Morgunblaðið - 10.09.1976, Síða 13

Morgunblaðið - 10.09.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 13 Hún á eftir að gera sitt gagn varan sem þessi athuguli starfsmaður Plastprents meðhöndlar. Plastprent hf.: Stöndum tæknilega jafn- fætis erl. keppinautum Rætt við Eggert Hauksson fram- kvæmdastjóra „Samningur Plastprents við Áburðarverksmiðju rfkisins er fyrst og fremst stór viðskipta- iegur sigur fyrirtækisins, en hann undirstrikar einnig að fyrirtækið stendur tæknilega jafnfætis erlendum framleið- endum á þessu sviði og að við erum samkeppnisfærir hvað verð snertir. Þannig fórust Eggert Haukssyni orð, öðrum framkvæmdastjóra Piastprents h.f, þegar við ræddum við hann nú nýverið. Eins og kunnugt er af frétt- um reyndist tilboð Plastprents i áburðarsekki sem Áburðar- verksmiðja rikisins notar undir framleiðslu sína vera hag- stæðast þeirra tilboða er bárust, en alls munu um 8 er- lend tilboð hafa borizt i þessa framleiðslu. Þetta er ákaflega athyglis- verð útkoma fyrir Plastprent þegar haft er í huga að þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtækið gerði tilboð í þetta verk. Samningurinn er ekki síður at- hyglisverður fyrir þær sakir að ekki nýtur fyrirtækið neinnar tollverndar, þar sem inn- flutningur sekkjanna til áburðarverksmiðjunnar hefur verið ótollaður. Eggert sagði í viðtali við Mbl. að I sjálfu sér væri samningur- inn ekki stór hluti af ársveltu fyrirtækisins, eða um 15%, en þó væri hér um að ræða stærsta einstaka kaupsamninginn sem Plastprent hefur gert. Eggert sagði að það væri alger mis- skilningur að með þessum samningi yrðu önnur verkefni sett til hliðar eða látin blða Þetta er nýja prentvélin en hún þrefaldaði fyrri afköst fyrir- tækisins. Hægt er að prenta 4 liti I henni f einu. Eggert Hauksson framkvstj. annars tíma. „Þetta er alger misskilningur þvl I fyrra flutt- umst við I nýtt húsnæði að Höfðabakka 9 og endur- nýjuðum og jukum allan véla- kost. Endurvélvæðingin mið- aðist við það að okkur yrði kleift að framleiða áburðar- sekkina, byggingarplast, fisk- umbúðir o.fl. samhliða þeim verkefnum sem við höfum unnið að. 40 millj. kr. fjárfest- ingin, sem þrefaldaði afköst I prentun og tvöfaldaði poka- framleiðsluna, hefur þvi ekki aðeins gert framleiðsluna fjöl- breyttari heldur höfum við náð því markmiði sem við stefndum að.“ Þegar Eggert var spurður um hvað það væri helzt sem ylli þvi að tilboð þeirra hefði vverið hagstæðast, sagði hann það ef- laust vera tækjunum að þakka. „Nýju vélarnar okkar hafa sett okkur á sama pall hvað tækni snertir," sagði Eggert. Hann taldi vinnulaun skipta ákaflega litlu máli, þar sem mestur hluti verðsins væri tækjakostnaður. „Jú það kom nokkuð á óvart að ná þessum samningi svona auð- veldlega í fyrstu atrennu þvi við höfðum reiknað okkur sanngjarnan hagnað af fram- leiðslu pokanna, og svo hefur verið bitizt hart af erlendum aðilum um að fá þessa fram- leiðslu." sagði Eggert þegar við spurðum hvort þeir hefðu átt von á að ná samningum strax í upphafi. Eins og áður segir flutti Plastprent h.f. I nýtt húsnæði á siðasta ári. Þar er gólfflötur rúmir 900 fermetrar. Það hús- næði var orðið allt of litið vegna ört vaxandi starfsemi. Eggert sagði að nýja húsnæðið hefði opnað möguleika á nýrri deild sem væri fr'amleiðsla á plastfilmu, en áður fékk fyrir- tækið allar slöngur að utan en einnig frá Reykjalundi. Nýja deildin, sem er búin vélum sem kostuðu 25 millj. króna á verð- lagi síðasta árs, gerir það kleyft að framleiða 80 tonn af plast- filmu á mánuði. Hann sagði ennfremur að án þessarar rýmkunar á húsnæði og endur- nýjunar vélakosts hefði samn- ingurinn við Áburðarverk- smiðjuna verið óhugsandi. Það var fyrir 18 árum að fyrirtækið Plastprent var stofnað og fór starfsemin fyrst um sinn fram í bilskúr og starfsmenn voru 3. tJr bíl- skúrnum var farið I Vi kjallara og siðan heilan og þannig koll af kolli þar til flutt var að Höfðabakka 9, en þar vinna nú um 40 manns, og líkur eru á að sú tala eigi eftir að aukast þar sem búast má við að farið verði að vinna allan sólarhringinn, og þá á vöktum. Stækkun hús- næðis með árunum endur- speglar jafnan vöxt fyrirtækis- ins. Fyrsti pokinn sem Plast- prent gerði var undir brjóstsyk- ur en nú framleiðir fyrirtækið alla þá plastpoka sem eru á markaði hérlendis og notaðir eru til ýmissa hluta. „Það er ekki fjarri lagi að Plastprent hafi á þessu ári einu flutt ný verkefni inn i landið sem nema um 50 millj. krónum," sagði Eggert okkur, en hann tjáði okkur einnig að gjaldeyrisöflun fyrirtækisins á siðasta ári hefði numið um 2,5 millj.kr. á hvern starfsmann, og áætlað er að fyrir 1976 verði sú tala um 3 milljónir. „Á þessum tölum má sjá að Plastprent leggur mikinn skerf til þjóðar- búsins, þvi ef fyrirtækisins nyti ekki við yrði sennilega að kaupa alla framleiðsluna að utan,“ sagði Eggert Hauksson okkur að lokum. ágás Þetta er ein þeirra nýju véla Plastprents, sem framleiða 80 tonn af plastfilmu á mánuði. (ljósm.RAX). Félag þingeyskra kvenna í Rvík og nágrenni heldur haustfund sinn að Hallveigarstöðum sunnudaginn 12. sept. kl. 3 e.h. Góðar veit- ingar. Mætum vel með nýja félaga. Stjórnin 1 Skrifstofuþjálfunin Bókfærsla Þetta sérnámskeið er ætlað skrifstofufólki og þeim sem bókhaldsskyldir eru. Útskrift reikninga. Sjóðsbók, Færsla viðskiptamanna- bókar: Sundurliðunarbók. Vinnulaunaskýrslur. Eyðu- blaðaform Bankar Skatteyðublöð Bókhaldslög. Kynning á lágmarkskröfum til þeirra sem bókhaldsskyldir eru. Tvíhliða bókfærsla Tæknilegaraðferðir. Reikningsskil. Kennt er einn dag í viku. Þrjár kennslustundir hverju sinni 24 vikur alls. 28. sept.—14 des. og 11. jan —29. marz 1977. Námskeiði lýkur með prófi fyrir þá sem óska Áætluð heimavinna: þrjár klukkustundir á viku. Mímir, sími 10004 og Brautarholt 4 1 1 1 09 (kl. 1-7 e.h.) ^mmmmmm^m—^^^mmmmmmmrnm Y—-------------------- Gæðavörur Fótlagaskór með sterkum hrágúmmisóla Snið 132 Stærð: 24—41 kr. 4.285.-. Litir: Millibrúnt og mosagrænt Styðjum íslenzkan iðnað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.