólaun- aða sendiherra hennar á erlendri grund, sem nú stendur á tíma- mótum. Sá sem dvelur langdvölum erlendi hlýtur að sjá land sitt og þjóð í nokkuð öðru ljósi en hinn, sem ekki hleypir heimdraganum. Fjarlægðin gerir að sjálfsögðu fjöllin blá, en á hinn bóginn fæst betri samanburður á mönnum og mannlífi um leið og maður kynn- ist erlendum þjóðum. Mér virðist það allútbreiddur misskilningur hérlendis, að í Bandaríkjum búi mestmegnis skúrkar, og að hugur fólks og athafnir þar I landi snúist fyrst og fremst um peninga. Það kom því vfst fáum á óvart, þegar upp komst um misferli i búðum Nixons, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem kennt er við „Watergate“ og varpaði skugga á annan stjórnmálaflokk þjóð- arinnar, Repúblíkanaflokkinn. Hins vegar þótti víst sumum skattsvikaranum á Islandi furðu- legt, að varaforsetinn þyrfti að láta af embætti og slyppi naum- lega við fangelsi fyrir þá „smá- yfirsjón" að þiggja gjafir og stela undan skatti, meðan hann gegndi öðru embætti, og að forsetinn sjálfur hrökklaðist frá embætti með skömm fyrir að hygla sinum mönnum og afla upplýsinga um andstæðingana með ólöglegum hætti. Siðan þetta mál upphófst, hefur allmikið vatn runnið til sjávar og smám saman virðast augu manna hér á landi vera að opnast fyrir því, að nokkuð víða sé pottur brot- inn í embættisrekstri, ekki sízt hvað varðar fésýslu og skatt- heimtu, þótt menn séu hér ekki jafnskilyrðislaust látnir standa reikningsskil gerða sinna og i Bandarikjunum. Þetta má virðast nokkur útúrdúr og mál, sem ekki komi Valdimari Björnssyni við. En því er ég að gera þennan samanburð, að Valdimar stóð einn af sér fylgistap Rebúblikana, þegar næst var gengið til kosn- inga i Minnesotaríki eftir „Watergate" hneykslið og var enn kosinn með yfirburðum, þegar aðrir flokksbræður hans félLu. Þá gátu Islendingar í Minnesota bor- ið höfuðið hátt vegna þess að þessi afkomandi íslenzkra vikinga var álitinn ímynd hins heiðarlega embættismanns, sem aldrei hefur látið blindast eða blekkjast af gylliboðum óvandaðra manna, og vitnað til hans sem andstæðu þeirra Watergate-manna. Hann hefur nú iátið af embætti eftir margra ára þjónustu og yfirgefið vlgvöll stjórnmálanna án þess að rogast með byrðar veraldlegs auðs á herðum sér, en með hrein- an skjöld, sem er meira en sagt verður um marga. Til þess að skilja það traust, sem þessi arf- taki islenskrar menningar naut i milljóna riki, verða menn að gera sér ljóst, að I Bandarikjunum er kosið fyrst og fremst um menn sem einstaklinga, en aðeins í öðru lagi um þá sem fulltrúa flokka. En hvað skyldi hafa gefið Valdi- mari siðferðisstyrk til að villast aldrei i völundarhúsi stjórnmála og fjármála? Við kynni af honum, og reyndar systkinum hans öðrum, fer ekki hjá þvi, að maður sjái þar koma fram hið bezta, sem norrænn hugsunarháttur og hin gainla islenzka sveitamenning hafa upþ á að bjóða að viðbættu kristilegu uppeldi. Valdimar er alinn upp i fjarlægu landi, en við rammislenzka arfleifð i Minne- otabyggð í Minnesotafylki, þar sem afkomendur landnemanna urðu að treysta á mátt sinn og megin og brutust áfram úr fátækt án hjálpar opinberra aðila, en i þess stað kom samhjálp einstakl- inganna, sem báru byrðar hver annars. Ég hygg, að til þessa megi að nokkru rekja hina einstöku og óeigingjörnu hjálpsemi Valdi- mars við landa, sem lent hafa í vandræðum handan hafsins. Og frá litlu kirkjunni I Minneota, þar sem sr. Friðrik Friðriksson prédikaði á þeim árum, kemur þekking hans á islenzkum sálm- um og sá styrkur, sem hann sækir enn í yrkingar Hallgríms Péturs- sonar. Hitt er mér óskiljanlegt, hvernig hann hefur aflað sér ein- stakrar þekkingar á ættum fólks og uppruna á tslandi og jafnvel i Noregi, enda þótt hann dveldist hér á landi í nokkur ár á stríðsár- unum. Frá þeim tíma muna marg- ir hinn prúða og drengilega liðs- foringja í bandaríska flotanum, sem tók reyndar með sér héðan sina ágætu konu, Guðrúnu Jóns- dóttur, og fyrstu dótturina, sem fæddist i Camp-knox bragga vestur á Melum. Siðan Valdimar fluttist aftur vestur til Minnesota, held ég að segja megi, að hann hafi verið ólaunaður sendiherra Islands í Bandaríkjunum og er það með ólikindum, hvað hann hefur verið beðinn um að hjálpa og greiða götu landans. Það er orðinn ærið stór hópur tslendinga, sem notið hefur fyrirgreiðslu og hjálpar Valdimars og gestrisni á heimili hans og Gullu. Ég leyfi mér að þakka þeim og reyndar Björnson-systkinum öllum fyrir hönd þessa hóps og óska þess, að þau megi öll njóta rólegs og fagurs „indíána sumars" í skuggum trjánna á Vesturbakka Mississippi árinnar. Auðólfur Gunnarsson. Miðstöð farskráningar Flug- leiða til Reykjavíkur í vetur FYRIRHUGAÐ er að I vetur verði farskrárdeild Flugleiða ( Reykjavfk gerð að miðstöð allrar farskráningar félagsins eftir að farskráning félagsins f New York, Chicago og Nassau verður felld undir deildina f Reykjavfk. Eins og skýrt var frá í fréttum sl. vor tóku Flugleiðir i þjónustu sina tölvu til farskráningar I skrifstofu félagsins á Reykjavík- urflugvelli í april, en nokkrar skrifstofur félagsins erlendis höfðu þá um skeið notað slikan tölvubúnað. Með aðstoð tölvunn- ar, sem er í Atlanta í Bandarikj- unum, hefur farskrárkerfi félags- ins stórbatnað og er nú unnt að staðfesta eða breyta farpöntunum á nokkrum sekúndum og fá upp- lýsingar um hversu mikið er bók- að í hvert flug, í hvaða flug hver farþegi er bókaður o.s.frv. Að sögn tslaugar Aðalsteinsdóttur deildarstjóra í farskrárdeild Flugleiða hefur nýja kerfið gefizt mjög vel og bætt þjónustu félags- ins á þessu sviði, enda þótt við vissa byrjunarerfiðleika hafi ver- ið að fást á meðan starfsfólk var að venjast tölvuvinnslunni. Tölvukerfið, sem I daglegu tali er nefnt Gabriel, er eins og áður sagði i Atlanta i Bandaríkjunum. Tölvan er eign SITA, sem er al- þjóðlegt hlutafélag i eigu fjöl- margra flugfélaga, og annast fjar- skiptaþjónustu fyrir félögin, en alls eru það 14 félög sem nota Gabríel til farskráningar. Það eru SAS (þ.e. Ameríkuflug félags- ins), fjögur félög í Austur-Evrópu og sjö i Mið- og Suður-Ameriku auk Loftleiða og Flugfélags Is- lands. Höfuðstöðvar SITA eru i Paris, en farskráningartækin á Is- landi senda boð sín um sæstreng til London og þaðan til Bandarikj- anna. Síðar meir er fyrirhugað að senda um gervihnött frá Islandi til Bandarikjanna. tslaug Aðalsteinsdóttir deildarstjóri f farskárdeild Flugleiða ásamt starfsfólki sfnu við tölvuskermana sem eru f sambandi við tölvuna Gabrfel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.